BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230318
DTEND;VALUE=DATE:20230416
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20230316T110644Z
LAST-MODIFIED:20230316T110826Z
UID:29862-1679097600-1681603199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Maria Wandel: Not Keeping Journal
DESCRIPTION:Maria Wandel er danskur listamaður sem mun opna sýningu í Þulu. Sýningin ber heitið Not Keeping Journal og opnar klukkan 16:00 þann 18.mars.\nFrá því að Maria Wandel lauk námi við Konunglegu dönsku listaháskólann (1997-2005) hefur hún gert tilraunir með ýmsar listrænar aðferðir og komið á nýjum og óvæntum sjónrænum samræðum á milli bæði myndlistar og bókmennta og milli ljósmyndunar og málverks. Árið 1998\, í Nikolaj Kunsthal\, sýndi hún röð af dökkbrúnum málverkum þar sem nokkrir af samnemendum hennar böðuðu sig í heitum hverum á Íslandi. Þar var hún strax farin að vinna með fígúratív málverk en aftur á móti sýndi hún í Kunsthal Charlottenborg árið 1999 stór\, expressjónísk málverk af ristum\, kúlum og öðrum formum og fígúrum. Hún er enn þann dag í dag óhrædd við að stökkva á milli stíla og mun hún í Þulu sína fjölbreytt verk á pappír.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/maria-wandel-not-keeping-journal/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-15-at-10.45.14.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221203
DTEND;VALUE=DATE:20221224
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20221208T135344Z
LAST-MODIFIED:20221208T135344Z
UID:28089-1670025600-1671839999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Maggý: Avoiding Death and Birth
DESCRIPTION:Á sýningunni sýnir Anna Maggý ný ljósmyndaverk sem hún hefur verið að vinna að og er fókusinn að þessu sinni á abstrakt form sem við flæðum með í svarthvítri veröld. \nAnna Maggý (f. 1995) notast aðallega við ljósmyndun við gerð verka sinna en einnig aðra miðla á borð við innsetningar og myndbönd. Lýsa má verkum hennar sem tilfinningalegu landslagi – skráargötum sjónræns töfraraunsæis sem áhorfandinn ber lykil að. Anna Maggý leitast við að flytja boð milli raunveruleika og drauma\, umhverfis og ímyndunar\, skoða mörk milli ytra yfirborðs og undirmeðvitundar. \nUm sýninguna í orðum listamannsins:\nDagbókarfærslur færðar í sjónrænt form.\nÓsjálfráð skrif úr óséðri\, ósagðri undirmeðvitund.\nHinn eilífi bardagi við hugarástandið.\nUpp\, niður\, upp\, niður\,\nniður\, upp\, niður\, upp\nog allt þar á milli.\nRegla\, óregla.\nKönnun á innri anda\, eigin eðli\, könnun á tilverunni.\nSkynjun án skipana.\nTilfinningin á sér stað í mér\, í þér\, í þeim sem horfir.\nÍ höfðinu.\nEf þú skerpir skynfærin þá skilur þú mig kannski?
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-maggy-avoiding-death-and-birth/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/12/unnamed-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221105
DTEND;VALUE=DATE:20221127
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20221110T140632Z
LAST-MODIFIED:20221201T151003Z
UID:27465-1667606400-1669507199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Auður Lóa Guðndóttir: Be Mine
DESCRIPTION:Auður Lóa Guðnadóttir (f. 1993) er myndlistarmaður\, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri\, fígúratíft\, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu. Auður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn\, og tekið þátt í sýningum eins og Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og 2022 opnaði einkasýning hennar í Listasafni Akureyrar undir yfirskriftinni Forvera.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/audur-loa-gudndottir-be-mine/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-14.06.42.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221030
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20221014T105135Z
LAST-MODIFIED:20221110T111233Z
UID:26971-1665187200-1667087999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rakel McMahon: NO PRETENDING
DESCRIPTION:Never mind if it is art\, or smart\,\nBut is it ture?\nTrue to what?\nTrue to you\, of course.\nTexti eftir Marlene Dumas\, Always true\, 1997 \nRakel McMahon er fædd árið 1983. Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2008\, diplóma gráðu í hagnýtri jafnréttisfræði við Háskóla Íslands árið 2009 og M.Art.Ed í listkennslufræðum við Listaháskóla Íslands árið 2014. Rakel McMahon hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum auk annarra menningarlegra viðburða á Íslandi og víða erlendis. Meðal nýlegra sýninga eru; Waiting Room í Harbinger\, Safari of Sorts hjá Ltd. Ink Corporation í Glasgow\, Skotlandi\, Lax í Þulu gallerí og Head to Head í Aþenu\, Grikklandi. Auk þess hefur hún komið að stofnun\, skipulagningu og rekstri sýningarverkefna og viðburða á sviði menningar og listar. Þar má nefna fyrrum stjórnarmeðlimur Sequences Listahátíðar og Nýlistasafnsins í Reykjavík. Þá hefur Rakel unnið töluvert mikið í samstarfi við aðra listamenn og má þar helst nefna sviðsverk með skáldinu Bergþóru Snæbjörnsdóttur undir nafninu Wunderkind Collective og samstarf við myndlistarkonuna Evu Ísleifs. Rakel McMahon vinnur verk sín í ólíka miðla s.s. teikningu\, málverk\, textaverk og gjörning sem einkennast gjarnan af tvíræðni\, myndlíkingu og húmor. Viðfangsefni verkanna hverfast oftar en ekki í kringum mannlega hegðun\, samfélagslegan valdastrúktúr og sjónræna menningu. Hin sammannleg vitund er í forgrunni í verkum hennar þar sem hún leitast við að finna nýtt sjónahorn á því kunnuglega allt frá knattspyrnu til öryggisleiðbeininga í flugvélum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/rakel-mcmahon-no-pretending/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/508A4884_JPG-1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220910
DTEND;VALUE=DATE:20221002
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20220908T152158Z
LAST-MODIFIED:20220908T152312Z
UID:25860-1662768000-1664668799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Almost Perfect
DESCRIPTION:Melanie Ubaldo (f. 1992 í Fillipseyjum) útskrifaðist með mastersgráðu í myndlist frá Listaháskóli Íslands árið 2022. Sjálfsævisöguleg\, einlæg og beinskeytt verk um fjölbreyttar birtingarmyndir valds\, fordóma og mismunun einkenna listferli og sköpun Melanie og birtast í samansaumuðum málverkum sem innihalda fordómafulla texta sem vísa í hennar eigin reynslu af hegðun annara í hennar garð ásamt þess að notast við innsetningar sem takast á við minningar\, sjálfsmynd og uppruna. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrifum þeirra á þolendur.\nMelanie hefur tekið þátt í ýmsum sýningum hérlendis og erlendis. Hún hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn árið 2021 og er jafnframt stofnandi listamannaþríeykisins Lucky 3 ásamt Dýrfinna Benita Basalan og Darren Mark\, en Lucky 3 hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2022. Verkin hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Reykjavíkur\, Hafnarborgar og í einkaeigu.\n“Næstum fullkomið” er álíka frásögn og öll mín fyrri verk.\nÓkunnugur maður segir mér eitthvað og það hefur ómeðvitað gríðarleg áhrif á iðkun mína. Hann talaði um gamalt málverk eftir mig sem hefur síðan verið „týnst“. Næstum fullkomið gæti verið stærsta hrós sem ég hef nokkurn tíma heyrt um vinnu mína. Eins og að elta þann sem slapp\, er þessi sýning aðeins ein af mörgum\, óteljandi tilraunum til að endurheimta/endurmynda það sem er næstum fullkomið\nÉg veit ekki alveg hvað ókunnugi maðurinn átti við með næstum fullkomið\, en ég hef síðan trúað því að þetta sé hið látlausa tilvik – örlítið á skakkt og á skjön og því er það snilld; og ómögulegt að endurtaka. Kvíðafullar strokur af olíu og bleki á kyrrlátan striga\, plastilmur af akrýl blandað eitraðri terpentínu og spreyi\, fótspor og kattahár – nánast fullkomið.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/almost-perfect-melanie-ubaldo/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/305569778_592989478977379_5569539922041262518_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220430
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20220503T134526Z
LAST-MODIFIED:20220916T101725Z
UID:23059-1651276800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lukas Bury: You Look Like a Viking
DESCRIPTION:Með sköpun málverka\, samhliða skrifum – bæði með ytri orðræðu\, en einnig á yfirborði strigans\, greinir Lukas Bury menningarlegt samhengi\, sögulegar frásagnir og sýndarmynd nútímans.\n\nMeð notkun sérkennilegra sjónarhorna takast mótíf hans á við pólitísk viðfangsefni og lýsa innri deilum annarrar kynslóðar innflytjanda\, sem varð heimsborgari eftir að hafa fæðst í vestur-evrópsku landi.\n\nLukas stundaði nám í MA-námi við Listaháskóla Íslands\, Hochschule für Bildende Künste í Braunschweig og Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó.\n\nBury hefur tekið þátt í hinum ýmsu sýningum\, t.a.m.\, Tilvera – Being (2018)\, í Verksmiðjan in Hjalteyri\, Common Ground í SIM Sýningarsalnum á Korpulfsstöðum (2020)\, Reykjavik\, Forðabúr – Supply (2020) í Nylistasafni Reykjavikur (curated by Hanna Styrmisdóttir)\, Extraterritorial (2021) í Mini Market\, Reykjavik (with Weronika Balcerak\, Flaviu Cacoveanu\, og Vitalii Shupliak. Curated by Ana Victoria Bruno)\, og Raw Power (2021) í Listasafni Reykjavíkur\, Reykjavik\, Iceland.\nHann hefur einnig tekið þátt í Reykjavik Arts Festival (2020) og Plan-B Art Festival in Borgarnes (2020) ásamt nýlegri sýningu hans\,\n“They have no pictures on the Wall” (2021)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lukas-bury-you-look-like-a-viking/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/279309272_497203191889342_7637122383692948493_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220305
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20220314T110140Z
LAST-MODIFIED:20220406T173535Z
UID:22682-1646438400-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir: Arfur
DESCRIPTION:Í hversdeginum smyr ég mér samloku þar sem kynslóðirnar blandast saman í majonesinu og ólík tímabil mannkynssögunnar hlaðast ofan á hvert annað. Kalkúnabringa\, salatblað\, tómatar og ostur. Ég fæ mér bita og hugsa um ömmur mínar og afa\, landflutninga\, Evrópu og innflytjendur. Um gróður\, mold og steingervinga\, listir og sögu mannkyns. \n  \nArfur \nég fæddist með silkiborða í höndunum \ngreip hann á leið minni gegnum fæðingarveginn  \nog skildi þá um leið  \nað hann væri haldreipi mitt í lífinu \nsilkiborði á kefli  \nsem hver einasta kona í móðurlegg hefur tekið við \nspunnið  \nog síðan gefið áfram \nþað er best að loka augunum og horfa með fingrunum \nþá greiðist fyrr úr flækjunum \n-Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir \n  \nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir (f. 1981) lauk B.A. námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og MFA frá School of Visual Arts í New York árið 2009. Áslaug bjó um tíma í Bandaríkjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í söfnum\, galleríum og öðrum sýningarrýmum í Evrópu\, Bandaríkjunum og á Íslandi. Áslaug hélt sína fyrstu einkasýningu árið 2015 í Hverfisgalleríi en nýlegar sýningar eru STEIN SKRIFT í Norr11\, Stellingar I Línulegar frásagnir í Berg Contemporary\, Umskráning\, fyrir sýningarröðina Í kring í Reykjavík Roasters/Ásmundarsal og Innanyfir í Gallerí Port.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/aslaug-iris-katrin-fridjonsdottir-heritage/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/heritage.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220205
DTEND;VALUE=DATE:20220228
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20220214T073107Z
LAST-MODIFIED:20220214T073157Z
UID:21875-1644019200-1646006399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dýrfinna Benita Basalan: Temprun (UwU)
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dyrfinna-benita-basalan-temprun-uwu/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/272847676_464023485346258_4879154643713408228_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220130
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20220124T121220Z
LAST-MODIFIED:20220124T121356Z
UID:21167-1642204800-1643500799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Samsýning ‘22 - Vol. 1
DESCRIPTION:Þá er komið að því að kynna til leiks þá listamenn sem munu sýna í Þulu fram á sumar! \nListamenn eru: \nLilja Birgisdóttir \nDýrfinna Benita Basalan \nElli Egilsson \nLukas Bury \nÁslaug Íris Friðjónsdóttir \nVegna ástandsins þessa daga munum við deila með ykkur öllum verkum og umfjöllun á vefnum en einnig verður opið í galleríinu á hefðbundnum opnunartímum út sýninguna sem mun standa opin 15-30.janúar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/samsyning-22-vol-1/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/samsyning-22.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20211224
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20211202T135940Z
LAST-MODIFIED:20220825T132045Z
UID:20532-1638576000-1640303999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Snowland Art
DESCRIPTION:Árið 2017 ferðaðist Ásdís Þula\, stjórnandi/eigandi Þulu\, þvert yfir Kína. Á ferð sinni heimsótti hún lítið fjallaþorp sem hefur byggst upp í kringum stórt klaustur að nafni Labrang og kallast bærinn því sama nafni. Þar hitti hún fyrir Kristel Ouwehand (Tenzin Dolma) sem rekur heimavistarskóla þar sem hún kennir listir\, bæði málverk og teikningu. Það var ævintýri líkast að sækja heim þennan skóla og hitta nemendurna sem öll eru framúrskarandi. Til þess að styðja við rekstur skólans og kynna þetta frábæra starf fyrir Íslendingum\, hefur Þula ákveðið að halda sýningu á verkum frá Kristel og nemendum hennar. Verkin verða til sýnis og sölu helgina 3-4. desember en eftir það mun vera hægt að taka þau verk sem keypt eru strax með sér heim.  \nFrá Snowland Art \n“Kveðjur frá Snowland Artists\, frá snjólandi á tíbetsku hásléttunni í vesturhluta Kína\, til annars snjólands\, Ísland! Það eru mikil forréttindi fyrir okkur að fá að sýna list okkar frá suðvesturhluta Gansu\, og vonandi gefa ykkur smá innsýn inn í fallega heiminn hér. Allir listamennirnir okkar eru ungir\, hæfileikaríkir og áhugasamir og elska að skapa verk sem endurspegla líf þeirra og menningu. Vestur-Kína er fallegur staður\, í landslagi\, fólki og menningu.buy valtrex Canada https://langleyrx.com/valtrex.html no prescription\n  \nVIð vonum að þið fáið að kynnast þessum ótrúlega stað í gegnum list okkar!”
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/20527/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/261300954_427841095631164_3685265642412217860_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211106
DTEND;VALUE=DATE:20211128
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20211108T124624Z
LAST-MODIFIED:20220825T132403Z
UID:20076-1636156800-1638057599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lilý Erla: Ofankoma
DESCRIPTION:Lilý Erla Adamsdóttir vinnur á mörkum myndlistar\, hönnunar og listhandverks. Yfirborð eru henni hugleikin hvort sem um ræðir yfirborð náttúrunnar eða mennskunnar. Verkin eru unnin í einlægu flæði og stjórnast ferlið af geðþótta listamannsins sem leitar í tengingu og takt við efnisheiminn. Sjónarhornið kemur fyrir á mismunandi vegu þar sem flögrað er milli nálægðar og fjarlægðar á myndfletinum og áhorfandinn er skilinn eftir á óræðum stað.buy valtrex generic https://buynoprescriptiononlinerxx.net/valtrex.html over the counter\n Líðandi form og lífræn endurtekning eru áberandi stef á þessari mjúku sýningu sem fjallar um andartakið og eilífðina.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lily-erla-ofankoma/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/lily-thula.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211009
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20211007T152228Z
LAST-MODIFIED:20220916T111536Z
UID:19584-1633737600-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sindri "Sparkle" Freyr: Portraits of Pleasure
DESCRIPTION:Portraits of Pleasure er sería af kyrralífsmálverkum þar sem listamaðurinn reynir að fanga kynhneigð vina sinna í kyrralífsverk af uppáhalds kynlífsleikföngum hvers vinar. Með því að mála þessa plast leikföng og titrandi vélar reynir hán að opna samtal um nautn og eftirlætissemi\, hvað er talið vera við hæfi\, hvað ekki og mikilvægi þess að njóta lífsins.\n\nSindri “Sparkle Freyr er fjöllistamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hann hefur verið að sýna verk sín í galleríum síðan 2015. Sindri hefur átt 5 einkasýningar og tekið þátt í 9 samsýningum. Hann hefur líka gefið út ljóðabók\, listabók og ljóða/listabók.\nSindri skrifaði\, leikstýrði og lék aðalhlutverkið í kvikmyndini Opening Up sem vann “Punch in the face” verðlaunin á Reykjavík Fringe Festival. Hann lék líka aðalhlutverkið í “Allir úr” auglýsingarherferð Nova.\nSindri kýs öll persónufornöfn\, hann/hún/hán.\n\nÁrið 2017 útskrifaðist Sindri af sjónlistabraut í Myndlistaskólanum í Reykjavík. Beint eftir það kláraði hann síðan málaradiplóma við sama skóla. \nNúna er hann að vinna að BA gráðu í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands.\nSindri vinnur líka utan almenna fagurlistaheimsins. Hann situr nú í stjórn BDSM á Íslandi þar sem hann er ritari. Hann reynir að fremja reglulega gjörninga sem dragdrottningin Kink Ween og er einnig að taka sín fyrstu skref inn í uppistand. \nLíkt og ferill hans er fjölbreyttur geta þemu verka hans líka fjallað um ýmislegt. \nOftast fjalla þau þó um kynhneigð\, sögur\, existentíalisma\, hinseginleika og fantasíur\, bæði nördalegar og erótískar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sindri-sparkle-freyr-portraits-of-pleasure/
LOCATION:Þula\, Hjartatorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/sparkle.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210911
DTEND;VALUE=DATE:20211004
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20210906T133953Z
LAST-MODIFIED:20220916T110621Z
UID:18965-1631318400-1633305599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rakel McMahon: Lax
DESCRIPTION:Viðfangsefni verka Rakelar McMahon hverfast oftar en ekki í kringum kynhlutverk\, staðalímyndir og samfélagslegan valdastrúktúr þar sem nálgun hennar og framsetning einkennast gjarnan af tvíræðni\, myndlíkingu og húmor. \nÁ sýningunni LAX er ímynd íslenskrar karlmennsku í forgrunni með hreina\, óspjallaða íslenska náttúru í bakgrunni. Þar skoðar listakonan karlmennsku út frá ljósmyndum af laxveiðimönnum með nýveiddan lax og tvinnar þær saman við setningar úr bókinni On Photography eftir heimspekinginn og rithöfundinn Susan Sontag. \nÍ bókinni\, sem kom fyrst út árið 1977\, fjallar Sontag m.a. um gildi og áhrif ljósmynda. Hugmyndir hennar eiga jafnvel enn betur við í nútímasamfélagi hátt í fjórum áratugum síðar. Í bók sinni fjallar Sontag um hvernig þörf manneskjunnar fyrir að upphefja eigin reynslu hefur aukist með tilkomu ljósmynda. Um sé að ræða fagurfræðilega neysluhyggju sem allir séu orðnir háðir. Iðnvædd samfélög hafi þannig breytt þegnum sínum í myndfíkla (image junkies). \nSegja má að verkin á sýningunni LAX séu sjálfstætt framhald af myndröðinni View of Motivation (2013/2014) þar sem viðfangsefnið var knattspyrna sem félagsleg athöfn og vettvangur til samskipta. Í LAX er það laxveiði-ljósmyndin sem athöfn sem er í brennidepli. Hið síendurtekna stef í pósu laxveiðimannanna er dregið fram í dagsljósið. Athöfnin sem fest hefur verið á filmu er hvort tveggja í senn\, helgiathöfn og hversdagsleg klisja sem allir þekkja.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/rakel-mcmahon-lax/
LOCATION:Þula\, Hjartatorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/lax.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210814
DTEND;VALUE=DATE:20210906
DTSTAMP:20260530T084446
CREATED:20210823T113837Z
LAST-MODIFIED:20220916T110042Z
UID:18566-1628899200-1630886399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hulda Vilhjálmsdóttir: Pönk rómantík (Fullkominn ófullkomleiki)
DESCRIPTION:Sýningin Pönk rómantík (Fullkominn ófullkomleiki) eru verk sem ég hef unnið undanfarin ár og eru samtal milli abstrakt og fígúratíft\, náttúrunnar og abstrakt\, hins gamla og nýja.”\n– Hulda Vilhjálmsdóttir\n\nHulda Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 1971. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000.\nHún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008.\nÁrið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. 2019 hlaut Hulda myndlistarverðlaunin Tilberann.\nHulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga Listasöfn og einkaaðilar verk eftir hana. Árið 2003 opnaði hún og rak gallerí Angelicu Smith í þrjá mánuði sem nokkurs konar gjörning. Hulda hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og myndabækur\, má þar nefna Valbrá sem kom út 2017 og Dagur Líður 2020. Frá því Hulda lauk námi hefur hún starfað sjálfstætt að myndlistinni. Verkin hennar eru tilfinningarík en samt yfirveguð. Með ljóðrænni túlkun af landslagi\, óhlutbundið og fólki. berst hún fyrir tjáningarfrelsi og verndun náttúrunnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hulda-vilhjalmsdottir-ponk-romantik-fullkominn-ofullkomleiki/
LOCATION:Þula\, Hjartatorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/hulda.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR