BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211015
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T045022
CREATED:20211006T145615Z
LAST-MODIFIED:20211025T103455Z
UID:19477-1634256000-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X: Kominn tími til
DESCRIPTION:Kominn tími til er yfirskrift tíundu Sequences hátíðarinnar sem haldin verður dagana 15.-24. október næstkomandi. Vísar yfirskrift hátíðarinnar í það samfélagsrými augnabliksins sem hátíðin skapar sér hverju sinni. \nÁ hátíðinni má finna ólík samtöl listamanna\, ýmist við umhverfi sitt\, sögu eða við aðra listamenn. Samtöl eru í eðli sínu mörkuð af augnablikinu og samhengi þeirra. Meðvitað og ómeðvitað fléttast inn í samtölin sá tíðarandi og ríkjandi hugmyndir í samfélaginu hverju sinni. Þar sem hugmyndir innan samfélaga eru kvikar og breytingum háðar\, líkt og samfélögin sjálf\, gefst kostur á að lesa í flæði tímans og þróun hinna ýmsu samfélagslegu hugmynda. Að hreyfa við viðteknum hugmyndum samfélagsins gerir okkur kleift að hreyfa við tímanum. \nHátíðin í ár skartar fjölbreyttum hópi listamanna sem eiga það sameiginlegt að vera gjafmildir á tíma sinn\, hugmyndir og sköpunarkraft. Þeir eru færir um að drífa áfram verkefni og skapa aðstæður fyrir samtöl og þátttöku. Þannig verða oft til listaverk sem felast í beinum samskiptum listamannsins við tiltekið rými eða umhverfi og þau tengsl við áhorfendur sem verkið skapar. Samtal listamannsins og meðtakandans getur svo orðið að listaverki útaf fyrir sig\, í formi sem lifir órætt í huga þess sem meðtekur. Verður þá til listaverk sem miðla mennskunni og hugmyndum um mannlegt ástand og frelsi. \n  \nHeiðurslistamaður Sequences X – Kominn tími til er Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Elísabet hefur þá hæfileika að geta spunnið þræði á milli ólíkra listforma og notar rödd sína til þess að segja hlutina hispurslaust\, en jafnframt minnir okkur á töfrana. \nElísabet býr yfir tungumáli gyðjunnar og birtist okkur í ólíkum myndum; skapar og eyðir til skiptis\, er utan og innan við og leikur sér að því að dansa á línunni þar á milli. Í verkum sínum er Elísabet greinandi á eigið sjálf og þjóðarinnar og tekst á við hið útópíska hlutverk listarinnar sem hreyfandi afli í samfélaginu. Liggur styrkur hennar í því lifandi og margbreytilega sambandi sem hún á við áhorfendur og áheyrendur sína\, þar sem hún sjálf er sem almenningslistaverk sem stöðugt hreyfir við hugmyndum samfélagsins og hreyfir þannig við tímanum og tekur þátt í hinni eilífu endursköpun heimsins. \n„Það er yfirleitt ekki tekið fram í sköpunarsögum trúarbragðanna að verið sé að skapa heim í fyrsta sinn. […] En á meðan annað er ekki tekið fram má hugsa sér að verið sé að skapa heiminn uppá nýtt en ekki nýjan heim. Kannski var heimurinn búinn að skapast og eyðast svo oft að það þótti við hæfi að skrifa það niður\, og þá tók því ekki að segja: Í hundraðasta sinn var tóm…“   \n– Elísabet Kristín Jökulsdóttir \nCURATORS: Þráinn Hjálmarsson & Þóranna Björnsdóttir \nDagskrá.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-kominn-timi-til/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/sequences1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR