BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231007
DTEND;VALUE=DATE:20231030
DTSTAMP:20260530T144349
CREATED:20231004T132844Z
LAST-MODIFIED:20231004T132931Z
UID:32955-1696636800-1698623999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Una Björg Magnúsdóttir: Svikull silfurljómi
DESCRIPTION:Sýningin Svikull silfurljómi birtist okkur í rými sem er algerlega nýtt\, skuggalaust í þeim skilningi að hér hefur ekkert gerst áður. Horn hússins eru enn skörp en munu mýkjast og rúnast í fyllingu tímans. Á sýningunni eru höggmyndir og myndverk sem bregðast ýmist beint við rýminu eða velta upp spurningum um tíma\, gildismat\, eftirlíkingar\, speglanir og leiðir til að falla inn í umhverfi sitt. Grænt handrið ber með sér óljósa minningu um Samkomuhús í Súðavík\, minningu sem erfitt er að henda reiður á\, hún hangir rétt utan seilingar.\nHlutverk rauða litarins er að standa vörð um eldmóð og ástríðu.\nÖnnur verk sýningarinnar eru í hógværum eftirhermuleik\, teningaborg\, eldspýtnabréf\, og stafli af silkipappír. Einfaldar einingar sem hver af annarri raðast saman. Þær herma hver eftir annarri á víxl þannig að erfitt er að greina hver hóf leikinn og hver speglar hverja. Með tíma og hægum breytingum mást út sérkenni hverrar um sig og til verður samfella\, kannski felumynd.\nGrár skuggi leitast við að öðlast lit\, lögun\, áferð og massa. Litlaus liðast hann um\, hátt upp eftir veggjum og niður eftir gólfi. Horn eru ákjósanlegust. En grár er ekki litlaus\, ekki í raun\, litir ljóma í gráu.\nÞessi sýning verður alltaf fyrsta lag hússins\, á undan svefnlausum nóttum\, hrúgum af þvotti og fermingarveislum. Brátt kemur innrétting\, gólfefni\, heimilistæki og aðrar nauðsynjar til að skapa heimili. Hér var aldrei sýning.\n\nUNA BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR\nUna Björg beitir ýmsum brögðum í verkum sínum til að velta upp spurningum um fegurð\, gildi\, tilvist okkar\, hegðun og hátterni. Hún notar til þess áferð og gildishlaðin efni á slunginn en sparlegan hátt. Með nákvæmum uppstillingum á fábrotnum munum skapa verkin ákveðið sýndaryfirborð þar sem allt virðist með felldu. En verkin taka á sig háttvísa blekkingu og dansa á óræðum skilum þess raunverulega og eftirlíkingar til að kalla á óskipta athygli áhorfandans.\nUna Björg Magnúsdóttir (f. 1990) nam myndlist við Listaháskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við ÉCAL í Sviss þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Verk hennar hafa verið sýnd meðal annars í Listasafni Reykjavíkur\, Gerðarsafni\, Y gallerí\, KEIV í Aþenu\, GES-2 í Moskvu og Nordatlantens brygge í Danmörku. Hún dvelur um þessar mundir í gestavinnustofum Kunstlerhaus Bethanien í Berlín.\n\nEINKASÝNINGAR Á VEGUM LISTASAFNS ASÍ\nUna Björg Magnúsdóttir er fjórði listamaðurinn sem velst til þátttöku í sýningaröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu.\nListasafn ASÍ býr við ágætan húsakost en er um þessar mundir starfrækt án þess að hafa yfir eigin sýningarsal að ráða. Á meðan þetta tímabundna ástand varir hefur safnið átt gjöfult og gott samstarf við stofnanir\, samtök og einstaklinga víðsvegar um landið og skipulagt með þeim sýningar á bæði eldri og nýrri verkum.\nKallað er reglulega eftir tillögum frá myndlistarmönnum sem vilja vinna með safninu og eitt verkefni valið hverju sinni. Sýningarstaðirnir eru valdir í samvinnu við listamennina sem taka þátt og eru til skiptis á höfuðborgarsvæðinu og í öðrum landshlutum.\nStaðirnir sem urðu fyrir valinu fyrir einkasýningar Unu Bjargar Magnúsdóttur eru Súðavík og Mosfellsbær. Una Björg velur sýningarrýmin af kostgæfni og leyfir verkunum á sýningunni að spretta fram sem einhvers konar viðbragð við því sem í rýminu felst. Fyrri einkasýning Unu var haldin í samvinnu við Samkomuhúsið í Súðavík og seinni sýningin er haldin í einbýlishúsi sem nú er í byggingu við Kvíslartungu 28 í Mosfellsbæ.\nSamhliða sýningunum verða skipulagðar leiðsagnir og haldin myndlistarnámskeið fyrir leik- og grunnskólabörn þar sem unnið er m.a. með elstu verkin í safneigninni og gerðar stuttmyndir fyrir heimasíðu safnsins.\nSÝNINGARSTAÐURINN Í MOSFELLSBÆ\nKvíslartunga 28 í Mosfellsbæ er tæplega fjögur hundruð fermetra einbýlishús í byggingu. Sýningin fer fram í húsinu þegar það er á lokastigum framkvæmda og tilbúið undir tréverk. Arkitekt hússins er Björgvin Snæbjörnsson teiknistofunni APPARAT. Sýningin er haldin í samvinnu við eigendur hússins sem er byggingarverktakafyrirtækið EJ BYGG og ALLT fasteignasölu.\n\nLISTASAFN ASÍ\nListasafn ASÍ var stofnað árið 1961. Iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára lagði grundvöllinn að listasafninu með því að gefa Alþýðusambandi Íslands málverkasafn sitt – um 147 myndir – eftir marga af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listasafn ASÍ hefur alla tíð starfað með þessi fræðslusjónarmið frumkvöðulsins að leiðarljósi og hefur m.a. sérhæft sig í myndlistarsýningum sem settar eru upp á vinnustöðum og stofnunum víða um land. Verkefni safnsins hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina og safneignin hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun þess fyrir tæpum sextíu árum og geymir nú um 4300 verk. www.listasafnasi.is
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/una-bjorg-magnusdottir-svikull-silfurljomi-2/
LOCATION:ASÍ Art Museum\, Guðrúnartún 1\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/385479654_983488346150190_1111583977974917875_n.jpg
ORGANIZER;CN="Listasafn%20ASI":MAILTO:info@listasafnasi.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231007
DTEND;VALUE=DATE:20231030
DTSTAMP:20260530T144349
CREATED:20231004T132403Z
LAST-MODIFIED:20231004T133118Z
UID:32951-1696636800-1698623999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Una Björg Magnúsdóttir: Treacherous Silver Sheen
DESCRIPTION:The exhibition Treacherous Silver Sheen meets the eye in a space that is entirely new\, shadowless in the sense that nothing has happened here before. The angles of the house are still sharp but will soften and smoothe out in the fullness of time. On display are sculptures and images that either address the space directly or raise questions about time\, value\, imitations\, mimicry\, and ways of blending into one’s surroundings. A green railing vaguely recalls a community hall in Súðavík\, but the memory is hard to grasp\, hovering just beyond reach.\nThe red colour’s role is to safeguard fervour and passion.\nOther works in the exhibition join in a quiet pantomime\, a heap of dice\, matchbooks\, a stack of tissue paper. Simple units that fit together nicely. They mimic each other by turns\, making it hard to tell which started the game and what is imitating what. Over time\, slowly changing\, the units’ characteristics blur into a continuum\, or maybe a camouflage.\nA grey shadow seeks to attain colour\, shape\, texture\, and mass. Achromatic\, it wafts around\, high on the walls\, down across the floor. Corners are ideal. But grey is not colourless\, not really; colours glow in greyness.\nThis exhibition will always be the first stratum of the house\, before sleepless nights\, piles of laundry\, and confirmation parties. Soon there will be cabinetry\, flooring\, appliances\, and other necessities for making a home. There was never an exhibition here.\n\nUNA BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR\nUna Björg plays a variety of tricks in her work to raise questions about beauty\, values\, and our existence\, our conduct and behaviours. To this end\, she uses texture and value-laden materials in a subtle but spare way. Through precise arrangements of unassuming objects\, the works create a certain façade that makes everything seem forthright. Yet the works are imbued with a tacit deception; they teeter on elusive dividing lines between the real and the imitative\, thereby summoning the viewer’s undivided attention.\nUna Björg Magnúsdóttir (b. 1990) studied visual art at Iceland University of the Arts and pursued graduate studies at ÉCAL in Switzerland\, graduating from there in 2018. Her work has been shown at the Reykjavik Art Museum\, the Kópavogur Art Museum\, the Y Gallery\, KEIV in Athens\, GES-2 in Moscow\, the North Atlantic House in Copenhagen\, and other venues. She is currently in residence at Kunstlerhaus Bethanien in Berlin.\n\nSOLO EXHIBITIONS PRESENTED BY THE ASÍ ART MUSEUM\nUna Björg Magnúsdóttir is the fourth artist selected to participate in the ASÍ Art Museum’s exhibition series in which the chosen artist mounts solo exhibitions in two locations in Iceland.\nThe ASÍ Art Museum has good accommodations for its collection but currently proceeds without a gallery of its own at its disposal. During this temporary situation\, the museum has enjoyed good\, gratifying collaborations with institutions\, organizations\, and individuals throughout Iceland\, joining with them to arrange exhibitions of works both old and new.\nCalls for proposals go out at regular intervals to artists who wish to work with the museum. One project is selected each time. The exhibition sites\, one in the Reykjavik area and one in a different region of the country\, are chosen in collaboration with the participating artists.\nThe sites selected for Una Björg Magnúsdóttir’s exhibition were Súðavík and Mosfellsbær. Una Björg chooses her exhibition spaces with meticulous care and allows the works in each show to spring forth as a kind of reaction to what the space conveys. The first exhibition was presented in cooperation with the Community Hall (Samkomuhúsið) in Súðavík; the second exhibition is on view in a single-family home under construction in Mosfellsbær at Kvíslartunga 28.\nAlongside the exhibitions\, art classes will be organized for pre- and grade-school children. Activities will include working with the museum collection’s oldest works and making short videos for the museum website.\n\nTHE EXHIBITION SPACE IN MOSFELLSBÆR\nKvíslartunga 28 is a nearly four hundred square meter single-family home under construction in Mosfellsbær. The exhibition coincides with the final stage of construction\, before trim. The architect is Björgvin Snæbjörnsson of the firm APPARAT. The exhibition is presented in collaboration with the owners of the house\, the construction company EJ BYGG and ALLT Realty.\n\nTHE ASÍ ART MUSEUM\nThe ASÍ Art Museum was established in 1961. The industrialist and publisher Ragnar Jónsson of Smári laid the foundation for the museum by donating his art collection—about 147 paintings by many of Iceland’s best-known artists—to the Icelandic Federation of Labour Unions. Ragnar’s wish was to establish an art museum that would promote art among Iceland’s working people. The ASÍ Art Museum has always charted its course by its founder’s educational views and has focussed on mounting art exhibitions in workplaces and institutions across Iceland. The museum has undertaken a broad range of projects over the years and its collection has steadily grown since its founding nearly sixty years ago; it now comprises roughly 4300 works.\nListasafn ASÍ Art Museum\nSími I Tel: (+354) 868 1845\ninfo@listasafnasi.is\n@listasafn_asi_artmuseum\nwww.listasafnasi.is
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/una-bjorg-magnusdottir-treacherous-silver-sheen/
LOCATION:ASÍ Art Museum\, Guðrúnartún 1\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/385479654_983488346150190_1111583977974917875_n.jpg
ORGANIZER;CN="Listasafn%20ASI":MAILTO:info@listasafnasi.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR