Samsýning Sequences XI  – Get ekki séð stendur til 26. nóvember

Myndlistarhátíðin Sequences byrjaði 13. október. Hátíðin hefur aldrei verið jafn stór en yfir 50 listamenn komu að henni að þessu sinni. Hátíðardagskránni lauk 22. október en samsýningin Sequences XI – Get ekki séð stendur til 26. nóvember. Sýningunni er skipt í fjóra kafla: Jarðvegur, Neðanjarðar, Vatn og Frumspekivíddin og er til sýnis í Kling & Bang, Nýlistasafninu, Norræna húsinu og Safnahúsinu. Ókeypis er inn á sýningarnar.

Gefin var út yfirgripsmikil sýningarskrá með ávarpi sýningarstjóra, sýningartexta um hvern kafla, auk greina um verk í almenningrými og verk í rauntíma, ásamt verklista og korti. Einnig er greinargóð umfjöllun Sequences í nýjasta hlaðvarpsþættir Out There.

Um Sequences

Sequences er listamannarekin myndlistarhátíð sem haldin er annað hvert ár í Reykjavík. Stofnaðilar Sequences eru Kling & Bang, Nýlistasafnið og Myndlistarmiðstöð. Fyrri hátíðum hefur verið stýrt af íslenskum og alþjóðlegum listamönnum og sýningarstjórum.Yfir þrjú hundruð listamenn alls staðar að í heiminum hafa tekið þátt, ásamt fjölda listamannarekinna rýma, safna og almennra stofnanna.

Um sýningarstjórana

Sýningarstjórateymið samanstendur af fjórum eistneskum sýningarstjórum og rithöfundum: Marika Agu, Maria Arusoo, Kaarin Kivirähk og Sten Ojavee sem hafa unnið saman frá árinu 2017 hjá Estonian Centre for Contemporary Art (CCA). Listrænar áherslur teymisins mótuðust við vinnu að fyrstu sýningunni sem þau stýrðu saman A-tishoo, A-tishoo, We All Fall Down (2019) sem var sýnd í EKKM, Contemporary Art Museum of Estonia. Þau hafa einnig sýningastýrt og skipulagt ráðstefnur, fyrirlestraraðir, skrifað greinar, staðið að sýningum á list í almannarými og staðið að stafrænum viðburðum. Sem sýningarstjórar hafa þau fjölbreyttan bakgrunn m.a. myndlist, félagsfræði, heimspeki, listasögu og merkingarfræði. Þau hafa tekið höndum saman til að sameina ólíka reynslu og hugsunarhátt, til að bjarga auðlindum og draga úr offramleiðslu. Þau trúa því að samvinna geri okkur kleift að skapa sjálfbærari vinnuferla og skili víðtækari árangri.