BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210821
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T040207
CREATED:20210819T144214Z
LAST-MODIFIED:20220916T110139Z
UID:18496-1629504000-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jóhannes Atli Hinriksson: Marmari
DESCRIPTION:Jóhannes Atli Hinriksson opnar einkasýninguna MARMARI í Ásmundarsal laugardaginn 21. ágúst kl. 14:00. \nVerkin eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna í Ásmundarsal og eru blanda af þrívíðum skúlptúrum og tvívíðum verkum\, nánar hér:\n„Óhlutbundin höggmyndalist er í besta falli orðaleikur\, í versta falli brandari. Hluturinn er alltaf hlutbundinn. Það segir sig bókstaflega sjálft\, Jónas minn. Og dag nokkurn verður ungur listamaður loks miðaldra. Þá hefur hann einn valkost (ef einn kostur er þá valkostur): Hina hreinu uppgjöf fyrir klassíkinni. \nHöggmyndir\, lágmyndir\, alvöru list. Hráefnið: Einhverskonar marmari. Allavega svipar efninu til marmara: Ljóst\, mjúkt\, auðmótanlegt. \nEn rétt undir yfirborði vitundarinnar mallar jú síðan sitthvað ógreinilegra en steinefni. Er það ósýnilegt jafnvel? Óhlutbundið? Nei\, hægan\, hægan. En hvernig lítur þá „efi“ aftur út? Nú eða ADHD? Hvernig lítur það út? Nú eða bara eitthvað sem enginn hefur smíðað hlutbundið orð um ennþá en liggur samt kæruleysislega þarna rétt undir yfirborðinu og stýrir óhlutbundnum straumum á einkar hlutbundin hátt. \nListamaður meinar hverja sveigju\, hann meinar þetta allt. Hitt er hins vegar óljóst: hvað þetta allt er. Byrjum á því að móta þennan skratta – svo sjáum við til. \nAllavega er ljóst að hin bergtegundin marmari er hlutbundin og sannar að óhlutbundin höggmyndalist er í besta falli orðaleikur\, í versta falli brandari.“ RHÓ\nVerið hjartanlega velkomin! \nJóhannes Atli Hinriksson (f. 1975)\nhefur getið sér orð fyrir innsetningar og málverk. Hann útskrifaðist með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2000 og lauk síðar MFA-gráðu frá School of Visual Arts í New York og hefur haldið sýningar víða\, m.a. í Kaupmannahöfn\, New York og Zurich.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johannes-atli-hinriksson-marmari/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/marmari.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211011
DTSTAMP:20260530T040207
CREATED:20210927T122250Z
LAST-MODIFIED:20211011T142350Z
UID:19387-1632528000-1633910399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fullkomið Firðrúm
DESCRIPTION:ANNA HRUND MÁSDÓTTIR\, JÓHANNA ÁSGEIRSDÓTTIR & DANÍEL MAGNÚSSON \nVillurnar vinda upp á sig sjálfsprottnar úr tóminu. Skekkjan getur af sér bil á milli hins beina og hins bogna\, eins og mynstruð mygla eða algoriðmi sem gæti hringsólast út í óendanleikann\, babelturn tæknialdarinnar. Samkvæmt ófullkomnunarsetning Gödels getur kerfi ekki lýst sér sjálfu\, sagt þér hvort það haldi áfram eða hætti og þá hvenær. \nVið teygðum úr okkur og komum okkur fyrir í hnitakerfi og fórum að elta óræðar tilfinningar fyrir einhverskonar samhengi hlutanna og þess óhlutbundna. Rúm er teygjanlegt yfirborð sem gefur eftir eins og svampur eða sykurpúði\, en stundum brotnar það skyndilega eins og rúða. Handahófskennt en rökrétt. Hvers vegna leiðir svo margt óvænt af rökfræðinni? Sumt er hugsanlegt en ekki nauðsynlegt. Ekkert er sjálfsagt og dæmið gengur ekki alltaf upp. Ó\, en þegar það gengur upp! \nSýningin er afrakstur úr vinnustofu teymisins Slembilukka sem stóð yfir í Gryfjunni 23. ágúst – 3. október. \nUm sýnendur:  \nJóhanna Ásgeirsdóttir (f. 1993) vinnur innsetningar\, upplifanir og skúlptúra innblásna af raunvísindum og umhverfismálum. Hún lauk grunnnámi í myndlist frá New York University og meistaranámi í listkennslu frá Listaháskóla Íslands. Hún hefur tekið þátt í og sýningarstýrt myndlistarsýningum á Íslandi\, Berlín og New York. Hún starfar nú sem listrænn stjórnandi listahátíðarinnar List án landamæra. \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanalega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nDaníel Magnússon (f. 1958) útskrifaðist úr Myndlista – og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir áhugaverð verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til umfjöllunar. Hann er einkum þekktur fyrir skúlptúra og ljósmyndaverk. Verk hans hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Auk þess að starfa sem myndlistarmaður kennir Daníel stærðfræði á framhaldsskólastigi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fullkomid-firdrum/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/complete-spaces.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211015
DTEND;VALUE=DATE:20211108
DTSTAMP:20260530T040207
CREATED:20211014T113942Z
LAST-MODIFIED:20211104T100451Z
UID:19637-1634256000-1636329599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sindri Leifsson: Næmi\, næmi\, næm
DESCRIPTION:Sýningin samanstendur af innsetningu nýrra skúlptúra sem og tveimur kvöldverðarboðum sem unnin eru í samstarfi við Kjartan Óla Guðmundsson\, veitingamann og vöruhönnuð og Jóhönnu Rakel Jónasdóttur\, myndlistar- og tónlistarkonu. \nInni á sýningunni er búið að slá upp langborði þar sem gestum verður boðið að virkja skynfærin í gegnum mat & drykk. Sérútbúinn margrétta matseðill hefur verið gerður í nánum tengslum við verkin á sýningunni. Þá hafa verkin einnig tekið á sig mynd út frá seðlinum og afraksturinn er alltumlykjandi ferðalag með tilvísanir í hina fjölbreyttu flóru og fánu íslenskrar náttúru. \nEr matur list? Getur matur verið myndlist? Matur er að minnsta kosti upplifun sem virkjar skilningarvitin og getur verið hugvekjandi. En lengi hefur matargerð verið föst í þeim viðjum að vera gleðjandi og hugguleg upplifun. Líkt og ef einu leiksýningarnar væru farsar eða að rómantískar gamanmyndir væru eina kvikmyndaformið. Myndlist og önnur listform hafa hinsvegar löngu brotið niður þessa múra. Myndlist hefur leyfi til að vera allskonar; ljót\, erfið og krefjandi. Undanfarna áratugi hefur matreiðsla hægt og bítandi verið að brjóta niður þessa múra og veitingastaðir líkt og El Bulli\, Noma og Alchemist svo örfá dæmi séu nefnd bjóða upp á upplifun með fastmótuðum margrétta matseðlum og færa upplifunina þar með nær leikhúsi en veitingastaðir þar sem þú getur valið þér rétti af matseðli. Það er skemmtilegt að fá tækifæri til að brjóta niður þessa múra og framreiða matarupplifun þar sem unnið er í samstarfi við myndlistarmann. Úr verður túlkun á hugarheimi hans\, heildstætt verk þar sem sýningar upplifunin verður margþætt samofið verk tveggja hugmyndaheima þar sem tæki og verkferlar myndlistarinnar eru notuð til að virkja öll skilningarvitin í gegnum mat og drykk. \nMiðapantanir hér.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sindri-leifsson-naemi-naemi-naem/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/naemi-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR