BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210826
DTEND;VALUE=DATE:20210912
DTSTAMP:20260530T042712
CREATED:20210824T144124Z
LAST-MODIFIED:20220916T110439Z
UID:18747-1629936000-1631404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Óskilamunir
DESCRIPTION:Hundur hleypur um Hamraborgina\, þefar upp hluti sem virðast jafn utan veltu og hann. Úr verður kort sem er háð veðri og vindum\, greining á rými í stöðugu flæði. Í andyri Midpunkt er fáni sem kortleggur óskilamuni sem fundust í Hamraborg. Gestum er boðið að þræða slóðir hlutana sem gætu hafa fundist eða týnst aftur. \nUm listamennina: \nAgnes Ársæls (f. 1996)\, Anna Andrea Winther (f. 1993) og Svanhildur Halla Haraldsdóttir (f.1992) hófu samstarf sitt árið 2018 eftir að þær útskrifuðust með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Samstarf þeirra nýtir spuna og leik til þess að fjalla um almenningsrými. Með því að skrásetja myndræna upplifun á hversdeginum hvetja þær áhorfendur til þess að veita umhverfi sínu eftirtekt. \nAgnes Ársæls vinnur með róttæka væntumþykju í verkum sínum sem kanna samband mannsins við umhverfi sitt og aðrar tegundir. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Meðal nýjustu verkefna eru útvarps innslögin Samlíf sem voru birt á Rás 1 sumarið 2021 og unnin í samstarfi við Sylvíu Dröfn Jónsdóttur. \nAgnes hefur tekið þátt í alþjóðlega samstarfsverkefninu United 1 á vegum UK Young Artists og Platform Nord\, dvalið í gestavinnustofunni In Context í Slănic-Rúmeníu og sýningarstýrt sýningunni Af stað / Go! Í Norræna húsinu ásamt Önnu Andreu Winther. Agnes er meðlimur Ræktarinnar\, listamannasamsteypu sem mun sýna á Sequences X haustið 2021. \nAnna starfar í Reykjavík og Glasgow. Hún stundar nú nám í MFA deild Glasgow School of Art og er handhafi Leverhulme MFA Bursary verðlaunanna. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum\, bæði hérlendis og erlendis og hefur haldið fjórar einkasýningar á Íslandi\, þar á meðal Skiljum ekki baun (Harbinger\, Reykjavík) og Pönnukökuverkunin (Gallery Úthverfa\, Ísafjörður). \nUndanfarið hefur hún unnið að útvarpsþáttunum og myndlistarverkefninu „Er það eitthvað ofan á brauð?“ í samstarfi við Berglindi Ernu Tryggvadóttur. Eftir útskrift hefur hún starfað sem myndmenntakennari og skipuleggjandi listaklúbba í frístundastarfi. Anna er huti af listasamsteypunni Mál/tíð. \nSvanhildur Halla Haraldsdóttir býr og vinnur í Reykjavík. Árið 2016 útskrifaðist hún með BA gráðu í Listfræði. Árið 2019 sýndi hún verk á sýningunni Öll brögð möguleg í Kling og Bang og sumarið 2020 tók hún þátt í listahátíðinni Stálsmiðjan og sýndi þar verkið Ræflar sem hún vann í samvinnu við Önnu Andreu Winther. Svanhildur starfar sem Deildarbókavörður hjá Borgarbókasafni Reykjarvíkur og vinnur þar meðal annars að undirbúningi og uppsetningu sýninga. Svanhildur er hluti af listasamsteypunni Ræktin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/oskilamunir/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/lost.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210918
DTEND;VALUE=DATE:20211002
DTSTAMP:20260530T042712
CREATED:20210917T143413Z
LAST-MODIFIED:20210927T125422Z
UID:19152-1631923200-1633132799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Eiríksdóttir & Hulda Vilhjálmsdóttir: Hæg læti
DESCRIPTION:Hulda og Heiða sýna saman í Midpunt. \n  \nÞær mála. Þær gera gjörninga. Þær flytja þulur\, performa á rafmagnsgítar. \nÞær eru heiðarlegar í þessu samtali\, \nÞær túlka lífið\, \nlífið í dag\, \nröddin\, rafmagnsgítarinn og málverkið mætast. \n  \nÚtkoman er hæg læti\, málverk\, þula\, tónverk\, teikningar\, skúlptúrar\, hljóðverk. \nOrka þeirra \ner Æsandi. \nHávaði þeirra er Róandi. \n  \nUm listamanninn Ragnheiði Eiríksdóttir: \nHeiða vinnur með andstæður í sinni listsköpun og hefur komið víða við. Hún var pönkari sem gekk í sveitaballapoppsveitina unun\, svo var hún kassagítarleikari sem spilaði rokk á rafmagnsgítar\, svo var hún noise-tónlistarmaður sem notaði kassagítar og effekta og loks fór hún að gera tónlist sem myndlist. Árið 2017 komu út 3 plötur með Heidatrubador\, sem er ekki trúbador\, og þá var komið að því að snúa dæminu við. Hún tók sér frí frá tónlist og fór undir eins að dreyma liti og ákvað að gera myndlist sem tónlist. New York-borg róar hana\, lítil sjávarþorp stressa hana upp. Hún er 50 ára óráðsett\, ómiðaldra og ekki sest í helgan stein. Hún hefur þó lífsreynslu og kannski eru loksins að vaxa á hana smá rætur\, því hún hefur ákveðið að hætta að vera hrædd við nokkurn skapaðan hlut og gera bara það sem hjartað segir henni. Hún er löngu hætt að rífa sig niður og er nú sinn eiginn aðdáandi númer 2 (mamma og pabbi hennar eru aðdáendur númer eitt). Henni er nákvæmlega sama hvort þú fílir listina hennar\, en hún er skemmtileg og það er gaman að spjalla við hana. Hún er lítil og með læti\, stór og róleg\, brosandi og döpur\, ringluð og skipulögð\, en alltaf heiðarleg og með hreint hjarta. \n  \nHulda Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 1971. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000.Hún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008. \nÁrið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. 2020 hlaut Hulda Tilberann\, myndlistarverðlaun fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi. \nHulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga Listasöfn og einkaaðilar verk eftir hana. Árið 2003 opnaði hún og rak gallerí Angelicu Smith í þrjá mánuði sem nokkurs konar gjörning. Hulda hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og myndabækur\, má þar nefna Valbrá sem kom út 2017 og Dagur Líður 2020. Frá því Hulda lauk námi hefur hún starfað sjálfstætt að myndlistinni. Verkin hennar eru tilfinningarík en samt yfirveguð. Með ljóðrænni túlkun af landslagi\, óhlutbundið og fólki. berst hún fyrir tjáningarfrelsi og verndun náttúrunnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-eiriksdottir-hulda-vilhjalmsdottir-haeg-laeti/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/Haeg-Laeti.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211106
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T042712
CREATED:20211108T122930Z
LAST-MODIFIED:20211115T101944Z
UID:20058-1636156800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Afmælisveisla
DESCRIPTION:Midpunkt is 3 years old and the Midpunkt team wants to invite you to a festival show. \nAfmælisveisla is the 42nd exhibition to be held in Midpunkt\, but it also marks the milestone that Midpunkt will be a three-year-old cultural space. On this occasion\, the curators of Midpunkt will take the opportunity to show their own work. \nWe look forward to seeing you and celebrating your birthday with you. \nAfmælisveisla opens 6th of November at 16:00 and will be open til 14th of November. \n  \nOn show: \nPLANET BROKAT by Brokat Films\, Joanna Pawlowska.  \nAnthropocene by Ragnheiður Sigurðardóttir Bjarnarson. \nÚrgangur by Snæbjörn Brynjarsson. \nPrints by Svein Snæ Kristjánsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/afmaelisveisla/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/midpunkt-birthday.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211106
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T042712
CREATED:20211108T122622Z
LAST-MODIFIED:20211115T101958Z
UID:20054-1636156800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Afmælisveisla
DESCRIPTION:Midpunkt er 3 ára og Midpunkt teymið vill bjóða ykkur á hátíðarsýningu. \nAfmælisveisla er fertugasta og önnur sýningin sem haldin verður í Midpunkt\, en hún markar líka þau tímamót að Midpunkt verður þriggja ára gamalt menningarrými. Af þessu tilefni munu aðstandendur og sýningarstjórar Midpunkt nýta tækifærið og sýna sín eigin verk. \nOkkur hlakkar til að sjá ykkur og fagna með ykkur afmælinu. \nAfmælisveisla opnar kl 16:00 þann 6. nóvember og stendur til 14. nóvember. \n  \nVerk á sýningunni: \nPLANET BROKAT eftir Brokat Films\, Joanna Pawlowska.  \nAnthropocene eftir Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnarson. \nÚrgangur eftir Snæbjörn Brynjarsson. \nPrentverk eftir Svein Snæ Kristjánsson. \n  \n  \nMidpunkt er sýningarrými sem upphefur upprennandi og alþjóðlega listamenn.  \nMidpunkt leggur upp með færa listina nær áhorfendum og inn í daglega rútínu list unnandans.  \nMidpunkt leiðir saman marga ólíka þræði\,  \nMidpunkt dregur listamenn og listunnendur á svæði sem væru annars list snauð.  \nMidpunkt skapar vettvang fyrir þá grasrót sem nú þegar er á staðnum. \nMidpunkt leggur áheyrslu á listina\, listarinnar vegna \nMidpunkt er enginn dans á rósum \nMidpunkt vill auka sýnileika listamansins \nMidpunkt er ekki sýningarrými heldur gjörningur \nMidpunkt er opið öllum og allir geta litið við \nMidpunkt er framúrstefnulegt  \nMidpunkt er frjósöm jörð listrænnar sköpunar \nMidpunkt er nýja miðjan \nMidpunkt er allt sem þú vildir vita um list en þorðir ekki að spyrja \nMidpunkt er æði \nMeiri Midpunkt og allir vinna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/afmaelisveisla/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/midpunkt-birthday.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR