BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210522
DTEND;VALUE=DATE:20210922
DTSTAMP:20260530T131519
CREATED:20210831T112359Z
LAST-MODIFIED:20220916T105952Z
UID:18836-1621641600-1632268799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Katrín Sigurðardóttir: Til staðar
DESCRIPTION:Til STAÐAR er ein af þremur innsetningum/sýningum sem Katrín hefur unnið í jafnmörgum landsfjórðungum hér á landi árið 2020-21: Við Hoffell undir Vatnajökli\, á Skarðsströnd við Breiðafjörð og í Svalbarðshreppi í Norður-Þingeyjarsýslu.  \nHugmyndin að baki verkinu tengist samspili hráefnis á ákveðnum stað\, mannlegu inngripi og ferlum náttúrunnar. Verkið er sumarsýning ársins 2021 í Sýningarrými Nýpur á Skarðsströnd. \nTIL STAÐAR er innsetning í náttúrulegt umhverfi. Á sýningunni eru þrjú ljósmyndaverk ásamt heimildum um gerð verkanna\, myndband og ljósmyndir á borðum.  \nUndanfarin ár hefur Katrín unnið með jörðina og frumferla náttúrunnar í verkum sínum. Þessir ferlar\, sem eru hefðbundin viðfangsefni fornleifafræði og jarðfræði\, bera fortíðinni og minni efnisins vitni\, sýna brot af sögu jarðar og mannkyns. Katrín notast við aðferðafræði námuvinnslu þar sem hún beinlínis nemur efni úr jörð og nýtir framleiðsluferla og flutningsaðferðir sambærileg við aðferðir sem tengdar hafa verið við iðnvæðingu og nýlendustefnu.  \nÍ verkinu TIL STAÐAR  skilur á milli að Katrín skilar efninu aftur til upprunastaðar. Katrín hefur gefið efninu form byggingareininga/bygginga um stund og varðveitt augnablikið í ljósmyndunum. Síðan raðar hún einingunum að nýju á þann stað þar sem hún gróf efnið upp og við tekur náttúruleg þróun; jörð snýr aftur til jarðar.  \nÍ verki Katrínar má lesa marglaga frásögn um örlög manneskjunnar.  Stef sem á öllum tímum hafa verið viðfangsefni lista og menningar. Forgengileiki tilverunnar og getan – eða vanmátturinn – til að horfast í augu við hann. En í verkinu birtist jafnframt áhugaverðar vísanir – og spurningar – um efni listaverka\, gildi listrænnar ástundunar\, markaðsásælni samtímans\, virði listaverka\, kostun og fjármagn. Undir hvaða kringumstæðum þrífast listir og menning? Hvað þarf til? Ratar listin til sinna eða er hún á tuttugustu og fyrstu öld með öllu undirorpin fjármagni stórfyrirtækja? \nVið látum gestinum eftir að finna sínar tengingar við verk Katrínar\, vissulega opnar það hugann fyrir margvíslegum hugrenningum. \n  \nKatrín Sigurðardóttir hefur á 30 ára ferli sínum sýnt skúlptúra\, teikningar\, ljósmyndaverk og stórar innsetningar sem leitast við að hafa áhrif á/umbreyta reynslu og upplifun áhorfandans. Katrín hefur átt velgengni að fagna innan listheimsins og verk hennar hafa verið sýnd hér heima og víða erlendis.  \nHún hefur m.a. verið fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum\, á Sao Paulo Tvíæringnum í Brasilíu\, Momentum í Noregi og Rabat tvíæringnum í Marokkó. Einkasýning hennar í Metropolitan safninu í New York borg árið 2010 vakti mikla athygli. Verk hennar eru í eigu Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur en einnig  stórra alþjóðlegra safna s.s. Metropolitan Museum í New York. \nSýning hennar í Sýningarrýminu að Nýp mun standa frá 22 maí og fram í október 2021. Vinsamlega hafið samband og bókið heimsókn: nyp@nyp.is
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/katrin-sigurdardottir-til-stadar/
LOCATION:Nýp sýningarrými\, Guesthouse Nýp\, Skardsströnd\, 371\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/til-stadar.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR