BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20210830T122814Z
LAST-MODIFIED:20220916T110521Z
UID:18780-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu í samvinnu við MULTIS. \nAðstandendur verkefnisins eru: Helga Óskarsdóttir\, Ásdís Spanó og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskrar samtímalistar. \nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn  listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nListamenn sem eiga verk á FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI eru: Einar Örn Benediktsson\, Gjörningaklúbburinn – Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Hulda Vilhjálmsdóttir\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir\, Ívar Valgarðsson\, Jóna Hlíf Halldórsdóttir\, Karlotta Blöndal\, Magnús Helgason\, Magnús Pálsson\, Pétur Magnússon\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Steingrímur Eyfjörð\, Tumi Magnússon\, Þór Sigurþórsson\, Þórdís Jóhannesdóttir\, Baldur Geir Bragason\, Davíð Örn Halldórsson\, Gabríela Friðriksdóttir\, Guðmundur Thoroddsen\, Kristín Eiríksdóttir\, Logi Leo Gunnarsson\, Helgi Þórsson\, Lilja Birgisdóttir\, Sara Riel\, Sirra Sigrún Sigurðardóttir\, Snorri Ásmundsson\, Hulda Rós Guðnadóttir\, Þórdís Erla Zoëga. \nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021. \n\n\n\n\nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið.Fjölfeldi geta verið tví- eða þrívíð og hægt er að búa þau til með margvíslegum aðferðum. Á fimmtándu öld fóru listamenn að þróa aðferðir til að geta steypt verk í mót því það þótti mikill kostur að geta dreift verkum sem víðast. Þetta varð til þess að sjónræn menning efldist til muna í þeim löndum sem þekkingin var til staðar.  Á átjándu öld fundu listamenn til dæmis upp aðferðir sem gerðu þeim kleift að móta skúlptúrverk úr t.d. leir\, bronsi\, gifsi og postulíni. Að steypa skúlptúra með því að nota mold eða sand varð vinsælt við framleiðslu verka sem gerð voru í upplagi og eru þær aðferðir ennþá mikið notaðar við gerð myndlistar. Einnig falla aðferðir grafíklistarinnar undir þessa skilgreiningu en verk unnin á þann hátt hafa þann ótvíræða kost að auðvelt er að gera sama verkið í mörgum eintökum. \nMeð tilkomu koparstungu á tímum barokksins verður dreifing og fjölföldun myndverka almennari. Koparstungan er aðferð sem notuð er við gerð grafíkmynda en þar er myndin grafin með nál í koparplötu og síðan þrykkt á pappír. Verkið Los caprichos\, 1797 eftir Francisco Goya var með fyrstu þekktu fjölfeldunum sem búið var til í takmörkuðu upplagi.  Ef litið er til listaverka tuttugustu aldar er verk Marcel Duchamps\, Rotoreliefs frá árinu 1935 eitt af fyrstu fjölfeldum nútímalistarinnar og í þeirri mynd af fjölfeldum sem við þekkjum í dag\, en verkið er sería af sex snúningsdiskum sem voru gefnir út í 500 eintökum. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nOrðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti. Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu. Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskra samtímalistar. \nMULTIS setur fókusinn á fjölfeldi\, verk sem gerð eru í a.m.k. þremur eintökum. Þetta geta bæði verið prent og skúlptúrar\, allt eftir því hvað hentar hugmynd listamannsins hverju sinni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjolfeldi-hlutfeldi-margfeldi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/multis.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20210830T122033Z
LAST-MODIFIED:20220916T110508Z
UID:18771-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Formheimur Bjargar Þorsteinsdóttur
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Formheimur Bjargar Þorsteinsdóttur þann 2. september 2021\, sem samanstendur af akrýlmálverkum\, olíukrítarteikningum og grafíkverkum víðsvegar af fimm áratuga löngum myndlistarferli Bjargar Þorsteinsdóttur (1940–2019). Aðdragandi sýningarinnar er gjöf frá erfingjum Bjargar\, 105 myndverk sem safnið fékk afhent í maí 2020 og er því ekki um eiginlega yfirlitssýningu að ræða heldur sýningu á þeim hluta höfundarverksins sem er í safneign. Formheimur Bjargar Þorsteinsdóttur er innsýn í hugverk listamanns sem skapaði eigin myndheim með ákveðnum hugmyndum um efnivið og litanotkun. Björg vinnur inn í hefð abstraktlistarinnar með því að nota form\, liti og myndbyggingu\, en hún vinnur sig inn í hefðina á eigin forsendum með einkennandi myndmáli sem þróast í gegnum ferilinn frá hlutveruleika til ljóðrænu\, frá manngerðum heimi í náttúru\, frá hálf-abstrakt í fljótandi form. \nBjörg Þorsteinsdóttir (1940–2019) lagði stund á teikningu\, málun og grafík\, allt frá sjöunda áratugnum til æviloka. Hún hélt fjölmargar einkasýningar\, sú fyrsta var haldin í Unuhúsi 1971\, og var valin á samsýningar bæði hér á landi og erlendis. Verk eftir Björg eru í eigu helstu listasafna á Íslandi\, opinberra stofnanna\, einkasafna og safna víða um heim. Hún hlaut verðlaun árið 1970 á alþjóðlegri grafíksýningu í Entrevaux\, Frakklandi\, árið 1972 fyrir grafík á samsýningu styrkþega frönsku ríkisstjórnarinnar í París\, Frakklandi\, og árið 1976 á alþjóðlegri grafíksýningu\, XXII Salon del Grabado y Sistema Estampacion í Madríd\, Spáni. Björg fékk námsstyrk frönsku ríkisstjórnarinnar 1971–1973 og var einnig í vinnustofu Cité Internationale des Arts í París 1984–1985. Árið 1986 var henni falið að hanna jólafrímerki Pósts og síma. \n\n\nBjörg útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1964 og nam við Staatliche Akademie der bildenden Künste\, Stuttgart\, Þýskalandi 1961–1962 og 1968. Hún lærði steinþrykk við École Nationale Supérieure des Beaux Arts og málmgrafík við grafíkverkstæðið Atelier 17 í París\, undir handleiðslu S.W. Hayter\, 1970–1973. Björg sat í stjórn félagsins Íslensk grafík og í Félagi íslenskra myndlistarmanna\, í ráði Norrænu myndlistarmiðstöðvarinnar NKC í Finnlandi og í fulltrúaráði Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Hún var forstöðumaður Safns Ásgríms Jónssonar 1980–1984 og vann einnig sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík. Björg bjó og starfaði á Háaleitisbraut í Reykjavík. \n\n\nListasafn Reykjanesbæjar þakkar aðstandendum Bjargar Þorsteinsdóttur\, dóttur hennar Guðnýju Ragnarsdóttur og dóttursyni Ragnari Árna Ólafssyni\, fyrir rausnarlega gjöf til safnsins og ánægjulegt samstarf. \n\n\nSýningarstjóri er Helga Arnbjörg Pálsdóttir. \n\n\nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/formheimur-bjargar-thorsteinsdottur/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/formheimur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221126
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20221130T103815Z
LAST-MODIFIED:20221201T153107Z
UID:27814-1669420800-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:You Are Here
DESCRIPTION:Vena Naskręcka and Michael Richardt are performance artists\, and this exhibition will be a display of where they are at this particular point in time\, and a documentation of what occupies their minds at the moment. They are here and now\, foreign citizens in Iceland\, making their mark on the Reykjanes Art Museum where they will rule for a while. \nVena Naskręcka (1986) works in visual arts in an inter-disciplinary way\, with performances\, sculptures\, found objects\, and video\, and she bases her work for instance on philosophy\, neuro-science\, disability studies\, and technology. Naskręcka expresses this with her body\, which she sees as a tool for visual\, emotional\, and intellectual communication. \nNaskręcka graduated with a MA degree in fine art from CIT Crawford College of Art & Design\, in Cork\, Ireland\, a BA degree in fine art from Hanze University Groningen – Academy Minerva\, the Netherlands\, in addition to studying ceramics at the Jacek Malczewski School of Fine Arts in Czestochowa\, Poland. Naskręcka was born in Czestochowa\, Poland\, but lives and works in Reykjanesbær.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/you-are-here/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/DSF3418.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221126
DTEND;VALUE=DATE:20230306
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20221130T103519Z
LAST-MODIFIED:20221201T153118Z
UID:27808-1669420800-1678060799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Þú ert hér
DESCRIPTION:Vena Naskręcka og Michael Richardt eru gjörningalistamenn og mun sýningin verða vitnisburður um hvar þau eru stödd á þessum ákveðna tímapunkti og skrásetning á því sem þeim er nú hugleikið. Þau eru hér og nú\, erlendir ríkisborgara á Íslandi\, að setja mark sitt á Listasafn Reykjanesbæjar þar sem þau ríkja í ákveðinn tíma. \nÞú ert hér gefur til kynna að þú sért á ákveðnum tímapunkti á því ferli sem ævi þín er. Vena og Michael fluttu bæði frá heimalöndum sínum\, Póllandi og Danmörku\, fyrst til Hollands og síðar Írlands en það er hér sem leiðir þeirra fyrst skarast. Þú ert hér snýst meðal annars um hvernig við jarðtengjum líkama okkar á ákveðnum stað í tíma og rúmi. Vena fer áfram með hægum hreyfingum og Michael með hröðum\, síendurteknar hreyfingarnar minna á kóreógrafíu eða skipulagðar danshreyfingar ætlaðar til að valda umskiptum. Þau eru hér til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt og þeim er umhugað um hvað þau skilja eftir sig. Vena er að horfa til framtíðar mannkynsins og Michael horfir inn á við.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/thu-ert-her/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/DSF3418.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230603
DTEND;VALUE=DATE:20230808
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20230601T153535Z
LAST-MODIFIED:20230901T144629Z
UID:31464-1685750400-1691452799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Silvia Björg: Frjósemi
DESCRIPTION:Silvia Björg sýnir „Frjósemi” á sumarsýningu 2023 í Bíósal Duus Safnahúsa í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar. Sýningin opnar laugardaginn 3. júní kl. 14:00.\nFlæðandi form\, ummyndun glóandi hrauns í fast hraunlendi sem verndar fræ framtíðarinnar. Brothætt\, en varin af mýkt mosa og fléttna…meðal greina lyngsins og innan þangsins\, og bíða þess að lífið kvikni aftur.\nÞessi röð veggskúlptúra er hluti af listrænu verkefni sem listakonan kallar „Frjósemi“ og hóf að vinna árið 2011.\nÚtgangspunkturinn eru minningar um náttúrulegt umhverfi\, myndir sem festust í minni Silviu eftir dvöl úti í náttúrunni.\nFuglar verpa og það er mjög algengt að finna hreiður meðal steina og gróðurs. Mengun ágerist og meðal annarra sjávardýra hafa fuglar orðið fyrir alvaralegum áhrifum…þetta er ákall hennar til að vekja athygli á þessum veruleika.\nListakonan teflir saman náttúrulegum efnum og gerviefnum\, hún lítur á að samsetning þeirra sé nauðsynleg til að sýna óvissuna milli þess sem er raunverulegt og þess sem er gervi.\nHringurinn táknar uppruna og örlög\, hann táknar eilífa hringrás lífsins. Hringurinn er líka formið sem hún kýs til að „vernda” hreiðrið. En þó að hreiður séu á jörðu niðri og eggin séu brothætt\, þá eru þau vernduð í felulituðu umhverfi sínu.\nÞað sem augu Silviu nema á láréttu plani\, flytur hún yfir á lóðrétt plan í augnhæð. Þannig sér áhorfandinn myndina frá nýjum sjónarhóli. Náttúrulega umhverfið\, sem við mennirnir erum hluti af\, krefst virðingar sem glataðist fyrir löngu. Við skulum gæta vel að hvar við göngum og menga ekki uppsprettu lífsins.\nListakonan er þverfaglegur myndlistarmaður sem meðal annars hefur unnið við málverk\, skúlptúr og myndskreytingu\, stafræna ljósmyndun\, innsetningar og skartgripi. Hún notar mismunandi tækni til að endurspegla sína persónulegu heimsmynd.\n\nMyndlistarkonan Silvia Björg er spænsk-íslensk. Hún stundaði myndlistarnám í fimm ár í Listaháskóla í Vigó á Spáni og útskrifaðist árið 2005 með Mastersgráðu í höggmyndalist og menntun í sjónlistarkennslu við framhaldsskóla frá Háskólanum í Santiago de Compostela á Spáni. Hún lærði skartgripahönnun og gullsmíði í sex ár hjá List- og Hönnunarskóla í Santiago de Compostela og vann á eigin verkstæði á Spáni. Silvia hefur haldið einka- og samsýningar bæði á Íslandi og á Spáni og verk hennar má finna í opinberum og einkasöfnum í Bandaríkjunum\, Lúxemborg\, Haítí\, Dominíska Líðveldinu\, Spáni og Íslandi. Náttúran hefur verið sterkur áhrifavaldur í allri list Silvíu.\nStefna listamannsins:\nFrá þverfaglegu\, sjónrænu sjónarhorni vekur Silvia Björg athygli á siðferðilegum spurningum og fagurfræðilegri samhjálp\, með því að nota „íhugun”\, svipað og gert var á tíma Rómantíkinnar\, sem endurspeglaði hið háleita\, en frá greiningarlegur sjónarmiði og byggist á hugleiðingum þar sem dvöl í náttúrunni er fagurfræðileg iðkun og leið til að byggja upp landslag.\nNáttúrulegum lífrænum efnum eru blandað saman við gervi frumefni\, til umhugsunar um óafturkræfar aðgerðir mannfólksins. Listakonan er einnig innblásin af því að lifa og upplifa náttúruna. Mismunandi verk skrá þannig ummerki um líkamlegt\, andleg og vitsmunalegt ferðalag. Í gagnrýninni og fagurfræðileg könnun landlagsins vekur hún athygli á náttúrunni og kveikir hugleiðingar úr frá mikilli ástúð sinni á Móður Jörð.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/silvia-bjorg-frjosemi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/frameduus.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230603
DTEND;VALUE=DATE:20230808
DTSTAMP:20260530T123106
CREATED:20230601T153431Z
LAST-MODIFIED:20230901T144522Z
UID:31462-1685750400-1691452799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Silvia Björg: Frjósemi
DESCRIPTION:Silvia Björg sýnir „Frjósemi” á sumarsýningu 2023 í Bíósal Duus Safnahúsa í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar. Sýningin opnar laugardaginn 3. júní kl. 14:00.\nFlæðandi form\, ummyndun glóandi hrauns í fast hraunlendi sem verndar fræ framtíðarinnar. Brothætt\, en varin af mýkt mosa og fléttna…meðal greina lyngsins og innan þangsins\, og bíða þess að lífið kvikni aftur.\nÞessi röð veggskúlptúra er hluti af listrænu verkefni sem listakonan kallar „Frjósemi“ og hóf að vinna árið 2011.\nÚtgangspunkturinn eru minningar um náttúrulegt umhverfi\, myndir sem festust í minni Silviu eftir dvöl úti í náttúrunni.\nFuglar verpa og það er mjög algengt að finna hreiður meðal steina og gróðurs. Mengun ágerist og meðal annarra sjávardýra hafa fuglar orðið fyrir alvaralegum áhrifum…þetta er ákall hennar til að vekja athygli á þessum veruleika.\nListakonan teflir saman náttúrulegum efnum og gerviefnum\, hún lítur á að samsetning þeirra sé nauðsynleg til að sýna óvissuna milli þess sem er raunverulegt og þess sem er gervi.\nHringurinn táknar uppruna og örlög\, hann táknar eilífa hringrás lífsins. Hringurinn er líka formið sem hún kýs til að „vernda” hreiðrið. En þó að hreiður séu á jörðu niðri og eggin séu brothætt\, þá eru þau vernduð í felulituðu umhverfi sínu.\nÞað sem augu Silviu nema á láréttu plani\, flytur hún yfir á lóðrétt plan í augnhæð. Þannig sér áhorfandinn myndina frá nýjum sjónarhóli. Náttúrulega umhverfið\, sem við mennirnir erum hluti af\, krefst virðingar sem glataðist fyrir löngu. Við skulum gæta vel að hvar við göngum og menga ekki uppsprettu lífsins.\nListakonan er þverfaglegur myndlistarmaður sem meðal annars hefur unnið við málverk\, skúlptúr og myndskreytingu\, stafræna ljósmyndun\, innsetningar og skartgripi. Hún notar mismunandi tækni til að endurspegla sína persónulegu heimsmynd.\n\nSilvia Björg\nMyndlistarkonan Silvia Björg er spænsk-íslensk. Hún stundaði myndlistarnám í fimm ár í Listaháskóla í Vigó á Spáni og útskrifaðist árið 2005 með Mastersgráðu í höggmyndalist og menntun í sjónlistarkennslu við framhaldsskóla frá Háskólanum í Santiago de Compostela á Spáni. Hún lærði skartgripahönnun og gullsmíði í sex ár hjá List- og Hönnunarskóla í Santiago de Compostela og vann á eigin verkstæði á Spáni. Silvia hefur haldið einka- og samsýningar bæði á Íslandi og á Spáni og verk hennar má finna í opinberum og einkasöfnum í Bandaríkjunum\, Lúxemborg\, Haítí\, Dominíska Líðveldinu\, Spáni og Íslandi. Náttúran hefur verið sterkur áhrifavaldur í allri list Silvíu.\nStefna listamannsins:\nFrá þverfaglegu\, sjónrænu sjónarhorni vekur Silvia Björg athygli á siðferðilegum spurningum og fagurfræðilegri samhjálp\, með því að nota „íhugun”\, svipað og gert var á tíma Rómantíkinnar\, sem endurspeglaði hið háleita\, en frá greiningarlegur sjónarmiði og byggist á hugleiðingum þar sem dvöl í náttúrunni er fagurfræðileg iðkun og leið til að byggja upp landslag.\nNáttúrulegum lífrænum efnum eru blandað saman við gervi frumefni\, til umhugsunar um óafturkræfar aðgerðir mannfólksins. Listakonan er einnig innblásin af því að lifa og upplifa náttúruna. Mismunandi verk skrá þannig ummerki um líkamlegt\, andleg og vitsmunalegt ferðalag. Í gagnrýninni og fagurfræðileg könnun landlagsins vekur hún athygli á náttúrunni og kveikir hugleiðingar úr frá mikilli ástúð sinni á Móður Jörð.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/silvia-bjorg-frjosemi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/frameduus.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR