Christopher Taylor: Heima
Sláturhúsið Kaupvangi 9, Egilsstaðir, IcelandSýningin samanstendur af þremur ljósmyndaseríum sem tengjast allar hugmyndinni um heimili og eru unnar á yfir 25 ára tímabili. Sumar eru teknar á hans eigin heimili, aðrar eru af yfirgefnum heimilum, og enn aðrar eru af verum sem tekið hafa sér bólstað á heimili ljósmyndarans í Frakklandi.