BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20190101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230520
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220929T110259Z
LAST-MODIFIED:20231013T123021Z
UID:26667-1684540800-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigtryggur Bjarni Baldvinsson: Fram fjörðinn\, seint um haust
DESCRIPTION:Sýningin Fram fjörðinn\, seint um haust samanstendur af stórum vatnslitaverkum máluðum á síðustu tveimur árum þar sem lífríki Héðinsfjarðar seint um haust er aðalviðfangsefni listamannsins Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar. Undanfarin 17 ár hefur vaxandi hluti verka Sigtryggs átt uppruna sinn í Héðinsfirði\, eyðifirði sem liggur á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar á Tröllaskaga\, þar sem listamaðurinn hefur skrásett náttúruna í firðinum í gegnum athöfnina að mála.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigtryggur-bjarni-baldvinsson-fram-fjordinn-seint-um-haust/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/image1.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230304
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20230308T150551Z
LAST-MODIFIED:20231013T123120Z
UID:29693-1677888000-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Einkasafnið
DESCRIPTION:Í upphafi árs 2022 var listaverkasafn hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar\, sem kenndur var við Síld og fisk\, afhent Listasafni Íslands til framtíðarvörslu. Safnið\, sem samanstendur meðal annars af málverkum\, teikningum\, grafíkverkum\, höggmyndum og lágmyndum\, er með stærstu einkasöfnum hér á landi og telur um 1400 verk eftir marga af helstu listamönnum þjóðarinnar. Þar af eru um 400 verk eftir Jóhannes S. Kjarval sem var mikill vinur þeirra hjóna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-private-collection/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions,Galleries
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-08-at-15.04.43.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221015
DTEND;VALUE=DATE:20230213
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220908T151608Z
LAST-MODIFIED:20230213T101959Z
UID:25858-1665792000-1676246399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Zanele Muholi
DESCRIPTION:Hér er á ferðinni stórsýning á verkum eins athyglisverðasta samtímaljósmyndara og aktívista í heiminum í dag\, Zanele Muholi (f. 1972) frá Suður-Afríku. Áhrifamiklar myndir Muholi varpa ljósi á sögu og réttindabaráttu svarts hinsegin fólks í heimalandi listamannsins. Þar gefur Muholi þeim rödd sem daglega þurfa að berjast til að öðlast viðurkenningu samfélagsins á sjálfsmynd sinni. \nYfir hundrað ljósmyndir auk videoverka gefa innsýn í líf og samfélög jaðarsetts fólks\, þar sem einlæg túlkun Muholi dregur sérstaklega fram þætti um kynja- og sjálfsmyndarpólitík\, bönn\, hatursglæpi og ofbeldi en einnig um stolt\, mótstöðu\, einingu og ást. \n\nSýningarstjórar: Harpa Þórsdóttir\, Vigdís Rún Jónsdóttir og Yasufumi Nakamori
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/zanele-muholi/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/bada558f46cc2ce070b6f2b926fca7dc_0.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220605
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220530T114422Z
LAST-MODIFIED:20230124T102832Z
UID:23418-1654387200-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Skartgripir Dieters Roth
DESCRIPTION:Dieter Roth (1930—1998) var í senn brautryðjandi sem virti engar takmarkanir\, hugsuður\, frumkvöðull\, skáld\, tónlistarmaður\, kvikmyndagerðarmaður og myndlistarmaður. Færri vita að hann vakti jafnframt athygli fyrir nýstárlega skartgripasmíði sem hann hóf að fást við á Íslandi seint á sjötta áratug síðustu aldar. \nFyrstu skartgripirnir sem Dieter hannaði voru unnir í samstarfi við konu hans\, Sigríði Björnsdóttur\, heima á eldhúsborðinu og fljótlega bauðst þeim betri aðstaða á verkstæði Halldórs Sigurðssonar gullsmiðs að Skólavörðustíg 2. \nSkartgripi Dieters\, sem hann gerði gjarnan úr skrúfum\, boltum og öðrum mekanískum hlutum\, mátti setja saman á mismunandi vegu og breyta þeim. Nálgun hans við skartgripagerð var hin sama og einkenndi myndlist hans; að nýta ýmiss konar efni sem almennt var talið rusl eða úrgangur og umbreyta því. Engir þessara muna eru eins\, Dieter þekkti eiginleika efniviðarins og vann hugmyndir sínar beint í hann. \nÁ sjöunda áratug síðustu aldar hófu Dieter Roth og svissneski gullsmiðurinn Hans Langenbacher samstarf\, en þeir hittust fyrst á vinnustofu Jóns Sigmundssonar gullsmiðs í Reykjavík 1958 og hrifust mjög af vinnubrögðum\, efnisnotkun og færni hvor annars. \nÍ Listasafni Íslands gefst nú í fyrsta sinn tækifæri til að leiða einstaka skartgripi Dieters augum í heildstæðu samhengi. Sýningin ber tilraunagleði myndlistarmannsins og óvenjulegum vinnuaðferðum hans glöggt vitni og varpar nýju ljósi á verk þessa einstaklega fjölhæfa listamanns. \n\nSýningarstjóri: Björn Roth
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dieter-roth-jewellery/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/d-roth-jewel.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220528
DTEND;VALUE=DATE:20221003
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220505T140741Z
LAST-MODIFIED:20221005T123728Z
UID:23153-1653696000-1664755199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Margrét H. Blöndal: Liðamót
DESCRIPTION:Sýningin Liðamót / Ode to Join samanstendur annars vegar af teikningum gerðum með olíu og litadufti og hins vegar þrívíðum verkum sem Margrét H. Blöndal mun vinna beint inn í rými sýningarsalarins. Heiti sýningarinnar Liðamót  vísar í þá staðreynd að þar sem þrír eða fleiri liðir koma saman verður til hreyfing. Í verkum Margrétar mótast hreyfingin út frá skilrúmum sem sett verða upp í rýminu\, staðsetningu verkanna og innra samhengi þeirra. Enski hluti titilsins\, Ode to Join\, er hins vegar óður til tengingar þar sem hver skúlptúr eða teikning verður eins og ein eining í pólífónísku tónverki. Verk Margrétar eru handan orða og búa yfir fegurð og yfirskilvitlegu aðdráttarafli enda hefur innsetningum hennar verið líkt við tónaljóð. \n\n\n\n\n\n\n\nMargrét H. Blöndal er fædd árið 1970 í Reykjavík þar sem hún býr og starfar. Margrét útskrifaðist úr fjöltæknideild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1993. Árið 1997 lauk hún MFA-gráðu frá Mason Gross School of Arts\, Rutgers University í New Jersey í Bandaríkjunum. Margrét á langan feril að baki og hefur sýnt víða bæði heima og erlendis síðan 1994.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/margret-h-blondal-ode-to-join/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Screenshot-2022-05-05-at-14.04.49.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220528
DTEND;VALUE=DATE:20221003
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220505T140217Z
LAST-MODIFIED:20221005T123920Z
UID:23147-1653696000-1664755199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir: Ekkert er víst nema að allt breytist
DESCRIPTION:Sýninguna Ekkert er víst nema að allt breytist má skoða sem hugleiðingu og jafnvel óð listakonunnar til þeirrar kerfishugsunar sem einkennt hefur verk hennar til þessa en þó í víðara samhengi. Samhliða þróun á eigin hugmyndakerfi beinir Ingunn nú einnig sjónum sínum að þeim tæknilegu og hugmyndafræðilegu kerfum sem stýra\, leynt og ljóst\, mannfólkinu og heiminum í heild. Hvort sem um ræðir algóritma og kóða\, eða litið er til pólitískra kerfa\, fjármálakerfa\, eða persónulegt vafur um internetið er grandskoðað\, þá veltir verkið Ekkert er víst nema að allt breytist upp spurningum um hver sé við stjórnvölinn og hver áhrif og forráð einstaklingsins raunverulega séu. \nÁ sýningunni gætir kunnuglegra stefja frá fyrri verkum sem þó hafa aldrei verið sameinuð áður. Þessi fjölþætta innsetning Ingunnar Fjólu stýrist af mismunandi þáttum\, annars vegar innbyggðu kerfi verksins og hins vegar aðkomu áhorfandans og því óljóst hver aflvaki verksins er hverju sinni. \nIngunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) útskrifaðist með MA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og BA-gráðu í myndlist frá sömu stofnun árið 2007. Hún er einnig með BA-gráðu í listasögu frá háskólanum í Árósum frá 2002.\nÍ listsköpun sinni fæst Ingunn við ýmsa miðla eins og málverk\, vefnað og innsetningar. Verk hennar fela oft í sér gagnvirkni eða beina þátttöku og teygir hún þannig verkin inn í opið kerfi þar sem þau lifna við fyrir tilstilli áhorfenda og rýmisins.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ingunn-fjola-ingthorsdottir-the-only-constant-is-change/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Screenshot-2022-05-05-at-13.10.29.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220428
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20220530T115637Z
LAST-MODIFIED:20230131T103330Z
UID:23426-1651104000-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Viðnám
DESCRIPTION:Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. \nLíta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða\, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum\, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk\, skynjun\, tilfinningar\, sannfæringu\, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt  sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum  hliðum auðveldar breytingar og þróun  gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda\, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning. \nÞað er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.  Það felur í sér að samþætta\, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám. \nEkkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum\, þar á meðal mannslíkaminn\, eru samsettir úr orku\, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski\, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju\, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar\, óreiða\, regla\, hrynjandi\, síbreytileiki\, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar. \n  \n\n\n\n\n\n\n\n\nListamenn sem eiga verk á sýningunni \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nDavíð Örn Halldórsson \nDodda Maggý \nEirún Sigurðardóttir \nErla Þórarinsdóttir \nEyborg Guðmundsdóttir \nFinnur Jónsson \nGerður Helgadóttir \nGuðmunda Andrésdóttir \nJóhannes Kjarval \nKarl Kvaran \nKristinn Hrafnsson \nKristján Guðmundsson \nMagnús Helgason \nRansu \nSigrid Vadingojer \nSigurður Árni Sigurðsson \nTumi Magnússon \nÞorvaldur Skúlason \n  \n\n\nSýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir \n\nSýningarteymi: Ásthildur Jónsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Harpa Þórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/resistance-interplay-of-art-and-physics/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/resistance.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220121
DTEND;VALUE=DATE:20220502
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20211129T122516Z
LAST-MODIFIED:20220609T135216Z
UID:20439-1642723200-1651449599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sviðsett augnablik
DESCRIPTION:Sýningin Sviðsett augnablik varpar ljósi á einn fjölbreyttasta safnkostinn í safneign Listasafns Íslands sem er ljósmyndin.\nVerkin spanna tímabilið frá áttunda áratug síðustu aldar til dagsins í dag. Staða ljósmyndunar sem listgreinar hefur eflst á síðastliðnum áratugum en lengi vel naut ljósmyndin ekki viðurkenningar sem fullgilt listaverk vegna fjölföldunareiginleika sem þóttu stangast á við hið einstaka og háleita í listum.\nÁ Íslandi má segja að með notkun hugmyndalistamanna á ljósmyndinni á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar hafi miðillinn fyrst farið að njóta athygli sem myndlistarform.\nSýningin Sviðsett augnablik vitnar um þá miklu grósku sem hefur orðið í ljósmyndun sem listsköpun á síðastliðnum fimmtíu árum og fest ljósmyndina í sessi sem myndlistarform til jafns við aðra rótgrónari listmiðla. Í dag nýtur ljósmyndin virðingar sem margháttaður miðill sem tekur sífelldum breytingum og hefur stækkað mengi samtímalistar umtalsvert. \nLjósmynd: Inga Svala Þórsdóttir & Wu Shanzhuan: Paradísir\, 1993
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/staged-moments/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/ljosm.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210901
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20211025T130155Z
LAST-MODIFIED:20220916T104953Z
UID:19869-1630454400-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fjársjóður þjóðar
DESCRIPTION:Listasafn Íslands sýnir perlur íslenskrar listasögu í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Í húsinu er að finna listaverk frá síðari hluta 19. aldar til dagsins í dag sem endurspegla fjölbreytt viðfangsefni listamanna og gefst gestum hússins kærkomið tækifæri til að skoða mörg af helstu listaverkum þjóðarinnar. Þann 1. mars 2021 var Safnahúsið afhent Listasafni Íslands. Það er fyrsta safnbyggingin sem var reist hér á landi og var hún vígð árið 1909 og hefur hýst ýmsar merkar menningarstofnanir síðan. Þessi glæsilega bygging gerir nú Listasafni Íslands kleift að sýna að staðaldri lykilverk úr safneigninni og bætir úr bráðri þörf safnsins fyrir húsnæði til sýningahalds. \nÍ ólíkum sölum á efri hæðum safnsins má sjá upphafningu frumherja málaralistar á náttúru landsins þar sem töfrar íslensku sumarnæturinnar láta fáa ósnortna. Landslagið\, náttúran og túlkun hennar hefur verið stöðugt viðfangsefni íslenskra listamanna. En fleiri þemu er að finna í húsinu þegar gengið er um. Fólkið í landinu hefur verið mikilvægt viðfangsefni margra listamanna í gegnum tíðina og á fyrstu hæð hússins getur að líta mannlífsmyndir af íslenskri alþýðu til sjávar og sveita ásamt tjáningarríkum mannamyndum.\nEinnig má sjá kyrralíf eða uppstillingar þar sem listamaðurinn glímir við hversdagslega hluti í nærumhverfinu\, liti\, lögun og margbreytilegt yfirborð en síðast en ekki síst úrval abstraktverka en Listasafn Íslands á geysilega gott safn abstraktlistar. \nEfsta hæðin í Safnahúsinu var löngum vinsæll útsýnisstaður þar sem húsið gnæfði yfir lágreistri byggð sem óx óðum. Þar gefst gestum kostur á að líta út um gluggana yfir höfnina og sundin blá og sjá með eigin augum það sjónarspil sem hefur veitt mörgum myndlistarmönnum innblástur eins og listaverkin bera vitni um. \nSýningin Fjársjóður þjóðar í Safnahúsinu varpar ljósi á þá dýrmætu safneign sem Listasafn Íslands býr yfir um leið og myndlistin endurspeglar tíðarandann hverju sinni enda er listin í stöðugu samtali og endurnýjun\, í takt við samfélagið allt.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjarsjodur-thjodar/
LOCATION:The House of Collections\, Hverfisgata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/treasures-of-a-nation.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191019
DTEND;VALUE=DATE:20220101
DTSTAMP:20260530T041518
CREATED:20211108T103709Z
LAST-MODIFIED:20220916T105714Z
UID:20012-1571443200-1640995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurjón Ólafsson: Sjón er sögu ríkari
DESCRIPTION:Sýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar\, SJÓN ER SÖGU RÍKARI verður opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar\, laugardaginn 19.október kl. 15. \nÁ sýningunni eru fjölbreytt verk eftir Sigurjón sem hann gerði á árunum 1933 – 1982. \nÞetta eru natúralísk verk\, abstraktsjón og frumdrög að nokkrum lykilverkum listamannsins sem hafa verið stækkuð og staðsett í opinberum rýmum svo sem Fótboltamenn (1936) sem stendur á Faxatorgi á Akranesi\, Gríma (1947) sem stendur við Borgarleikhúsið í Reykjavík og frumdrög að Víkingi (1951) sem Sigurjón hjó í grástein og stendur fyrir utan Listasafn Íslands á Fríkirkjuvegi. \nSýningin hefur fjölþættan tilgang; að vekja almenna athygli á heildarskrá verka Sigurjóns á vefsíðu safnsins og benda kennurum á möguleika sem felast í því að nýta sér fræðsluefnið og koma á safnið með nemendum til að skoða verkin og eins til að hvetja foreldra til að leggja leið sína í safnið með börnum sínum og njóta leiðsagnar um sýninguna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurjon-olafsson-sjon-er-sogu-rikari/
LOCATION:Sigurjón Ólafsson Museum\, Laugarnestangi 70\, Reykjavík\, 105\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/sigrjonolafs.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR