BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20200101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201205
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210831T151924Z
LAST-MODIFIED:20220916T105730Z
UID:18884-1607126400-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Úrval\, II. hluti: valin verk úr safneign Listasafnsins á Akureyri
DESCRIPTION:Snemma á fjórða áratug 20. aldar hóf Akureyrarbær formlega að kaupa listaverk og voru fyrstu kaupin málverk eftir Freymóð Jóhannsson\, sem hér er nú til sýnis. Í dag á bærinn um 700 listaverk af fjölbreyttu tagi. \nEftir að Listasafnið á Akureyri var stofnað 1993 og falin umsjón með verkunum var sú stefna valin að hafa sem flest verk uppi á veggjum stofnana bæjarins. Þannig er safneignin sýnileg starfsmönnum og íbúum bæjarins. \nÁ þessari framhaldssýningu er athyglinni áfram beint að safneign Listasafnsins og til sýnis eru nokkur úrvalsverk. Við val á verkunum var fjölbreytni höfð að leiðarljósi sem og kynjajöfnun en safneignin samanstendur að meirihluta til af verkum eftir karlmenn. Það er þó áhugaverð staðreynd að verkum eftir konur fjölgar þegar nær okkur dregur í tíma. \nSýningarstjórar: Hlynur F. Þormóðsson og Þorbjörg Ásgeirsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/urval-ii-hluti-valin-verk-ur-safneign-listasafnsins-a-akureyri/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/tryggvi-olafsson-dys-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210529
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210831T153723Z
LAST-MODIFIED:20220916T105958Z
UID:18897-1622246400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Takmarkanir
DESCRIPTION:Samsýning norðlenskra myndlistarmanna \nÞetta er í fjórða sinn sem tvíæringur\, sýning á verkum norðlenskra listamanna\, er haldinn í Listasafninu á Akureyri. Að þessu sinni var unnið út frá þemanu takmarkanir\, sem er augljóslega bein tilvísun í ástandið í heiminum þessi misserin. Listasafnið auglýsti eftir umsóknum um þátttöku í sýningunni og dómnefnd valdi verk eftir 17 ólíka listamenn af þeim 44 sem sóttu um. \nDómnefndina skipuðu Haraldur Ingi Haraldsson\, myndlistarmaður og verkefnastjóri Listasafnsins\, Hlynur Hallsson\, safnstjóri\, og Vigdís Rún Jónsdóttir\, listfræðingur. Titillinn Takmarkanir er misjafnlega augljós í verkunum en sum þeirra voru unnin sérstaklega fyrir sýninguna. Listræn túlkun á hugtakinu takmarkanir getur svo auðvitað verið afar fjölbreytt. \nGefin er út sýningarskrá og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna og hvort einhver rauður þráður leynist þar. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni. \nJón B. K. Ransu\, myndlistarmaður og fræðirithöfundur\, skrifar í inngangi í sýningarskránni: „Sýningin ber titilinn Takmarkanir og fer fram þegar heimsfaraldur hefur geisað í á annað ár. Á þeim tíma hefur hugtakið „takmörkun“ öðlast áþreifanlega merkingu þar sem fjöldatakmarkanir\, nándartakmarkanir og samkomutakmarkanir hafa haft mótandi áhrif á daglegt líf manna. Yfirskrift sýningarinnar vísar þannig til ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins en hún leikur líka með hugtakið vegna þess að þemasýningar eru í eðli sínu takmarkaðar. Við getum til að mynda sagt að val listaverka úr umsóknum listamanna byggi á ákveðinni takmörkun og að listamenn merktir svæði eða landshluta sé takmörkun í sjálfu sér.“ \nSýningunni Takmarkanir er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Tvíæringurinn getur\, ef vel tekst til\, orðið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri. \nSýningin er ein af sumarsýningum safnsins því eftirspurn er meðal ferðamanna\, innlendra og erlendra\, eftir myndlist af svæðinu. Safnaráð styrkir sýninguna sérstaklega. \nListamenn: \nAðalheiður S. Eysteinsdóttir (1963)\nAuður Lóa Guðnadóttir (1993)\nÁrni Jónsson (1989)\nBergþór Morthens (1979)\nBrák Jónsdóttir (1996)\nEgill Logi Jónasson (1989)\nGuðmundur Ármann Sigurjónsson (1944)\nHekla Björt Helgadóttir (1985)\nHrefna Harðardóttir (1954)\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir (1958)\nJonna – Jónborg Sigurðardóttir (1966)\nJoris Rademaker (1958)\nJón Laxdal Halldórsson (1950)\nMaría Sigríður Jónsdóttir (1969)\nSigurður Mar Halldórsson (1964)\nStefán Boulter (1970)\nTanja Stefanovic (1985) \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/takmarkanir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/bergthor-morthens-sumarnott-2021-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20220411
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210824T111254Z
LAST-MODIFIED:20220825T134029Z
UID:18629-1630108800-1649635199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hekla Björt Helgadóttir: The Wild Poem
DESCRIPTION:The work Food Bowls is created specifically for the exhibition Limitations. The bowls refer to rationing and how rations are limited\, in a broad sense\, by finances\, marriage\, sex\, nationality and status.buy orlistat online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/orlistat.html no prescription\n The bowls were drawn up with a food container in mind\, playing with forms and visual manifestations of limitations was also involved. The light colors underline how the borders of limitations can be unclear. Why is there more food in some bowls than in others?buy valif online blackmenheal.org/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/valif.html no prescription\n Can that be accepted and thereby seen as beautiful?  Or is the endless striving something that society maintains counsiously and is it worth fighting against? \nHekla Björt Helgadóttir (born 1985) works interchangeably as a visual artist  and a poet. She has held solo exhibitions and participated in numerous group exhibitions and performance events. She graduated from the Visual Arts Deparment at VMA and studied after that Creative Writing at the University of Iceland.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hekla-bjort-helgadottir-the-wild-poem/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/spiderumbrella2021.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20220411
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210824T110930Z
LAST-MODIFIED:20220916T105039Z
UID:18625-1630108800-1649635199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hekla Björt Helgadóttir: Villiljóð
DESCRIPTION:Víðast hvar í kringum okkur leynast fíngerðir töfrar. Í klifun hversdagsleikans er auðvelt að missa sjónar á þeim\, en einmitt þar liggja þeir í felum á milli ryks og skugga. Þegar síst lætur geta þeir birst okkur. Stundum eins og hugljómanir. Augnabliksvíma\, fyrir óræða fegurð sem fangar hugann. Töfrarnir geta sprottið af einu orði\, sýn eða skyndilegri minningu úr draumi og aðdráttaraflið tryllt eins og villtur hestur. \nVilliljóð er sýning ljóðsins í þrívíðu formi. Ljóðið er unnið í formi skúlptúra og annars konar myndlistarverka til að má út mörkin á milli miðlanna. \nHekla Björt Helgadóttir (f. 1985) vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og skáld. Verk hennar eru einlæg\, hnyttin og draumkennd og oft undir sterkum áhrifum frá leikhúsi og gjörningalist. Hekla hefur sett upp þónokkrar einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og gjörningaviðburðum. Einnig er hún ein af stofnendum og starfrækjendum listahópsins Kaktuss á Akureyri.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hekla-bjort-helgadottir-villiljod/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/spiderumbrella2021.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210824T104428Z
LAST-MODIFIED:20220916T110501Z
UID:18613-1630108800-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Undirheimar Akureyrar
DESCRIPTION:Ragnar Kjartansson er einn af virtustu listamönnum þjóðarinnar – þekktur fyrir vídeóverk\, málverk\, gjörninga og innsetningar. Ragnar sýnir nýtt útilistaverk sem er sérstaklega unnið fyrir svalir Listasafnsins á Akureyri og hefur beina tilvísun í akureyrskt samfélag\, eins og Ragnar orðar það sjálfur: „Á Akureyri er allt aðeins meira í lagi en annars staðar.“ \nÞað örlar oft á kaldhæðni í verkum Ragnars og koma þau áhorfandanum sífellt á óvart með ákveðinni framsækni tengdri þjóðarsálinni\, sögunni og tilvist listamannsins innan samfélagsins eða utan þess. \nRagnar Kjartansson er fæddur í Reykjavík 1976. \nHann lauk námi frá myndlistadeild Listaháskólans 2001 og var gestanemandi í Konunglegu akademíunni í Stokkhólmi 2000. Hann stundaði auk þess nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík 1996-97. Ragnar hefur haldið einkasýningar í mörgum af virtustu listasöfnum heims s.s. Musée d’art contemporain de Montréal í Kanada 2016\, Kunstmuseum í Stuttgart í Þýskalandi 2019 og Metropolitan Museum of Art í New York í Bandaríkjunum 2019. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-undirheimar-akureyrar/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/kjartansson_scandinavianpain_press.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20220117
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210830T120453Z
LAST-MODIFIED:20220916T111103Z
UID:18763-1632528000-1642377599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson: Visitasíur
DESCRIPTION:Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson vinna saman að þverfaglegum myndlistarverkefnum í listasöfnum víða um heim. Þau vinna jafnt með sérfræðingum sem leikmönnum og í verkum sínum skoða þau birtingarform dýra í samfélagslegu\, menningarlegu og umhverfislegu samhengi. Verk þeirra afhjúpa menningartákn\, sýna fram á hefðir og viðbrögð manna gagnvart dýrum\, um leið og þau varpa ljósi á spurningar um náttúruvernd og ólíka afstöðu manna til útrýmingarhættu lífríkisins í vistfræðilegu samhengi. \nVísitasíur er sýning á verkum þeirra og hluti af listrannsóknarverkefninu Ísbirnir á villigötum\, unnið í samstarfi sérfræðinga á sviði myndlista\, þjóðfræði og náttúru- og umhverfisfræði. Markmið verkefnisins er að auka þekkingu á fjölþættum tengslum dýra\, manna og umhverfis á tímum loftslagshlýnunar. Áhersla verður lögð á að rannsaka birtingarform hvítabjarna á Íslandi í sögulegu og samtímalegu samhengi. Sýningin er unnin í samvinnu við Anchorage safnið í Alaska. Verkefnið er stutt af Rannís. \nSýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/bryndis-snaebjornsdottir-og-mark-wilson-visitasiur/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/visitations.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211007
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20210913T115317Z
LAST-MODIFIED:20220916T111508Z
UID:19073-1633564800-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Gjörningahátíð
DESCRIPTION:A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega\, nú í sjöunda sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri\, Leikfélags Akureyrar\, Menningarhússins Hofs\, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar\, Gilfélagsins\, \nListnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri og Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar. \nFjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur A! Gjörningahátíðar eru ungir og upprennandi listamenn\, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Á meðal þeirra sem komið hafa fram á A! eru Magnús Pálsson\, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir\, Rúrí\, Theatre Replacement\, Hekla Björt Helgadóttir\, Drengurinn Fengurinn\, Anna Richardsdóttir\, Halldór Ásgeirsson og Tales Frey. \nListamennirnir sem koma fram í ár eru: Thora Solveig Bergsteinsdóttir og Liv Nome\, Anna Richardsdóttir\, Egill Logi Jónasson\, Sigtryggur Berg Sigmundsson\, Snorri Ásmundsson\, Brák Jónsdóttir\, Steinunn Aragrúadóttir\, Elisabeth Raymond\, Amber Smits og Niklas Niki Blomberg\, Hombre Rural og Libia Castro og Ólafur Ólafsson. \nSamhliða A! fer vídeólistahátíðin Heim fram auk viðburða utan dagskrár (off venue). \nDagskrá.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-gjorningahatid/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/a-festival.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20220207
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20211109T101400Z
LAST-MODIFIED:20220208T085712Z
UID:20110-1638576000-1644191999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erling T. V. Klingenberg: punktur\, punktur\, punktur
DESCRIPTION:Erling T. V. Klingenberg birtist oft sjálfur í listsögulegum tilvísunum í eigin verkum. Tilvísunum sem notaðar eru til að ná fram hlutlægri framsetningu og huglægum ímyndum. Vinnuaðferðir hans sveiflast á milli þess óþægilega og þess einlæga. Ágengar tilfinningar eru einnig algengt viðfangsefni verka hans. \nErling setur hugmyndina um listamanninn í óvænt og oft skoplegt samhengi\, eins og endurspeglast í slagorðinu: „Það er erfitt að vera listamaður í líkama rokkstjörnu“ (“It´s hard to be an Artist in a Rock star’s body”). Þráhyggjukenndar tilraunir Erlings til að skilgreina hlutverk listamannsins í samfélagi „rokkstjörnunnar“ knýja hann til rannsókna á hvernig listamaðurinn gerir\, en ekki hvað hann gerir. Það er því ferlið sem vekur áhuga hans\, en ekki útkoman. \nErling T. V. Klingenberg stundaði nám í myndlist á Íslandi\, í Þýskalandi og Kanada. Hann hefur sýnt víða hérlendis og erlendis og er einn af stofnendum Kling & Bang í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erling-t-v-klingenberg-punktur-punktur-punktur/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/rock-van-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20220207
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20211109T101400Z
LAST-MODIFIED:20220208T085655Z
UID:20114-1638576000-1644191999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Erling T. V. Klingenberg: dot\, dot\, dot
DESCRIPTION:Erling T. V. Klingenberg often appears himself in his own works\, in arthistoric references. These references serve the purpose of producing an objective presentation and subjective images. His work methods swing between the uncomfortable and the honest. Aggressive emotions are also a recurring subject in his work. \nKlingenberg often presents the idea of the artist in a humorous context\, as is reflected in the slogan “It´s hard to be an Artist in a Rock star’s body.“ His obsessive attempts to define the role of the artist in society „the rockstar“ drive him to research how the artist does\, not what he does. Hence it is the process that sparks his interest\, not the outcome. \nErling T. V. Klingenberg studied art in Iceland\, Germany and Canada. He has exhibited his work widely in Iceland as well as abroad and is one of the founding members of Kling & Bang in Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/erling-t-v-klingenberg-punktur-punktur-punktur/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/rock-van-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20230130
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20221130T113316Z
LAST-MODIFIED:20230127T164752Z
UID:27870-1670025600-1675036799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Solander 250: Letters From Iceland
DESCRIPTION:The exhibition Solander 250: Letters from Iceland is held in remembrance of one of the first foreign scientific expedition to Iceland in 1772\, i.e. 250 years ago. On this journey was one of Carl Linnaeus‘s apostles\, the Swedish natural scientist Daniel Solander. Solander and his fellow travellers landed in Hafnarfjörður and travelled from there to Bessastaðir\, Þingvellir\, Geysir\, Skálholt and climbed to the top of mount Hekla before they returned home. Among the things they recorded in Iceland were nature\, culture\, traditions and clothing. Ten Icelandic graphic-artists from the Icelandic Printmakers Association will interpret these events from 1772 and how the nation and the country have changed since then. \nSimultaneously the exhibition Paradise Lost will be opened. Solander was the main botanist on the HMS Endeavor on the first European expedition to Australia. The exhibition has already been set up in New Zealand\, Australia and Sweden. The two exhibitions thus form a unique dialogue between the Arctic and the Pacific through Daniel Solander’s travels. \nParticipants: Anna Líndal\, Aðalheiður Valgeirsdóttir\, Daði Guðbjörnsson\, Gíslína Dögg Bjarkadóttir\, Guðmundur Ármann Sigurjónsson\, Iréne Jensen\, Laura Valentino\, Soffía Sæmundsdóttir\, Valgerður Björnsdóttir\, Viktor Hannesson\, John Pusateri\, Alexis Neal\, Dagmar Dyck\, John McLean\, Tabatha Forbes\, Michel Tuffery\, Sharnae Beardsley\, Jo Ogier\, Lynn Taylor\, Jenna Packer.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solander-250-letters-from-iceland-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Gudmundur-Ármann_Pubescens-Bertula_2022-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20230130
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20221130T113124Z
LAST-MODIFIED:20230127T164921Z
UID:27868-1670025600-1675036799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Solander 250: Bréf frá Íslandi
DESCRIPTION:Sýningin Solander 250: Bréf frá Íslandi er sett upp til að minnast þess að 2022 eru 250 ár liðin frá fyrsta erlenda vísindaleiðangrinum til Íslands\, 1772. Með í þeirri för var einn af lærisveinum hins heimsþekkta sænska náttúruvísindamanns Carl Linnaeus\, sænski náttúrufræðingurinn Daniel Solander. Solander og félagar komu að landi í Hafnarfirði og ferðuðust til Bessastaða\, Þingvalla\, Geysis\, Skálholts og klifu að lokum Heklu\, áður en þeir héldu heim á leið. Þeir skrásettu m.a. ýmislegt um náttúru Íslands\, menningu\, siði og klæðaburð. Tíu íslenskir grafíklistamenn frá Íslenskri grafík túlka á sýningunni þessa atburði og þær breytingar sem hafa átt sér stað á landi og þjóð. \nSamtímis verður sýningin Paradise Lost opnuð. Þar sýna 10 listamenn frá Kyrrahafssvæðinu\, en Solander var í áhöfn HMS Endeavour í fyrstu ferð Evrópumanna til Ástralíu. Sýningin hefur áður verið sett upp á Nýja-Sjálandi\, í Ástralíu og Svíþjóð. Sýningarnar tvær mynda því einstakt samtal Norðurskautsins og Kyrrahafsins í gegnum ferðir Daniel Solanders.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/solander-250-bref-fra-islandi/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Gudmundur-Ármann_Pubescens-Bertula_2022-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20221130T112922Z
LAST-MODIFIED:20230301T140151Z
UID:27866-1670025600-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá: The Water and The Land
DESCRIPTION:Kristín Jónsdóttir was born at Munkaþverá in Eyjafjörður 1933. She studied at The Reykjavík College of Craft and Art 1949-1952 and 1954-1957 she studied at the textile department of The Royal Danish Academy of Fine Arts\, School of Design in Copenhagen. Jónsdóttir studied at École des Arts Italiennes and Atélier Freundlich in Paris 1959 and during the winter of 1963-1964 she studied in Italy\, at Università per Stranieri in Perugia. \nKristín Jónsdóttir of Munkaþverá has held over 20 solo exhibitions in Iceland\, the US and Canada. She has participated in numerous group exhibitions in Iceland and abroad. Her work can be found in the major art museums in Iceland as well as in Europe and the US. Jónsdóttir has also won different prizes and recognitions such as the silver-prize at the International Textile Triennial in Lódz\, Poland 1992\, as well as the Honorary Award of the Icelandic Visual Arts Council 2021 for her contribution to Icelandic visual arts.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristin-jonsdottir-fra-munkathvera-the-water-and-the-land/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Kristín-Jónsdóttir_Skýjahillur_2018.-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20221130T112719Z
LAST-MODIFIED:20230301T140203Z
UID:27864-1670025600-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá: Vatnið og landið
DESCRIPTION:Kristín Jónsdóttir er fædd á Munkaþverá í Eyjafirði 1933. Hún stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík 1949-1952\, og 1954-1957 var hún nemandi við textíldeild Kunsthåndværkerskolen í Kaupmannahöfn. Kristín stundaði nám í École des Arts Italiennes og Atélier Freundlich í París 1959\, og veturinn 1963-1964 var hún á Ítalíu við nám í Università per Stranieri í Perugia. \nKristín hefur haldið yfir 20 einkasýningar á Íslandi\, í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Verk eftir Kristínu má finna í helstu listasöfnum landsins og einnig í söfnum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar\, meðal annars silfurverðlaun Alþjóðlega textílþríæringsins í Lódz í Póllandi 1992. Kristín hlaut heiðursviðurkenningu Myndlistarráðs 2021 fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristin-jonsdottir-fra-munkathvera-vatnid-og-landid/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Kristín-Jónsdóttir_Skýjahillur_2018.-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230602
DTEND;VALUE=DATE:20230925
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230601T152211Z
LAST-MODIFIED:20231013T122525Z
UID:31456-1685664000-1695599999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anniversary: Selected works by North Icelandic artists
DESCRIPTION:This is the fifth time an exhibition of works by artists in North Iceland is held in Akureyri Art Museum. The exhibition is a biennale and now has a special theme: Anniversary\, a reference to the 30 years since Akureyri Art Museum first opened – although artists are free to interpret this in their own way. \nA special jury selects works from artists who apply and live in North Iceland or have a special connection to the region. \nA catalogue is published in Icelandic and English\, which will be interesting to compare with older catalogues and see what kind of development is in the artworks of artists in the North of Iceland. The aim is surely to exhibit the diversity in approaches\, methods and ideas of artists in the region each time. \nThe exhibition Anniversary is meant to give an insight into the diverse flora of visual arts tied to North Iceland and bring attention to\, and inspire\, discussion on the status of artists and visual arts in North Iceland. Hence the biennale can become a basis for research and creativity within the field of visual arts as well as a motivation and opportunity. \nCurator: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anniversary-selected-works-by-north-icelandic-artists/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/frameLA.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230602
DTEND;VALUE=DATE:20230925
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230601T151921Z
LAST-MODIFIED:20231013T123126Z
UID:31454-1685664000-1695599999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Afmæli: Samsýning norðlenskra listamanna
DESCRIPTION:Þetta er í fimmta sinn sem sýning á verkum norðlenskra listamanna er haldin í Listasafninu á Akureyri. Sýningin er tvíæringur og er að þessu sinni unnið út frá þemanu afmæli\, sem er vísun í 30 ára afmæli Listasafnsins en jafnframt opið fyrir alls konar túlkunum listamanna.\n\nDómnefnd valdi verk úr innsendum tillögum listamanna sem búa á Norðurlandi eða hafa sérstaka tengingu við svæðið. Gefin er út sýningarskrá á íslensku og ensku og er áhugavert að bera saman sýningarskrár fyrri sýninga til að sjá hvaða þróun er í verkum norðlenskra listamanna. Markmiðið er vissulega að sýna þá fjölbreytni í efnistökum\, aðferðum og hugmyndum sem listamenn af svæðinu eru að fást við hverju sinni.\nSýningunni Afmæli er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar almennt. Þessi tvíæringur getur verið grunnur rannsókna og sköpunar á sviði myndlistar og um leið hvatning og tækifæri.\nSafnasjóður styrkir sýninguna.\n\nÞátttakendur:\nAðalheiður S. Eysteinsdóttir\,\nAðalsteinn Þórsson\,\nAndrea Weber\,\nAuður Lóa Guðnadóttir\,\nAuður Ómarsdóttir\,\nBaldvin Ringsted\,\nBergþór Morthens\,\nBjörg Eiríksdóttir\,\nErwin van der Werve\,\nFreyja Reynisdóttir\,\nHekla Björt Helgadóttir\,\nHjördis Frímann\,\nHólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir\,\nÍris Ólöf Sigurjónsdóttir\,\nJ. Pasila\,\nJonna Jónborg Sigurðardóttir\,\nJóna Hlíf Halldórsdóttir\,\nJónína Björg Helgadóttir\,\nRósa Kristín Júlíusdóttir\,\nSigurður Mar\,\nStefán Boulter\,\nÞóra Sólveig Bergsteinsdóttir\,\nÞuríður Helga Kristjánsdóttir.\nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/afmaeli-samsyning-nordlenskra-listamanna/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/frameLA.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240311
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T142138Z
LAST-MODIFIED:20230901T144743Z
UID:32486-1693008000-1710115199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Completely Tasteless
DESCRIPTION:How does one commemorate appalling acts without turning it into a spectacle? For my master’s solo exhibition\, in early 2022\, I spray-painted the words „Farðu til fjandans helvítis útlendinga skíturinn þinn“ (Go to hell you fucking foreign shit) on the gallery windows in Breiðholt\, and all hell broke loose. \nThis solo exhibition is inspired by the backlash I received in connection with that textual work. The comments from strangers online have since become a minefield of hatred\, stupidity and racism\, serving as material for the exhibition. A private act of violence towards me has turned into a public debate on how we reconcile with racism in this country. The exhibition aims to reclaim the mechanism of language that racist speech exploits\, by deliberately manipulating its visibility and navigating the difference between seeing\, reading and ultimately – understanding. \nMelanie Ubaldo (born 1992) graduated with an MA in Fine Arts from the Iceland University of Arts in 2022. She is a founding member of the artist-trio Lucky 3 and has participated in exhibitions in Iceland and abroad. Her work can be found in the collections of Reykjavík Art Museum\, Hafnarborg and more.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/melanie-ubaldo-completely-tasteless/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/melanieimage1_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240311
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T142016Z
LAST-MODIFIED:20230901T143407Z
UID:32484-1693008000-1710115199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Afar ósmekklegt
DESCRIPTION:Hvernig er hægt að minnast hræðilegra gjörða án þess að úr verði sjónarspil? Fyrir lokaverkefnið mitt í MA-náminu spreyjaði ég á glugga í gallerýi í Breiðholti orðin „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn“ og allt ætlaði um koll að keyra. \nÞessi einkasýning er innblásin af því bakskoti sem ég varð fyrir við þetta tiltekna textaverk. Athugasemdir frá ókunnugu fólki á netinu hafa síðan orðið að jarðsprengjusvæði haturs\, heimsku og kynþáttafordóma\, sem nýtist sem efniviður í sýninguna. Ofbeldið sem beint var að mér hefur breyst í opinbera rökræðu um hvernig við sættumst við kynþáttafordóma á Íslandi. Markmið sýningarinnar er að endurheimta það gangverk tungumálsins sem orðræða kynþáttafordóma nýtir sér með því að ráðskast vísvitandi með sýnileika málsins og sigla á milli mismunar þess að sjá\, lesa og að lokum – skilja.“ \nMelanie Ubaldo (f. 1992) lauk MA-námi frá Listaháskóla Íslands 2022. Hún er einn af stofnendum listamannaþríeykisins Lucky 3 og hefur tekið þátt í sýningum á Íslandi og erlendis. Verk hennar má m.a. finna í safneign Listasafns Íslands\, Listasafns Reykjavíkur\, Gerðarsafns og Hafnarborgar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/melanie-ubaldo-afar-osmekklegt/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/melanieimage1_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240205
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T141441Z
LAST-MODIFIED:20230824T141441Z
UID:32476-1693008000-1707091199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Simply Sincere
DESCRIPTION:Katrín Jósepsdóttir (1914-1994) held various jobs during her lifetime but early on she started sewing and due to that she was most often called Kata the Seamstress. Her paintings are naive – which refers to a form of art usually defined as visual art that is created by a person who lacks the formal education and training that a professional artist undergoes. Naive artists are guided by emotions and sincerity in their creations – using unique methods and colors as well as a narrative that breaks the rules and norms but\, at the same time\, possesses a lot of beauty. \nKata the Seamstress had reached a mature age when she started experimenting with visual art. In this exhibition guests will have an opportunity to learn and create through viewing a portion of her works that are owned by Akureyri Art Museum. The works are sincere\, and her passion should be an inspiration for children and adults alike – since we can all create. The outcome could be surprising. \nThe works exhibited are a portion of what Kata‘s family donated to the Akureyri Art Museum in 1994. \nCurators: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir and Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/simply-sincere/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/dst_9716_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240205
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T141317Z
LAST-MODIFIED:20230824T141857Z
UID:32474-1693008000-1707091199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Katrín Jósepsdóttir: Einfaldlega einlægt
DESCRIPTION:Katrín Jósepsdóttir (1914-1994) vann margvísleg störf á lífsleiðinni\, en snemma fór hún að sauma og var því oftast kölluð Kata saumakona. Málverk hennar flokkast undir naívisma\, sem er einstakur tjáningarmáti og vísar til verka listamanna sem ekki hafa hlotið hefðbundna myndlistarmenntun heldur fylgja eigin tilfinningu og einlægni í sköpun sinni. Stíllinn birtist í sérstakri tækni og óbeislaðri lita- og frásagnargleði\, sem brýtur upp ríkjandi reglur og viðmið\, en býr jafnframt yfir mikilli fegurð. \nKata saumakona var komin á efri ár þegar hún hóf að gera tilraunir í myndlist. Á sýningunni fá safngestir tækifæri til fræðslu og sköpunar\, með því að virða fyrir sér hluta þeirra verka Kötu sem eru í eigu Listasafnsins. Verkin eru einlæg og ástríða hennar hvatning fyrir börn og fullorðna\, því allir geta skapað. Útkoman getur komið á óvart. \nVerkin á sýningunni eru hluti gjafar sem ættingjar Kötu færðu Listasafninu 1994. \nSýningarstjórar: Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/katrin-josepsdottir-einfaldlega-einlaegt/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/dst_9716_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240115
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T121917Z
LAST-MODIFIED:20230901T144716Z
UID:32468-1693008000-1705276799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Circuits
DESCRIPTION:The artists that gather here create through natural processes\, materials and context. Each has their personal approach\, although the common set is material from the micro-environment. \nThe works of Sólveig Aðalsteinsdóttir reflect contemplations on time and environment\, nature\, growth and vegetation\, where the borders between inner and outer reality aren‘t necessarily clear. \nElsa Dóróthea Gísladóttir works with impermanence\, sustainability\, cultivation\, biosystems and the alchemy of everyday. Time is an important factor in her work. \nGuðjón Ketilsson typically works with found objects that carry with them memories and stories of past events. He records them\, rearranges and creates a new context. \nEveryday surroundings have often sparked the idea behind the works of Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir\, such as the peel of a beetroot that has created red color in water\, or a piece of paper marked by moisture on a window glass pane.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/circuits-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/elsa-dorothea-gisladottir-koparblomi-2021-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240115
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20230824T121804Z
LAST-MODIFIED:20230901T143400Z
UID:32456-1693008000-1705276799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hringfarar
DESCRIPTION:Listamennirnir sem hér koma saman vinna út frá náttúrulegum ferlum\, efniviði og samhengi. Hver og einn hefur sína persónulegu nálgun\, en sameiginlega mengið er efniviður úr nærumhverfinu\, sem hver og einn vinnur með á sinn persónulega hátt. \nVerk Sólveigar Aðalsteinsdóttur endurspegla hugleiðingar um tíma og umhverfi\, náttúruna\, vöxt og gróður\, þar sem mörk innri og ytri veruleika eru ekki endilega ljós. \nElsa Dóróthea Gísladóttir vinnur með hverfulleika\, sjálfbærni\, ræktun\, lífkerfi og alkemíu hvunndagsins. Tíminn er afar mikilvægur þáttur í hennar verkum. \nGuðjón Ketilsson vinnur gjarnan með fundna hluti sem geyma minningar og sögur liðinna atburða. Hann skrásetur þá\, endurskipuleggur og setur í annað samhengi. \nDaglegt umhverfi hefur oft verið kveikjan að verkum Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur\, svo sem rauðrófuhýði í vatni sem hefur myndað rauðan lit og pappírsörk á glugga sem raki hefur teiknað á.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hringfarar-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/elsa-dorothea-gisladottir-koparblomi-2021-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231005
DTEND;VALUE=DATE:20240114
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20231005T094143Z
LAST-MODIFIED:20231005T094719Z
UID:33003-1696464000-1705190399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hilda de Paulo & Tales Frey: Conducting Wire
DESCRIPTION:The exhibition will present a selection of works by the Brazilian artists Hilda de Paulo (born 1987) and Tales Frey (born 1982)\, who have been working together for over fifteen years. By transiting through the most diverse formats\, their productions are a dialogue with multiple fields\, such as the visual arts\, the scenic arts\, and the performing arts. They define themselves as a notable example of a practice on the edge\, exploring the power of what is adjacent. \nIn the exhibition\, they are interested in articulating both productions\, identifying their points of meeting and convergence\, the result of the long collaborative coexistence between the two artists. Hilda actively participates in Tales’ performances\, who\, in turn\, is present in many of Hilda’s works. What is incorporated from one to the other? What are the boundaries between life and work? What is the relationship made of? In this collaboration\, the artist’s works are presented as politics of desire\, with the aim of building other modes of existence. \nBoth artists finished their university degrees in Portugal\, Hilda in Art History and Tales in Theatre Studies. \nCurator: Pollyana Quintella.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hilda-de-paulo-tales-frey-conducting-wire/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Tales-Frey_Il-Faut-Souffrir-pour-Etre-Belle.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231005
DTEND;VALUE=DATE:20240114
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20231005T093823Z
LAST-MODIFIED:20231005T100239Z
UID:32999-1696464000-1705190399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Tales Frey & Hilda de Paulo: Leiðnivír
DESCRIPTION:Tales Frey og Hilda de Paulo hafa unnið saman í meira en fimmtán ár og má sjá úrval verka þeirra á sýningunni. Þau hafa komið víða við í margvíslegum listformum og eru verk þeirra því samtal á milli fjölmargra sviða\, s.s. sjónlista\, sviðslista og gjörningalistar. Þau skilgreina sig sem eftirtektarvert dæmi um verkefni á jaðrinum\, þar sem kannaður er krafturinn í því sem er samhliða. \nMeð sýningunni hafa þau áhuga á að skilgreina báðar hliðar\, finna snertifletina og samrunann; árangurinn af langri samvinnu og samlífi þessara tveggja listamanna. Hilda tekur virkan þátt í gjörningum Tales\, sem á móti er viðriðinn mörg af verkum Hilda. Hvað yfirfærist frá einum til annars? Hvar liggja mörkin á milli lífsins og verkanna? Á hverju er sambandið byggt? Í þessari samvinnu eru verk listamannanna sett fram sem pólitík langana\, með það að markmiði að skapa aðrar útgáfur af tilverunni. \nBáðir listamenn hlutu menntun sína í háskólum í Portúgal\, Hilda í listasögu og Tales í leikhúsfræðum. Sýningarstjóri er Pollyana Quintella. \nSýningin er hluti af A! Gjörningahátíð sem stendur yfir dagana 5.-8. október.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/tales-frey-hilda-de-paulo-leidnivir/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Tales-Frey_Il-Faut-Souffrir-pour-Etre-Belle.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231005
DTEND;VALUE=DATE:20231009
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20231005T092314Z
LAST-MODIFIED:20231005T092314Z
UID:32987-1696464000-1696809599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Performance festival
DESCRIPTION:A! is a four-day international performance festival in Akureyri. The festival is held every year\, now for the ninth time. A variety of performances and theatre-based projects of all kind are on the agenda. Participants are young up-and-coming artists as well as experienced and well-known performance artists and theatre professionals. Click to see the A! Programme. \n\n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-performance-festival-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/374863038_696635325834655_4333058721495105928_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231005
DTEND;VALUE=DATE:20231009
DTSTAMP:20260530T154214
CREATED:20231005T091739Z
LAST-MODIFIED:20231013T122824Z
UID:32983-1696464000-1696809599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:A! Gjörningahátíð
DESCRIPTION:A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 5.-8. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og nú í níunda sinn. Ókeypis er inn á alla viðburði. \nDómnefnd valdi verk úr hópi fjölbreyttra listamanna og eru gjörningar af öllum toga á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn\, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum. Að þessu sinni fara gjörningarnir fram í Listasafninu á Akureyri\, Menningarhúsinu Hofi\, Deiglunni og Mjólkurbúðinni. \nÞátttakendur eru: Aðalheiður S. Eysteinsdóttir\, Curver Thoroddsen\, Dustin Harvey\, Hans-Henrik Suersaq Poulsen\, Yuliana Palacios\, Harpa Arnardóttir\, Heiðdís Hólm Guðmundsdóttir\, Kuluk Helms\, Sigurður Guðmundsson\, Tales Frey og Vídeólistahátíðin Heim. \nGjörningahátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri\, Leikfélags Akureyrar\, Menningarhússins Hofs\, Myndlistarfélagsins\, Gilfélagsins\, Listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri\, Myndlistamiðstöðvarinnar\, Háskólans á Akureyri\, RIFF og NAPA.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-gjorningahatid-2/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/374863038_696635325834655_4333058721495105928_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR