BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211017
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T131155Z
LAST-MODIFIED:20220825T134854Z
UID:19677-1634428800-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Freyja Reynisdóttir: ABACUS: reiknað hið sanna (Miniature innsetning)
DESCRIPTION:Freyja Reynisdóttir notar verk sín til þess að framkvæma gjörningatengdar tilraunir í leit að huglægum sannleikum\, þar sem hún telur ferli túlkunar og skynjunar ákjósanlega leið til að eiga í samskiptum um það óyrðanlega en áþreyfanlega í skilningi okkar á sjálfinu og veruleika okkar. Freyja nálgast viðfangsefni sín í gegnum sín eigin skrif.buy amoxicillin online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/amoxicillin.html no prescription\n Hún býr til formúlur og uppskriftir\, hluti\, teikningar\, málverk\, innsetningar\, hljóð og myndbönd\, allt eftir því hvaða miðill hentar hverju sinni. \nÉg er heilluð af skilgreiningum á Sannleika. Ég vil hugsa til þess að við eigum okkur sameiginlegt tungumál í skynjun sem við deilum og upplifum í gegnum veru okkar meðal allra hluta. Sú upplifun þýðist síðan yfir í tungumál orða og hugtaka\, huglægt hverjum einstaklingi. \nHvort sem að Sannleikurinn kemur til með að vera út frá jafnvægi\, einhverri óræðri tilfinningu\, tímabundinni persónulegri fagurfræði\, persónulegu narratívi\, kaldrifjaðri hentisemi eða frá öðrum óskilgreindum stað\, má með leikgleði kanna hinar ýmsu skilgreiningar á Sannleikanum. \nÉg býð ykkur að taka þátt í tilraun minni með verkinu Abacus. \nFreyja Reynisdóttir (f. 1989) er íslenskur myndlistarmaður sem stundar nú meistaranám í frjálsri myndlist við Listaháskóla Íslands. Freyja lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014 og  og hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér á landi og erlendis.buy forzest online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/forzest.html no prescription\n Freyja er ein af stofnendum Kaktus sem er samsteypa listamanna á Akureyri og einn umsjónarmaður samvinnuverkefnisins RÓT.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-freyja-reynisdottir-abacus-reiknad-hid-sanna-miniature-innsetning/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/ABACUS_mynd1-1917x2048-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211017
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T115515Z
LAST-MODIFIED:20211025T103632Z
UID:19649-1634428800-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Helena Jónsdóttir: Rétt að byrja
DESCRIPTION:Videoverkið Rétt að byrja eftir Helenu Jónsdóttur verður frumsýnt á Sequences X. \n„Jour“ fyrri hluti orðsins „Journey“ þýðir „dagur“ á frönsku\, einnig orðið „ajour“ þýðir ljósop\, ljósop sem hleypur ljósinu rétt í gegn.  Seinni hluti orðsins „Journey“\,  „ney“  þýðir á Hebresku „consolation“ eða „huggun“ á íslensku. Með hverjum degi er hægt að finna einhverja huggun í gegnum erfitt ferli eða ferðlag. Og ferðin er rétt að byrja. \nFlytjandi:  Laufey Elíasdóttir\nUpptaka og lýsing: Dagur Benedikt Reynisson\nHljóðmynd: Daniele Moog Girolamo og Magnus Bergsson\nAðstoð við upptöku: Cel Crabeels\nBúningar: Dögg Patricia Gunnarsdóttir \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nHelena Jónsdóttir lærði við Listdansskóla Þjóðleikhússins og síðar Alvin Ailey í New York. Hún hefur dansað og verið danshöfundur í óteljandi dansverkum í sjónvarpi\, bíómyndum og á sviðinu. Hún hefur einnig samið og stýrt dansi í mörgum svokölluðum „physical cinema“ myndum\, þar á meðal: Breaking Voices fyrir Listahátíðina í Reykjavík 2002 og nú síðast GONE sem hefur unnið til fjölmargra verðlauna.  Helena er þekkt fyrir verk sín í Skandinavíu\, Evrópu og Bandaríkjunum. Undanfarin ár hafa myndverk hennar verið sýnd í fjölda listrýma og á hátíðum\, innlendum sem erlendum. Hún var tilnefnd sem besti danshöfundurinn á verðlaunahátíð tónlistarmyndbandaframleiðenda í Los Angeles 2001 og vann dansleikhúskeppnina núllsjö/núllsex í júní 2003 með verkinu Open Source. \nAuk skapandi verkefna kennir Helena við Listaháskóla Íslands og Listaháskóla Stokkhólms og vinnur alþjóðlega sem fyrirlesari og leiðir vinnustofur. Hún var valin danshöfundur ársins á Íslandi 2017 fyrir vinnu sína við dansmyndir. Auk sinnar eigin vinnu stýrir hún dánarbúi Þorvalds Þorsteinssonar\, rithöfundar og listamanns.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-helena-jonsdottir-rett-ad-byrja/
LOCATION:FLÆÐI\, Vesturgata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/journey.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T125603Z
LAST-MODIFIED:20220916T111613Z
UID:19671-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Lucky 3: PUTI
DESCRIPTION:Verkið PUTI er félagsleg kóreógrafía sem endurspeglar ofurraunveruleika kynþáttahlutverka og valdastigveldi. Verkið vitnar í átta klukkutíma vinnudag. \nÞótt frásagnirnar séu sundurleitar\, er kjarninn hinn sami. Við viljum varpa ljósi á sundraðan hóp\, fólk sem er rótlaust\, er í stöðugri endurnýjun og berst við að bjarga arfleifð sinni í ljósi menningarlegs tjóns. Með blygðunarlausum heiðarleika og varnarleysi\, tekur hópurinn á málefnum sem þessum. Í tilfelli PUTI; upplifun filippseyskra innflytjenda á Íslandi\, tilfærslu og kynþáttafordóma. \nOpnunargjörningur \nLucky 3 (st. 2019) er listahópur stofnaður af Darren Mark\, Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo; íslenskir listamenn af filippeyskum uppruna. \nDarren Mark (f. 1993) útskrifaðist með BA próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Hann flutti til Íslands frá Filippseyjum aðeins átta ára gamall ásamt fjölskyldu sinni. Hann vinnur aðallega við fatahönnun\, hann fæst við að taka í sundur og setja flíkur saman til þess að endurnýta og betrumbæta þær og búa til nýjar flíkur. Darren hefur áður sýnt á Dutch Design Week í Eindhoven\, Designer’s Nest – Copenhagen Fashion Week  og á Hönnunarmars í Reykjavík. \nDýrfinna Benita Basalan (f. 1992) vinnur sem myndlistarmaður en er líka þekkt sem tónlistarkonan Countess Malaise. Dýrfinna er fædd og uppalin á Íslandi og á íslenskan föður. Hún útskrifaðist með BA í myndlist og hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2018. Dýrfinna vinnur út frá mörgum miðlum og takast verk hennar oft á um sjálfsmynd\, samfélag og einsemd. Dýrfinna er partur af listamannahópnum The Blue Collective\, hópur alþjóðlegra listamanna sem eru hinsegin og af jaðarsettum kynþáttahópum. Með þessum listahópi hefur Dýrfinna m.a. sett upp sýningar í Juliette Jongma gallerí\, Amsterdam og í Decoratillier í Brussels í samstarfi við Living Leaving Dacota. \nMelanie Ubaldo (f. 1992) útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Í verkum Melanie er myndefni og texti órjúfanleg heild. \nSjá má sundurleit málverk sem innihalda texta sem minnir helst á veggjakrot. Textinn vísar í hennar eigin reynslu af fordómafullri hegðun annarra í hennar garð. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrif þeirra á þolendur. Melanie hefur áður sýnt í Kling og Bang og hefur tekið þátt í öðrum hópsýningum hérlendis og erlendis til að mynda í Hafnarborg\, Gerðarsafni\, hátíðinni Cycle – Music and Art festival og nýlega í Pavilion Nordico í Argentínu. Jafnframt er verk hennar að finna í safneign Listasafns Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-lucky-3-puti/
LOCATION:OPEN\, Grandagarður 27\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/R1-04310-0036-Cropped.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T124812Z
LAST-MODIFIED:20220916T111606Z
UID:19665-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Gunnar Jónsson: Í viðjum
DESCRIPTION:Það eru 5 mínútur í. Alltaf aðeins 5 mínútur í. Allsnægtir í viðjum hringrásar\, ofgnótt alls í 5 mínútna fjarlægð. Rétt ókomin\, alveg að koma. Alltaf aðeins 5 mínútur í.  \nÍ ofgnóttinni fjarlægist ég. Í stað þess að verða skilvirk handbeini framkvæmda sem móttekur og afhendir jafnóðum\, leggst ég undir strauminn. Beljandi straum hugmynda\, ofgnótt allsnægta alls sem er og hugsast getur svo úr verður hálfgerð apatía. Doði. Ekki sinnulaus\, þvert á móti. \nFullur af meðvitund og ásetningi\, en dofinn. Eins og í bíó.  \nKapphlaup nútímans teiknast upp í tákn óendanleikans og neglist niður með hverju spori og mælist í tíma og rúmi. \nGunnar Jónsson (f. 1988) er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur sýnt talsvert á Íslandi og erlendis síðan hann útskrifaðist. Gunnar er í stjórn sýningarsalarins Úthverfu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-gunnar-jonsson-i-vidjum/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/gunnarj.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T123810Z
LAST-MODIFIED:20211122T144333Z
UID:19659-1634342400-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - / SKÖPUN / EYÐING /
DESCRIPTION:/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshallhúsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling & Bang. Titill sýningarinnar er vísun í texta Sigurðar Guðmundssonar\, TÍMI\, sem er til sýnis á hátíðinni og hægt er að finna á heimasíðu hátíðarinnar og sýningarskrá: \nTíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk.  \nVið skynjum nýja myndlist\, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið\, höldum þó eftir nokkrum pinklum\, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd. \nTíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans\, sönnunargögn sannleikans\, listaverkin\, sér þó mestar lífslíkur. \nSigurður Guðmundsson\nnóvember 1969\nFyrirlestur fluttur í Norræna húsinu\, Reykjavík \nListamenn Nýlistasafnið: \nBjörk Guðnadóttir (f. 1969) leitar víða fanga í listsköpun sinni og til þess notar hún ýmiskonar efnivið eins og léreft\, ullargarn\, plast\, gifs og vax. Björk hefur haldið einkasýningar og verið valin til þess að taka þátt í mörgum samsýningum\, bæði hér á landi og erlendis. Hún hefur hlotið fjölmarga styrki og verk eftir hana eru í eigu listasafna og safnara. Björk er meðlimur í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík og Nýlistasafninu. \nBorgar Magnason er kontrabassaleikari og tónskáld\, hann gerir gjarnan hljóðheim við hið sjónræna\, þ.m.t. myndlistarverk; er nátengdur sjónrænni túlkun og hefur löngum unnið úr myndlist í verkum sínum. \nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir (f.1988) útskrifaðist með BA gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og stundaði síðar meistarnám í myndlist við Koninklijke Academie í Gent\, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2018. Í myndlist sinni skoðar Guðlaug skúlptúríska þætti í manngerðu umhverfi okkar\, gaumgæfir þau form\, áferðir og gjörðir sem nærumhverfi okkar samanstanda af og kannar hvort efnisgera megi daglegar athafnir. \nGunnhildur Hauksdottir (f. 1972) hlaut MFA frá Sandberg Institute í Amsterdam\, Hollandi árið 2006 og BFA Listaháskóla Íslands árið 2002. Verk hennar er að finna í safneignum Listasafns Íslands og Nýlistasafninu í Reykjavík. Í safneign Uppsala Konstmuseum og Goethe Institute í Kaupmannahöfn og Hess Gallery\, safneign Háskólans í Lethbridge í Kanada. Verk hennar hafa verið flutt og tekin til sýninga víða á ferli hennar. Hún tók m.a. þátt í  Silver Lining\, Collateral Event á 56. Feneyjatvíæringnum árið 2015. Hún hefur sýnt í Listasafni Íslands\, Listasafni Reykjavíkur\, Galleria Municipal do Porto í Portúgal\, í Kunstmuseum Liechtenstein\, Uppsala Konstmuseum og  í 21 Haus hjá Belvedere Museum í Vín. Gunnhildur hefur sterk tengsl við Seyðisfjörð og hefur búið þar af og til síðan hún hóf feril sinn. Hún býr og starfar við myndlist í Reykjavík og Berlín.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-skopun-eyding-2/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/lighter.gif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211122
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211014T122500Z
LAST-MODIFIED:20211122T144344Z
UID:19655-1634342400-1637539199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - / SKÖPUN / EYÐING /
DESCRIPTION:/ SKÖPUN / EYÐING / er titill sýningar Sequences í Marshallhúsinu sem tekur yfir sýningarrými Nýlistasafnsins og Kling & Bang. Titill sýningarinnar er vísun í texta Sigurðar Guðmundssonar\, TÍMI\, sem er til sýnis á hátíðinni og hægt er að finna á heimasíðu hátíðarinnar og sýningarskrá: \nTíminn er mikilvægur þáttur í allri list. Listin er mjög heppileg aðferð til að ferðast í tíma og rúmi. Flestar leiðir til nýrra tíma liggja gegnum listaverk.  \nVið skynjum nýja myndlist\, en hún opnar okkur nýjan heim sem er ekki draumur heldur veruleiki. Við látum gamla heiminn lönd og leið\, höldum þó eftir nokkrum pinklum\, eilitlum menningarlegum farangri eða lögvernduðum listaverkum. Af þeim getum við séð hvar við vorum stödd. \nTíminn eyðir öllu. Eftilvill eiga menjar mannsandans\, sönnunargögn sannleikans\, listaverkin\, sér þó mestar lífslíkur. \nSigurður Guðmundsson\nnóvember 1969\nFyrirlestur fluttur í Norræna húsinu\, Reykjavík \nListamenn Kling & Bang: \nAndreas Brunner (f. 1988) fæddist í Zurich í Sviss og býr nú í Reykjavík. Verk hans eru yfirleitt ekki sérstaklega bundin ákveðnum miðli\, heldur tengjast þau endurskoðun á hugmyndum sem geta birst í ýmsum myndum. Þessar hugmyndir fjalla um þróun menningar\, merkingar og skynjun á tíma\, rúmi og efni. Þannig myndast þráður verka hans í hugmyndinni frekar en því sjónræna. Að aftengja mynd og merkingu\, og skapa nýja\, má líta á sem heildarhvata verka hans. \nÁsta Fanney Sigurðardóttir (f. 1987) er listakona og skáld. Hún vinnur meðal annars með tóna\, hljóð og orð í verkum sínum\, ásamt gjörningum. Verk hennar hverfast oft um hið óvænta og fáránlega þar sem mörk ólíkra miðla mást út. Árið 2018 sýndi hún gjörningaverkið Lunar-10.13 & Gáta Nórensu á Listahátíð í Reykjavík\, þar sem ljóð\, tónlist\, innsetningar og gjörningar runnu saman í eitt. Meðal verka hennar er þorskaópera\, raulkórverk\, hljóðaljóðakórverk og sérhljóðatónverk. Nýjasta bók hennar nefnist Gluggi – draumskrá sem er skrásetning á draumum. Ásta hefur flutt tónverk sín\, ljóð og gjörninga á ýmsum hátíðum og sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hún var handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör árið 2017 og var tilnefnd til Bernard Heidsieck-verðlaunanna í Pompidou árið 2021. \nTónsmíðar Bergrúnar Snæbjörnsdóttur (f. 1987) hafa verið fluttar í formi kammer- og hljóðverka víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin  Ástralíu og í Asíu af hópum eins og Oslo Philharmonic (NO)\, International Contemporary Ensemble ICE (US)\, Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Nordic Affect (IS)\, Avanti! Kammersveit (FI) og fleirum. Hún er handhafi Hildegard verðlauna The National Sawdust árið 2019. Þá hafa verk hennar verið valin til flutnings á virtum tónlistarhátíðum eins og Mostly Mozart Festival í Lincoln Center (New York)\, ISCM World Music Days (Peking)\, Sound of Stockholm\, Ultima Festival (Oslo)\, Nordic Music Days (London\, Bodø\, Reykjavík)\, Only Connect (Oslo)\, SPOR (Árósir)\, Tectonics Music Festival (Glasgow/Reykjavík)\, Prototype (New York)\, Classical NEXT (Rotterdam) og KLANG (Kaupmannahöfn) auk annarra viðburða. \nNýlókórinn var stofnaður 2003 og fæst við flutning hljóðljóða. Kórinn kemur fram tvisvar til þrisvar á ári og hefur flutt margvísleg verk eftir innlenda og erlenda höfunda eins og Magnús Pálsson\, Philip Corner\, Eric Andersen\, Hörð Bragason\, Kristin G. Harðarson\, Rúrí\, Hörpu Björnsdóttur\, Ástu Ólafsdóttur\, Eiríksínu Ásgrímsdóttur\, Áka Ásgeirsson\, Magneu Ásmundsdóttur\, Þorkel Atlason\, Rod Summers\, Níels Hafstein\, Guðmund Haraldsson og Magnús Jensson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-skopun-eyding/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/gif:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/lighter.gif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211015
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035745
CREATED:20211006T145615Z
LAST-MODIFIED:20211025T103455Z
UID:19477-1634256000-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X: Kominn tími til
DESCRIPTION:Kominn tími til er yfirskrift tíundu Sequences hátíðarinnar sem haldin verður dagana 15.-24. október næstkomandi. Vísar yfirskrift hátíðarinnar í það samfélagsrými augnabliksins sem hátíðin skapar sér hverju sinni. \nÁ hátíðinni má finna ólík samtöl listamanna\, ýmist við umhverfi sitt\, sögu eða við aðra listamenn. Samtöl eru í eðli sínu mörkuð af augnablikinu og samhengi þeirra. Meðvitað og ómeðvitað fléttast inn í samtölin sá tíðarandi og ríkjandi hugmyndir í samfélaginu hverju sinni. Þar sem hugmyndir innan samfélaga eru kvikar og breytingum háðar\, líkt og samfélögin sjálf\, gefst kostur á að lesa í flæði tímans og þróun hinna ýmsu samfélagslegu hugmynda. Að hreyfa við viðteknum hugmyndum samfélagsins gerir okkur kleift að hreyfa við tímanum. \nHátíðin í ár skartar fjölbreyttum hópi listamanna sem eiga það sameiginlegt að vera gjafmildir á tíma sinn\, hugmyndir og sköpunarkraft. Þeir eru færir um að drífa áfram verkefni og skapa aðstæður fyrir samtöl og þátttöku. Þannig verða oft til listaverk sem felast í beinum samskiptum listamannsins við tiltekið rými eða umhverfi og þau tengsl við áhorfendur sem verkið skapar. Samtal listamannsins og meðtakandans getur svo orðið að listaverki útaf fyrir sig\, í formi sem lifir órætt í huga þess sem meðtekur. Verður þá til listaverk sem miðla mennskunni og hugmyndum um mannlegt ástand og frelsi. \n  \nHeiðurslistamaður Sequences X – Kominn tími til er Elísabet Kristín Jökulsdóttir. Elísabet hefur þá hæfileika að geta spunnið þræði á milli ólíkra listforma og notar rödd sína til þess að segja hlutina hispurslaust\, en jafnframt minnir okkur á töfrana. \nElísabet býr yfir tungumáli gyðjunnar og birtist okkur í ólíkum myndum; skapar og eyðir til skiptis\, er utan og innan við og leikur sér að því að dansa á línunni þar á milli. Í verkum sínum er Elísabet greinandi á eigið sjálf og þjóðarinnar og tekst á við hið útópíska hlutverk listarinnar sem hreyfandi afli í samfélaginu. Liggur styrkur hennar í því lifandi og margbreytilega sambandi sem hún á við áhorfendur og áheyrendur sína\, þar sem hún sjálf er sem almenningslistaverk sem stöðugt hreyfir við hugmyndum samfélagsins og hreyfir þannig við tímanum og tekur þátt í hinni eilífu endursköpun heimsins. \n„Það er yfirleitt ekki tekið fram í sköpunarsögum trúarbragðanna að verið sé að skapa heim í fyrsta sinn. […] En á meðan annað er ekki tekið fram má hugsa sér að verið sé að skapa heiminn uppá nýtt en ekki nýjan heim. Kannski var heimurinn búinn að skapast og eyðast svo oft að það þótti við hæfi að skrifa það niður\, og þá tók því ekki að segja: Í hundraðasta sinn var tóm…“   \n– Elísabet Kristín Jökulsdóttir \nCURATORS: Þráinn Hjálmarsson & Þóranna Björnsdóttir \nDagskrá.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-kominn-timi-til/
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/sequences1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR