BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221126
DTEND;VALUE=DATE:20230130
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20221125T153832Z
LAST-MODIFIED:20230130T164118Z
UID:27764-1669420800-1675036799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nína Magnúsdóttir: Hársbreidd
DESCRIPTION:Verkin voru gerð í kjölfar aurskriðanna í desember 2020 sem leiddu til tímabundinnar rýmingar Seyðisfjarðar. Listakonan og fjölskylda hennar gátu ekki snúið aftur til heimilis síns og vinnustofu í nokkra mánuði og dvöldu í bryggjuhúsi Roth fjölskyldunnar á Seyðisfirði. Þetta tímabil neyðarflutninga var tími uppgjörs og leitar að stöðugleika á óvissutímum. \nÓlíkt fyrri verkum hennar í málaralist og öðrum miðlum\, notar Nína hár sem efnivið í nýjustu verkum sínum; aðferð sem þróaðist áreynslulaust út frá hugmyndinni um hár sem hluta af líkamanum en einnig efni sem er aðskilið honum. Líkt og aðrar lífrænar trefjar eins og ull eða silki\, hefur hár innri uppbyggingu sem tengist hverjum einstökum uppruna. Við gerð verkanna tóku hinir hárfínu þræðirnir á sig karakter línuteikninga. Sum verkanna sýna þrívíðar “línur” hársins á móti grófu\, hvítu yfirborði\, á meðan önnur nota liti í óhlutbundnum blæbrigðum sem leika sér með spennuna milli jákvæðs og neikvæðs rýmis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nina-magnusdottir-harsbreidd/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/image.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220917
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20220913T094625Z
LAST-MODIFIED:20221125T144916Z
UID:25948-1663372800-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Rikke Luther: On Moving Ground
DESCRIPTION:Einkasýning Rikke Luther í Skaftfelli sýnir yfirstandandi rannsóknir listamannsins á pólitískum\, samfélagslegum og umhverfislegum tengslum milli jarðefnavinnslu\, nútímans\, jarðvegseyðingar og hnattrænna breytinga. Verk hennar kanna áhrif sandnáms\, kolefnisfrekrar framleiðslu steinsteypu og áhrif hækkandi hitastigs\, á stöðugleika jarðarinnar sem við búum á. On Moving Ground býður upp á innsýn í fjölbreyttar rannsóknaraðferðir og listræna framleiðslu listamannsins\, allt frá kvikmyndum til stórra teikninga til safnefnis\, vísindagagna\, texta og ljósmyndunar.  \nSýningarstjóri: Julia Martin
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/rikke-luther-on-moving-ground/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/MudKangerlassuag_s-scaled-e1663151431759.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20220503T142234Z
LAST-MODIFIED:20220525T140014Z
UID:23067-1648252800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Alter/Breyta
DESCRIPTION:Sýningin Alter / Breyta er samsýning fjögurra upprennandi myndlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa tiltölulega nýlega lokið námi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn var valinn í samvinnu með Bjarka Bragasyni\, deildarforseta Myndlistardeildar LHÍ\, og boðið að dvelja í þriggja vikna vinnustofudvöl í Skaftfelli þar sem þau fengu næði til að þróa tillögur sínar fyrir sýninguna. Þau vinna öll með ólíkar áherslur en þó er hægt að greina fíngerðan þráð sem býr til óræða tengingu á milli verka þeirra. \nEinhvers konar umbreyting hefur átt sér stað eða er gerð að útgangspunkti eða viðfangsefni á sýningunni. Ólíkum efniviði og hugmyndum er hnikað til: Hæglátt og lágstemmt ferlið\, natnin og endurtekningin sem umbreytir hversdagslegum hlutum þegar þeir eru teknir úr fyrra samhengi og taka á sig nýja mynd. \nVerkið Fallen\, eftir Joe Keys er samansafn smágerðra og litríkra hluta sem við gefum venjulega ekki mikinn gaum. Þeir hafa týnst og tapað sínu upprunalega hlutverki en í krafti fjöldans og með því að stilla hverjum og einum þeirra vandlega upp á sinni hillu\, hljóta þeir fyrir vikið ákveðna upphefð. Áhorfandinn er tilneyddur að beygja sig til að skoða þá betur. \nInnsetning og gjörningur/fyrirlestur Hugos Llanes hverfist um brauð og menningarlegan hverfulleika þess. Hér er okkur boðið að skilja pólitíska tilveru brauðs allt frá því að vera hefðbundin næring yfir í gildishlaðna\, iðnvædda vöru þar sem hráefnið gefur vísbendingar um samfélagsstöðu okkar. Brauðgómarnir skapa eins konar líkamlega nærveru listamannsins og er afurð gjörnings um leið og listamaðurinn býður áhorfendum upp á sammanlega upplifun með því að búa til sinn eigin brauðgóm sem verður hluti af sýningunni. Með skúlptúrnum “…gives me sleepless nights…” er sett fram teiknimyndapersóna sem hægt er að skilja sem dæmisögu um hvernig ávani og þráhyggja mannsins um matvæli er kaffært með kapítalískum varningi. \nVerk Brákar Jónsdóttur\, Daphne\, hangir tíguglega og friðsælt. Það er unnið út frá goðsögunni um umbreytingu Daphnes í lárviðartré til að flýja ofbeldisfullt áreiti Apollo. Trjágreinarnar mynda saman sterkbyggða grind en hafa verið sviptar sínu ytra klæði\, berkinum\, sem hlífir trénu. Berskjaldaður innsti kjarninn stendur eftir og þar getum við speglað okkur og getum jafnvel skyggnst inn í ókomna framtíð. \nHugmyndin um heilagleika og heimili er tvinnað saman í innsetningu Nínu Óskarsdóttur. Fallegir skrautmunir og hlutir sem tengjast handverki og heimili snerta á listrænni sköpun og persónulega rýminu en njóta á sama tíma upphefðar eins íkon á altari. Greinanleg fingraför listamannsinns í leirnum sanna aðkomu hennar að verkinu en helgidómur vígða vatnsins er okkur ósýnilegur. Hvernig er hægt að kalla fram heilagleika? \nTexti: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir \nÆviágrip: \nBrák Jónsdóttir er fædd árið 1996. Hún útskrifaðist með BA gráðu úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar taka helst á sig form vídjóverks\, bókverks\, skúlptúrs og gjörnings\, en nýverið hafa viðfangsefni hennar snúið að sambandi manneskju við náttúru. Í rannsóknum sínum nálgast hún kink og blæti og skoðar samband mannfólks og náttúrulegra kerfa á grundvelli yfirráða og undirgefni\, fantasíu og femínisma. Verk hennar samanstanda af roðandi spennu milli sársauka og unaðar\, náttúrulegra og manngerðra efna. \nHugo Llanes er fæddur 1990 í Xalapa\, Veracruz í Mexíkó. Hann býr og starfar í Reykjavík og útskrifaðist með MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020. Hugo vinnur með pólitíska og félagslega bresti og fagurfræðina sem af því sprettur. Verk hans eru í formi málverka\, ætilegra verka\, innsetninga\, rýmistengdra verka og staðbundinna gjörninga. Með verkum sínum skoðar hann félagslegar aðstæður\, s.s. flutning fólks á milli landa\, valdbeitingu og áhrifa síðnýlendustefnunar á þróun sjálfsmyndar Rómönsku Ameríku\, stöðu sjálfstæðrar þjóðar\, annarleika og pólitíska andspyrnu\, auk þess sem hann vinnur með þema matar sem ádeilu á félagsleg vandamál og skoðar hvaða þýðingu upplifun okkar í gegnum matargerð hefur. Með ljóðrænni framsetningu verka sinni sér hann fram á mögulegan vettvang til að kryfja til mergjar þessi samofnu flóknu og krefjandi viðhorf. Hugo álítur að hið persónulega míkrókerfi sé berskjaldað gagnvart hinu hnattræna og með framsetningu sinni reynir hann að hvetja áhorfandann til þátttöku og íhugunar. \nJoe Keys er fæddur árið 1995 í Newcastle\, Englandi. Hann hefur búið og starfað á Íslandi síðan 2018 og útskrifaðist úr myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2021. Joe vinnur aðallega með fundið efni í formi skúlptúra og prentverka. Verkin hans endurspegla kerfi úr daglegu lífi með þurri kímnigáfu og hugleiðingar um hluti sem við vanmetum og látum alla jafna framhjá okkur fara. Joe starfar sem umsjónarmaður prentverkstæðis í Listaháskóla Íslands og er félagi í samrekna prentverkstæðinu Prent & vinir í Laugardal\, Reykjavík. \nNína Óskarsdóttir er fædd árið 1986. Hún útskrifaðist með MA gráðu í myndlist árið 2020 frá Listaháskóla Íslands þar sem hún kláraði einnig BA nám sitt í myndlist 2014. Nína vinnur með skúlptúr og innsetningar og verk hennar einkennast af efniskennd sinni. Hún notar efni á borð við leir\, textíl og ljós sem kallast á við hverfulan efnivið á borð við vatn\, eld eða matvæli. Nína vinnur með óefnisbundnar hugmyndir\, svo sem heilagleika\, minningar og sjálfsmynd\, og gerir tilraunir til að koma þeim í efnislega mynd. Nína hefur tekið þátt í fjölda sýningarverkefna bæði hérlendis og í Evrópu sem og unnið að listrannsóknum sínum í gegn um vinnustofudvalir og rannsóknarstyrki.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alter-breyta/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Alter_Breyta_WebBanner@2x-840x320-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220211
DTEND;VALUE=DATE:20220313
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20220214T074202Z
LAST-MODIFIED:20220825T134739Z
UID:21888-1644537600-1647129599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Johan F Karlsson: Leið í gegnum sólarstein
DESCRIPTION:Sýningin Leið í gegnum sólarstein byggist á listrænum rannsóknum á eiginleikum\, sögu og notkun íslensks silfurbergs\, sem er kristall og vel þekktur fyrir framlag sitt innan ljósfræðinnar og í tengslum við tilgátur um notkun hans sem siglingartæki. Með verkunum er sett fram tilraunakennd nálgun við viðfangsefnið; þau eru innblásin af ljósinu sem er einkennandi fyrir kristallinn og tvíbrots-eiginleika hans sem skapar tvöfalda mynd\, skuggamynd. Skuggamyndin gerir manni kleift að að ímynda sér aðra vídd auk þess að tengja hana hugmyndinni um „tvíhyggju“ og gefur þannig í skyn tvenns konar nærveru eða tvo staði á sama tíma. Að vissu leyti getur upplifunin um tvöfalda mynd virkjað líkamsvitund og fært manni undirvitund sem tengist veruleika sem er handan tíma og rúms og leiðir mann inn í aðra heima. Sýningin getur þannig í heild sinni verið hugsuð sem ferðalag um tvær samliggjandi leiðir þar sem við finnum sameiginleg sambönd innan hins efnislega og óefnislega\, línur og yfirborð\, ljós og myrkur.  \nJohan F Karlsson (SE) dvelur í gestavinnustofu Skaftfells í janúar og febrúar 2022 og fékk til þess styrk frá Norrænu menningargáttinni. Við dvöl sína hefur hann gert tilraunir\, út frá listrænu sjónarmiði\, með náttúrlegu skautunar- og tvíbrotseiginleika íslenska silfurbergsins. Með sýningunni og áframhaldandi rannsóknum er markmiðið að draga fram að mörgu leyti glataða þekkingu um það hvernig mennirnir hafa sigrast á umhverfi sínu\, með því að nota forna siglingatækni sem hverfist um rýmisskynjun og afstöðu gagnvart skilyrðum ljóss. \nÍ myndlist sinni fæst Johan við ljósmyndun\, skúlptúr- og vídeó innsetningar\, rýmisinngrip og gjörninga. Hann vinnur oft  með rýmistengd verk sem lúta að tíma og rúmi\, t.d. skilyrð ljóss og áhrif þess á skynjun mannsins á tíma og rúm og getu líkamans til að öðlast skilning gegnum skynjun á umhverfiþáttum\, eins og ljósi\, hita og hljóði. Í list sinn leggur Johan m.a. áherslu á hugboð um nærveru og skynjun rýmis í tengslum við hvernig við staðsetjum okkur. Þetta felur í sér rannsókn á mismunandi leiðsögutækni\, átök mannsins við að öðlast betri þekkingu\, sérstaklega við kortagerð og könnun\, og hið andstæða: að treysta á hið óþekkta og möguleika þess. Listrænt séð\, er markmið Johans að rannsaka aðferðir til að einfalda\, sérstaklega í tengslum við smækkun efnis\, hverfult eða „óefnisleg“ fyrirbæri eins og ljós/skugga\, og jafnvel það sem gæti kallast ekkert.buy valtrex online www.adentalcare.com/wp-content/themes/medicare/editor-buttons/images/en/valtrex.html no prescription\n Þetta felur oft í sér að skapa landslag í sínum víðasta skilningi.buy cialis professional online www.adentalcare.com/wp-content/themes/medicare/editor-buttons/images/en/cialis-professional.html no prescription\n \nJohan F Karlsson (f. 1984) býr og starfar í Malmö\, Svíþjóð. Hann hlaut BA gráðu í menningu og listum frá Novia University of Applied Sciences í Pietarsaari\, Finnlandi\, og MA gráðu í ljósmyndun frá Aalto University í Helsinki\, Finnlandi. Johan hefur sýnt víða og tekið bæði þátt í samsýningum og einkasýningum í Svíþjóð\, Finnlandi og Sviss\, t.d. Gallery CC í Malmö\, Gallery Huuto í Helsinki\, the Photographic Center Peri í Turku\, the Northern Photographic Center í Oulu og Erfrischungsraum í Lucerne. \nTexti: Johan F Karlsson \nSýningarstjóri: Julia Martin
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/johan-f-karlsson-pathway-through-a-sunstone/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/02/horizon_coverimage-840x320-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211127
DTEND;VALUE=DATE:20220131
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20211122T154938Z
LAST-MODIFIED:20220131T111218Z
UID:20308-1637971200-1643587199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Káradóttir & Sara Gillies: Brenglað\, bogið\, bylgjað
DESCRIPTION:Á samsýningunni Brenglað\, bogið\, bylgjað gefur að líta annars vegar málverk eftir Söru Gillies (EN/IS) og hins vegar þrívíð gólfverk eftir Ragnheiði Káradóttur (IS). Verkin vinna þær í sitt hvoru lagi en eiga það sameiginlegt að sköpunarferli beggja einkennist af leikgleði auk þess sem þær vinna báðar út frá innsæi og í samtali við efniviðinn sem leiðir þær áfram að niðurstöðu. \nVerk Ragnheiðar gefa mynd af afmörkuðum\, fjarstæðukenndum heimum. Þau samanstanda af skúlptúrum sem virðast við fyrstu sýn kunnuglegir\, en reynast við nánari skoðun erfiðara að henda reiður á og skilgreina en ætla mætti. Samskeyting þekktra forma og efna mynda framandi hluti sem vísa í ólíkar áttir og skapa fjölbreytta skírskotun. Ragnheiður sækir sér innblástur í afþreyingarheima svo sem mini-golfvelli eða þrautabrautir og manngerð fyrirbæri eins og heimilisbúnað. Hún einangrar hluti frá tilgangi sínum\, einfaldar þá og rannsakar út frá fagurfræðilegum sjónarmiðum. Nytjahlutir eru settir í nýjan búning og dauðir hlutir oft persónugerðir. Eftir standa abstrakt hlutir sem hafa tapað samhengi sínu og upphaflegum tilgangi\, en kunnugleikinn opnar inn á ólíkar og öfugsnúnar skilgreiningar og vangaveltur;er hér um að ræða barnaleikfang eða kynlífsleikfang? Ímyndaðar hliðarvíddir Ragnheiðar skapa eins konar rof á veruleikanum\, á látlausan\, nákvæman og margræðan hátt. \nVerk Söru búa bæði yfir persónulegum og landfræðilegum skírskotunum og í nýlegum verkum sínum vinnur hún við að endurupphugsa líkamann\, sér í lagi kvenlíkamann\, og tengja hann við náttúruna. Hvoru tveggja eru marglaga fyrirbæri en í verkum Söru verður til ákveðinn samruni náttúru og líkama sem hún tvinnar saman við eigin brotakenndar hugsanir\, minningar og reynslu. Vinnuferlið er stór hluti af verkum Söru sem er oft langt og strangt þar sem hún málar og endurmálar\, brýtur upp og endurbyggir\, ýtir við mörkum\, togar og teygir. Þetta ferli felur í sér vinnu með innsæi\, hreyfingu og viðbragð og notar hún fyrri málningarlög til að leiða sig áfram við næstu yfirferð. Að vissu leyti má segja að nálgun Söru á málverkið sé skúlptúrísk þó að hún haldi sér innan ramma strigans\, en gróf áferð málverkanna og formin í verkunum ýta jafnvel undir þessa tilfinningu. Hvert verk gengur í gegnum margar mismunandi lagskiptar umbreytingar þar sem hún vinnur á mörkum hins hlutbundna og huglæga í leit að jafnvægi á milli þess leikglaða\, frumstæða og leyndardómsfulla. \nSaman skapa verk Söru og Ragnheiðar snertifleti andstæðna en einnig líkinda en við það verður til spennandi samtal og núningur. Á sýningunni Brenglað\, bogið\, bylgjað leiða þær áhorfandann sífellt lengra inn í draumkenndan og óhlutbundinn heim; heimur sem er í senn kunnuglegur en lýtur jafnframt að sínum eigin lögmálum. \nSýningarstjóri: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir \n  \nRagnheiður Káradóttir (f. 1984) útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010 og lauk meistaranámi í myndlist vorið 2016 frá School of Visual Arts í New York. Ragnheiður hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér á landi sem og erlendis og er annar helmingur listatvíeykisins Lounge Corp.\, sem miðar að því að sýna myndlist í óhefðbundnum rýmum. Ragnheiður hefur m.a. verið með einkasýningar í Listasafni Reykjavíkur og Harbinger\, gert samstarfssýningar í Kling & Bang og á Satellite Art Show í Miami\, og tekið þátt í samsýningum í Gerðarsafni og Ásmundarsal. \nSara Gillies (f. 1982) fæddist í Kingston-Upon-Thames í Englandi og býr og starfar í Stykkishólmi. Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Winchester School of Art og lauk meistaranámi í myndlist 2007 frá Royal College of Art\, London. Sara hefur sýnt víða m.a. í Harbinger\, Reykjavík; Horse and Pony\, Berlin; Gallery Beast Turfs Projects\, London; Royal College of Art\, London; og tekið þátt í myndlistarhátíðinni Sequences. \n  \nOpnunartími mán-fös kl. 12:00-20:00\, lau-sun kl. 16:00-20:00.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-karadottir-sara-gillies-wonky-warped-wavy/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/wavy.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T054823
CREATED:20210921T133253Z
LAST-MODIFIED:20211122T145155Z
UID:19282-1632528000-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal: Slóð
DESCRIPTION:Sýningin Slóð er samsýning myndlistarmannanna Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur og Karlottu Blöndal. Verkin vinna þær í sitt hvoru lagi en vísa báðar í fornleifafundinn á Vestdalsheiði árið 2004 sem samanstóð af mannabeinum\, skartgripum og glerperlum og er talinn vera frá miðri tíundu öld. Anna Júlía vinnur einnig með fjarskiptatækni sem hefur tengingu við tæknisögu Seyðisfjarðar. \nÍ verkum Önnu Júlíu berast ávörp úr fortíð og inn í nútíð og milli manns og náttúru. Þeim er ætlað að berast á milli tveggja heima en flakka í rauninni á milli óravídda. Bæði efniviður og framsetning verka Önnu Júlíu tvinna saman staðbundna menningarsögu og heimspekilegar vangaveltur um skilaboð sem ferðast fram og aftur í tíma. Koparplötum er raðað upp í Morse-kóða sem stafar fjarskiptamerkið QSB sem er Q-mál og merkir “Are my signals fading” (ísl. „Hafa merki mín dofnað“). Plöturnar eru þurrnálristur af klettum og fjallshlutum umhverfis Seyðisfjörð. Í öðru verki eru perlur þræddar á koparvír og stafa orðið „Slóð“ í Morse-kóða. Koparinn hefur áþreifanlegar og huglægar tilvísanir í boðskipti og þjónar sem eins konar milliliður áhorfanda og óræðs viðtakanda. Í þunnu pappírstjaldi sem hangir úr loftinu er setningin „Snjóaði í logni við og við í gær“ götuð í pappírinn með aðferð gataborðanna sem notaðir voru við flutning skeyta í gamla ritsímanum. Skilaboðin er fengin úr veðurskýrslu frá Seyðisfirði frá 1952. \nVerk Karlottu hverfast um fjallkonuna sjálfa og fundarstað munanna. Hún kannaði staðinn nokkrum sinnum í sumar og vann þar verk undir berum himni í tilraun til að fanga umhverfið og stemninguna á svæðinu. Við túlkun sína og skrásetningu vann hún undir formerkjum og aðferðafræði myndlistar en til hliðsjónar nýtti hún sér rannsóknir Rannveigar Þórhallsdóttur fornleifafræðings sem skrifaði um fundinn í meistararitgerð sinni. Skrásetningin af svæðinu er í formi verka sem eru annars vegar abstrakt og hins vegar raunsæisleg teikning í anda ferðabóka 18. aldar. Form abstrakt verkanna á striga eru sótt í skipulagsteikningu fornleifafræðinganna af staðnum og er áferðin fengin með snerti þrykki. Litirnir vísa til hinna marglitu perla sem fundust þar. Með verkinu yfirfærir Karlotta staðinn inn í sýningarrými Skaftfells. Auk þess vinnur hún með getgátur um hver fjallkonan og örlög hennar hafi mögulega verið og varpar þannig fram vangaveltum um bæði meðvituð og ómeðvituð viðhorf okkar gagnvart túlkun okkar á horfnum tíma. \nÚrvinnsla og framsetning á verkum Karlottu og Önnu Júlíu opnar á hugleiðingar um tíma og rúm sem þær þræða sig í gegnum og skapa með útkomu sinni vettvang þar sem nútími og fortíð mætast. Á hvaða leið voruð þið og á hvaða leið erum við? Við tökum við endanum á þræðinum og leiðum hann áfram. \nVið viljum þakka Rannveigu Þórhallsdóttur\, fornleifafræðingi\, Zuhaitz Akizu\, forstöðumanni Tækniminjasafns Austurlands\, Pétri Kristjánssyni\, fyrrum forstöðumanni Tækniminjasafns Austurlands\, Grétari Einarssyni\, fyrrum starfsmanni gömlu ritsímastöðvarinnar á Seyðisfirði\, kærlega fyrir upplýsingagjöf við undirbúning sýningarinnar. \n  \nÞað sem að við höldum að hafi gerst.   \nSlóð / Trace\, Skaftfell \nTexti eftir Starkað Sigurðarson \nSamskipti byrjuðu sem einföld skilaboð. Brosa\, gretta\, kinka kolli\, hrista haus\, hægri\, vinstri\, þú\, ég\, af\, á. Við þurftum að vera nálægt hvor öðru; ég gat sagt eitthvað við þig og síðan þú eitthvað við mig. Svo fórum við að útfæra flóknari boð og síðan boð sem náðu yfir okkar löngu vegalengdir. En þó tungumálið yrði stærra og nákvæmara og samskipti dýpri þá vitum við líka að skilaboð\, tungumál\, samskipti eru ófullkomin\, óljós\, það er hægt að misskilja\, túlka skakkt. Og vitandi það þá færist ábyrgðin frá tungumálinu til þeirra sem færa skilaboðin á milli – til þess sem sendir út skilaboðið og til þess sem tekur við þeim. Eru þessi skilaboð fyrir mig? Er verið að segja mér þetta\, eða þetta? Skil ég þetta rétt? Er þetta sem ég fann – lík\, perlur\, hnífur\, í hellisskúta uppi á heiði – að segja mér eitthvað? Er það mitt að svara? \nTíminn er alltaf hluti af samskiptaboðum öllum; samskipti eiga sér stað í gegnum tíma. Tíminn getur líka bjagað skilaboð\, slitið þau\, alveg eins og tíminn getur geymt slóða og borið eitthvað ótrúlegt. Svo ótrúlegt stundum að ekki er augljóst hvað það er sem við sjáum fyrir framan okkur eða hverju á um það að trúa. Áminning um að það sem við vitum er að við getum ekki vitað allt fyrir víst. Getum ekki vitað alveg hvað er verið að segja okkur. Og við það opnast á eitthvað\, allt verður svo sem mögulegt. Sem er kannski ógnvekjandi en er líka hversdagslegt\, venjulegt. Þegar möguleikarnir eru margir þá þurfum við að túlka og giska. Eins og við giskum um veðrið eða áttir eða þegar við skynjum að þögnin í jarðarför þýðir eitthvað eða í samskiptum við einhvern sem maður elskar. Þagnirnar eins mikilvægar auðvitað og hljóðin eða hreyfingarnar\, þagnirnar í morskóðuðu skilaboði jafnt og pípin\, etc.  \nOg þannig giskum við hér: Hvað væri ég að gera uppi á heiði? Hverju trúi ég um framtíðina? Af hverju væri ég með perlur? Allar þessar perlur og hníf? Ung manneskja uppi á heiði. Að finna mér skjól til þess að deyja eða til þess að lifa af? Rétt áður en þú hverfur í 1000 ár. Það finnast þó ekki allir aftur. \nÞað eru endalausar spurningar. Er þetta um sumar eða vetur? Ertu lifandi á þínum eigin fótum eða ertu dáinn og einhver heldur á þér? Kannski ertu völva sem spáir fram í tímann og sérð dauða þinn fyrir – eða giskar allavegana til um hann. Kannski ertu þjófur sem tókst perlurnar\, hlaupst á brott\, en náðir ekki nógu langt. Síðustu orðin? Ég veit það ekki.  \nEf við erum að giska þá getur allt verið tungumál\, merking\, samskipti. En að giska er það sem við gerum\, getum ekki nema. Og jafnvel þó að við ímyndum okkur að það sem við\, með okkar bestu getu\, höfum giskað á\, að það sem að við höldum að hafi gerst\, sé rétt\, þá vitum við að það fæst aldrei alveg staðfest. Við eigum eftir að giska annað í dag heldur en á morgun. Þú átt eftir að giska annað en ég. Ef til vill giskum við betur í dag með öðruvísi tólum og öðruvísi samfélagi heldur en þegar lík eða leirpottur eða málverk fannst fyrir 100 eða 1000 árum. Og kannski einhvern tímann munum við vita allt um þetta allt og getum átt samskipti án efa en í dag þurfum við ennþá að elska að horfa og hugsa og giska.   \nKannski er þá skilaboðið hér\, merkingin\, að við fundum þessa manneskju aftur. Kannski væri manneskjan þakklát fyrir það. Að þessi manneskja getur sagt núna\, sjáðu þetta\, hérna\, það sem ég er með. Perlurnar ennþá fallegar. Skúti ennþá skjól. \n  \nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir (f. 1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur þvert á miðla og skoðar mengið á milli vísinda og menningar í verkum sem taka mið af samtíma og sögulegum málefnum. Hún lauk MA gráðu frá Manchester School of Arts\, Manchester Metropolitan University\, 2004 og BA Fine Art (Hons) gráðu frá London Guildhall University 1998. Áður stundaði hún nám við Myndlista og handíðaskóla Íslands 1993-95. Anna Júlía starfaði sem verkefna- og sýningarstjóri í i8 gallerí 2008-2015 og var meðstofnandi og ritstjóri myndlistartímaritsins Sjónauka sem var gefið út á árunum 2007-2009. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið fjórar einkasýningar á Íslandi en hún var tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2018 fyrir sýninguna Erindi í Hafnarborg. \nKarlotta Blöndal (f. 1973) býr og starfar í Reykjavík. Hún vinnur í mismunandi miðlum\, allt frá teikningu\, málun\, útgáfu\, umhverfisverka og gjörninga. Verk hennar kanna mörk og blöndun vídda\, þess andlega og efnislega\, þess er tengist skynjunum og þess fræðilega. Oft er ákveðinn staður viðfangsefni verkanna\, þau eru gjarnan gjörningatengd og fela í sér þátttöku af einhverju tagi. Karlotta lauk MA gráðu frá Konsthögskolan i Malmö\, 2002 og BA gráðu frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands\, 1997. Auk þess að vera starfandi myndlistarmaður tekur hún reglulega þátt í listamannareknum verkefnum. Hún hefur bæði ritstýrt og verið meðútgefandi tímaritsins Sjónauka (tímarit um myndlist og fræði) og kemur reglulega að myndlistarkennslu. Hún er meðlimur í þverfaglega samstarfinu Könnunarleiðangurinn á Töfrafjallið\, 2013-2020.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-julia-fridbjornsdottir-og-karlotta-blondal-slod/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/trace.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR