BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230819
DTEND;VALUE=DATE:20231002
DTSTAMP:20260530T094733
CREATED:20230816T141910Z
LAST-MODIFIED:20230816T141910Z
UID:32316-1692403200-1696204799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Reutinger\, Brák Jónsdóttir\, Hugo Llanes og Sigurður Ámundason: Gottfariðillailla
DESCRIPTION:Sýningin leiðir saman verk listamannanna Anna Reutinger\, Brákar Jónsdóttur\, Hugo Llanes og Sigurðar Ámundasonar\, sem hér sýna saman í fyrsta sinn. Gottfariðillailla sprettur upp úr þéttu samstarfi og tekur form sem einhvers konar samkomustaður\, upphaf eða endastöð einbeitts en örlítið óreiðukennds samtals þar sem mismunandi raddir fléttast saman og hugmyndir mótast í leiðinni. Sýningin tekur sér (ó)þægilega stöðu inni í maga dýrsins mikla og dregur fram skáldaðar minningar\, náttúru\, menningu\, útdauða\, sefandi sjálfshyggju — og skál fyrir heimi án okkar! \n\n\n\n\n\nÁgrip \n\nVerk Anna Reutinger seytla í gegnum trefjar einsemdarinnar og blanda félagslegum\, efnislegum og sögulegum augnablikum í margradda\, litríkar sögur. Með því að nýta notaðan vefnaðarvöru\, gler\, brotajárn\, náttúruleg litarefni\, aukaafurðir landbúnaðar\, félagsleg kynni og fjarlægar sögur\, rannsakar hún á verklegan hátt\, og undirstrikar handverk sem fræ fyrir félagslega\, efnislega og umhverfislega næmi. Hún býður öðrum inn í helli möguleika\, allt frá stórum innsetningum til leiklistarsmiðja og kvikmynda\, allt handsmíðað með það að markmiði að teygja magann í átt að rótakenndri sameiginlegri ímyndun. Hún er kennari við Dirty Art Department við Sandberg Instituut þar sem hún lauk einnig MA gráðu árið 2016. Þar á undan lauk hún BA gráðu í hönnunar\, miðlun og stafrænum hugvísindum við UCLA árið 2013. \n  \nBrák Jónsdóttir er starfandi myndlistarmaður á Íslandi. Hún útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Verk hennar kanna þemu frá forsögu til ímyndaðrar framtíðar\, segja frá skálduðum atburðum sem blása lífi í útdauð dýr eða verur af öðrum heimi. Hún brúar bil þekkingar með goðsögum\, skapar tótemískar skúlptúrinnsetningar og kafar ofan í spennuna milli hins tilbúna og náttúrulega. Ef til vill hrollvekjandi við fyrstu sýn\, búa verk Brákar þó yfir blíðu\, næmni og húmor þar sem skynrænar tilgátur spretta upp úr staðreyndum. Dularfullar frásagnir í gegnum furðuleg vistkerfi\, kveikja tilvistarspurningar og bjóða áhorfendum að ígrunda leyndardóma lífsins. \n  \nHugo Llanes útskrifaðist frá MA í myndlist við Listaháskóla Íslands og er virkur meðlimur Artist in Iceland Visa Action Group. Hann hlaut nýverið tilnefningu PECDA (Young Creators fund Veracruz State) og er um þessar mundir staddur í Saari Residency Programe af KONE Foundation\, Finnlandi. Verk hans fela í sér rannsókn á félagspólitískum sprungum og þeirri fagurfræði sem brýst út úr þeim. Hann skoðar félagslegar aðstæður\, svo sem fólksflutninga\, dreifingu matar\, misbeitingu valds og áhrif síðnýlendustefnunnar á nýja sjálfsmynd Suður-Ameríku. Til að lýsa þessu notar hann listrænar rannsóknir og miðla eins og viðhaldslist\, gjörninga\, innsetningar\, staðbundna list\, þátttökulist\, vídeó og málverk. \n  \nFrá því að Sigurður Ámundason útskrifaðist úr Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012\, hefur hann haldið tólf einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga og flutt óteljandi gjörninga. Sigurður vinnur mest með teikningu og gjörninga en hefur notist við hina ýmsu listmiðla\, hvort sem um er að ræða skrif\, ljósmyndir\, innsetningar\, vídeó-verk\, skúlptúr eða bókverk. Sigurður hefur kennt í Myndlistarskólanum í Reyjavík og við Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2020 hlaut hann tilnefningu til Hvatningarverðlauna Íslensku Myndlistarverðlaunanna Myndlist Sigurðar reynir að takast á við takmörk mannlegra samskipta og angist þeirri sem hlýst af óuppgerðum tilfinningum\, misskilningi og hégóma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-reutinger-brak-jonsdottir-hugo-llanes-og-sigurdur-amundason-gottfaridillailla/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/64cb2d18-119b-49d5-bc6d-b3050aeef80c_Keiko-sling-purple-web.jpeg.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230213
DTSTAMP:20260530T094733
CREATED:20230113T111928Z
LAST-MODIFIED:20230113T111928Z
UID:28705-1673654400-1676246399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Dokað við trist
DESCRIPTION:Ekki alls fyrir löngu voru þeir garpar Gunnar Jónsson og Sigurður Ámundason á ferð yfir hálendið. Skyndilega gekk yfir landið mikill stormur og illfært varð til ferðarlaga. Þá voru góð ráð dýr en til mikillar lukku urðu þeir varir við sæluhús eitt\, fjarri allri byggð. Ekkert annað í augsýn en veðurbarið fjalllendið. Náttúran getur verið svo mikil ofgnótt. Í sæluhúsinu dvöldu þeir um tíma og sem betur fer höfðu þeir birgðir nægar. Landslagið í kring hafði svakaleg áhrif á hugmyndaflug tvíeykisins; litirnir sem stöku sinnum var hægt að greina í öllum þessum gráma\, tvískinnungurinn í jafnvægi þess manngerða við náttúruna. Svolítið trist\, en á sama tíma fallegt. \n\nGunnar Jónsson (1988) útskrifaðist úr bakkalárnámi við myndlistadeild Listaháskóla Íslands árið 2012. Síðan þá hefur hann haldið fimm einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis sem og erlendis. Gunnar vinnur mest með myndbönd og hljóðinnsetningar sem miðil í verkum sínum en vinnur einnig ljósmyndaverk og vatnslitamálverk. Hann býr og starfar á Ísafirði.\n \nSigurður Ámundason (1986) útskrifaðist úr bakkalárnámi myndlistardeildar Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur síðan haldið ellefu einkasýningar\, tekið þátt í fjölda samsýningu og flutt tugi gjörninga. Sigurður notast mest við teikningar en skapar einnig innsetningar\, skúlptúra\, vídeóverk\, bókverk\, ljósmyndir og leikverk.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/dokad-vid-trist/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/323095316_2464318797053627_7311552608013746411_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220521
DTEND;VALUE=DATE:20220822
DTSTAMP:20260530T094733
CREATED:20220627T151347Z
LAST-MODIFIED:20220822T112915Z
UID:24202-1653091200-1661126399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Ámundason: What’s Up\, Ave Maria?
DESCRIPTION:Ef tíminn er eins og endalaust fjall sem mannkynið stanslaust klífur\, þá er listin vörðurnar sem við skiljum eftir okkur til þess að marka hvar við vorum eitt sinn. \nHvernig munu vörður ársins 2022 vera? \nÖld sem einkennist af breytingum\, sífelldri þróun\, upplýsingaflæði og sjálfsímyndarmótun\, tortímingu og nýsköpun\, tækifærum og einokun\, byltingum og tortryggni. Endalokum og nýjum upphöfum. Hvernig er mögulega hægt að halda aftur af sér við sköpun slíkrar vörðu? \nEngir miðlar deyja\, því slíkur „dauði“ gefa í skyn að listin sé háð áliti almennings\, sem aftur gefur í skyn að listin sé hér til þess þjóna fyrirframgefnum hugmyndum okkar í stað þess að raska þægindaramma okkar og kynna okkur fyrir heiminum á ný. \nEf málverkið þarfnast endurvakningar\, þá teiknum við málverk. Ef symbólismi þarfnast nýrra tákna\, þá lít og sjá\, því þau eru hvarvetna. Ef búið er að segja allar sögur sem hægt er að segja\, höldum þá ekki aftur af okkur. \nSigurður Ámundason útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012. Sigurður hefur haldið þrettán einkasýningar\, meðal annars í Kling & Bang\, Kunstschlager\, Húsinu á Patreksfirði\, Open\, Ekkisens og Úthverfu. Hann hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga\, til dæmis á Kjarvalsstöðum\, í Hverfisgallerí\, Glettu á Borgarfirði eystra\, Harbinger\, Salts í Basel\, Sviss\, og CHART Emerging í Kaupmannahöfn. Hann hefur kennt í Myndlistaskólanum í Reykjavík og við myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Árið 2020 hlaut hann tilnefningu til hvatningarverðlauna Íslensku myndlistarverðlaunanna. Sigðurður býr og starfar í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-amundason-whats-up-ave-maria/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/Hafnarborg-2022-Sigurdur-Amundason-Whats-Up-Ave-Maria-slideshow-1400x462-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220203
DTEND;VALUE=DATE:20220207
DTSTAMP:20260530T094733
CREATED:20211025T151916Z
LAST-MODIFIED:20220905T135812Z
UID:19885-1643846400-1644191999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gjörningaþoka
DESCRIPTION:Hafnarhúsið er undirlagt af gjörningalist í nóvember með listahátíðinni Gjörningaþoka sem fer fram dagana 18.-21. nóvember 2021. Listformið á sér langa og merka sögu og stendur um þessar mundir í miklum blóma. Dagskráin endurspeglar þetta með því að samtvinna flutning gjörninga eftir unga listamenn sem eru að prófa sig áfram með formið og eftir eldri og reyndari listamenn sem hafa mótað sinn sérstaka stíl\, aðferðir og viðfangsefni. Boðið verður upp á hádegisumræður með hópum sem létu sig gjörningalist varða um einhvern tíma og tóku þátt í því að móta listgreinina eins og hún er á Íslandi í dag. \nSamhliða hátíðinni fer fram viðamikil ráðstefna ber yfirskriftina Þokuslæðingur þar sem sjónum er einkum beint að eðli listformsins og faglegu hlutverki liststofnanna þegar kemur að gjörningalist. Framsögumenn koma úr röðum myndlistarmanna\, fræðimanna og sérfræðinga á sviði varðveislu og skráningu\, m.a.  frá Listaháskóla Íslands og Nýlistasafninu.buy viagra sublingual online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/viagra-sublingual.html no prescription\n Ráðstefnan er haldin er í samstarfi við Rannsóknarsetur í safnafræðum við Háskóla Íslands.buy zovirax online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/zovirax.html no prescription\n \nMeðal listamanna sem taka þátt í Gjörningaþokumá nefna eftirfarandi: Gjörningaklúbburinn\, Katrín Inga Jónsdóttir\, Margrét Bjarnadóttir\, Sigurður Ámundason\, Örn Alexander Ámundason\, Egill Sæbjörnsson og Ilmur Stefánsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gjorningathoka/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/gjorningur-web.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210904
DTEND;VALUE=DATE:20211001
DTSTAMP:20260530T094733
CREATED:20210830T130741Z
LAST-MODIFIED:20220825T133402Z
UID:18791-1630713600-1633046399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:30x30
DESCRIPTION:Laugardaginn 4. september\, kl. 16\, opnar samsýningin 30×30 í Gallery Port. \nÁ sýningunni kemur saman fjölbreyttur hópur listafólks\, 30 manns\, og sýna þrjátíu ný verk. Sýningin er framhald af sýningunni 20×20 en nú hafa bæst 10 listamenn. \nVerkin eiga reikningsdæmið 30×30 sameiginlegt\, en hverjum svo í sjálfsvald sett hvernig útkoman er útsett. Útkoman er fjölbreytt sýning og spanna verkin marga miðla. \nListamennirnir koma hver úr sinni áttinni\, eru af hinni og þessari kynslóðinni\, bæði gömul og ný í hettunni. \nSýningin stendur til 30. september og eru opnunartímar Gallery Port í september frá fimmtu- til laugardags frá 12:00 – 17:00. \nListamenn:\nAuður Ómarsdóttir\nArngrímur Sigurðsson\nÁrni Már Erlingsson\nÁsgeir Skúlason\nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir\nDodda Maggý\nFreyja Reynisdóttir\nFritz Hendrik\nGeirþrúður Einarsdóttir\nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir\nGuðrún Heiður Ísaksdóttir\nHallgrímur Helgason\nHelgi Þórsson\nHulda Hákon\nJón Óskar\nKristín Gunnlaugs\nKristín Karólína\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\nLoji Höskuldsson\nMagnús Helgason\nPétur Magnússon\nSalka Rósinkranz\nSigurður Angantýsson Hólm\nSigurður Atli Sigurðarson\nSigurður Ámundason\nSigurlaug Gísladóttir\nSkarphéðinn Bergþóruson\nSvavar Pétur Eysteinsson\nSteinunn Marta Önnudóttir\nÞórdís Erla Zoëga
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/30x30/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/30-at-port.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR