BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230520
DTEND;VALUE=DATE:20230717
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20230511T161433Z
LAST-MODIFIED:20230511T161433Z
UID:30949-1684540800-1689551999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Guðjónsson: Leiðni leiðir
DESCRIPTION:Listamaðurinn Sigurður Guðjónsson hefur umbreytt 2000 fermetra verksmiðjurými í fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. Verk sem leikur með tíma og orku. Sigurður vinnur út frá miðju hússins lóðrétt upp og niður þrjár hæðir og hugsar sýninguna sem einn stóran skúlptúr samofin byggingunni sjálfri. Fyrir honum er verksmiðjan eitt stórt hljóðumhverfi\, þannig að vængirnir – gamlar mjölgeymslur\, austan og vestan megin – væru þá sem sitthvor rásin\, hægri og vinstri\, í einskonar stereo-mynd. Í milliloftinu eru holur en þar nær hljóð að smjúga inn á milli og elta gesti á ferð sinni í gegnum verkið. Hljóðheimur sýningarinnar er unninn í lögum og á uppruna sinn í rafhljóðum sem koma úr myndefninu sjálfu\, sem og upptökum af endurómi í innviðum flygils\, sem Tinna Þorsteinsdóttir leikur á. Það má því segja að hljóðmyndin eigi í samræðu við hljóminn í verksmiðjunni sjálfri og vídeóið við rými hennar. Umsjón með sýningunni hefur Gústav Geir Bollason. Sýningin stendur til 16. júlí\, 2023. \n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson (f. 1975) er þekktastur fyrir tímatengd verk sem rannsaka manngerðar vélar og tækniminjar\, í tengslum við eðlislæga þætti þeirra. Með því að sameina mynd og hljóð með áhrifamiklum hætti\, býr listamaðurinn til flókin\, marglaga verk sem skapa sláandi upplifun fyrir áhorfandann. Sigurður hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir sýninguna Innljós\, sem samanstóð af vídeóinnsetningum í Sankti Jósepsspítala í Hafnarfirði. Sigurður Guðjónsson var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022. \nwww .sigurdurgudjonsson.net\nwww .instagram.com/sigurdur_gudjonsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-gudjonsson-leidni-leidir/
LOCATION:Verksmiðjan á Hjalteyri\, Verksmiðjan á Hjalteyri\, Hjalteyri\, Eyjafjörður\, 604\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/Screenshot-2023-05-11-at-14.56.21.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230522
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20230511T153001Z
LAST-MODIFIED:20230530T121616Z
UID:30909-1683331200-1684713599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Opnun
DESCRIPTION:Samsýning tólf listamanna\, sem Ragga og Magga Weisshappel hafa tekið tali í Opnun II í Ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldum í vor. \nBirgir Snæbjörn Birgisson\, Erla Þórarinsdóttir\, Hekla Dögg Jónsdóttir\, Hildigunnur Birgisdóttir\, Kristján Guðmundsson\, Melanie Ubaldo\, Páll Haukur Björnsson\, Pétur Magnússon\, Ragna Róberts\, Rakel McMahon\, Sigurður Guðjónsson og Sigurður Guðmundsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/opnun-y-gallery/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/343339513_1589494401456499_304102351360448798_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230210
DTEND;VALUE=DATE:20230311
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20230208T102556Z
LAST-MODIFIED:20230208T102556Z
UID:29258-1675987200-1678492799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:VÍDEÓ verk í fimm þáttum
DESCRIPTION:Sýning fimm myndbandsverka sem fjalla um ýmiss konar hreyfingu – fjaðurmagnaða\, flöktandi\, látlausa\, ósjálfráða og dáleiðandi – lýsir upp sýningarsalinn í Skaftfelli undir titlinum Composition in Five Movements. \nSýningarstjóri: Pari Stave
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/video-verk-i-fimm-thattum/
LOCATION:Skaftfell- Center for Visual Art\, Austurvegur 42\, Seyðisfjörður\, 710\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/ska-com-23-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221022
DTEND;VALUE=DATE:20230116
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20221018T162940Z
LAST-MODIFIED:20230117T171520Z
UID:27033-1666396800-1673827199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Guðjónsson: Ævarandi hreyfing
DESCRIPTION:Ævarandi hreyfing byggist á nálgun Sigurðar Guðjónssonar á orkuflæði efnislegra hluta. Í gegnum tilraunir með linsur\, ljós og hreyfiafl magnar hann upp og skoðar tiltekin form og hluti og afhjúpar orku þeirra. Ofurnærmyndum af málmryki er varpað á stóran\, tvískiptan skjá sem getur af sér ljóðræna skynupplifun og umbreytir rýminu í skúlptúr. Umskipti og upplausn á örkvarða birtast í verkinu á hrífandi og djúpstæðan hátt.\nMeð einum\, órofnum straumi leggur Sigurður áherslu á einstaka þætti þessa áþreifanlega atburðar ásamt þeirri samfelldni sem á sér stað innan hans. Það sem á sér stað innan straumsins virðist staðna í tíma og verða háð hreyfilögmálum skjásins og hrjúfs hljóðverksins sem umlykur rýmið. Sjónræn blæbrigði myndefnisins endurspegla og eru í samtali við smáatriði hljóðheimsins. Skjárinn verður að glugga inn í nýtt rými þar sem við getum uppgötvað marglaga örheim sem\, þrátt fyrir að vera yggjandi kunnuglegur\, hefur aldrei sést áður.\nÍ Ævarandi hreyfingu kannar Sigurður og fangar orkur og tíðnir efnis í viðvarandi\, persónulegri hrifningu sinni af því falda og ósnerta sem umkringir okkur. Með því að skapa rými til uppgötvunar og\ní gegnum þau ferli sem hann skapar þau í\, sýnir Sigurður næmt auga fyrir blæbrigðum náttúrunnar og áhuga á því að umbreyta þeim í ljóðrænar\, alltumlykjandi upplifanir.\n-Texti eftir Mónicu Bello\, sýningarstjóra íslenska skálans\n_______\n\nÆvarandi hreyfing var frumsýnt fyrr á þessu ári á Feneyjatvíæringnum\, sem haldinn var í 59. sinn\, en Sigurður var fulltrúi Íslands þetta árið. Sýning verksins í BERG Contemporary er sú fyrsta á verkinu utan Feneyja. Sýningin er jafnframt fyrsta sýningin í nýjum sal gallerísins sem hefur verið í byggingu undanfarin ár.\nSigurður Guðjónsson er best þekktur fyrir hrífandi tímatengd verk sín þar sem manngerðar vélar og tækniminjar eru oftar en ekki í brennidepli. Hann rannsakar torræða og falda þætti þeirra\,\nsem eru rétt handan sjónarsviðs okkar. Listamaðurinn gerir tilraunir með myndavélalinsum\, mismunandi sjónarhornum\, ljósi og hreyfingu\, til að magna upp og skoða formin og umbreytingarnar sem eiga sér stað í samverkun þeirra við umhverfið.\nSamspil hljóðs og sjónar er einkennandi í verkum Sigurðar. Listamaðurinn notar margslungna hljóðheima sem grundvöll verka sinna sem eykur áherslu á hljóðræna eiginleika sjónrænu rannsóknanna og skapar sterkari tengsl við viðfangsefnið. Ævarandi hreyfing inniheldur hljóðverk sem Sigurður vann í samstarfi við íslenska tónlistarmanninn Valgeir Sigurðsson. Hljóðverkið rímar við grófa áferð myndefnisins og er unnið úr lagskiptum rafhljóðum sem hefur verið hagrætt með kornhljóðgervlun.\nVerkefnið var unnið í samstarfi við Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og Mónicu Bello\, sýningarstjóra íslenska skálans.\nSýningarskrá sem kom út í tengslum við sýninguna var gefin út af DISTANZ\, Studio Studio sá um hönnun og umbrot\, skráin var sett saman og styrkt af Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar\, Listasafni Reykjavíkur og BERG Contemporary. Þar að auki opnar ný sýning listamannsins\, í sýningarstjórn Mónicu Bello\, í Listasafni Reykjavíkur þann 20. október 2022.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-gudjonsson-perpetual-motion/
LOCATION:BERG Contemporary\, Klapparstígur 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Screenshot-2022-10-18-at-16.27.16.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221020
DTEND;VALUE=DATE:20230116
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20221018T154619Z
LAST-MODIFIED:20230118T092226Z
UID:27011-1666224000-1673827199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Guðjónsson: Leiðni
DESCRIPTION:Sigurður Guðjónsson er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd\, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar\, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar\, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós. \nHér á sýningunni gefst færi á að kynnast ögrandi og svipmikilli vídd listsköpunar Sigurðar Guðjónssonar. Leiðni býður áhorfendum að grandskoða hreyfingar\, flæði og hófstilltar umbreytingar sem eiga sér stað í efnisheiminum. Úrvalið sem hér er samankomið samanstendur af sex nýlegum verkum\, sem og einu glænýju. Öll eiga þau rætur að rekja til könnunar listamannsins á örlandslagi og vídeómyndmáli þar sem hið sýnilega\, heyranlega og rýmislega mynda órofa heild. Sigurður leggur áherslu á að fanga tíðnisvið og tákn sem greina má í yfirborði eða afmörkuðum hlut\, sérstaklega í tækjum og efnum tengt iðnaði. Hann leggur sig í líma við að fanga nánast ógreinanlegan takt og slátt sem kemst til skila í því hægfara ummyndunarferli sem greina má í verkunum. Sýningin Leiðni hvetur okkur til að hugsa um tilurð mynda\, veitir innsýn í margræðni efnis\, og minnir á ævarandi umbreytingu heimsins. \nSigurður Guðjónsson (f.1975) er einn fremsti vídeólistamaður íslenskrar samtímalistar og  var  fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2022. Í rökstuðningi fagráðs sem útnefndi Sigurð sem fulltrúa Íslendinga á Feneyjatvíæringinn segir: „með vali Sigurðar teflir Ísland fram listamanni sem unnið hefur að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem vakið hafa verðskuldaða athygli í heimi samtímalistarinnar.“ Sigurður stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998-1999\, Listaháskóla Íslands 2000 -2003 BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004. Hann var valinn Myndlistarmaður ársins 2018. Verk Sigurðar í Feneyjum Perpetual Motion  verður sýnt í BERG Contemporary í Reykjavík frá 22. október. \nMónica Bello sýningarstýrir Leiðni í Hafnarhúsi en hún er jafnframt sýningarstjóri íslenska skálans á Feneyjartvíæringnum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-gudjonsson-transits/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/lightroom_10_sigurdurgudjonsson_web_0.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221020
DTEND;VALUE=DATE:20230116
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20220908T150533Z
LAST-MODIFIED:20230117T165308Z
UID:25854-1666224000-1673827199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Guðjónsson
DESCRIPTION:Heillandi myndheimur Sigurðar Guðjónssonar lætur engan ósnortinn. \nEinn fremsti vídeólistamaður íslenskrar samtímalistar verður fulltrúi landsins á Feneyjatvíæringnum 2022. Á sýningunni í Hafnarhúsi eru sett fram ný og eldri verk listamannsins sem kynna einstaka listsköpun Sigurðar fyrir áhorfendum. Listamaðurinn er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd\, hljóð og rými mynda órofa heild. Hann beinir einkum sjónum að virkni margs konar tækjabúnaðar\, þar sem áhorfandinn er lokkaður inn í heim sefjandi endurtekningar\, takts og reglu og mörk hins mannlega og vélræna verða óljós. \nÍ rökstuðningi fagráðs sem útnefndi Sigurð sem fulltrúa Íslendinga á Feneyjatvíæringinn segir: „með vali Sigurðar teflir Ísland fram listamanni sem unnið hefur að áhrifamiklum innsetningum á óvenjulegum sýningarsvæðum og byggt upp afar sterka röð sýninga sem vakið hafa verðskuldaða athygli í heimi samtímalistarinnar.“ \nSigurður Guðjónsson er fæddur árið 1975 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998-1999\, Listaháskóla Íslands 2000 -2003 BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004. Hann var valinn Myndlistarmaður ársins 2018. \nSýningarstjóri: Mónica Bello
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-gudjonsson/
LOCATION:Reykjavik Art Museum – Hafnarhús\, Tryggvagata 17\, 101\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/lightroom_10_sigurdurgudjonsson_web_0.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220702
DTEND;VALUE=DATE:20221003
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20220929T120838Z
LAST-MODIFIED:20220929T121020Z
UID:26687-1656720000-1664755199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Nokkur nýleg verk
DESCRIPTION:Listasafn Íslands er þjóðlistasafn okkar Íslendinga og eitt af hlutverkum þess er að safna myndlist með það að markmiði að endurspegla sem best strauma og stefnur í íslenskri og alþjóðlegri myndlist á hverjum tímaeins og segir í lögum um safnið. Safneignin er yfirgripsmikil og fjölbreytt. Elstu verkin eru frá 16. öld og þau yngstu innan við ársgömul en kjarni safneignarinnar er íslensk myndlist frá aldamótunum 1900 til dagsins í dag. \nÁ sýningunni Nokkur nýleg verk má sjá úrval verka sem keypt hafa verið af innkaupanefnd Listasafns Íslands eða safnið hefur fengið að gjöf á undanförnum fjórum árum. \nNokkur nýleg verk hafa verið valin saman þar sem finna má kerfi og endurtekningar sem leiðarstef í verkum ellefu listamanna og eru þau unnin í ýmsa miðla. \n  \nListamenn: Anna Júlía Friðbjörnsdóttir\,  Bjarni H. Þórarinsson\, Fritz Hendrik Berndsen\, Guðjón Ketilsson\, Gunnhildur Hauksdóttir\, Hildur Bjarnadóttir\, Sigurður Guðjónsson\, Sigurður Atli Sigurðsson\, Sölvi Sólon Íslandus Helgason\, Valgerður Guðlaugsdóttir\, Örn Alexander Ámundason. \nSýningarstjóri: Vigdís Rún Jónsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/nokkur-nyleg-verk/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/image3.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T074826
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR