BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20210819T141052Z
LAST-MODIFIED:20220916T105737Z
UID:18472-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Steina Vasulka: Of The North
DESCRIPTION:Steina (f. 1940)\nOf the North\, 2001\nVídeóinnsetning\nLÍ 8075 \nRisastór vídeóinnsetning Steinu af Norðrinu frá árinu 2001 er áhrifamikið og töfrandi verk sem lætur engan ósnortinn. Að geta tekið upp hljóð og mynd í rauntíma opnaði nýjar víddir í heimi sjónlista á sjöunda áratug síðustu aldar. Þau hjónin Steina og Woody Vasulka komust í kynni við framsækna listamenn á sviði nýrra miðla er þau bjuggu í New York þar sem þau ráku um tíma sýningar- og samkomustað fyrir hljóð- og vídeólistamenn sem þau opnuðu árið 1971 og kallaðist The Kitchen. Þetta var tími mikilla tækniframfara á sviði rafrænnar menningar ekki síður en geimvísinda. Steina (Steinunn Bjarnadóttir Briem) og Woody Vasulka voru frumkvöðlar sem unnu saman að margs konar rannsóknum er tengdust myndbandalist og beislun rafrænna boða og síðar stafrænna\, þar sem tækin sjálf voru jafnframt notuð í samtali sem miðaði að því að skapa áhugaverð verk þar sem ekkert var slegið af listrænum kröfum. Þetta samtal þeirra við tæki og tól varð einkar áhugavert og gefandi þar sem menntun Steinu í tónlist og tækniþekking Woodys naut sín. „Hreyfing og tími eru lykilatriði í minni list\,“ er haft eftir listakonunni. \nVerkið Of the North frá árinu 2001 er unnið út frá safni Steinu af vídeóupptökum\, mestmegnis af náttúru Íslands\, yfirborðinu eða því sem skoða má í smásjá. Örverur jafnt sem brim hafsins og bráðnandi ís\, berghrun ásamt margs konar náttúrufyrirbærum sem snerta jarðmyndun og niðurbrot á plánetunni okkar. \nVerkið vísar jafnframt út í geiminn þar sem sjá má hnattlaga kúlurnar snúast um ímyndaðan ás í seiðandi rytma með öllum þeim hljóðum sem fylgja. Hreyfitakturinn og orkan framkallar myndlíkingu sem getur leitt huga áhorfandans í margar áttir\, hvort heldur er að stórbrotinni fegurð eða jarðbundnum hugleiðingum um viðkvæma náttúru og forgengileika jarðarinnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/steina-vasulka-of-the-north/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/02/of-the-north1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211003
DTEND;VALUE=DATE:20220214
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20210921T112444Z
LAST-MODIFIED:20220916T111222Z
UID:19254-1633219200-1644796799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðmundur Thorsteinsson: Muggur
DESCRIPTION:Guðmundur Thorsteinsson 1891–1924 \nSagt var að allt sem Muggur snerti yrði að listaverki og mótaðist af hinum einstaka persónuleika hans. \nGuðmundur Thorsteinsson\, alltaf kallaður Muggur\, fæddist á Bíldudal 1891\, en fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar 1903. Hann nam myndlist við Konunglega listaháskólann 1911–1915. Listferill hans að námi loknu spannaði einungis tæp tíu ár\, en hann lést úr berklum 1924. Á stuttum ferli náði hann að skapa einstakan og persónulegan myndheim. Stíll hans var natúralískur og frásögn oftar en ekki í fyrirrúmi\, verk hans einkennast af fjölbreytileika og leit að listrænu frelsi. \n  \nMuggur var afar fjölhæfur listamaður\, en auk þess að fást við myndlist var hann einnig leikari og söngvari. \nHann lék á sviði og söng gamanvísur en einnig lék hann aðalhlutverkið í kvikmyndinni Saga Borgarættarinnar sem frumsýnd var árið 1920. \nVerkin á sýningunni eru í einkaeign og úr safneign Listasafns Íslands\, en árið 1958 fékk safnið 46 myndverk eftir Mugg að gjöf frá danska listmálaranum og prófessornum Elof Risebye (1892–1961). \nSýningarstjóri er Kristín G. Guðnadóttir \nSýningarstjóri: Kristín G. Guðnadóttir\, listfræðingur \nVerkefnastjóri sýningar: Vigdís Rún Jónsdóttir \nSýningarhönnuður: Helgi Már Kristinsson \nTextar: Kristín Guðnadóttir \nÞýðing: Anna Yates \nMarkaðsmál: Guðrún Jóna Halldórsdóttir \nUmsjón með fræðslu og viðburðadagskrá: Ragnheiður Vignisdóttir \nUmsjón tæknimála og ljósmyndum: Sigurður Gunnarsson \nForvarsla: Ólafur Ingi Jónsson og Nathalie Jacqueminet \nUppsetning: Helgi Már Kristinsson og Guðni Gunnarsson\, Ísleifur Kristinsson og Sigurður Gunnarsson \nStofnunum og einstaklingum sem eiga verk á sýningunni er sérstaklega þakkað fyrir liðsinnið.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudmundur-thorsteinsson-muggur/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/muggur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20230307T164204Z
LAST-MODIFIED:20231013T123055Z
UID:29650-1677888000-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rúrí: Glerregn
DESCRIPTION:Glerregn er innsetning frá árinu 1984 og er eitt fyrsta verk Rúríar í röð margra sem fjalla um tíma og ógnir. \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nListamaðurinn Þuríður Rúrí Fannberg (1951)\, eða Rúrí eins og hún kýs að kalla sig\, tilheyrir fámennum hópi íslenskra myndlistarmanna sem taka afgerandi pólitíska afstöðu í verkum sínum. Pólitíska vitund Rúríar á rætur sínar að rekja til frétta úr útvarpi í upphafi kalda stríðsins. Það andrúmsloft sem ríkti í heiminum á sjötta og sjöunda áratugnum birtist hér á landi í fréttaflutningi útvarpsins. Frásagnir af styrjöldum í Austurlöndum og vopnuðum innrásum í Austur-Evrópu og víðar ásamt uppgjöri tengdu útrýmingarbúðum voru daglegt brauð. Þá var vitneskjan um tilvist gereyðingarvopna beggja vegna Atlandsála ekki til að draga úr þeim ótta að friðurinn væri gálgafrestur. Rúrí tilheyrir fyrstu kynslóðinni sem óx úr grasi þess meðvituð að maðurinn gæti sjálfur eytt öllu lífi í kringum sig á svipstundu ef hann kærði sig um það. Þessi vitneskja hefur mótað viðhorf Rúríar sem myndlistarmanns en í mörgum verka Rúríar má sjá afstöðu hennar til stríðsreksturs og ofbeldis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ruri-glassrain/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameruri.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20230307T164204Z
LAST-MODIFIED:20231013T122631Z
UID:29652-1677888000-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rúrí: Glassrain
DESCRIPTION:Glassrain is an installation from 1984\, one of the first of Rúrí‘s many works that address the theme of time and menace. Glassrain comprises 500 razor-sharp fragments of glass\, each ending in a point; the glass sheets\, of variable length\, hang in clusters from ceiling to floor. Each piece is suspended on a clear thread\, and when a visitor walks past the piece\, air currents lead the glass pieces to turn on their threads.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ruri-glassrain/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/frameruri.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231015
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20231013T125206Z
LAST-MODIFIED:20231013T125206Z
UID:33043-1697328000-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Can’t See — Metaphysical Realm
DESCRIPTION:Enter the metaphysical realm\, the world where linear and rational truths are questioned. \nThe search for new forms and artistic explorations takes the form of twisted geometries\, tangled spheres and absorbing spirals. Here we start diffusing the tortured lines between imagination and reality\, uncertainty and knowledge to enmesh the fixed understandings of necessity and possibility. The mind needs to be shifted both at the individual and societal level in order to make room for the new which might as well also be a long forgotten truth. \nThis exhibition stems from the surrounding darkness. It starts from the feeling that the world is crumbling in our hands\, while a strong wind blows the last of its remains even further. We cannot see the ever-growing threat of ecological destruction\, just as we cannot see the potential new directions and life forms rising from the ruins of the old world. \nCan’t See is divided into four chapters\, which will provide a glimpse into spaces and times that are not usually perceived by the human eye: from the depths of the sea and layers beneath the soil to the debris of the past and visions of the future. The stories are told from a range of perspectives\, from hybrid birds to bacteria\, sea creatures\, an ancient tree or the ever blasting wind\, aiming to present different ways of seeing and experiencing the world that detach from the  numerous perspectives we are accustomed to. The moment in time is not fixed\, allowing us to travel deep into the mythical past or imagine futures yet to come. \nArtists: Agnes Denes\, Daria Melnikova\, Elo-Reet Järv\, Gerður Helgadóttir\, Ólöf Nordal\, Zenta Logina \nCurators: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-cant-see-metaphysical-realm/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387199785_703612855147917_6050111484520495337_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231015
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T055419
CREATED:20231013T124947Z
LAST-MODIFIED:20231013T124947Z
UID:33041-1697328000-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Frumspekivídd
DESCRIPTION:Gangið inn í frumspekivíddina\, heim þar sem línuleg og rökrétt sannindi eru dregin í efa. Leitin að nýjum formum og listræn landkönnun birtist í formi snúinnar rúmfræði\, flæktra hnatta og dáleiðandi spírala. Hér byrjum við að má út mörk ímyndunar og veruleika\, óvissu og vitneskju\, til að vefa saman viðtekinn skilning á nauðsyn og möguleikum. Hugurinn verður að að skipta um gír\, bæði á einstaklings- og samfélagsskala til þess að til verði pláss fyrir hið nýja – sem gæti allt eins verið löngu gleymdur sannleikur. \nSýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nGet ekki séð er skipt í fjóra kafla sem veita innsýn í rýmin og andartökin sem mannlegt auga nemur yfirleitt ekki: allt frá hafsbotni og jarðlögunum að braki fortíðar og draumum um framtíðina. Sögurnar eru sagðar frá ýmsum sjónarhornum\, allt frá blendingsfuglum að bakteríum\, að sjávarlífverum\, ævafornu tré eða óþreytandi vindinum. Markmiðið er að velta upp ólíkum leiðum til að sjá og upplifa heiminn og fjarlægjast þannig þau sjónarhorn sem við eigum að venjast. Teygjanlegur tími leyfir okkur að ferðast langt aftur í goðsagnakennda fortíð eða ímynda okkur ókomna framtíð. \nSýnendur: Agnes Denes\, Daria Melnikova\, Elo-Reet Järv\, Gerður Helgadóttir\, Ólöf Nordal\, Zenta Logina \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-frumspekividd/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387199785_703612855147917_6050111484520495337_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR