BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220730
DTEND;VALUE=DATE:20220901
DTSTAMP:20260530T040826
CREATED:20220803T154320Z
LAST-MODIFIED:20220829T160216Z
UID:24473-1659139200-1661990399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:ÚR FJÖRU Í DRULLUPOLL
DESCRIPTION:ÚR FJÖRU Í DRULLUPOLL\n\n\n\n\nSýningarstjórn SPIT Collective (Natasja Loutchko\, Marta Orlando\, Clémentine Roy) \n  \n05.08.22:  TÓNLEIKAR at 20:30\n  GERTRUDE & THE FLOWERS\n06.08.22:  LIVE SESSJÓN frÁ 22:30 – 00:00   \n\n  Hooops Garden á RADIO CASHMERE\n\n\n  \nVið skulum byrja á að skoða athöfnina að ganga út frá metafórunni löngunarslóð e: desire path; hugtak sem er yfirleitt notað innan umferðarskipulags en á líka við um sjálfsprottna göngustíga\, veiðimannastíga\, slóða hjarðardýra\, kúastíga\, fílaslóð\, geitaslóð\, fjárstíga\, ómerktar gönguleiðir og slóð veiðidýrsins\, sú sem veiðimenn fylgja þegar þeir leita uppi bráðina\, slóðar sem myndast þar sem dýr og menn eru sífellt að troða jarðveginn niður frá einum stað til annars. Slóðin gefur yfirleitt til kynna auðveldustu eða stystu leiðina á milli staða. Löngunarslóðar myndast einnig þar sem fólk hefur tekið upp á að stytta sér leið vegna þess að skipulögðu vegirnir eru krókaleiðir\, ófærir eða einfaldlega ekki til staðar. Löngunarslóðar hafa gjarnan verið táknmynd fyrir anarkisma\, innsæis-hönnun\, sköpun einstaklingsins og visku fjöldans. Við skulum ganga í stöðugu flæði án þess að hafa tiltekinn áfangastað í huga\, læra af landslaginu\, mynda hljóð og bergmála náttúruna. \n  \nFyrst við erum byrjuð að fylgja þessum stígum\, hvort sem það er á innsæinu eða kerfisbundið\, þá skulum við fara nokkra áratugi aftur í tíma\, til New York á áttunda áratugnum. Þá var algengt að lista- og hinsegin fólk gengi meðfram The Waterfront Piers til þess að kanna mörkin milli reynslu og löngunar. Þarna mitt á milli hafsins og steypunnar fundu þessir útlagar samfélagsins andrými til þess að brjótast undan norminu og villast viljandi af “réttu brautinni”. Að ganga á jöðrum borgarinnar\, í niðurníðslunni þar sem rústir kapítalismans birtust áður í yfirgefnum vöruskemmum en eru aðeins minningar í dag\, göfgaðar sem nakin vofa. Okkur langaði að vinna með þetta minni\, þennan draug og búa til tengingu milli tveggja ólíkra staða og stefna saman listamönnum og rithöfundum sem vinna með hinsegin menningu og Rúntinn e: cruising sem fagurfræðilega aðferð og leið til þess að endurheimta rými og svæði með því að ferðast fótgangandi um þau. Rúnturinn sem er þekkt fyrirbæri í menningu hinsegin fólks gegnir hér því hlutverki að vera hugmyndaleg athöfn sem tengir saman Verksmiðjuna á Hjalteyri og The Waterfront Piers í New York. Listamennirnir nálgast viðfangefnið á fjölbreyttan hátt og vinna með ólíka miðla í samtali sínu við rýmið. Verksmiðjan (og listaverkin) eru í senn aðalleikari og áhorfandi að sýningunni. \n  \nSambandið milli ytra og innra rými byggingarinnar kollvarpast eins og möbíus-renningur. Við könnum rýmið út frá ólíkum sjónarhornum\, sem listamenn\, sýningarstjórar\, sem ferðalangar\, víxlum hlutverkum\, til þess að bjóða upp á fjölbreytt sjónarmið og endurvekja Drauginn. Viðfangið sem beint er sjónum að verður að virkum geranda sem horfir samtímis aftur til The Waterfront Piers og fram til Verksmiðjunnar. \n  \nMeð því að nota þessa Heterótópíu sem útgangspunkt getum við tekist á við vofu staðar sem ekki er lengur til\, en þar sem enn eru til leifar og rústir frá staðnum getum við endurvakið Genius Loci (verndarandi staða) og þannig gert tilkall til svæða sem tengjast hinsegin vistfræði\, skilið á milli óbyggðarinnar og þess tamda í náttúrunni og byggt upp lesbíska heimsmynd sem tengist Rúntinum sem þó var aldrei lesbísk venja eða iðja tengd sjálfsmynd kvenna. Markmið sýningarinnar er einnig að tengja saman útlaga hins staðlaða samfélags og búa til hringborð umræðna og rannsókna. Við viljum spyrja spurninga sem krefjast ekki endilega skýrra svara og reyna að svara þokukenndum spurningum um eðli félagslegra rýma\, sem haldið var frá hinsegin fólki og konum\, með því að skoða þversagnir\, langanir og hugsjónir og horfa á The Waterfront Piers sem erkitýpu mannlegrar og listrænnar tjáningar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/from-the-shore-to-the-mudpool/
LOCATION:Verksmiðjan á Hjalteyri\, Verksmiðjan á Hjalteyri\, Hjalteyri\, Eyjafjörður\, 604\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/hjalteyri.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220618
DTEND;VALUE=DATE:20220725
DTSTAMP:20260530T040826
CREATED:20220614T151611Z
LAST-MODIFIED:20220803T160253Z
UID:23702-1655510400-1658707199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jarðtenging
DESCRIPTION:Listamenn: Maryse Goudreau\, Hugo Llanes\, Zinnia Naqvi\, Sigrún Gyða Sveinsdóttir\,\nMarzieh Emadi & Sina Saadat\nSýningarstjóri: Þorbjörg Jónsdóttir \nOpið þri-sun 14:00-17:00 \nMyndlistarsýningin Jarðtenging / Grounded Currents opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri  laugardaginn 18júní 2022 KL 14 með verkum listafólksins: Maryse Goudreau\, Hugo Llanes\,  Zinnia Naqvi\, Sigrún Gyða Sveinsdóttir\, Marzieh Emadi & Sina Saadat   \nSýningin er alþjóðleg samsýning yngri kynslóðar listafólks. Þau vinna ekki út frá einni einstakri sameiginlegri hugmynd og verkin eru sum marglaga í merkingu sinni eða nokkuð flókin enda verður það helst ára staðarins & óvenjulegt rýmið sem að mótar öðru fremur umgjörð fyrir samstarf og heild og virkjar sköpunarkraftinn..  \nÞau vinna sjálfstætt á staðnum og/eða fyrirfram að nýjum verkum. «Verksmiðjan er ekki aðeins  rými sýningarstaðarins\, heldur einnig rými athafna sem mótast og er mótað af tíma- og  rýmisbundnum samskiptum. Verksmiðjan er óhefðbundið rými og ekki hlutlaust sem hefur fremur  tekið mið af ljóðrænni afstöðu listamannanna sem þar haft sýnt og starfað » Listafólkið á ýmislegt sammerkt og eru að nokkru leiti valin út frá því: Þau vinna öll með videómiðilinn og þá líka  teiknimyndir eða animation ásamt ýmsum öðrum aðferðum samtímalistar\, þau eru með  manneskjuna\, samfélagið til athugunar og/eða umhverfið og náttúruna sem að á hug margra á  þessum síðustu tímum.  
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/grounded-currents/
LOCATION:The Factory in Hjalteyri\, Brekkuhús 3b\, Hjalteyri\, 601\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Marzieh-Emadi-Sina-Saadat-Es-gibt-allerdings-Unaussprechliches-nr1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220507
DTEND;VALUE=DATE:20220613
DTSTAMP:20260530T040826
CREATED:20220505T112359Z
LAST-MODIFIED:20220916T102028Z
UID:23107-1651881600-1655078399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Michaela Grill: Innan rammans
DESCRIPTION:Laugardaginn 7 maí opnar sýningin Innan rammans í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Michaela Grill sem að býr og starfar í Montréal opnar þá í Verksmiðjunni yfirlitsýningu á kvikmynda og vídeóverkum. Í verkum sínum endurskapar hún myndir af því sem að fyrir augu ber á göngu um náttúruna en ekki af raunveruleikanum heldur frekar könnun á yfirborði\, litaframvindu og hreyfirannsóknum. Í heimsfaraldri voru ferðalög ekki möguleg svo að hún fór að vinna með fundið kvikmyndaefni\, til að stækka og draga ákveðin atvik út úr flæði. Einkum í tengslum við smásjármyndir. \nAð safna ljósbrotum \nÍ tilefni að sýningu Michaelu Grill Innan rammans í Verksmiðjunni á Hjalteyri. \nHin sanna mynd fortíðarinnar þýtur hjá. Í fortíðina verður ekki haldið nema sem leiftrandi mynd sem kennsl verða borin á eitt augnablik en síðan aldrei meir. Walter Benjamin. Um söguhugtakið. \nMyndlistarkonan Michaela Grill vinnur myndbandsinnsetningar og lifandi performansa í samstarfi við tónlistarmenn og síðustu ár hefur hún átt í nánu samstarfi við tónlistarkonuna Sophie Trudeau. \nSjónrænan efnivið finnur Michaela á afskekktum og óaðgengilegum stöðum líkt og á suður- og norðurheimskautunum eða á göngu sinni í náttúrunni. Einnig leitar hún fanga á kvikmyndasöfnum\, bæði í bíómyndir og vísindalegar náttúrulífsmyndir. \nÍ myndbandsverkunum birtist fortíðin í flöktandi myndbrotum\, náttúrufyrirbæri snúa upp á sig og eru jafnvel eins og séð með augum annarra lífvera með annarskonar skynjun\, skóglendi er snúið á hvolf og umbreytist í sjávargróður\, landslagið á heimskautunum bráðnar og frýs á víxl og myndar eilíflega ný form\, eða er þetta ef til skýjalandslag? örvænting nær hápunkti og dvelur þar\, ryðguð hvalveiðiskip taka á sig mynd særðra hvala\, myndirnar neita að láta undan skilvindu Sögunnar sem vill hafna þeim og gleyma. \nÞað er þegar hugsunin stöðvast í spennumettaðri afstöðu sinni að hin díalektíska mynd birtist skrifaði Walter Benjamin. Michaela rífur myndbrotin út úr frásagnarramma sínum og magnar upp hreyfingar eða hægir á þeim til að losa myndirnar undan hefðbundnu kvikmyndalegu flæði þeirra. Tónlistin í verkunum er þess eðlis að hún leyfir áhorfandanum aldrei að falla í sætbeiskan brunn tilfinningaseminnar. Myndirnar eru hvorki nostalgískt endurlit eða upphafning heldur fær fortíðin og náttúran að aktúalísera sig í verkunum. Hljóð\, ljós\, skuggar\, form\, litir og hreyfing takast á innan rammans. Myndirnar fá þannig ekki aðeins nýja merkingu heldur öðlast þær nýja virkni. Þær segja okkur eitthvað nýtt\, ekki eingöngu um okkur\, heldur fyrst og fremst um sig sjálfar. \nTexti: Kari Ósk Grétudóttir \nSýningin stendur til og með 12.06 og er opin alla daga nema mánudaga frá 14:00-17:00.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/michaela-grill-inside-the-frame/
LOCATION:The Factory in Hjalteyri\, Brekkuhús 3b\, Hjalteyri\, 601\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/279224515_10159923206802829_1961237851922506699_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR