Frida Orupabo, Leda and the swan, 2021. Samklipp á álplötu. 94 x 67 cm. Ljósmynd Galleri Nordenhake.
Nýi þátturinn fjallar um sýninguna Að rekja brot í samtali við sýningstjóra sýningarinnar Daríu Sól Andrews og safnstjóra Gerðarsafns Brynju Sveinsdóttur. Hægt er að hlusta á þáttinn bæði hér á heimasíðunni okkar og á Spotify.
Í þættinum er farið víða um völl. Þar ræddu Þórhildur Tinna og Becky Forsythe bæði einstök verk af sýningunni og grundvallarhugtök sem sýningin byggir á.

Ljósmynd frá opnun sýningarinnar 2 febrúar af listamönnum og sýningastjóra. Í bakgrunni sjást verk eftir Frida Orupabo.
Frá vinstri til hægri: Abdullah Qureshi, Daría Sól Andrews, Sasha Huber og Kathy Clark.
Að rekja brot samanstendur af verkum eftir Kathy Clark, Sasha Huber , Hugo Llanes, Frida Orupabo, Inuuteq Storch og Abdullah Qureshi. Í verkum listamannanna er tekist á við nýlendustefnu og kynþáttafordóma. Sýningin stendur til 21. maí næstkomandi í Gerðarsafni.