BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220903
DTEND;VALUE=DATE:20220925
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20220908T140332Z
LAST-MODIFIED:20220908T140332Z
UID:25848-1662163200-1664063999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Pétur Gaut: Skálar
DESCRIPTION:Pétur Gautur er vel þekktur fyrir uppstillingar sínar og djarft litaval í málverki. Hann aðhyllist einfaldleikann\, notar fáa en vel valda liti með áherslu á andstæður ljóss og skugga. Uppstillingin\, svokallað „still life”\, er klassískt viðfangsefni í listasögunni sem býður þó alltaf upp á nýja nálgun sem Pétur Gautur hefur í gegnum tíðina kannað og leikið sér með. Í nýjustu verkum hans er íslenski valmúinn í aðalhlutverki. Í þeim verkum hefur Pétur fjarlægst hina klassísku uppbyggingu „still life” verkanna\, eða uppstillinganna. Kunnugleg skálaformin endurtaka sig þó í krónum valmúans sem hríslast um myndflötinn í óbeislaðri fegurð sinni.\nPétur Gautur er fæddur í Reykjavík árið 1966. Hann stundaði nám í listasögu við Háskóla Íslands og í málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hann er einnig með M.Art Ed. gráðu í listkennslu frá Listaháskóla Íslands.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/petur-gaut-skalar/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/303369129_416112920610759_3295601001681425557_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220903
DTEND;VALUE=DATE:20220925
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20220907T101519Z
LAST-MODIFIED:20220926T125424Z
UID:25727-1662163200-1664063999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Pétur Gaut: Bowls / Skálar
DESCRIPTION:Pétur Gautur is well known for his timeless still life paintings and a fresh selection of colour in his work. Pétur Gautur is a firm believer in simplicity\, often using only a few but carefully selected colours\, focusing on the contrast between shadows and light. The still life is a classic motif in art history\, but it can always be approached from a new angle\, which Pétur Gautur has explored and played with throughout his career. Lately the flower papaver\, or poppy\, has emerged more often in his art\, and the artist is moving away from the classical structure of still life painting. However the familiar form of the bowl from the still life repeats itself in the form of the poppy flowers as they make their way along the canvas in their unbridled beauty.\nPétur Gautur was born in Reykjavík in 1966. He studied art history at the University of Iceland and attended the painting department of the Icelandic College of Arts and Crafts. He also has an M.Art Ed. degree in teaching art from the Icelandic University of the Arts.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/petur-gaut-bowls-skalar/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/303369129_416112920610759_3295601001681425557_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221015
DTEND;VALUE=DATE:20221030
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20221013T153618Z
LAST-MODIFIED:20221110T111423Z
UID:26930-1665792000-1667087999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ástríður J. Ólafsdóttir: Fellingar
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/astridur-j-olafsdottir-fellingar/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Cercando-la-Luce-web-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221015
DTEND;VALUE=DATE:20221030
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20221013T153514Z
LAST-MODIFIED:20221110T095135Z
UID:26926-1665792000-1667087999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ástríður J. Ólafsdóttir: Fellingar
DESCRIPTION:Það er nýr heimur að myndast\, efni og klæði falla saman og mynda heimsmynd. Rétt eins og þegar jörðin býr til fjöll og dali með jarðskjálftum og eldgosum. Agnir dragast saman og verða plánetur\, loftsteinar og sólir. Líkt og komið sé út í geim og verkin mynda nýja stjörnuþoku. Sjónarhornið færist nær\, inn í pláneturnar og ímyndað landslag myndast\, minnir á eldfjöll eða jökla úr draumalandi. Einfalt í byrjun en verður svo flóknara. Alveg eins og lífið sjálft.\n\nMyndaröðin á sýningunni heitir „Panneggio“ eins og tæknin sem gömlu ítölsku meistararnir notuðu sem sérhæfðu sig í að mála klæði\, fellingarnar í efninu\, samspil ljóss og skugga og anatómíu klæðanna.\nPanneggio serían varð til við samruna tveggja hugðarefna Ástríðar. Loftfimleika (aerial silks) og myndlistarinnar. Þar mættust andstæðurnar hreyfing og kyrrð. Í loftfimleikunum notar „aerialistinn“ hangandi klæði til þess að klifra upp eftir og dansa í loftinu. Hann skapar atburð sem er andartak\, ólíkt málaranum sem situr kyrr og málar í marga klukkutíma í sömu stellingunni\, festir augnablikið á strigann og gerir það eilíft. Annars vegar er augnablikið og hins vegar eilífðin.\n\n“Mér fannst áhugavert að skoða hvernig ég gat leikið mér með efnið\, búið til úr því skúlptúra og yfirfært með olíumálningu á strigann. Svo bætti ég ljósi í leikinn og þá urðu til verk þar sem ljósið er eins og bundin orka\, föst inn í efninu og reynir að brjótast í gegn. Útkoman eru þessar abstrakt myndir unnar á raunsæjan hátt. Einhvers konar abstrakt raunsæi sem augað getur túlkað áfram.”\n\nÁstríður Jósefína Ólafsdóttir lærði myndlist í Bologna á Ítalíu. Hún útskrifaðist árið 2016 frá Accademia di Belle Arti di Bologna\, með meistaragráðu í Visual Arts. Á námsárunum sýndi hún víða í Bologna m.a. í Museo civico Medievale.\nFyrsta einkasýning hennar á Íslandi var sumarið 2021 í Húsi Máls og menningar í Reykjavík og sumarið 2022 sýndi hún í Núllið gallerí í Bankastræti.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/astridur-j-olafsdottir-fellingar/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Cercando-la-Luce-web-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230603
DTEND;VALUE=DATE:20230625
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20230602T161454Z
LAST-MODIFIED:20230602T161454Z
UID:31508-1685750400-1687651199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásta Sigurðardóttir: Dúkristur
DESCRIPTION:Listakonan Ásta Sigurðardóttir varð „fræg á einni nóttu“ eins og títt hefur verið sagt\, þegar smásaga hennar „Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns“ kom út í tímaritinu Líf og list árið 1951. Ásta var þá 21 árs gömul. Um viðtökurnar við sögunni og skáldkonuna Ástu hefur mikið verið ritað og rætt í gegnum tíðina og óþarfi að tíunda það hér. Minna hefur farið fyrir myndlistakonunni Ástu\, en Ásta var afar hæfileikarík og fjölhæf listakona. Hún vann um tíma í leirkeraverksmiðjunni Funa þar sem hún fékkst við listskreytingar á leirkerum. Hún fékkst einnig við málaralist\, teikningu og grafík\, auk þess sem hún myndskreytti og hannaði spil með mögnuðum teikningum af íslenskum þjóðsagnapersónum. Henni lánaðist þó ekki að klára spilin\, en þau voru gefin út í fyrsta skipti fyrir jólin 2022 af Forlaginu\, fyrir tilstuðlan afkomenda hennar. Og nú hafa afkomendur hennar einnig staðið fyrir því að endurvekja dúkristur móður sinnar.\nDúkristur Ástu prýddu smásagnasafn hennar Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns sem kom út árið 1961. Ekki er vitað til þess að fleiri eintök hafi verið þrykkt af dúkristum Ástu\, nema þau sem notuð voru við prentun bókarinnar. Afkomendur Ástu fengu til liðs við sig grafíklistamanninn Guðmund Ármann sem þrykkti 50 eintök af hverri mynd og bjóðast þær nú til sölu í Gallerí Fold á þessari sérstöku sýningu. Það er mikill fengur í því að verk Ástu séu nú risin upp úr bókunum og fái að njóta sín sem sérstök listaverk eins og þau eiga skilið.\nDúkristurnar eru allar svartar í grunninn\, sem kannski gerir þau drungaleg við fyrstu sýn\, enda voru þau unnin til að styðja við tragískan og myrkan undirtón í sögum Ástu. Grófleiki\, hvöss og kassalaga form einkenna dúkristur Ástu\, sér í lagi þegar hún teiknar karlmenn\, eins og sjá má á myndum hennar við sögurnar „Sunnudagskvöld til mánudagsmorguns“ og „Gatan í rigningu“\, en formin mýkjast þegar hún teiknar konur og sérstaklega börn. Má þar nefna ungu stúlkuna sem dreymdi um betra líf í „Kóngaliljum“ og börnin í „Dýrasögu“ og „Skerplu“. Smásagnasafn Ástu er afar fallegt og heildstætt listaverk sem sýnir að Ásta var ekki síðri myndlistarkona en rithöfundur og gaman að rýna í texta hennar út frá því samhengi\, því oft flæðir myndmálið inn í textann og í sögum hennar má finna margar einstaklega myndrænar og kyngimagnaðar lýsingar. T.d. vorlýsingar sveitapiltsins í sögunni „Skerpla“.\n“Stórir flotar regnskýja sigldu blásandi byr yfir ljósbláan himinsæinn fyrir gullbryddum þokuseglum. Skínandi andlit sólarinnar faldi sig glettnislega bakvið silfurgráa maríutásu og tvöfaldur friðarbogi byggði brú frá bæjarásnum alla leið upp í himininn. Úðinn draup úr loftinu í sífellu og settist á nýgræðinginn í glitrandi smákúlum sem skulfu á nálaroddum stráanna eitt andartak áður en þær hröpuðu niður í grænkandi jörðina. Drengurinn sá þetta allt. Hann leit til lofts og síðan á jörðina aftur. Ef þetta var ekki vorið\, – þá var líka ekkert að reiða sig á í þessum heimi.”\nEða það hvernig unga stúlkan í „Kóngaliljum“ fær séð fegurðina í fátæklegum bragganum.\n“Arið glitraði í daufum sólargeisla sem skáskarst inn um ofurlítinn gaflglugga. Sá gluggi var óhreinn og hátt uppi eins og í öðrum bröggum\, og rúðan var margbrostin. Litlir strákar léku sér að því að hæfa hana með smásteinum og skjóta í hana af teygjubyssu\, ef þeir áttu. En glerið var tvöfalt og sterkt og stóð af sér þesskonar smásendingar\, að því undanteknu að í það komu skrautlegir brestir sem voru líkastir dálitlum sólum með veðrahjálmi þegar bjart var úti\, en þegar dimma tók urðu þeir áþekkastir smátunglum með rosabaug. Þeir ljómuðu glæsilega í mattri birtu dagsins\, og á kvöldin þegar glugginn grét brotnaði ljósið að handan svo fallega í votri rúðunni; það varð allavega litt og brestirnir skinu eins og ofurlitlar stjörnur; stúlkan undi við að horfa á það þangað til nágranninn slökkti.”\nÞó dúkristur Ástu standi fyllilega sem sjálfstæð listaverk þá öðlast þær vissulega dýpri merkingu í samhengi við sögurnar. Við vonum að þær verði listunnendum hvatning til að lesa sögurnar hennar. Ásta var sjálf afar vel lesin og hvatti börn sín til lesturs í bréfum sínum til þeirra. Í bréfi til sonar síns skrifar hún „…legðu áherslu á lestur\, lestu sem mest – sá sem er vel læs er oftast duglegur í öllu öðru.“
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asta-sigurdardottir-dukristur/
LOCATION:Gallery Fold\, Rauðarárstígur 12 - 14\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/astaframe.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230603
DTEND;VALUE=DATE:20230625
DTSTAMP:20260530T114507
CREATED:20230602T161321Z
LAST-MODIFIED:20230809T131419Z
UID:31506-1685750400-1687651199@old.icelandicartcenter.is

END:VCALENDAR