BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T115547
CREATED:20210831T120953Z
LAST-MODIFIED:20220916T105921Z
UID:18855-1616803200-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristján Magnússon: Bakgarðar
DESCRIPTION:Bakgarðar\, skúrar\, þvottasnúrur og einstaka köttur. Ljósmyndarinn Kristján Magnússon skoðar með linsunni þröngt afmarkað svæði í borgarumhverfi; eingöngu staði bakatil í íbúðarbyggð í eldri hluta Reykjavíkur. Hann fangar í mynd nær mannlaus rými sem virðast þaulskipulögð þrátt fyrir óreiðukennt umhverfi. Ljósmyndaröðin ber sterk einkenni stílbragðs Kristjáns sem var þaulreyndur auglýsingaljósmyndari. \n\nKristján Magnússon (1931-2003) lærði ljósmyndun hjá Pétri Thomsen um 1960. Á sama tíma myndaði hann fyrir tímaritið Vikuna og dagblaðið Tímann. Kristján vann sjálfstætt frá árinu 1967\, opnaði ljósmyndastofu og myndaði alla tíð mikið fyrir auglýsingastofur. Ingimundur\, tvíburabróðir Kristjáns\, kom seinna inn í reksturinn og þeir unnu saman á árunum 1978-1998. \nLjósmyndasafn Kristjáns barst Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni árið 2004. \nÞar á meðal var myndaröðin Bakgarðar. Myndirnar hafði hann sjálfur valið\, unnið og gert tilbúnar til sýningar en þær birtast fyrst sjónum almenning núna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristjan-magnusson-bakgardar/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/bakgardar-titilmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T115547
CREATED:20210831T115040Z
LAST-MODIFIED:20220916T105800Z
UID:18851-1616803200-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Spessi 1990-2020
DESCRIPTION:Samtímaljósmyndarinn Spessi – Sigurþór Hallbjörnsson – hefur skapað sér einstakan stíl á sviði fagurfræðilegrar ljósmyndunar. Í verkum hans birtist iðulega blákaldur veruleikinn\, ekkert fegrað og ekkert dregið undan sama hvort myndefnið er manneskjan eða umhverfið. Kimar samfélagsins í samtvinningi við menningarlífið eru áberandi í verkum hans. Val hans og efnistök eru gjarnan ögrandi en samtímis gædd mannúð og kímni. \n\nSpessi er fæddur árið 1956 á Ísafirði. Þangað hefur hann sótt innblástur í mörg verk eins og sést í myndaröðunum Hetjur og Úrtak. Nýjasta verkefni hans C19 var einnig tekið í heimabæ hans. \nSpessi nam ljósmyndun við AKI – Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi og útskrifaðist þaðan árið 1994. Ljósmyndir og vídeóverk hans hafa birst á fjölmörgum einkasýningum og samsýningum hér á landi og erlendis m.a. í Hollandi\, Svíþjóð\, Finnlandi\, Lettlandi\, Bandaríkjunum og Bretlandi. \nFerill Spessa spannar meira en 30 ár og á yfirlitsýningu hans má sjá þær ótal sögur sem birtast í verkum hans. Stoltar hvunndagshetjur\, einmana bensíndælur\, yfirgefin rými\, beygluð byltingarvopn\, byssueigendur\, blokkaríbúar og listamenn\, sumir vandræðalegir aðrir sjálfsöruggir. \nVerk Spessa eru spegill á íslenskt samfélag og fela í sér mikilvæga samfélagsrýni. \nListamaður: Spessi \nSýningastjóri: Linda Ásdísardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/spessi-1990-2020/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/spessi-1990-2020-titilmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20220103
DTSTAMP:20260530T115547
CREATED:20211006T154841Z
LAST-MODIFIED:20220916T111211Z
UID:19521-1633132800-1641167999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Mannamyndasafnið
DESCRIPTION:Í Ljósmyndasafni Íslands er safnheild sem ber heitið Mannamyndasafn. Í henni er að finna ólíkar gerðir mynda\, þar á meðal málverk\, ljósmyndir\, útsaumsverk og höggmyndir. Breiddin er mikil\, frá því að vera skyndimyndir yfir í að vera ómetanleg listaverk. Þær eiga það sameiginlegt að sýna fólk. \n\nÁ sýningunni er safnkostinum gerð skil í gegnum 34 þemu sem ná ýmist yfir myndefni eða gerð mynda. Þar má til dæmis skoða elstu mannamyndina sem þekkt er á Íslandi\, ljósmyndir af þátttakendum í fyrstu íslensku fegurðarsamkeppninni og myndir af ýmsum hópum\, gömlum og nýjum. \nMannamyndasafnið var stofnað árið 1908 og var tilgangur þess að safna myndum af öllum Íslendingum. Í því eru yfir 60.000 myndir sem ná yfir 400 ár. \nÞær hafa að mestu leyti verið gjafir frá einstaklingum og er enn í dag tekið við myndum í Mannamyndasafnið. \nSýningarstjóri: Eva Kristín Dal
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/mannamyndasafnid/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/portrait-collection.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR