Áslaug Íris Katrín: Bergmál
Listval Hólmaslóð 6, Reykjavík, IcelandÁ sýningunni, Bergmál, kannar Áslaug Íris Katrín óhlutbundin form innan myndflatarins. Negatíf og positíf form eru endurtekin milli verka þar sem þau mynda nýja myndbyggingu hverju sinni og taka á sig nýja merkingu – abstrakt innan abstraktsins. Áslaug laðast að lifandi hefð óhlutbundins myndmáls sem gefur henni rými til þess að vinna með myndheim sinn …