BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231015
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T044129
CREATED:20231013T124947Z
LAST-MODIFIED:20231013T124947Z
UID:33041-1697328000-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Frumspekivídd
DESCRIPTION:Gangið inn í frumspekivíddina\, heim þar sem línuleg og rökrétt sannindi eru dregin í efa. Leitin að nýjum formum og listræn landkönnun birtist í formi snúinnar rúmfræði\, flæktra hnatta og dáleiðandi spírala. Hér byrjum við að má út mörk ímyndunar og veruleika\, óvissu og vitneskju\, til að vefa saman viðtekinn skilning á nauðsyn og möguleikum. Hugurinn verður að að skipta um gír\, bæði á einstaklings- og samfélagsskala til þess að til verði pláss fyrir hið nýja – sem gæti allt eins verið löngu gleymdur sannleikur. \nSýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nGet ekki séð er skipt í fjóra kafla sem veita innsýn í rýmin og andartökin sem mannlegt auga nemur yfirleitt ekki: allt frá hafsbotni og jarðlögunum að braki fortíðar og draumum um framtíðina. Sögurnar eru sagðar frá ýmsum sjónarhornum\, allt frá blendingsfuglum að bakteríum\, að sjávarlífverum\, ævafornu tré eða óþreytandi vindinum. Markmiðið er að velta upp ólíkum leiðum til að sjá og upplifa heiminn og fjarlægjast þannig þau sjónarhorn sem við eigum að venjast. Teygjanlegur tími leyfir okkur að ferðast langt aftur í goðsagnakennda fortíð eða ímynda okkur ókomna framtíð. \nSýnendur: Agnes Denes\, Daria Melnikova\, Elo-Reet Järv\, Gerður Helgadóttir\, Ólöf Nordal\, Zenta Logina \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-frumspekividd/
LOCATION:Listasafn Íslands\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387199785_703612855147917_6050111484520495337_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231014
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T044129
CREATED:20231013T124656Z
LAST-MODIFIED:20231013T124656Z
UID:33039-1697241600-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Vatn
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún fæddist út frá þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra. Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nGet ekki séð er skipt í fjóra kafla sem veita innsýn í rýmin og andartökin sem mannlegt auga nemur yfirleitt ekki: allt frá hafsbotni og jarðlögunum að braki fortíðar og draumum um framtíðina. Sögurnar eru sagðar frá ýmsum sjónarhornum\, allt frá blendingsfuglum að bakteríum\, að sjávarlífverum\, ævafornu tré eða óþreytandi vindinum. Markmiðið er að velta upp ólíkum leiðum til að sjá og upplifa heiminn og fjarlægjast þannig þau sjónarhorn sem við eigum að venjast. Teygjanlegur tími leyfir okkur að ferðast langt aftur í goðsagnakennda fortíð eða ímynda okkur ókomna framtíð. \nDjúpsævið umlykur eyjuna og vatnsósa mýrin umlykur sýningarstaðinn. Stórbrotnar öldurnar og endalaust hyldýpið kalla fram sýnir af goðsagnakenndum verum sem líða um í yfirgefnum innviðum\, afurð löngu gleymdra tíma. Vatnið nálgast ströndina\, með lög af tíma og rústir fortíðar í farteskinu. Kæfandi myrkrið á hafsbotni geymir ótalmörg leyndarmál og goðsögur greina frá sjávarferlíkjum skelfilegum ásýndum\, skyldu þau vakna af eilífum svefni. Á ferð um mýrlendið eru raddir sem aldrei hafa fengið að heyrast með í för. \nGjörningadagskráin sem er samhliða sýningunum er tækifæri til að sameinast á myrkasta tíma ársins til að deila orku og hugmyndum. Gjörningarnir flytja okkur oftar en ekki að jaðri umbreytinga\, að líkamlegum takmörkunum og færa huga okkar á ný mið. Í samfloti við sýningarnar skapar hátíðin í heild rými fyrir ímyndunarafl og táknræna hugsun og gefur okkur færi á að sjá lengra frá okkur. \nListamenn: \nAnna Niskanen (FI) \nGústav Geir Bollason (IS) \nEdith Karlson (EE) \nEmilija Škarnulytė (LT) \nKatja Novitskova (EE) \nGuðrún Vera Hjartardóttir (IS) \nSýningarstjórar:Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-vatn/
LOCATION:The Nordic House\, Sæmundargata 11\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/387204228_703604345148768_1686369761838269038_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231013
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T044129
CREATED:20231013T124022Z
LAST-MODIFIED:20231013T124022Z
UID:33033-1697155200-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Jarðvegur
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \nÞessi kafli varpar ljósi á það sem leynist undir fótum okkar. Jarðvegurinn er bullandi\, molnandi yfirborð þar sem vakandi auga getur uppgötvað fjölbreytt líf. Mannskepnan tekur sjaldnast eftir því hvernig lífið i&#769; jarðveginum fylgir sínum eigin lögmálum og hringrás. Jörðin hjá Kling & Bang er jafn eyðilögð og hún er blómstrandi\, hún er heimsendir og nýtt upphaf í senn. Manngerður garðurinn er hruninn og þráir að tortímast algjörlega. Nýtt líf er að vakna inni í fúnum viðarbol. Undarlegar verur skríða um rýmið og landslagið sem kemur síðar í ljós dáleiðir okkur með undurfögru útsýni. \nListamenn:\nBjarki Bragason (IS)\nAlma Heikkilä (FI)\nAntti Laitinen (FI)\nElo-Reet Järv (EE)\nGuðrún Nielsen (IS)\nGústav Geir Bollason (IS)\nJóhannes S. Kjarval\nKärt Ojavee\nNaufus Ramírez-Figueroa\nÓlöf Nordal (IS)\nPakui Hardware\nSigurður Einarsson (IS)\nÞorgerður Ólafsdóttir (IS) \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-jardvegur/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Venue-photos_1640x2-1024x577-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20231013
DTEND;VALUE=DATE:20231127
DTSTAMP:20260530T044129
CREATED:20231013T123503Z
LAST-MODIFIED:20231013T123738Z
UID:33020-1697155200-1701043199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sequences XI: Get ekki séð — Neðanjarðar
DESCRIPTION:Sýningin sprettur úr myrkri sem umlykur. Hún hefst á þeirri tilfinningu að heimurinn sé að molna í höndum okkar\, á meðan hvassviðrið þyrlar síðustu dropunum af dreggjum hans enn lengra.Við sjáum ekki sívaxandi ógn vistfræðilegrar eyðileggingar\, rétt eins og við sjáum ekki mögulegar nýjar leiðir og líf sem gæti kviknað úr rústum gamla heimsins. \n\nSýnendur: Aaloe-Ader-Flo-Künnap-Soosalu\, Anna Líndal\, Daiga Grantina\, Gerður Helgadóttir\, Jussi Kivi\, Katya Buchatska\, Kadri Liis Rääk\, Monika Czyżyk\, Valgerður Briem\, Zenta Logina \nSýningarstjórar: Marika Agu\, Maria Arusoo\, Kaarin Kivirähk\, Sten Ojavee (Estonian Centre for Contemporary Art)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-xi-get-ekki-sed-nedanjardar/
LOCATION:Nýlistasafnið\, Marshallhúsið\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/10/Venue-photos_1640x2-1024x577-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR