BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221111
DTEND;VALUE=DATE:20221124
DTSTAMP:20260530T095423
CREATED:20221116T140046Z
LAST-MODIFIED:20221116T140046Z
UID:27518-1668124800-1669247999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Horse Inside Out eftir Wunderland
DESCRIPTION:Horse Inside Out eftir  Wunderland  er upplifun fyrir skilningarvitin þar sem áhorfandinn tekur virkan þátt.  Skúlptúrinn rúmar eina manneskju í senn sem gengur í gegnum nokkur rými þar sem rödd og leiðsögumaður leiðir þátttakandann í gegnum verkið. \nBókun HÉR \nAldurstakmark: 14 ára og eldri \nAðgengi: Ekki fyrir einstaklinga sem eiga erfitt með gang. \nÍ Horse Inside Out  verður þátttakendum hleypt inn á 20 mínútna fresti og tekur hver innsetning 15 mínútur. Þátttakendur geta séð lausa tíma þegar þeir skrá sig HÉR.  Frítt er inn á viðburðinn sem fer fram á ensku. \nNorræna list- og rannsóknarverkefnið Horse Inside Out hefur verið í þróun í nokkur ár og verið sett upp í  Danmörku\, Finnlandi og nú á Íslandi. Rannsóknin er þverfagleg og er markmiðið að fylgjast með hvernig alltumlykjandi þátttökulistaverk eykur meðvitund þátttakenda um eigin líkama\, nærveru og skynjun á umhverfinu og breytir jafnvel upplifun þeirra á sjálfum sér og veruleika þeirra.  Það er Wunderland sem stendur fyrir verkefninu í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi og Listaháskóla Íslands. Wunderland var stofnað árið 2007 af Metta Aakjær og  vinnur verkefni í samstarfið við listafólk úr fjölbreyttum listgreinum í alþjóðlegu samstarfi. \nUm verkið: Sem þátttakandi ferð þú einn þíns liðs\, berfættur\, inn um rauf á skúlptúr sem hefur lífræna lögun og útlit. Augun aðlagast myrkrinu þar inni\, mjúk og gróf form birtast þér. Þú finnur vísbendingar um dýr og önnur fyrirbæri\, loftið er þrungið krydduðum ilmi\, jörðin er mjúk og hreyfanleg. Þú ert hvattur til að gefa þér góðan tíma til þess að kanna umhverfið og leita jafnvægis. Inni í öðru hólfi hittir þú manneskju sem er lík þér en samt… ókunnug? – hluti af hjörð þinni? – skugginn af sjálfum þér? \n„Þegar við erum meðvituð um líkama okkar og skynfæri upplifum við sjálf okkur og sambandið við aðra á annan hátt sem getur valdið umbreytingum og jafnvel haft byltingarkennd áhrif á reynslu okkar af heiminum. \nUpplifunin býður uppá tengingu við innsæið\, innri visku og goðfræðileg minni sem búa í undirmeðvitund okkar.“ – Mette Aakjær\, listrænn stjórnandi Wunderland. \nListrænt teymi: \n\nMette Aakjær (listrænn stjórnandi Wunderland\, höfundur og listamaður\, DK)\nMona Møller Schmidt (leikmyndahönnuður\, DK)\nThoranna Bjørnsdottir (tónskáld\, IS)\nSonja Winckelmann Thomsen (rithöfundur\, DK)\nAmanda Axelsen Sigaard (grímu- og búningahönnuður\, aðstoðarleikmyndahönnuður\, DK)\nAmanda Vesthardt (aðstoðarleikmyndahönnuður)\,\nDimsOs (tæknimál\, DK).\nJesper Lyng (bókunarkerfi)\n\nVerkefnið fer fram í þremur löndum í samstarf við söfn og háskóla: \nDanmörk: Interacting Minds Centre and Faculty of Communication and Art\, Árósarháskóli og ARoS listasafnið \nFinnland: Education in Dance and Somatics\, ISLO og AHJO Gallery. \nÍsland:  Listaháskóli Íslands og Listasafn Reykjavíkur \n\n\n\n\nTenglar\n\nVefsíða Wunderland
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/horse-inside-out-eftir-wunderland/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/fbbannerhorseinsideout828x315px.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR