BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230210
DTEND;VALUE=DATE:20230311
DTSTAMP:20260530T040945
CREATED:20230208T102556Z
LAST-MODIFIED:20230208T102556Z
UID:29258-1675987200-1678492799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:VÍDEÓ verk í fimm þáttum
DESCRIPTION:Sýning fimm myndbandsverka sem fjalla um ýmiss konar hreyfingu – fjaðurmagnaða\, flöktandi\, látlausa\, ósjálfráða og dáleiðandi – lýsir upp sýningarsalinn í Skaftfelli undir titlinum Composition in Five Movements. \nSýningarstjóri: Pari Stave
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/video-verk-i-fimm-thattum/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/ska-com-23-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220917
DTEND;VALUE=DATE:20221219
DTSTAMP:20260530T040945
CREATED:20220609T113347Z
LAST-MODIFIED:20230103T104858Z
UID:23644-1663372800-1671407999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Summa & Sundrung
DESCRIPTION:Sýninging Summa & Sundrung teflir saman verkum eftir Gary Hill\, Steinu Vašulka og Woody Vašulka. Markmiðið er að sýna fram á sameiginleg einkenni í listsköpun þeirra snemma á ferlinum og síðan hvernig þau héldu í ólíkar áttir hvað varðar konsept\, framkvæmd og pælingar í túlkun sinni á hinu efnislega og óefnislega\, einnig er farið í saumana á þremur einstökum ferlum sem endurspegla sérstakt næmi listamannanna og sérstætt myndmál. \nÞetta samvinnuverkefni býður upp á nýja leið\, þó nokkuð stytta\, um víðáttumikla listsköpun þessara listamanna. Á sýningunni er hinu gagnkvæma rannsóknarsambandi milli hljóðs og myndar gert hátt undir höfði. Róf þeirra verka sem hér eru til sýnis spanna marga áratugi og taka til verka frá snemma á ferli listamannanna þar sem unnið er með rafræn úrvinnslutæki til að skrá í rauntíma gagnvirkni véla\, frammistöðu þeirra og notkun til að efla skynjunina með verkum sem endurspegla þróun orðfæris hvers og eins þeirra og hvernig listamennirnir nota\, skoða eða víkja frá algóritmanum eða kóðanum á einstakan hátt með tilraunakenndum athugunum. \nGary Hill mun skapa nýtt verk sérstaklega fyrir þessa sýningu. Nýjasta innsetning Steinu\, Pergament\, verður sett upp og fjölmörg sjaldséð vídeóverk eftir Woody Vašulka verða sýnd hér á þessum óvænta samfundi. \nSýningarstjórar: Kristín Scheving\, Halldór Björn Runólfsson & Jennifer Helia DeFelice.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sums-differences/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/orbitalobsession_2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T040945
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T040945
CREATED:20210819T142932Z
LAST-MODIFIED:20220916T105746Z
UID:18485-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Halló\, geimur
DESCRIPTION:Fjarlægar víðáttur í óendanlegum alheiminum hafa frá upphafi verið manninum hugleiknar og í aldanna rás hafa listamenn túlkað og tekist á við hugmyndir sínar um geiminn og miðlað þeim með fjölbreyttum hætti. \nÁ sýningunni Halló\, geimur er skyggnst inn í undraveröld himingeimsins með hjálp listaverka í safneign Listasafns Íslands. \nFramúrstefnuleg verk Finns Jónssonar\, sem fyrstur Íslendinga tókst á við geiminn í verkum sínum á fyrri hluta 20. aldar\, miðla óheftri tjáningu listamannsins á töfrum himintunglanna sem eru leiðarstef sýningarinnar. Leyndardómar Vetrarbrautarinnar sem aldnir spámenn afhjúpa með forsögnum sínum um veðurfar og forlög manna eru Hildigunni Birgisdóttur og Svavari Guðnasyni innblástur. Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar leiftrar með litadýrð og innsetning Steinu Vasulka\, Of the North\, hrífur áhorfandann með sér í áhrifamikilli upplifun.\nÍ verkum Ásgríms Jónssonar og Guðmundar Thorsteinssonar (Muggs) frá fyrri hluta 20. aldar sjáum við hvernig himintunglin tengjast þjóðtrú og ævintýrum þar sem vættir birtast mannfólki í tunglsljósi og blessuð sólin breytir tröllum í stein þegar dagur rís. Á sýningunni eru einnig mörg verk frá 7. og 8. áratug 20. aldar þegar framfarir í geimvísindum voru stórstígar og maðurinn fór í fyrsta sinn út fyrir gufuhvolf jarðar. \nGeimurinn og listin eiga það sameiginlegt að vera forvitnileg og kvik\, þar er stöðug hreyfing og alltaf er maður að uppgötva eitthvað nýtt þegar maður skoðar listaverk. Með hjálp Tuma\, aðalpersónu bókarinnar Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann\, geta yngstu gestir safnsins skoðað sýninguna á aðgengilegan hátt\, sett upp gleraugu vísindamannsins og numið nýjan fróðleik! \nSýningarstjórar: Guðrún Jóna Halldórsdóttir og Ragnheiður Vignisdóttir \nVísindalegar staðreyndir: Sævar Helgi Bragason \nListamenn sem eiga verk á sýningunni: \nÁsgrímur Jónsson\nBjörg Þorsteinsdóttir\nErró\nEyborg Guðmundsdóttir\nFinnur Jónsson\nGuðmunda Andrésdóttir\nGuðmundur Thorsteinsson (Muggur)\nHalldór Ásgeirsson\nHelgi Þorgils Friðjónsson\nHildigunnur Birgisdóttir\nHildur Hákonardóttir\nHreinn Friðfinnsson\nJóhann Eyfells\nJón Gunnar Árnason\nKeith Grant\nKristinn E. Hrafnsson\nMargrét Elíasdóttir\nSigurjón Ólafsson\nSteina\nSvavar Guðnason\nSverrir Haraldsson\nVilhjálmur Bergsson\nÞorvaldur Skúlason
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallo-geimur/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/hallo-geimur-vefur-Listasafn-Íslands.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210205
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T040945
CREATED:20210819T141052Z
LAST-MODIFIED:20220916T105737Z
UID:18472-1612483200-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Steina Vasulka: Of The North
DESCRIPTION:Steina (f. 1940)\nOf the North\, 2001\nVídeóinnsetning\nLÍ 8075 \nRisastór vídeóinnsetning Steinu af Norðrinu frá árinu 2001 er áhrifamikið og töfrandi verk sem lætur engan ósnortinn. Að geta tekið upp hljóð og mynd í rauntíma opnaði nýjar víddir í heimi sjónlista á sjöunda áratug síðustu aldar. Þau hjónin Steina og Woody Vasulka komust í kynni við framsækna listamenn á sviði nýrra miðla er þau bjuggu í New York þar sem þau ráku um tíma sýningar- og samkomustað fyrir hljóð- og vídeólistamenn sem þau opnuðu árið 1971 og kallaðist The Kitchen. Þetta var tími mikilla tækniframfara á sviði rafrænnar menningar ekki síður en geimvísinda. Steina (Steinunn Bjarnadóttir Briem) og Woody Vasulka voru frumkvöðlar sem unnu saman að margs konar rannsóknum er tengdust myndbandalist og beislun rafrænna boða og síðar stafrænna\, þar sem tækin sjálf voru jafnframt notuð í samtali sem miðaði að því að skapa áhugaverð verk þar sem ekkert var slegið af listrænum kröfum. Þetta samtal þeirra við tæki og tól varð einkar áhugavert og gefandi þar sem menntun Steinu í tónlist og tækniþekking Woodys naut sín. „Hreyfing og tími eru lykilatriði í minni list\,“ er haft eftir listakonunni. \nVerkið Of the North frá árinu 2001 er unnið út frá safni Steinu af vídeóupptökum\, mestmegnis af náttúru Íslands\, yfirborðinu eða því sem skoða má í smásjá. Örverur jafnt sem brim hafsins og bráðnandi ís\, berghrun ásamt margs konar náttúrufyrirbærum sem snerta jarðmyndun og niðurbrot á plánetunni okkar. \nVerkið vísar jafnframt út í geiminn þar sem sjá má hnattlaga kúlurnar snúast um ímyndaðan ás í seiðandi rytma með öllum þeim hljóðum sem fylgja. Hreyfitakturinn og orkan framkallar myndlíkingu sem getur leitt huga áhorfandans í margar áttir\, hvort heldur er að stórbrotinni fegurð eða jarðbundnum hugleiðingum um viðkvæma náttúru og forgengileika jarðarinnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/steina-vasulka-of-the-north/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/02/of-the-north1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR