BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210605
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20210831T143950Z
LAST-MODIFIED:20220913T155438Z
UID:18875-1622851200-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Kolfinna Kuran: Yfirtaka
DESCRIPTION:Yfirtaka er röð gjörninga eftir Önnu Kolfinnu Kuran\, þar sem markmiðið er að fylla ólík rými með kvenorku og líkömum. Kveikju verksins má rekja til vangaveltna um sýnileika kvenna í samfélaginu. Á Íslandi er ekki hægt að fullyrða að konur séu ósýnilegar eða raddlausar. En hvaða konur eru það sem við heyrum í og sjáum? Hverjar eru það sem taka pláss og hafa hljómgrunn? Hugmyndin með Yfirtökunni er að búa til vettvang fyrir konur úr ólíkum samfélagshópum að sameinast í samstöðu og krafti. Verkið kannar mátt mýktarinnar og kyrrðarinnar og orkunnar sem myndast þegar margar konur koma saman. \nFyrir Listasafn Árnesinga hefur Anna Kolfinna skapað þríþætt verk sem byggir á hugmyndafræði Yfirtökunnar: myndbandsverk\, gjörning á opnun sýningarinnar og hljóðverk. Í myndbandinu mynda konurnar samstöðu\, búa til mynstur og máta sig við arkitektúr listasafnsins. Þetta er staðbundið myndbandsverk þar sem flytjendurnir fást við dularfullar og táknrænar athafnir. Á opnunardegi sýningarinnar þann 5. júní 2021\, gera konurnar innrás í listasafnið og fremja gjörning þar sem verða sterkar tilvísanir í athafnir myndbandsins. Þær birtast innan um sýningargesti og leiða hæga og stigmagnandi athöfn sem skapar dulúðlega og rafmagnaða stemmningu. Eftir opnunina endurfæðist hluti verksins. Raddhluti gjörningsins á opnunardeginum verður tekinn upp og settur aftur inn í rýmið\, þar sem hann mun hljóma líkt og bergmál gjörningsins\, og öðlast þannig sjálfstætt líf sem hljóðverk það sem eftir lifir sýningartímabilsins. \nMyndbandsverkið\, gjörningurinn frá opnunardeginum og hljóðverkið eru þríþætt nálgun á sama viðfangsefnið sem rannsakar mörk tíma og rúms í einum rauðum alheimi. \nAnna Kolfinna Kuran (f. 1989) er sjálfstætt starfandi listakona. Hún útskrifaðist með BA- gráðu af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013 og með meistaragráðu í performance fræðum (e. performance studies) úr New York Háskóla árið 2017. Verk Önnu Kolfinnu taka á sig ólíkar myndir þar sem flæði milli miðla\, greina og aðferða er greinilegt\, megin áherslan liggur þó í því sjónræna og líkamlega. Gegnumgangandi þemu í verkum hennar eru að rannsaka viðfangsefni sem við koma líkama konunnar og samtíma femínisma. Anna Kolfinna er meðal stofnenda fjöllistahópanna Dætur og Kraftverk sem unnið hafa að ýmsum sýningum sem meðal annars fyrir Reykjavík Dance Festival (2013) og Sequences Art Festival (2015). Undanfarin ár hefur Anna Kolfinna einblínt á langtíma verkefni sem ber titilinn Konulandslag þar sem hún rannsakar tengsl milli kyns og rýmis. Verkefnið er marglaga listræn og fræðileg rannsókn þar sem hún skoðar vægi kvenlíkamans og sýnileika kvenna í mismunandi umhverfum. Markmiðið með verkefninu er að varpa ljósi á og gera heim kvenna\, í sinni margslungnu mynd\, sýnilegan í formi lifandi verka á sviði\, gjörninga\, ljósmynda og myndbandsverka. \nMeðal þessara verka eru röð gjörninga undir yfirskriftinni Yfirtaka þar sem markmiðið er að fylla ólík rými með kvenlíkömum og röddum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-kolfinna-kuran-yfirtaka/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/takeover.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210605
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20210831T141358Z
LAST-MODIFIED:20211101T102707Z
UID:18867-1622851200-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Iðustreymi
DESCRIPTION:Gjörningaklúbburinn\, Katrín Elvarsdóttir\, Kristín Gunnlaugsdóttir\, Sara Björnsdóttir\, og Elísabet Jökulsdóttir \nAqua Maria – Gjörningaklúbburinn \nÍ verkinu Aqua Maria er sópransöngkona í rými sem svipar til gufubaðs en eftir því sem á líður verður rýmið óræðara. Á meðan söngnum stendur myndast vatnsdropar á hári hennar og andliti\, þéttast og þyngjast þangað til að þeir streyma niður andlitið. \nVídeóið hverfist um Aqua Maríu sem er táknmynd baráttuandans sem rís upp úr hafinu sem innblástur fyrir þá umbreytingu sem konur eru að upplifa í samtímanum\, undir áhrifum byltingar­ og baráttuanda gegn óréttlæti og ofbeldi\, eins og má sjá um allan heim í herferðum eins og #metoo\, Kvennagöngunni\, Black Lives Matter\, Druslugöngum og Free the Nipple sem eru skipulagðar á netinu. \nAqua Maria tekur einnig á brennandi umhverfismálum og hnattrænni hlýnun. Við eigum aðeins eina jörð og einn líkama\, hvortveggja samanstendur af 70% vatni. Aqua Maria er í okkur öllum og byltingin er í okkur öllum\, nafn hennar\, María\, felur bæði í sér hebreska orðið fyrir byltingu og íslenskt orð fyrir haf. \nAqua Maria vísar í sterka strauma samtímans: frá náttúrunni til femínisma\, frá list til vistfræði. Verkið táknar mannlegt traust á innsæi í ljósi nýrrar tækni og streymi stafræna hafsins. \nMyndlistarkonurnar Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir eru starfandi meðlimir Gjörningaklúbbsins sem var stofnaður af þeim ásamt myndlistarkonunni Sigrúnu Hrólfsdóttur árið 1996. Sigrún starfaði með hópnum til ársins 2016 og grafíski hönnuðurinn Dóra Ísleifsdóttir frá 1996-2001. \nEirún og Jóní útskrifuðust báðar frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1996. Eirún stundaði framhaldsnám við Listaháskólann í Berlín 1996-1998 og útskrifaðist með viðbótardiplómu í hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands 2014. Jóní stundaði framhaldsnám við Konunglegu listaakademíuna í Kaupmannahöfn 1997-1999 og útskrifaðist með mastersgráðu í kennslufræðum frá Listaháskóla Íslands 2011. \nHugmyndir Gjörningaklúbbsins tengjast oft félagslegum málefnum með feminískum áherslum í bland við glettni og hressandi einlægni. Gjörningaklúbburinn vinnur í þá miðla sem þjóna hugmyndum hans hverju sinni\, svo sem gjörninga\, ljósmyndir og innsetningar og nýtir sér gjarnan verkfræði ömmunar\, handverk og útsjónarsemi í bland við glæsileika og nútímatækni. \nGjörningaklúbburinn vann með Björk Guðmundsdóttur fyrir Volta plötu hennar 2007 og hefur í gegnum árin unnið að fjölbreyttum verkefnum með listafólki á borð við GusGus\, Ensamble Adapter\, Ragnari Kjartanssyni og Kiyoshi Yamamoto. \nGjörningaklúbburinn á að baki fjölda einka- og samsýninga í söfnum og galleríum um allan heim þar á meðal ARoS listasafnið í Danmörku\, Moma samtímalista-safninu í New York\, Kunsthalle Vienna í Austurríki\, Schirn Kunsthalle og samtíma-listasafninu Hamburger Bahnhof í Þýskalandi\, Amos Anderson listasafninu í Helsinki og Lilith Performance Studio í Svíþjóð. \nGjörningaklúbburinn var einn þriggja listamanna/hópa sem voru valin til þess að útfæra hugmyndir sínar nánar fyrir Feneyjatvíæringinn 2017 og var valinn Listhópur Reykjavíkur 2018 af Menningar- og ferðamálaráði Reykjavíkur. \nGjörningaklúbburinn er kynntur af Pinksummer Contemporary Art \nwww.ilc.is \n— \n  \nMargsaga – Katrín Elvarsdóttir  \nVið erum stödd innandyra og horfum út. Við erum stödd utandyra og horfum inn. Kona í rauðri kápu\, hjólhýsi eftir miðnætti\, gul gluggatjöld – allt eru þetta vísbendingar í brotakenndri frásögn sem vekja upp spurningar frekar en að gefa svör. Í myndaröðinni Margsaga verðum við vitni að óljósum atburðum sem við höfum óvart ratað inní. Eins og óboðnir gestir í sviðsmynd sem neitar að uppljóstra hvort hún sé raunveruleg eða skálduð. Brotin raðast saman og þröngva upp á okkur margræðri atburðarrás. Hvort sem okkur líkar betur eða verr. \nKatrín Elvarsdóttir (f. 1964) lagði stund á nám í myndlist og ljósmyndun í Bandaríkjunum. Ljósmyndaverk hennar einkennast af brotakenndum en jafnframt óræðum frásögnum\, þar sem leikið er með hugmyndina um sameiginlega minningarsköpun. Verkin innihalda oft frásagnir af dularfullum atburðum sem áhorfandinn verður óafvitandi hluti af\, þar sem ákveðnir hlutir eru sýnilegir en öðru er leyft að liggja á milli hluta\, og það sem útaf stendur kallast fram í hugskotsjónum áhorfandans. Þannig gerast verkin innan óræðs tíma og sögusviðs\, uppfull tilvísana og styðjast við kvikmyndalega aðferðarfræði\, mjúkan fókus og snarpa notkun ljóss og skugga. \nÁ sama tíma og Katrín hafnar hefðbundinni heimildanotkun ljósmyndamiðilsins nýtir hún sér rannsóknarmöguleika hans og eðlislæga eiginleika til áleitinnar myndsköpunar og fagurfræðilegrar tjáningar innan samhengis samtímalista. \nVerk hennar hafa verið sýnd víðsvegar hér á landi og erlendis\, má þar meðal annars nefna Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands\, Forum Box í Helsinki\, Ljósmyndasafnið í Seoul\, Martin Asbæk gallerí í Kaupmannahöfn\, BERG Contemporary í Reykjavík og Frankfurter Kunstverein í Frankfurt. Hún hefur hlotið verðskuldað lof fyrir verk sín og ýmis verðlaun\, meðal annars hin virtu EIKON verðlaun\, Deutsche Börse tilnefningu og Ridgefield Guild of Artists verðlaunin\, auk þess sem hún er meðstjórnandi Ljósmyndahátíðar Íslands. \n— \nSaumaðar teikningar – Kristín Gunnlaugsdóttir  \nSaumuðu verkin kalla ég saumaðar teikningar þar sem ég styðst við skissur eða hraðteikningar. \nOftast eru þetta konur og ómeðvitaðar línur en stundum krass sem skapast í teiknihreyfingunni. \nÉg teikna þær hratt og án umhugsunar og vildi stækka þær en varðveita um leið kraftinn og léttleikann sem býr í þeim. Saumurinn var niðurstaðan og síðan bætist litur þráðarins við\, það verður eins og að mála með ullinni. \nTextaverkin eru síendurteknar setningar með persónulegri handskrift. Setningarnar liggja í hversdagsleikanum og tengjast myndmáli teikninganna\, en með sífeldri endurtekningu þyngist merking orðanna\, breytist og magnast. \nKristín Gunnlaugsdóttir er fædd í Akureyri 1963. Hún stundaði nám við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands frá 1984-87\, lærði íkonagerð í klaustri í Róm á Ítalíu 1987-88 og útskrifaðist frá Accademia di belle Arti í Flórens 1988-94. \nKristín hefur eingöngu starfað við myndlist\, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum\, heima og erlendis. Verk hennar eru í eigu helstu opinberra safna landsins\, ásamt fjölda fyrirtækja og einkaaðila. Kristín hefur einnig verið stundakennari við Listaháskóla Íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík frá 2016. Hún hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og var veitt fálkaorðan árið 2018 fyrir framlag sitt til myndlistar. \nVerk Kristínar eru fjölþætt í tækni en byggja á klassískri hefð málaralistarinnar. Hún vinnur með teikningu\, málun á pappír og striga\, eggtemperu á tré með blaðgulli og saumuð verk á striga. \nHugmyndaheimur Kristínar beinist að tilvistarspurningum manneskjunnar\, ekki síst frá sjónarhóli konunnar og stöðu hennar í samtímanum. Á fyrstu árum ferilsins höfðu verk Kristínar yfir sér trúarlegan helgimyndablæ þar sem sýndu meðal annars samband manns og náttúru eða móður með barn. Í kringum 2011 breyttust verk hennar með tilkomu stórra saumaðra veggteppa þar sem myndmálið varð beitt og berort gagnvart kynhlutverkum\, kvenlíkamanum og bælingu. \nÞrátt fyrir að taka fyrir tabú og konuna sem kynveru má einnig greina ljóðrænan einfaldleika og húmor í verkum Kristínar\, ekki síst undanfarin ár. \nÍ verkum sínum er hún óhrædd að kanna nýjar slóðir og breyta til innan myndmáls síns\, gjarnan með að tefla saman andstæðum. \nkristing.is \n— \nBetween the lines / Milli línanna. Klippimyndir og textaverk 2011-2020 – Sara Björnsdóttir  \n„Undanfarin ár hef ég verið að vinna að texta-klippiverkum. Verkin bera titilinn Between the lines sem er lína/setning úr einu verkinu og tilvísun í að þó þetta sé mín hugarsmíð þá eru orðin klippt úr samhengi einhvers annars og liggja því milli línanna\, í verkunum sjálfum liggur líka eitthvað milli línanna sem gefið er í skyn en þarf að hugsa um.“ \n„Textinn er oft á tíðum eins og lítil saga\, ljóð eða pæling. Getur verið beittur\, ljóðrænn\, ádeila\, húmor eða súrrealískur. Hann fjallar mikið um listina\, að vera listamaður og manneskja. Stundum er ég að tala um fólk sem ég hef hitt á förnum vegi\, vini og vandamenn þó það sé ekki vitað við lestur verkanna.“ \nSara Björnsdóttir er fædd í Reykjavík 1962. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands frá 1991-1995 og MA Fine Art frá Chelsea College of Art & Design í London 1996-1997. \nFrá útskrift hefur Sara verið áberandi á íslenskri listasenu og starfað ötullega að myndlist. Hún á að baki fjölda einka- og samsýninga og hefur sýnt á helstu söfnunum á Íslandi. Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur eiga verk eftir hana. Árið 2001 hlaut Sara viðurkenningu úr Minningarsjóði Dungals og ári síðar 2002 viðurkenningu úr listasjóði Guðmundu Andrésdóttur. Árið 2010 hlaut hún Alternative Routes verðlaunin fyrir myndband á 700IS Hreindýraland. Á árunum 2000-2015 var hún stundakennari við Myndlistaskólann í Reykjavík og við Listaháskóla Íslands. Sara var stjórnarmeðlimur og gjaldkeri í stjórn Myndhöggvarafélags Reykjavíkur 2010-2011. Einnig hefur hún verið í úthlutunarnefndum Myndlistarsjóðs\, Kynningarmiðstöðvar íslenskar myndlistar og Muggs. Hún var einn af stofnendum Gallerí Kling & Bang í Reykjavík sem er í dag eitt virkasta og framsæknasta galleríið á Íslandi. \nÁrin 2015-2019 bjó Sara í London og stofnaði The Art Society sem er titillinn á verkefni sem voru tvær alþjóðlegar samsýningar með 20 listamönnum báðar haldnar í London. Ásamt því að stofna verkefnið\, var hún skipuleggjandi\, sýningarstjóri og einn sýnenda í báðum sýningum. \n— \nElísabet Jökulsdóttir \nElísabet Jökulsdóttir (f.16. apríl 1958) er rithöfundur og skáld í Reykjavík. Fyrsta bók hennar kom út árið 1989 en það var ljóðabókin Dans í lokuðu herbergi. Hún hefur gefið út fjölda bóka\, boðið sig fram í forsetaframboði árið 2016 og nú síðast vann hún Íslensku bókmenntaverðlaunin. \nelisabetjokulsdottir.is \nElsku jörð.  \nNú veit ég  \nhvað var svona  \nsorglegt.  \nAð vera.  \nSvo ég fór \nen ég er komin.  \nTil að vera.  \nOg þá heyri ég hljóð \nog heyri að þetta muni vera  \nrödd mín\,  \nsem hefur sofið í líkamanum.  \nHún kemur úr beinum mínum\,  \nvöðvum\, taugum og innyflum\,  \nrödd úr eldgömlu myrkri\,  \nrödd úr ókomnu ljósi. \nHugsa sér. Rödd\,  \nHún kemur úr frumunum\, \núr hverri einustu frumu \nhvíslandi\,  \nþróttmikil \,  \nsegjandi:  \nÉg er til.  \nViltu hafa hljóð.  \nHljóð.  \nOg gefa það frá þér.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/idustreymi/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/turbulence.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210605
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20210831T122812Z
LAST-MODIFIED:20211101T102618Z
UID:18862-1622851200-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Róska
DESCRIPTION:Listakonan og aðgerðasinninn Róska var engum lík. Listin kraumaði innra með henni og undiraldan í listsköpun hennar var persónuleg\, framúrstefnuleg og súrrealísk. Hún hét fullu nafni Ragnhildur Óskarsdóttir og var fædd í Reykjavík árið 1940. Róska hikaði hvergi í sköpunarferlinu og var óhrædd við að tjá sig um allt milli himins og jarðar. Hún lét verkin tala og tókst á við nýja og framúrstefnulega miðla á seinni hluta síðustu aldar. Persónulegt og súrrealískt myndmál hennar blandaðist andstöðu gegn abstraktlistinni og borgaralegum hugmyndum þess tíma. Konan var Rósku alla tíð hugleikin sem viðfangsefni og hún endurspeglaði eigin hugarheim og hugarheim kvenna í mörgum af verkum sínum. Hún var kona meðal karla í karllægu samfélagi myndlistar á sjöunda og áttunda áratugnum og hafði óbilandi trú á að konur væri jafnvígar körlum og þyrftu ekki að lúta karllægum lögmálum borgarastéttar þess tíma. Teikningar hennar bera vott um ofurnæman frásagnarstíl og einlægni\, og baráttuplaköt\, málverk\, ljósmyndir\, skúlptúrar\, skissur og gjörningar sýna að hún lét sig allt varða\, hvort er kom að pólitík eða persónulegum málefnum. Fyrir Rósku var lífið og listin samtvinnaður þráður. \nSýning á verkum eftir Rósku verður opnuð í Listasafni Árnesinga þann 5. júní næstkomandi. Þar gefur að líta valin verk frá ferli Rósku sem endurspegla sköpunarflæði\, hæfileika og framúrstefnu Rósku\, sem og persónulega\, ögrandi og einlæga nálgun í lífi og listsköpun. Til stendur að sýna fjölbreyttan og einstakan myndheim Rósku og hvað einkenndi hana sem listamann\, aktívista og manneskju\, og varpa frekari ljósi á hversu mikilvæg listsköpun Rósku var og er í listsögulegu samhengi og hvaða áhrif hún hafði og hefur enn á einstaklinga\, samfélag og samtíma. \nVerk Rósku verða sýnd í samtali við verk eftir íslenska samtímalistamenn sem þykja ríma við einstaka næmni og nálgun Rósku og búa yfir álíka orku og eldmóð\, framúrstefnu eða einlægni. Samtímalistamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa í teikningu sinni eða nálgun fengist við hugarheim kvenna í ólíkum miðlum\, miðlum sem Róska var óhrædd við að tileinka sér þó þeir hefðu verið framúrstefnulegir upp úr miðri síðustu öld. \nRóska (1940-1996) \nRagnhildur Óskarsdóttir\, Róska fæddist í Reykjavík árið 1940. Hún stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík einn vetur en innritaðist í Myndlista- og handíðaskólann árið 1960 þar sem hún var við nám til 1962 og kynntist framúrstefnulegum hugmyndum og listamönnum. Hún flutti til Prag og stundaði listnám þar veturinn 1962-1963\, bjó á listamannanýlendu París í eitt ár en flutti árið 1965 til Rómar á Ítalíu og stundaði nám í Accademia di Belle Arti di Roma til ársins 1967. Eftir námið var Róska virk í „avant garde“ myndlistarsenunni\, hún gekk til liðs við SÚM hópinn\, sýndi verk sín víða og tók virkan þátt í baráttu ungra aðgerðasinna í Reykjavík og í Róm. \nÁrið 1973 hóf Róska nám í kvikmyndagerð við Centro Experimentale Dell Arte Cinematografica og snéri sér að gerð kvikmynda og leikstjórn árið 1976 þegar hún lauk námi. Hún bjó í Róm til ársins 1990\, flutti til Íslands í byrjun tíunda áratugsins\, sinnti myndlist og sýndi ný verk. Róska hélt fjölda einkasýninga og tók þátt í samsýningum m.a. með SÚM hópnum á Íslandi\, í Skandinavíu og í Evrópu. Ásamt því að sinna listsköpun og aktívisma kenndi Róska grafík\, vann í ítölsku sjónvarpi og skrifaði greinar í blöð og tímarit á Íslandi og erlendis. Róska lést aðeins 56 ára að aldri á heimili sínu í miðbæ Reykjavíkur tíu dögum eftir að hafa framið gjörninginn Rok – Súrrealisminn lifir í Nýlistasafninu árið 1996. \nEftir Rósku liggja ótal verk unnin í ólíka miðla; bersögul málverk og pappírsverk\, fagurlega hönnuð og útfærð baráttuplaköt\, framúrstefnuleg silkiþrykk\, ljósmyndaverk\, gjörningar\, skúlptúrar og einlægar skissubækur og teikningar sem endurspegla hugarheim konu sem neitaði að gangast við hefðbundnum hugmyndum um list og samfélag í karllægum heimi myndlistar á seinni hluta síðustu aldar. Árið 2000 var haldin yfirlitssýning á verkum Rósku í Nýlistasafni Íslands\, sýningarstjóri var Hjálmar Sveinsson. Verk eftir Rósku má finna í safneign Nýlistasafnsins\, Listasafns Íslands\, Listasafni Reykjavíkur\, Stedelijk listasafninu í Amsterdam\, Nýlistasafninu í Madrid\, í Bari og Reggio Emilia á Ítalíu og víðar. \nSýningarstjóri: Ástríður Magnúsdóttir \n  \nÁstríður Magnúsdóttir (f. 1972) lauk BA prófi í listasögu og listfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 með kynjafræði sem aukafag og BA prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2008. Áhugasvið hennar innan listasögu og listfræði eru samtímalistir og menning\, ljósmyndasaga\, femínísk listfræði og staða kvenna innan myndlistarheimsins. Ástríður hefur á síðustu árum sinnt kennslu\, skrifum\, meistaranámi í listfræði\, sýningarstjórn og eigin rannsóknum\, ásamt því að sitja í nefndum tengdum listum og menningu\, þ.á.m. í ráðgefandi faghóp um styrkveitingar menningar\, íþrótta og tómstundaráðs sem fulltrúi Bandalags Íslenskra listamanna og tvisvar í úhlutunarnefnd Starfslauna myndlistarmanna. Ástríður sinnir um þessar mundir kennslu við Listnámsbraut Myndlistaskólans í Reykjavík og í Ljósmyndaskólanum ásamt því að vinna að eigin rannsóknum og sýningarverkefnum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/roska/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/05/Roska.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210703
DTEND;VALUE=DATE:20211223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20210831T142713Z
LAST-MODIFIED:20220916T110030Z
UID:18871-1625270400-1640217599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðrún Gunnarsdóttir & Inger-Johanne Brautaset: Hafið kemst vel af án okkar
DESCRIPTION:Hafið kemst vel af án okkar“ er samvinnuverkefni sem vísar til hafsvæðanna á milli Íslands og Noregs. Okkur langar til að miðla ferðalagi ofan í og óþekkt undirdjúpin – þar sem við syndum á meðal hákarla\, plantna\, svifa og annarra framandi tegunda\, auk plasts\, sem er ný en ekki óþekkt tegund.  \n„Hafbókin“ efir Morten Strøksnes hefur verið okkar sameiginlega lesefni fyrir þessa sýningu. \nÞegar fiskur drukknar \nMorten Strøksnes \nÞegar hlýnun jarðar ber á góma verður okkur tíðrætt um hver áhrifin á líf okkar á landi munu verða. Það er eðlilegt vegna þess hve óralangt er síðan forverar okkar skriðu upp á þurrt land og þróuðu með sér lungu og bein í stað tálkna og brjósks. Þess vegna liggur svolítil skekkja í sjónarhorninu. Þótt ástand jarðarinnar ráðist augljóslega af því sem gerist á landi\, ekki síst af athöfnum okkar\, er það eigi að síður hafið sem hefur úrslitaáhrif. Vegna þess að hafið er hinn mikli loftslagsstillir jarðarinnar. \nUndanfarin árþúsund hafa lífsskilyrðin í hafinu verið í ótrúlegu jafnvægi. En það er liðin tíð. Orsökin er gríðarlegt magn af gróðurhúsalofttegundum sem við hleypum út í andrúmsloftið. Í raun hefur hafið tekið við megninu (93 prósentum) af þessum umframhita af mannavöldum. Auk hitans hefur gríðarlegt magn af koltvísýringi safnast upp í heimshöfunum. Ef sú væri ekki raunin væri jörðin nú þegar orðin mörgum gráðum heitari. \nÞví miður hefur þetta velviljaða gangverk sín takmörk og sinn kostnað í för með sér. Reikningurinn liggur á borðinu\, við getum unnið okkur inn tíma en við eigum ekki í nein hús að venda. \nHlýnun sjávar þarf ekki að vera skelfing í sjálfu sér enda þótt hún breyti vistkerfinu umtalsvert (það hefur alltaf verið breytingum undirorpið). Stóra vandamálið til lengdar er að hlýrra haf geymir minna kolefni og flýtir þannig enn frekar fyrir allsherjarhlýnun jarðar. Heitt haf býr þar að auki yfir minna súrefni en kalt haf. \nEnnfremur gerir aukið magn af koltvísýringi það að verkum að hafið verður sífellt súrara. Í kjölfar þess að við\, fyrir tvö hundruð árum síðan\, hófum að losa mikið magn af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið hefur sýrustig sjávar lækkað hægt en örugglega. Undir næstu aldamót mun það líklega hafa sigið niður í 7\,8 (úr 8\,2 fyrir tvö hundruð árum síðan)\, telja vísindin. Það þýðir að hafið verði orðið súrara en flestar tegundir fiska og sjávardýra þola. Umskiptin verða hraðari en svo að sjávardýrin fái ráðrúm til aðlögunar. Vistkerfið mun hrynja\, allt frá toppi fæðukeðjunnar og niður í smæstu svifþörunga. \nVissuð þið annars að ein tegund af þessum agnarsmáu svifþörungum „fann upp“ ljóstillífunina fyrir óralöngu síðan\, á forsögulegum tíma jarðarinnar? Með því að nota orkuna frá sólinni tókst þeim að binda koltvísýringinn. Í þessu ferli varð súrefnið afgangs. Þannig voru lögð drögin að tilkomu okkar; það voru blágerlar í hafinu sem gerðu það að verkum að gildi koltvísýrings í andrúmsloftinu lækkaði en súrefnisgildið hækkaði. Þar til loks var hægt að draga andann. Blágerlarnir\, sem vísindin þekktu ekkert til fyrir fáeinum áratugum síðan\, hafa framleitt tvo þriðju hluta af öllu því súrefni sem fyrirfinnst á jörðinni. \n„Þetta reddast“ höfum við tilhneigingu til að segja við sjálf okkur\, kannski af djúpstæðri sjálfsvarnarþörf. En oft hefur ekkert reddast\, sérstaklega ef við reynum að setja hlutina í víðtækt samhengi (sem við erum ekkert góð í). Eitt dæmi: Við endalok permtímabilsins (fyrir 299-251 árum síðan)\, varð jörðin fyrir mestu fjöldaútrýmingu í sögu sinni. Eldgos í Síberíu bætti gríðarlegu magni af fosfóri út í andrúmsloftið og megnið af því endaði í hafinu. Þörungar vita ekkert betra en fosfór og þörungabúskapurinn náði hæstu hæðum. Þetta gekk nærri súrefnisbirgðum hafsins. Þegar allt þetta lífræna efni varð dauða og rotnun að bráð fylltist hafið af brennisteinstvíildi. Þessar hamfarir útrýmdu flestum (96 prósent) sjávardýrategunda og í dag þekkjum við þær eingöngu af steingervingum\, í mesta lagi. \nAllar fjöldaútrýmingar hafa tengst breytingum í hafinu\, beint eða óbeint. Sérstakar aðstæður gætu hafa komið ferlinu af stað\, svo sem gríðarlegt eldgos eða kuldaskeið. Mestu hamfarirnar stafa þó af laumulegum og hæggengum ferlum sem Hollywood mun aldrei gera neinar kvikmyndir um. Afleiðingin er breyting á hitastigi sjávar\, sýrustigi\, súrefnismettun og magni koltvísýrings eða fosfórs. Það sem við vitum er að hitastigið eykst hraðar í dag en á meðan stærsta fjöldaútrýming á jörðu stóð yfir. Vísindamenn sjá að súrefnismagnið í hafinu minnkar\, vegna „jarðræktar“ okkar og vegna þess að hlý höf binda minna súrefni en köld höf. Er ég þá að halda því fram að við stöndum frammi fyrir nýrri fjöldaútrýmingu? Nei\, það er eru mörg hundruð vísindamanna í fremstu röð sem halda því fram. \nAtvik verða sjaldan með alveg nákvæmlega sama hætti. En efnafræðileg viðbrögð stjórnast af lögmálum\, ekki duttlungum eða ímyndunum. Þegar efnasamsetningin í andrúmsloftinu og í hafinu breytist mun það hafa miklar og fyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir lífið á jörðinni eins og við þekkjum það í dag. Þau lífsform sem hafa aðlagast núverandi loftslagi og efnajafnvægi eru sköpuð fyrir nákvæmlega þessi skilyrði\, en þeim er ekki eiginlegt að lifa þegar forsendurnar breytast umtalsvert. \nVísindin gefa lítið tilefni til bjartsýni. Jafnvel þótt við steinhættum tafarlaust að menga andrúmsloftið (sem er fræðilegur möguleiki)\, myndi það ekki stöðva ferlið sem hlýnun af mannavöldum hefur komið af stað. Kolefnishringrásin á milli lofts\, hafs og jarðar myndi halda áfram. Ef það yrði skyndilega mun minni koltvísýringur í andrúmsloftinu myndi hafið skila af sér miklu magni af koltvísýringi til að laga sig að aðstæðunum. Vegna slíkra innbyggðra viðbragða munu mengandi áhrif okkar vera virk langt inn í framtíð sem við höfum enga yfirsýn yfir. \nJarðfræðingar\, jöklafræðingar og loftslagsfræðingar\, hafa kennt okkur heilmikið um forsögu jarðarinnar. Við vitum að áður fyrr hefur verið mun meira magn af koltvísýringi á jörðinni en nú er. Mun heitara\, mun kaldara eða að yfirborð sjávar hafi verið 30 metrum hærra en nú. En það er engin huggun af því að þá mun jörðin heldur ekki hafa verið lífvænleg fyrir okkur. Stórtækar loftslagsbreytingar hafa margsinnis valdið fjöldaútrýmingu. Þá hefur flestu verið útrýmt\, nema allra harðgerðustu tegundunum. Það bendir því miður fátt til þess að við séum slíkur útvalinn hópur\, þrátt fyrir alla okkar háþróuðu tækni. \nAndstætt flestum öðrum lifandi skepnum jarðarinnar getum við ekki lifað í hafinu. En við getum heldur ekki lifað án þess.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrun-gunnarsdottir-inger-johanne-brautaset-hafid-kemst-vel-af-an-okkar/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/06/havet.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211128
DTEND;VALUE=DATE:20211223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20211108T110058Z
LAST-MODIFIED:20211108T110058Z
UID:20028-1638057600-1640217599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásdís Sif Gunnarsdóttir: Cosmic Clock
DESCRIPTION:Ásdís Sif Gunnarsdóttir will present a new video work during December 2021.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asdis-sif-gunnarsdottir-cosmic-clock/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/asdis-sif-vid.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211128
DTEND;VALUE=DATE:20211223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20211108T105840Z
LAST-MODIFIED:20211108T105840Z
UID:20024-1638057600-1640217599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásdís Sif Gunnarsdóttir: Alheimsklukkan
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asdis-sif-gunnarsdottir-alheimsklukkan/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/asdis-sif-vid.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230821
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230208T103347Z
LAST-MODIFIED:20230208T103347Z
UID:29264-1676073600-1692575999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Cornerstone
DESCRIPTION:The museum has a unique collection of approximately 550 works of art\, from the greatest masters of Icelandic art to lesser-known artists. Founded in 1963\, it was the first art museum in Iceland to open outside the capital. Bjarnveig Bjarnadóttir and her sons Loftur and Bjarni Markús may justly be said to have laid the cornerstone for the LÁ Art Museum with a generous donation of works of art from their collection in 1963. Their initial gift comprised 41 works of art\, and they continued to donate works to the museum until 1986 – when the collection amounted to 75 works of art. It contains works of the greatest masters of Icelandic painting in the first half of the twentieth century: 19 paintings by Ásgrímur Jónsson\, and works by Kjarval\, Gunnlaugur Scheving\, Jón Stefánsson and Þorvaldur Skúlason among others. Bjarnveig’s taste is noteworthy\, as is her sense of new trends\, as shown in her later gifts. She paid attention to the work of abstract artists (Hörður Ágústsson and Kjartan Guðjónsson) but also devoted a lot of effort to the works of Icelandic women\, such as Björg Þorsteinsdóttir\, Þorbjörg Höskuldsdóttir and Ragnheiður Jónsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/cornerstone/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/Safneign-gjöf-Bjarnveigar-007-1200x806-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230211
DTEND;VALUE=DATE:20230821
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230208T103202Z
LAST-MODIFIED:20230208T103202Z
UID:29260-1676073600-1692575999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hornsteinn
DESCRIPTION:Safnið býr yfir einstöku samansafni af um það bil 550 listaverka\, allt frá merkustu meisturum íslenskrar myndlistar til atgervisgróskunnar í sveitunum í kring. Það var stofnað árið 1963 og er þar með fyrsta listasafnið á Íslandi sem tók til starfa utan höfuðborgarinnar. Því verður með réttu haldið fram að Bjarnveig Bjarnadóttir* og synir hennar Loftur og Bjarni Markús hafi lagt hornsteininn að Listasafni Árnesinga með rausnarlegri gjöf listaverka úr sinni eigu til Árnessýslu árið 1963. Gjöf þeirra var 41 listaverk og héldu mæðginin áfram að gefa safninu verk fram til ársins 1986 og taldi safnið þá 75 listaverk. Það inniheldur verk merkustu meistara íslenskrar málaralistar á fyrri helmingi tuttugustu aldar: 19 málverk eftir Ásgrím Jónsson og verk eftir Kjarval\, Gunnlaug Scheving\, Jón Stefánsson og Þorvald Skúlason meðal annarra. Smekkur Bjarnveigar er eftirtektarverður sem og skynbragð hennar á nýja strauma eins og birtist í síðari gjöfum hennar. Hún lagði sig eftir verkum abstraktlistamanna (eftir Hörð Ágústsson og Kjartan Guðjónsson) en lagði líka mikið upp úr að gefa verk íslenskra kvenna\, á borð við Björgu Þorsteinsdóttur\, Þorbjörgu Höskuldsdóttur og Ragnheiði Jónsdóttur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hornsteinn/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/Safneign-gjöf-Bjarnveigar-007-1200x806-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230901T115015Z
LAST-MODIFIED:20230908T125134Z
UID:32594-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Jónsdóttir: Kosmos / Kaos
DESCRIPTION:When considering Ragnheiður Jónsdóttir’s oeuvre within the field of drawing and graphic art in Iceland’s art history\, her iconic status is evident. The exhibition Cosmos/Chaos marks the year of her 90th birthday\, and Ragnheiður’s messages from the 1970s regarding women’s empowerment\, environmental awareness and social responsibility are still remarkably apt in the present day. Her graphic works depict everyday phenomena rich in symbolism\, referencing industrial development\, political turmoil and unrest\, damage to nature\, social activism\, the patriarchy and the women’s movement. Starkly relevant to our present social and environmental issues\, her works remain sharp and contemporary today.\nRagnheiður’s early works are characterised by powerful symbolism\, together with the meticulous and detailed-oriented hard labour that typifies the arduous medium of graphic art. The themes of her graphic works are unsettling and intriguing – abounding in surrealism and dry wit. Ragnheiður draws upon cultural metaphors within bizarre forms and creations that directly reference political\, moral and social issues in Iceland at the time. Her graphic works strongly influenced the women’s liberation movement\, and to this day she is seen as one of the leading pioneers of feminist art in Iceland. Her practice is one of contrasts – and not only the literal contrast between black and white. Ragnheiður’s works are rooted in the dichotomy between meticulousness and freedom\, abstraction and symbolism\, natural and mechanical\, pictorial representation and emotive feeling\, between graphic art and free-form drawing. In the 1990s\, Ragnheiður began working solely with large-scale charcoal drawing\, leaving behind the time-consuming and precise practice of graphic art she had spent a lifetime mastering. Moving away from a literal symbolic language\, in this new direction Ragnheiður focussed on an imagery of pure expression and abstraction. Ragnheiður’s charcoal drawings were no less incisive and trenchant than her graphic works\, but they were imbued with more freedom of movement\, a quality of lightness\, and abstract symbolism.\nWhat lessons can be learned from Ragnheiður’s 60 years as a pioneer of graphic art and gestural drawing? Her shifting and constantly evolving practice points to something inherent within human nature – the need for freedom\, abstraction\, breathing and movement\, amidst the bustle of everyday existence. Ragnheiður’s career attests to the impact an artist can have on their society\, the power a single artistic voice has to call attention to issues\, to urge action\, and to influence social and political change\, generation after generation.\n——————————\nRagnheiður held his first solo exhibition in 1968 and has been working non-stop on art since. Ragnheiður’s work is often about self-deception – blindness – greed – loneliness – restlessness – the environment – our world.\nRagnheiður says that\, in her mind\, art is a conversation between the artist and the viewer. That the purpose is achieved when she manages to move the viewer.\n\nCurator: Daría Sól Andrews
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-jonsdottir-kosmos-kaos/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/RJ_Verk_Katalogur-7-1200x1192-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230901T114828Z
LAST-MODIFIED:20230908T125108Z
UID:32588-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Jónsdóttir: Kosmos / Kaos
DESCRIPTION:Þegar horft er yfir höfundarverk Ragnheiðar Jónsdóttur á sviði teikninga og dráttlistar í íslenskri listasögu sést bersýnilega hve einstök staða hennar er. Sýningin Kosmos/Kaos er haldin á nítugasta afmælisári hennar og skilaboð Ragnheiðar frá áttunda áratug síðustu aldar\, um kvenréttindi\, umhverfisvitund og samfélagslega ábyrgð\, eiga enn vel við í dag. Í grafíkverkum Ragnheiðar birtast hversdagsleg fyrirbæri hlaðin táknum og vísa í vaxandi iðnað\, pólitískt umrót og deilur\, áníðslu á náttúrunni\, félagslegan aktívisma\, feðraveldið og kvenréttindahreyfinguna. Verk hennar eru beitt og fersk og hróplega áríðandi í umhverfis- og samfélagsmálum nútímans.\nVerk frá upphafi ferils Ragnheiðar einkenndust af öflugum symbólisma og nákvæmum\, krefjandi vinnubrögðum með ríkri áherslu á smáatriði\, en slíkar aðferðir eru dæmigerðar fyrir grafíska list. Ríkjandi stef í verkum hennar eru óþægileg og forvitnileg – þrungin súrrealisma og þurri kímnigáfu.\nRagnheiður nýtir sér menningarlegar myndlíkingar með undarlegum formum sem vísa beint í pólitísk\, siðferðisleg og samfélagsleg málefni á Íslandi á þessum tíma. Verk hennar höfðu mikil áhrif á kvenfrelsisbaráttuna og hún er enn í dag talin ein af mikilvægustu forvígiskonum feminískrar listar á Íslandi. Vinna hennar einkennist af andstæðum\, og ekki einungis bókstaflegum andstæðum hins svarta og hins hvíta\, heldur á hún einnig rætur í tvískiptingunni á milli smásmygli og frelsis\, abstraksjónar og symbólisma\, náttúrulegs og vélræns\, myndrænnar framsetningar og tilfinningaþrunginnar túlkunar\, á milli grafíklistar og frjálsrar teikningar. Á tíunda áratugnum byrjaði Ragnheiður að vinna eingöngu með stórar kolateikningar og sagði skilið við nákvæma þolinmæðisvinnu grafísku verkanna sem hún hafði helgað sig fram að því. Hún fjarlægðist hið bókstaflega líkingamál en einbeitti sér að myndmáli hreinnar og óhlutbundinnar tjáningar. Kolateikningar hennar voru jafn beittar og ákveðnar og grafísku verkin en bjuggu yfir frjálsari hreyfingu\, léttleika og abstrakt táknsæi.\nHvaða lærdóm má draga af sextíu ára ferli Ragnheiðar sem frumkvöðuls í grafískri list og látbrigðateikningum? Síbreytileg og stöðugt vaxandi list hennar vísar í eðlislæga eiginleika mannsins – þörfina fyrir frelsi\, abstrakt\, öndun og hreyfingu\, mitt í basli hversdagsins. Ferill Ragnheiðar ber vitni um þau áhrif sem listamaður getur haft á samfélag sitt\, þann kraft sem býr í rödd eins listamanns sem vekur athygli á málefnum\, hvetur fólk til aðgerða og ýtir undir samfélagslegar og pólitískar breytingar kynslóð eftir kynslóð.\n  \nRagnheiður hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1968 og hefur frá þeim tíma unnið óslitið að myndlist til dagsins í dag. Þráðurinn í verkum Ragnheiðar er sjálfblekkingin – blindnin – græðgin – einsemdin – andvaraleysið – umhverfið – heimurinn okkar. Ragnheiður segir að myndlist sé í hennar huga samtal listamannsins og áhorfandans. Að tilganginum sé náð þegar að henni tekst að rumska við áhorfandanum.\n  \nRagnheiður Jónsdóttir er Árnesingur í báðar ættir. Móðir hennar Sigurbjörg var dóttir Ingvars Hannessonar bónda að Skipum Stokkseyrarhreppi og fyrri eiginkonu hans Vilborgar Jónsdóttur frá Sandlækjarkoti Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Ingvar bóndi á Skipum og Ásgrímur Jónsson listmálari voru systrasynir. Mæður þeirra voru systurnar Sigurbjörg og Guðlaug frá Vantsholti í Flóa. Faðir Ragnheiðar var Benedikt sonur Guðjóns Jónssonar bónda frá Seli og eiginkonu hans Kristjönu Jónsdóttur frá Grímsfjósum Stokkseyri. Þau bjuggu að Leiðólfsstöðum Stokkseyrarhreppi\n  \nSýningarstjóri: Daría Sól Andrews.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-jonsdottir-kosmos-kaos/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/09/RJ_Verk_Katalogur-7-1200x1192-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230824T100312Z
LAST-MODIFIED:20230908T125143Z
UID:32440-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jakob Veigar Sigurðsson: May Your Hand Not Hurt
DESCRIPTION:Jakob Veigar (born 1975 in Hveragerði\, Iceland) currently lives and works in Vienna. His u-turn into the art world happened quite late in life\, after a whole life and career as a civil engineer.\nJakob graduated with a Bachelor’s degree from the Icelandic University of the Arts in 2016\, and continued to become „Herr Magister“ at the Academy of Fine Arts in Vienna in 2019.\nPainting is Jakob’s main medium\, inspired mainly by personal experience\, an alcoholic mind that tries to understand the society he lives in\, and his deep connection to nature.\nJakob has used his journeys to culturally diverse places such as India and Iran to expand the horizon of his work\, and to deepen both his understanding and his connection to countries very different from his own.\nDespite a rather short career in the art world\, Jakob’s works can be found in private collections all over the world. His paintings have been exhibited in Iceland\, around Europe\, and in China.\n“May Your Hand Not Hurt” is the story of a passage from Iceland to Iran; of an artist who chased love\, between continents\, in times of a global pandemic. An odyssey into one of the world’s oldest civilizations\, where he found pieces of himself in landscapes vastly different from his own. Of a love lost on the way\, all while collecting stories and works from artisanal and nomadic communities all over Iran. From dirty rags all the way to priceless textiles and embroidery\, Jakob Veigar uses these materials to create an entirely new world of his own.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jakob-veigar-sigurdsson-may-your-hand-not-hurt/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/366530375_764877998981447_595951561021733846_n-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230902
DTEND;VALUE=DATE:20231223
DTSTAMP:20260530T104811
CREATED:20230824T100113Z
LAST-MODIFIED:20230908T125115Z
UID:32436-1693612800-1703289599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jakob Veigar Sigurðsson: Megi hönd þín vera heil
DESCRIPTION:Jakob Veigar (1975) starfar og býr í Vínarborg en er uppalinn í Hveragerði. Hann fetaði fremur seint inn á veg myndlistarinnar eftir að hafa snúið baki við byggingariðnaðinum og snúið sér að Myndlist . Hann útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2016 og sem „Herr Magister“ í myndlist frá Akademie der bildenden Künste í Vínarborg 2019.\nJakob er einnig með BA gráðu í byggingatæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík. Málverkið er hans aðal miðill og er innblásið af persónulegri reynslu\, alkóhólískum huga sem reynir að skilja samfélagið sem hann dvelur í á hverjum tíma ásamt djúpri tengingu hans við náttúruna.\nJakob hefur á ferðalögum á framandi slóðir m.a annars Indland og Íran notað myndlistina til að dýpka skilning og tengingu við framandi menningu.\nÞrátt fyrir stutta viðkomu í myndlistinni er verk Jakobs að vinna í einkasöfnum víða um heim og hafa verk hans verið sýnd ásamt Íslandi víða um Evrópu\, Kína ofl.\nMegi hönd þín vera heil\, er saga af ferðalagi frá Íslandi til Írans. Saga af listamanni sem elti ástina á milli heimsálfa á tímum heimsfaraldar. Ferðalag til einnar af elstu menningu veraldar þar sem hann fann hluta af sjálfum sér í landslagi töluvert frábrugðið hans eigins. Saga af ást sem glataðist\, á meðan hann safnaði sögum og efni frá hirðingjum og handverksfólki um allt Íran. Allt frá Frá skítugum mottum\, ómetanlegum vefnaði og útsaum sem hann notar til að skapa sína persónulegu og einstöku veröld.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jakob-veigar-sigurdsson-megi-hond-thin-vera-heil/
LOCATION:Listasafn Árnesinga\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/366530375_764877998981447_595951561021733846_n-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR