BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220428
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T044635
CREATED:20220530T115637Z
LAST-MODIFIED:20230131T103330Z
UID:23426-1651104000-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Viðnám
DESCRIPTION:Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. \nLíta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða\, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum\, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk\, skynjun\, tilfinningar\, sannfæringu\, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt  sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum  hliðum auðveldar breytingar og þróun  gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda\, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning. \nÞað er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.  Það felur í sér að samþætta\, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám. \nEkkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum\, þar á meðal mannslíkaminn\, eru samsettir úr orku\, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski\, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju\, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar\, óreiða\, regla\, hrynjandi\, síbreytileiki\, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar. \n  \n\n\n\n\n\n\n\n\nListamenn sem eiga verk á sýningunni \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nDavíð Örn Halldórsson \nDodda Maggý \nEirún Sigurðardóttir \nErla Þórarinsdóttir \nEyborg Guðmundsdóttir \nFinnur Jónsson \nGerður Helgadóttir \nGuðmunda Andrésdóttir \nJóhannes Kjarval \nKarl Kvaran \nKristinn Hrafnsson \nKristján Guðmundsson \nMagnús Helgason \nRansu \nSigrid Vadingojer \nSigurður Árni Sigurðsson \nTumi Magnússon \nÞorvaldur Skúlason \n  \n\n\nSýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir \n\nSýningarteymi: Ásthildur Jónsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Harpa Þórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/resistance-interplay-of-art-and-physics/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/resistance.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211221
DTEND;VALUE=DATE:20220616
DTSTAMP:20260530T044635
CREATED:20220103T113119Z
LAST-MODIFIED:20220825T134438Z
UID:20918-1640044800-1655337599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Árni Sigurðsson: hjáform
DESCRIPTION:Listaverkið „Hjáform“ sem Sigurður Árni sýnir á Gallerí Skilti er upplýst verk úr plexígleri. Það má segja að hann pakki skiltinu inn í gataðan plexígler-hjúp sem varpar lituðum skugga á skiltið. \nAð venju er opnun sýningarinnar á vetrarsólstöðum\, stysta degi ársins 21. desember og stendur sýningin yfir fram að sumarsólstöðum í júní. Stöðug lýsing er á verkinu en dagsbirta og árstíðamunur breyta ásýnd þess. Utanaðkomandi birtu breyting\, jafnvel bílljós ökumanna og kvöldsólin hefur áhrif á verkið og gefur því stöðuga endurnýjun og síbreytileika. \n„Sigurður Árni hefur mátað hugtakið „hjáform“ við áráttu sína fyrir skuggum. Rétt eins og íslensk tunga á orð líkt og hjáleið\, hjáfræði og hjálit\, má vel skilja orðið hjáform sem viðbót við endurkast\, speglun eða skugga einhvers efnilegs fyrirbæris. Enn lengra mætti ef til vill seilast með því að líta á málverk af hverju sem vera skal sem hjáform fyrirmyndarinnar. Hjáform í verkum Sigurðar Árna eru ýmist máluð af honum sjálfum eða skilin eftir sem eyða á máluðum fleti. Þau birtast ennfremur í marglaga teikningum hans á gegnsæjan pappír\, fundnum ljósmyndakortum sem hann spinnur áfram í teikningu\, ljósmyndaverkum\, bókverkum og jafnvel skúlptúrum og innsetningum. Hjáformin framkallast í rýminu í kringum lágmyndir hans úr áli\, gleri og plexígleri. Þessi ólíka nálgun rennur gjarnan saman í málverkum sem virka eins og lágmyndir eða þrívíðum verkum sem líta út fyrir að vera máluð.buy levitra soft online myhst.com/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/levitra-soft.html no prescription\n Blekkingarleikurinn dregur enn fram eiginleika í skynjun okkar\, takmörk þess sem við greinum og hina takmarkalausu skáldskapargáfu sem okkur er í brjóst borin til þess að fylla í eyðurnar. Hér hefur listamaðurinn opnað á samtal langt umfram stað- og tímabundna landslagshefð og kallast á við málverkahefðina allt frá upphafi þeirrar sögu. Málverkið er og verður örþunnt yfirborð þar sem engu að síður er hægt að gefa til kynna allar þær víddir efnisheims og hugarheims sem hugsast getur.buy ventolin online myhst.com/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/ventolin.html no prescription\n“  \nBrot úr texta Markúsar Þórs Andréssonar\, „ÓraVídd“ \nSigurður Árni Sigurðsson hefur starfað sem myndlistarmaður bæði í Reykjavík og í Frakklandi frá því að hann lauk námi frá Institut des Hautes Études en Art Plastiques í París árið 1991. Hann hefur haldið tugi einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum. Verk eftir Sigurð Árna er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi sem og í opinberum söfnum og einkasöfnum víða í Evrópu. Af stærri opinberum verkum má nefna útilistaverkið „Sólalda“ sem hann gerði fyrir Sultartangavirkjun og var afhjúpað árið 2000\, verkið “Samhengi” var sett upp í Landsbanka Íslands í Reykjavík 2005\, glerverkið “Ljós í skugga” á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 2006 og útilistaverkið „L´Eloge de la Nature“ er staðsett í bænum Loupian í Suður-Frakklandi 2011. Sigurður Árni var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu árið 1999\, verk eftir hann var valið sem táknmynd Reykjavíkur þegar borgin var menningarborg Evrópu árið 2000 og á síðasta ári var opnuð yfirlitssýningu á verkum Sigurðar Árna þar sem farið var yfir feril listamannsins frá upphafi til dagsins í dag í Listasafni Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-arni-sigurdsson-by-form/
LOCATION:Gallery Sign\, Dugguvogur 3\, Reykjavík\, 104\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/hjaform.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR