BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220627T170751Z
LAST-MODIFIED:20220916T105235Z
UID:24287-1653091200-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nicoline Weywadt
DESCRIPTION:Í tengslum við farandsýninguna Í skugganum er sérsýning á verkum fyrsta íslenska kvenljósmyndarans\, Nicoline Weywadt\, á Veggnum á 1. hæð Þjóðminjasafns Íslands. Á sýningunni eru nokkrar ljósmyndir hennar auk teikningar af ljósmyndastúdíóinu sem hún lét byggja á Teigarhorni. \n\nNicoline Weywadt lærði ljósmyndun veturinn 1871-72 í Kaupmannahöfn. Hún bjó alla tíð á Austurlandi\, fyrst á Djúpavogi en síðar að Teigarhorni. Nicoline myndaði fyrst og fremst fólk en eftir hana eru einnig útimyndir frá Djúpavogi\, Eskifirði og Seyðisfirði sem sýna upphaf þéttbýlismyndunar á þessum stöðum. Ljósmyndasafn hennar er einstæð heimild um Austfirðinga og Austurland á seinni hluta 19. aldar. \nSafn Nicoline er varðveitt í Ljósmyndasafni Íslands á Þjóðminjasafni auk ljósmyndabúnaðar hennar s.s. myndavélar\, hnakkajárns og baktjalds sem allt er til sýnis á grunnsýningu Þjóðminjasafnsins. \nLjósmynd: Sjálfsmynd af Nicoline Weywadt
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nicoline-weywadt/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/kynningarmyndheimasida.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220627T165614Z
LAST-MODIFIED:20220916T104353Z
UID:24279-1653091200-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Í skugganum
DESCRIPTION:Konur meðal frumkvöðla í ljósmyndun \n\nKonur í hópi frumkvöðla á sviði ljósmyndunar eru í forgrunni sýningar  í ljósmyndasal Þjóðminjasafns Íslands. Sýningin Í skugganum varpar ljósi á tíu konur sem lögðu stund á ljósmyndun í Danmörku\, Íslandi og Færeyjum á síðari hluta 19. aldar. \n\nYfirskrift sýningarinnar vísar til þess að konurnar stunduðu ljósmyndun í skugganum í tvenns konar skilningi. Þær stóðu bak við myndavélina og utan sviðsljóssins en líka í skugga karlkyns ljósmyndara síns samtíma. Stundum voru verk þeirra jafnvel eignuð eiginmönnum þeirra. \nÁ sýningunni stíga þessar konur út úr skugganum og taka sér rými í sögu ljósmyndunar. Sýningin varpar ljósi á þau áhrif sem kvennljósmyndarar höfðu á þróun listgreinar og þær aðstæður sem þær unnu við í Danmörku\, Íslandi\, Færeyjum\, Ameríku og dönsku Vestur-Indíum. \nÞessar konur voru um margt afar mikilsvirkir skrásetjarar síns samtíma. Þær tóku ekki aðeins portrettmyndir heldur skrásettu í myndum sínum fólk af mismunandi stigum\, atvinnuhætti\, heimilishald\, náttúru\, jafn sem lífið í sveit og borg. \nSýningin var upprunalega sett upp í Museum Østjytland í Randers á Jótlandi undir titlinum I skyggen – De første kvindelige fotografer í apríl 2021. \nFramleiðandi sýningar : Museum Østjylland\, Randers Danmark \nLjósmynd: Sviðsett nálgun Kirstine Lund á portrettljósmyndun sést með skýrum hætti hér á mynd hennar af tveimur ungum konum\, um 1900. Ljósmynd: Skjalasafn\, Sögusafnið í Vendsyssel.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/in-the-shadow/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/1.-kirstine-lund-b-51441_minni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220502
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220120T132858Z
LAST-MODIFIED:20220825T131934Z
UID:21142-1642809600-1651449599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Vassilis Triantis: Þar sem rósir spruttu í snjó
DESCRIPTION:Þar sem rósir spruttu í snjó er sýning á ljósmyndum Vassilis Triantis. Sýningin er samsett úr ljósmyndum Vassilis sjálfs og myndum úr fjölskyldualbúmi tengdaforeldra Vassilis\, þeirra Ástu og Gústa sem lengi voru rósabændur í Laugarási í Biskupstungum.buy stromectol online https://gaetzpharmacy.com/stromectol.html no prescription\n Sýningin er virðingarvottur við líf og starf þeirra hjóna og endurspeglar minningar um rósir sem spruttu í snjó. \n\nVassilis Triantis er fæddur í Grikklandi en býr og starfar í Hollandi. Hann sótti sér menntun í líffræði og starfar nú jöfnum höndum að líffræðirannsóknum og við ljósmyndun. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/vassilis-triantis-roses-grew-on-snow/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/roses-on-snow.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220502
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220120T132256Z
LAST-MODIFIED:20220825T132148Z
UID:21135-1642809600-1651449599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Marinó Thorlacius: Straumnes
DESCRIPTION:Straumnesfjall stendur milli Aðalvíkur í suðri og Rekavíkur í norðri og er nú hluti af friðlandinu á Hornströndum. Þar byggði og starfrækti bandaríski herinn ratsjárstöð á tímum kalda stríðsins. Stöðin starfaði aðeins í tæp þrjú ár\, frá árinu 1958 til 1961. Hreinsun á fjallinu og nærliggjandi svæðum var framkvæmd árið 1991 í samstarfi hersins og Íslendinga þó enn megi sjá greinileg ummerki um þessa starfsemi á fjallinu. Sýningin Straumnes eru hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands. \nLjósmyndarinn Marínó Thorlacius ljósmyndaði svæðið árin 2015 og 2019 og deilir hér með okkur sýn sinni á það sem enn stendur af ratsjárstöðinni við ysta haf. Ægifegurð landsins og síbreytilegt veðrið eru bakgrunnur mynda sem sýna leifarnar af því sem var. Þegar þokunni sem gjarna hangir yfir léttir og birtan opnar sýn yfir sléttan fjallstoppinn má sjá steypuklumpa liggja á víð og dreif. Spýtnarusl og járn hálfgrafið í fjallsbrúninni er eins og staðfesting á þeirri sögu að stöðinni hafi verið rutt fram af fjallinu. Eru þetta ummerki um mengunarslys eða eru þetta menningarsögulegar rústir? \nÞað hefur verið þrekraun að byggja og þjónusta ratsjárstöð á þessum afskekkta stað\, enda gafst herinn fljótlega upp. Ólgandi hafið 400 metra fyrir neðan fjallsbrúnina\, varpar upp hljóðmynd af þeim takmörkum sem náttúran setur staðnum og þeim sem þar dvöldu. Maðurinn má sín lítils gegn náttúruöflunum á Straumnesfjalli. \nMarinó Thorlacius sýndi ljósmyndir sínar fyrst árið 2004 og hefur síðan starfað við ljósmyndum. Hann vinnur jöfnum höndum að listrænum verkefnum og auglýsingaljósmyndun. Oft er hann í nánu samstarfi við listamenn og hönnuði og mótar með þeim myndheim verkefnanna. Myndir hans hafa birst í innlendum og erlendum tímaritum og á sýningum. Marinó er alinn upp í Örlygshöfn við Patreksfjörð og býr og starfar til skiptis í Reykjavík og á bernskuslóðum.buy prednisone online https://rxbuywithoutprescriptiononline.net/prednisone.html no prescription\n \nSýningin stendur yfir til 1. maí 2022 \nSýningarstjóri er: Kristín Halla Baldvinsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/marino-thorlacius-straumnes/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/straumnes.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20220110T155022Z
LAST-MODIFIED:20220916T105009Z
UID:21030-1642032000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósmyndahátíð Íslands
DESCRIPTION:Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum\, fyrirlestrar\, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. \nLjósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum\, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins. \nSamstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur\, BERG Contemporary\, Félag íslenskra samtímaljósmyndara\, Gallery Port\, Gerðarsafn\, Hafnarborg\, Listasafn Íslands\, Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, RAMskram\, Þjóðminjasafn Íslands. \nStjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-icelandic-photo-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/tipf2022_facebookspjald.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20220103
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20211006T154841Z
LAST-MODIFIED:20220916T111211Z
UID:19521-1633132800-1641167999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Mannamyndasafnið
DESCRIPTION:Í Ljósmyndasafni Íslands er safnheild sem ber heitið Mannamyndasafn. Í henni er að finna ólíkar gerðir mynda\, þar á meðal málverk\, ljósmyndir\, útsaumsverk og höggmyndir. Breiddin er mikil\, frá því að vera skyndimyndir yfir í að vera ómetanleg listaverk. Þær eiga það sameiginlegt að sýna fólk. \n\nÁ sýningunni er safnkostinum gerð skil í gegnum 34 þemu sem ná ýmist yfir myndefni eða gerð mynda. Þar má til dæmis skoða elstu mannamyndina sem þekkt er á Íslandi\, ljósmyndir af þátttakendum í fyrstu íslensku fegurðarsamkeppninni og myndir af ýmsum hópum\, gömlum og nýjum. \nMannamyndasafnið var stofnað árið 1908 og var tilgangur þess að safna myndum af öllum Íslendingum. Í því eru yfir 60.000 myndir sem ná yfir 400 ár. \nÞær hafa að mestu leyti verið gjafir frá einstaklingum og er enn í dag tekið við myndum í Mannamyndasafnið. \nSýningarstjóri: Eva Kristín Dal
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/mannamyndasafnid/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/portrait-collection.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20210831T120953Z
LAST-MODIFIED:20220916T105921Z
UID:18855-1616803200-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristján Magnússon: Bakgarðar
DESCRIPTION:Bakgarðar\, skúrar\, þvottasnúrur og einstaka köttur. Ljósmyndarinn Kristján Magnússon skoðar með linsunni þröngt afmarkað svæði í borgarumhverfi; eingöngu staði bakatil í íbúðarbyggð í eldri hluta Reykjavíkur. Hann fangar í mynd nær mannlaus rými sem virðast þaulskipulögð þrátt fyrir óreiðukennt umhverfi. Ljósmyndaröðin ber sterk einkenni stílbragðs Kristjáns sem var þaulreyndur auglýsingaljósmyndari. \n\nKristján Magnússon (1931-2003) lærði ljósmyndun hjá Pétri Thomsen um 1960. Á sama tíma myndaði hann fyrir tímaritið Vikuna og dagblaðið Tímann. Kristján vann sjálfstætt frá árinu 1967\, opnaði ljósmyndastofu og myndaði alla tíð mikið fyrir auglýsingastofur. Ingimundur\, tvíburabróðir Kristjáns\, kom seinna inn í reksturinn og þeir unnu saman á árunum 1978-1998. \nLjósmyndasafn Kristjáns barst Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni árið 2004. \nÞar á meðal var myndaröðin Bakgarðar. Myndirnar hafði hann sjálfur valið\, unnið og gert tilbúnar til sýningar en þær birtast fyrst sjónum almenning núna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristjan-magnusson-bakgardar/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/bakgardar-titilmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210913
DTSTAMP:20260530T074831
CREATED:20210831T115040Z
LAST-MODIFIED:20220916T105800Z
UID:18851-1616803200-1631491199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Spessi 1990-2020
DESCRIPTION:Samtímaljósmyndarinn Spessi – Sigurþór Hallbjörnsson – hefur skapað sér einstakan stíl á sviði fagurfræðilegrar ljósmyndunar. Í verkum hans birtist iðulega blákaldur veruleikinn\, ekkert fegrað og ekkert dregið undan sama hvort myndefnið er manneskjan eða umhverfið. Kimar samfélagsins í samtvinningi við menningarlífið eru áberandi í verkum hans. Val hans og efnistök eru gjarnan ögrandi en samtímis gædd mannúð og kímni. \n\nSpessi er fæddur árið 1956 á Ísafirði. Þangað hefur hann sótt innblástur í mörg verk eins og sést í myndaröðunum Hetjur og Úrtak. Nýjasta verkefni hans C19 var einnig tekið í heimabæ hans. \nSpessi nam ljósmyndun við AKI – Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi og útskrifaðist þaðan árið 1994. Ljósmyndir og vídeóverk hans hafa birst á fjölmörgum einkasýningum og samsýningum hér á landi og erlendis m.a. í Hollandi\, Svíþjóð\, Finnlandi\, Lettlandi\, Bandaríkjunum og Bretlandi. \nFerill Spessa spannar meira en 30 ár og á yfirlitsýningu hans má sjá þær ótal sögur sem birtast í verkum hans. Stoltar hvunndagshetjur\, einmana bensíndælur\, yfirgefin rými\, beygluð byltingarvopn\, byssueigendur\, blokkaríbúar og listamenn\, sumir vandræðalegir aðrir sjálfsöruggir. \nVerk Spessa eru spegill á íslenskt samfélag og fela í sér mikilvæga samfélagsrýni. \nListamaður: Spessi \nSýningastjóri: Linda Ásdísardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/spessi-1990-2020/
LOCATION:Þjóðminjasafn Íslands\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 102\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/spessi-1990-2020-titilmynd.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR