BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230316
DTEND;VALUE=DATE:20230501
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20230316T105118Z
LAST-MODIFIED:20230505T094531Z
UID:29854-1678924800-1682899199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Amanda Riffo: House of Purkinje
DESCRIPTION:Augað er líffærið sem tekur á móti því sem við sjáum. Heilinn vinnur úr ljósinu\, meðtekur upplýsingarnar sem fanga athygli okkar og framkallar myndir. Þannig sést aðeins hluti af því sem fyrir augu ber\, og þannig erum við aðeins meðvituð um lítinn hluta af því sem við sjáum. \n\n\nHouse of Purkinje\, einkasýning Amanda Riffo er sviðsetning á raunveruleikanum. Titillinn vísar til tékkneska lífefnafræðingsins Jan Evangelista Purkyně sem meðal annars uppgötvaði samverkandi og margfaldar speglanir af einni einstakri fyrirmynd sem birtast á yfirborði augans og innan úr því. Eins og margföld speglun sjálfsins. \nMeð House of Purkinje setur Amanda fram hliðstæður á milli lífeðlisfræði augans og meðvitundar okkar gagnvart umhverfinu. Þetta gerir hún með því að etja sýningarrýminu saman við kvikmyndaver\, en Amanda hefur starfað í kvikmyndaiðnaðinum næstum jafn lengi og hún hefur starfað sem myndlistarmaður. Á báðum sviðum vinnur hún með afbakaða hluti\, skáldaðar myndir og stöðugar vangaveltur um hvernig við skynjum umhverfi okkar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/amanda-riffo-house-of-purkinje/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/03/Screenshot-2023-03-16-at-10.41.32.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20220929T130148Z
LAST-MODIFIED:20221125T144845Z
UID:26695-1665187200-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Til sýnis: Hinsegin umfram aðra
DESCRIPTION:Sýningin sem hlotið hefur titilinn Til sýnis: Hinsegin umfram aðra\, er sýning þar sem tekin er fyrir hinsegin myndlist og hinseginleiki í listsköpun og söfnum. Sýningunni stýra þær Ynda Eldborg\, listfræðingur og Viktoría Guðnadóttir\, myndlistamanneskja. Sýningin spannar bæði verk úr safneign Nýlistasafnsins\, valin með hinsegin gleraugum og áralangri þekkingu sýningarstýranna\, svo og ný verk sköpuð af hinsegin myndlistarfólki. Á haustmánuðum 2021 fóru Ynda og Viktoría í gegnum safneign Nýlistasafnsins\, og völdu nokkur verk sem hægt er að sjá eða túlka sem hinsegin. Listafólkinu var svo boðið að skapa ný verk sem kallast á við hluta þeirra verka sem Ynda og Viktoría höfðu forvalið\, og þannig dregið fram og  hafið sjónrænt samtal við hinseginleika verka úr safneign. Listafólkinu var frjálst að velja hvaða verk sem var og búa til nýtt verk án þess að nokkrar hömlur væru lagðar á vinnu þeirra eða efnis meðferð. Nýju verkin og verkin úr safneigninni eru svo sýnd samhliða. \nlistamanneskjurnar: Anna Maggý\, Ari Logn\, BERGHALL- Anna Hallin & Olga Bergmann\, Dorothy Iannone\, Hrafna Jóna Ágústsdóttir\, Níels Hafstein\, Ragna Hermannsdóttir\, Rb Erin Moran\, Regn Sólmundur Evu\, Róska\, Svala Sigurleifsdóttir\, Stephen Lawson and Viktoria Gudnadottir. \nSýningarstjórar: Ynda Eldborg and Viktoría Guðnadóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/til-synis-hinsegin-umfram-adra/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/481460af-3cd6-4653-96a2-67af84784df5_DorothyIannone.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220825
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20220905T133845Z
LAST-MODIFIED:20221006T161248Z
UID:25593-1661385600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Þau standast ekki tímann
DESCRIPTION:Á sýningunni rennur upplausn og væntingar saman við lífsins vökva og sköpunarmátt eyðingar\, umbreytingu og hreyfingu. Ferli sem eiga við náttúru sem samfélag\, hverful við fyrstu kynni en raunveruleg í augnablikinu.  \nVökvi lekur í gegnum göt og sprungur\, kveikir líf\, holar og tekur. Jarðneskar leifar í söltum ílátum verða aftur sjór. Gufa upp eða liðast í sundur\, en hverfa ekki. Það er alltaf möguleiki á einhverju meira. Hún kemur ef þess er óskað nógu heitt\, yfirgengilega sælan. \nÞau standast ekki tímann leiðir saman verk þeirra Graham Wiebe\, Magnúsar Sigurðarsonar\, Minne Kersten\, Patricia Carolina og Sigrúnar Hlínar Sigurðardóttur. Sem tilraun með samvinnu er verkefnið samkoma ólíkra þátta\, sem hópurinn hefur nálgast í gegnum opið samtal sem hófst þeirra á milli fyrir nokkrum mánuðum síðan\, og er nú orðið að sýningu.  \nStjórn Nýlistasafnsins leiddi listamennina saman í gegnum opið umsóknarferli\, Nermine El Ansari og Margrét Dúadóttir Landmark sköpuðu samtalinu farveg í kjölfarið\, í samvinnu við Sunnu Ástþórsdóttur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/thau-standast-ekki-timann/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/nylo-they-wont.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220709
DTEND;VALUE=DATE:20220808
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20220803T161307Z
LAST-MODIFIED:20220822T112800Z
UID:24481-1657324800-1659916799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Arkíf horfinna verka
DESCRIPTION:Safneign Nýlistasafnsins er fyrir löngu orðin lifandi goðsögn\, en í henni leynast óleystar ráðgátur sem nú taka yfir sýningarrými safnsins í Marshallhúsinu. Arkíf horfinna verka miðar að því að ná yfirsýn yfir safneignina á meðan unnið er að því að leysa þessa leyndardóma og gestir eru beðnir um að leggja sitt að mörkum í rannsókninni. Niðurstaðan verður heimildasafn um verk sem að af einhverjum ástæðum eru ekki á þeim stað sem þeim er ætlaður. Verkefnið tekur yfir sýningarrýmið í Marshallhúsinu frá 9. júlí til 7. ágúst í sumar. Samhliða því hefjum við upptökur á efni fyrir Nýló rásina\, nýja hlaðvarpsveitu sem fer af stað með sumrinu. \n\n\nHvað gæti hafa komið fyrir horfnu verkin? Í hvaða hillu eru þau komin? Eru þau hreinlega ekki lengur í varðveisluhúsnæðinu? Var þeim skilað til fyrri eigenda? Komið fyrir í öðrum geymslum? Voru þau lánuð á sýningu og aldrei skilað? Urðu þau fyrir óafturkræfum skemmdum? Finnast einhverjar ljósmyndir af verkunum? Hefur eitthvað verið skrifað um þau? Hvenær voru þau sýnd síðast? Og hvað með verkin sem við vitum ekkert um? Hvaðan komu þau? Hver er listamaðurinn? Hefur þú einhverjar upplýsingar? Við bjóðum þér að taka þátt í því að skapa Arkíf horfinna verka. \n  \nFrá stofnun Nýlistasafnsins 1978 hefur safneignin vaxið ört og nálgast í dag 3000 listaverk. Söfnunin hófst út frá hugsjón myndlistarmanna í andófi gegn áhuga- og afskiptaleysi opinberra safna í garð samtímalistar og safneignin er þess vegna einstök á marga vegu. Hún endurspeglar þróun íslenskrar myndlistar frá og með sjötta áratug síðustu aldar en geymir einnig verk eftir marga alþjóðlega stóra listamenn. Safneignin samanstendur eingöngu af gjöfum\, að mestu leiti frá listamönnum sem gefa safninu eigin verk eða verk eftir aðra í þeirra eigu. \n  \nÍ gegnum tíðina hafa safneignarfulltrúar Nýló rekið sig á leyndardóma í geymslum safnsins\, verk sem ekki finnast\, verk sem talin eru munaðarlaus og jafnvel alls óþekkt verk. Arkíf horfinna verka miðar að því að yfirfara safneign Nýló og skrásetja þau verk sem telja má glötuð í dag\, safna um þau heimildum og skrásetja. Verkefnið felur í sér yfirferð á öllum hillum\, skúffum og öðrum varðveilsustöðum safnsins og samanburði við skráningu á Sarpi og í pappírsgögnum um hvert einasta verk sem hefur verið þegið að gjöf. \n  \nSafnið heldur utan um tvö heimildarsöfn: Arkíf um listamannarekin rými og Gjörningaarkífið\, auk heimildasafns um eigið starf\, en á næstu misserum er ætlunin að bæta við Arkífi horfinna verka. Ætlunin með þessu nýja heimildasafni er sú að ná heildstæðri mynd af þeim verkum sem af einhverjum ástæðum eru ekki á skráðum varðveislustað\, en aukaafurð rannsóknarstarfsins verður heildstæð mynd af ástandi safneignarinnar og aukin þekking á þeim verkum sem eru á einhvern hátt óþekkt eða óskilgetin. Með því að safna heimildum um horfnu verkin gefst tækifæri til þess að endurheimta þau í safneignina sem hluta af arkífinu\, á meðan þeirra er leitað í yfirferðinni. Með því að opna þessa hlið safneignarstarfsins fyrir gestum er verið að opinbera viðkvæma og vandasama hlið safnastarfsins um leið og almenningi er boðið að taka þátt í því starfi sem rannsakendur. \n  \nÍ sumar fer fyrsti fasi verkefnisins fram í sýningarsal Nýló í Marshallhúsinu þar sem framtíð verkefnisins verður mótuð og það keyrt af stað með aðstoð gesta. Í framhaldi verður síðan reglulega opnunartími í safneigninni í Völvufelli samhliða áframhaldandi yfirferð. Einnig er fyrirhuguð útgáfa í tengslum við verkefnið. Þetta er því þáttur í því að opna safneignina meira og gera hana sýnilegri í safnastarfinu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/archive-of-missing-artworks/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Exhibitions
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/08/Nýlistasafnid_arkívhorfinnaverka-Sigthora-Odins.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220801
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20220602T132228Z
LAST-MODIFIED:20220916T100929Z
UID:23564-1654905600-1659311999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:The Last Museum
DESCRIPTION:Sýningin The Last Museum máir út mörkin milli kvikmynda- og skúlptúrlistar og rannsakar möguleikana sem felast í notkun vefsíðu sem sýningarrýmis. Á sýningunni sem er að stærstu leyti aðgengileg á www.nylo.is (í takmarkaðan tíma frá 11. júní) má sjá nýtt verk eftir Egil Sæbjörnsson ásamt verkum listafólks frá sjö öðrum löndum. Á meðan Listahátíð stendur yfir tekur verkefnið einnig á sig áþreifanlega mynd í sýningarsal Nýló. \nMeð vísun í orðaforða tölvunarfræðinnar má lýsa The Last Museum sem „stafla“ sem nær utan um land\, skúlptúr\, kóða\, upplifun notanda og fleira. Listafólkið var fengið til að skapa hóp skúlptúra sem komið var fyrir á tilteknum stað sem tengist samskiptainnviðum eða -tækni. Hver og ein innsetning var síðan tekin upp á myndband og myndskeiðunum skeytt saman í gagnvirka runu. Útkoman er upplifun í formi vefsíðu. Sýningin veltir upp spurningum um boðskipti í ljósi langtímans og samspil þeirra við nýjustu tækni\, (líkams)pólitík og hagkerfi heimsins. Í kjölfarið kvikna ákveðin þrástef: uppflosnun\, óvissa\, missir og uppvakning. \nSýningarstjóri: Nadim Samman\nListafólk: Egill Sæbjörnsson\, Nora Al-Badri\, Nicole Foreshew\, Juliana Cerqueira Leite\, Jakrawal Nilthamrong\, Zohra Opoku\, and Charles Stankievech\, Petros Moris\nSamstarfsaðilar: KW Institute for Contemporary Art
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-last-museum/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/9e3d8f13-19b0-44f1-9dc5-5586fba85910_Screenshot2022-04-04at10.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220127
DTEND;VALUE=DATE:20220307
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20220124T112947Z
LAST-MODIFIED:20220825T134448Z
UID:21154-1643241600-1646611199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ásdís Sif Gunnarsdóttir: Stefnumót við sjálfið
DESCRIPTION:Það er ekkert stefnumót án nærveru. Það er ekkert stefnumót án vilja eða áhættu\, án þess að stigið sé inn í óþekktar aðstæður\, ný sjónarhorn og óræðar tilfinningar. Stefnumót við sjálfið er fundarstaður. Vettvangur þar sem vídeóverk\, ljósmyndir og gjörningar; augnablik frá mismunandi tímum á ferli Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur\, fléttast saman í margbrotna heild. Erkitýpur úr framtíðinni birtast á ögurstundu\, grafnar minningar skjótast upp á yfirborðið og ólgandi frásagnir brjóta sér leið í gegnum myrkrið og inn undir húðina. Draumkenndur\, nánast súrrealískur glampinn sem einkennir verk Ásdísar tekur yfir og býður okkur inn. \n\n\nVerk Ásdísar kanna skurðpunkt töfraraunsæis og undur náttúrunnar í gegnum afbökun\, umbreytingu og ritúala.buy viagra super dulox force online www.ecladent.co.uk/wp-content/themes/twentyseventeen/inc/en/viagra-super-dulox-force.html no prescription\n Þau bera keim af ljóðrænu og yfirvofandi óróa. Í verkunum sameinast ljóð og myndir\, einkalíf og opinber rými\, tækni og náttúra\, óvissa og áhyggjuleysi. Þau fjalla öll á sinn hátt um það sem speglast í augnablikinu\, frekar en það sem raunverulega ber fyrir augu og birtast okkur í margrása hreyfimyndum\, lifandi streymi\, gagnvirkni og skrásetningu í formi texta og ljósmynda. Ásdís nýtir sér virkni nýmiðla og tækni til að endurspegla sérstæði mennskunnar: sálina og minnið sem birtist okkur sem brot\, frekar en heild. Verk hennar minna þannig óneitanlega á einhvers konar vélvirki sem klýfur tímann og skeytir honum aftur saman. \nÁsdís Sif Gunnarsdóttir (f. 1976) býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BFA gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA gráðu frá University of California\, Los Angeles\, árið 2004 með áherslu á vídeó- og gjörningalist.buy kamagra soft online www.ecladent.co.uk/wp-content/themes/twentyseventeen/inc/en/kamagra-soft.html no prescription\n Ásdís Sif hefur frá upphafi ferils sýnt bæði á einka- og samsýningum víða innanlands og á alþjóðavettvangi\, meðal annars í Listasafni Akureyrar\, Hverfisgallerí\, Listasafni Reykjavíkur\, Centre Pompidou (París\, Frakklandi) og Tate Gallery (London\, Bretlandi).
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/asdis-sif-gunnarsdottir-conversation-to-the-self/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/conversation-to-the-self.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211201
DTEND;VALUE=DATE:20211220
DTSTAMP:20260530T104803
CREATED:20211202T140712Z
LAST-MODIFIED:20220825T135114Z
UID:20545-1638316800-1639958399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósabasar Nýló
DESCRIPTION:Þriðja árið í röð fagnar Nýlistasafnið styttingu dagsins með því að heiðra ljósið. Ljósabasar Nýló\, sem fer fram dagana 1.buy aurogra online pavg.net/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/aurogra.html no prescription\n til 19. desember\, er fjáröflunarviðburður til styrktar Nýló þar sem tæplega 60 listamenn\, allir félagar í Nýló\, taka þátt. Í ár tekur Ljósabasarinn yfir sýningarrými safnsins í Marshallhúsinu.buy light pack online pavg.net/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/light-pack.html no prescription\n Annað heimili Ljósabasars er á heimasíðunni www.ljosabasar.nylo.is.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-light-bazaar/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/lightbaz.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR