BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221112
DTEND;VALUE=DATE:20221205
DTSTAMP:20260530T131841
CREATED:20221110T102244Z
LAST-MODIFIED:20221201T153226Z
UID:27440-1668211200-1670198399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sara Riel: Svarthol
DESCRIPTION:Sara Riel opnar sýninguna Svarthol í Stak og Mengi 12. Nóvember 2022 kl. 16 – 18. Hægt verður að ganga á milli rýmanna tveggja á meðan á opnun stendur.\n\nSara Riel hefur undanfarið unnið að varanlegu glerverki sem verður komið fyrir í einum af gluggum Mengis og verður frumsýnt á opnun. Sama dag á sama tíma byrjar Sara að vinna að hinum hluta innsetningarinnar sem er málað veggverk í Stak. Verkið verður í vinnslu fram til 4. desember þegar sýningunni lýkur.\n\nGestir eru eindregið hvattir til að mæta í Stak á milli 12-15:30 frá mánudegi til laugardags og fylgjast með framvindu veggverksins og eiga í samtali við listamanninn þar til vinnslu verksins lýkur og sýningunni einnig\, þann 4. desember.\n\nHugmyndin er að tengja rýmin tvö á myndrænan máta og skapa þannig hugræn göng á milli þeirra. Mætti jafnvel kalla þau ormagöng.\n“Svarthol geta verið á stærð við atom en með massa á við fjöll”
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sara-riel-svarthol/
LOCATION:Stak\, Hverfisgata 32\, Reykjavik\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-10.22.08.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220326
DTEND;VALUE=DATE:20220425
DTSTAMP:20260530T131841
CREATED:20220411T161002Z
LAST-MODIFIED:20220428T124929Z
UID:22941-1648252800-1650844799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sara Riel: Destination Mars
DESCRIPTION:„Destination Mars er sjónræn geimferð frá jörðinni til Mars og aftur til baka. Listamaðurinn beitir fjölbreyttri tækni til að fjalla um grundvallarspurningar sem snerta uppruna\, tilgang\, siðferði og örlög. \nMikilfengleiki vísindaafreka mannsins kallast á við smæð hans í geimnum. Tæknihyggja og framfaratrú mætir dulspeki og fortíðarrómantík. Geimferðir sýna okkur jörðina í nýju ljósi en afleiðingarnar eru að þær þekja hana smám saman geimrusli\, svo hætt er við að við lokumst inni í sjálfsköpuðum ruslahjúp. \nÞrátt fyrir útbreiddan miskilning um að geimurinn sé hið nýja villta vestrið\, eru fimm alþjóðasáttmálar í gildi. Einn þeirra er Útgeimssamningurinn (Outer space treaty) sem er alþjóðlegur samningur 129 landa\, sem samið var um á vettvangi Sameinuðu þjóðanna\, árið 1967. Samkvæmt sáttmálanum er öllum frjálst að kanna geiminn. Ekkert ríki getur kastað eign sinni á nærliggjandi plánetur og vopn eru ekki leyfileg í kringum sporbaug jarðar. Margt er þó óljóst í lögunum – til dæmis hver ber ábyrgð á geimruslinu sem verður til ef eitt ríki sprengir gervihnattardisk annarars ríkis. Alþjóðasamningur um skaðabótaskyldu frá árinu 1972\, kveður á um að allt sem fer út í geiminn\, þarf að vera nákvæmlega skrásett og ríki séu ábyrgð fyrir því sem skotið er út í geim\, frá þeirra yfirráðasvæði. Einnig eru lögin óskýr varðandi hvort einkafyrirtæki megi hefja námugröft í geimnum. Í framtíðinni getur verið að ýmis hráefni verði sótt til nærliggjandi pláneta frekar en í námur á jörðinni. \nUm miðjan nóvember 2021 skaut Rússland flugskeyti á eigið gervihnattatungl. Sprengingin olli því að meira en 1500 stærri brot og mörg hundruð minni dreifðust um sporbaug jarðar. \nSjö alþjóðlegir geimfarar voru í alþjóðlegu geimstöðinni (ISS) þegar sprengingin varð. Hún myndaði þykkt geimruslaský sem geimstöðin fór í gegnum á 90 mínutna fresti. Þetta gerði dvölina í geimstöðinni fjórum sinnum hættulegra en ella. Beiting vopna í geimnum\, eins og í þessu tilfelli\, getur sett af stað keðjuverkun sem erfitt er að vinda ofan af. \nMilljarðamæringar (Musk\, Bezos\, Branson) hafa þróað nýjar eldflaugagerðir sem gera það bæði ódýrara að ferðast út í geim og senda upp gervihnetti í einkaeigu. Hvaða áhrif mun aðkoma milljarðamæringa að geimferðum hafa á afstöðu okkar til almennra ferðalaga og/eða búflutninga út í geim? \nBandaríkin\, Kína og Sameinuðu arabísku furstadæmin sendu öll geimflaugar af stað til Mars árið 2020. Markmiðið er að rannsaka reikistjörnuna\, kortleggja og taka sýni með aðstoð vélmenna. \nÞegar geimjeppinn Perseverance lenti á Mars 2020\, kom í ljós að forsvarsmenn NASA höfðu skrifað með dulmáli á fallhlíf jeppans. Forvitnir áhorfendur réðu fljótlega í leynilegu skilaboðin: „Dare mighty things“ – tilvitnun í Theodore Roosevelt\, forseta Bandaríkjanna á fyrstu árum tuttugustu aldar. Roosevelt er þekktur fyrir áhuga sinn á náttúrufræði\, verndun skóga og stofnun fjölmargra þjóðgarða\, um leið og hann hélt áfram útþenslustefnu Bandaríkjanna. \nHubble geimsjónaukinn sem skotið var upp í geim 1990 var sá öflugasti þar til James Webb sjónaukanum var skotið út í geim á jóladag 2021. Vísindamenn vona að sjónaukinn geri þeim kleift að skoða tilurð og uppruna annara sólkerfa og stórauka líkurnar á að finna reikistjörnu sem svipar til jarðarinnar. James Webb kom auga á sína fyrstu stjörnu 11. febrúar 2022. \nBjartasta stjarnan á himninum\, séð frá jörðinni\, er Síríus. Stjarnan er einnig þekkt sem Canis Major eða Hundastjarnan. Nafnið er dregið af gríska orðinu Seirios sem merkir að glóa. Ólíkir menningarheimar\, á mismunandi tímum\, um allan heim\, hafa tengt stjörnuna við úlf eða hund og litið á hana sem uppsprettu mikillar visku og valds. Þessar hugmyndir má finna í steinaldarsamfélögum við upphafi siðmenningar\, hjá frumbyggja í samtímanum og í helstu höfuðstöðum hins vestræna heims. Síríus virðist vera mikilvæg í trúarbrögðum og andlegri iðkun auk þess sem hún er oft miðpunktur í merkingafræði leynilegra samfélaga og dulspeki allt til dagsins í dag. \nTunglið er það himintungl sem fer hraðast um í sólkerfinu okkar. Hringrás þess hefur áhrif á sjávarföll\, tíðahring og hvernig við mannfólkið mælum tímann eða upplifun okkar á tíma. Fullt tungl er þegar tunglið er nákvæmlega öfugum megin við sólina\, á ferðinni sinni umhverfis jörðina. Þessi andstæða sem er samstæða\, yingið og yangið\, myrkrið og ljósið\, gefur rými til að gefast upp og finna fyrir auknu tilfinningaflæði. Í andlegri iðkun hefur fullt tungl verið tákn um endalok hringrása\, venja og sambanda. \nÍ bók Enoks og fleiri trúarritum frá um þriðju til fyrstu öld fyrir krist\, er fjallað um Sariel\, fallinn engil. Sariel fór ásamt öðrum englum niður til jarðarinnar til að sænga með jarðneskum konum en villa um fyrir og spilla mönnunum. Englarnir kenndu þeim að gera vopn\, verjur og skartgripi og ýmislegt um snyrtivörur og galdra. Sariel kenndi mönnunum gang himintunglanna.“ \nSara Riel & Kári Gylfason \nSara Riel (f. 1980) nam höggmyndalist við Kunsthochschule Weissensee Berlin\, og útskrifaðist með meistaragráðu og sem heiðursnemandi DAAD 2005 og meistaranemi (post-grad) árið 2006. \nSara hefur frá námsárunum tekið virkan þátt í alþjóðlegu starfi götulistamanna í Evrópu og víðar. Hin fjölmörgu veggverk sem finna má á byggingum í Reykjavík þekkja flestir sem eru kunnugir í höfuðborginni\, enda eru mörg verkanna orðin samofin borgarlandslaginu. \nMyndlist Söru einkennist af tilraunamennsku\, leikgleði og tæknilegum metnaði. Sara hefur tileinkað sér fjölbreytta tækni sem hún notar til að útfæra verk sín. Öll eiga þau þó rætur í teikningunni enda lítur hún fyrst og fremst á sig sem teiknara. \nSamhliða veggjalistinni hefur Sara þróað sitt eigið myndræna tungumál og hefur sterkt höfundaeinkenni. Hún hefur sýnt verk sín í flestum höfuðsöfnum Íslands og tekið þátt í fjölmörgum sýningum hérlendis og erlendis og verið heiðruð af virtum menningarstofnunum. Verk eftir hana eru í eigu bæði stofnana og einkasafnara. Hún er meðlimur í Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur og SÍM.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sara-riel-destination-mars/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/276203855_1664480133893229_7117621780873589722_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T131841
CREATED:20210830T122814Z
LAST-MODIFIED:20220916T110521Z
UID:18780-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu í samvinnu við MULTIS. \nAðstandendur verkefnisins eru: Helga Óskarsdóttir\, Ásdís Spanó og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskrar samtímalistar. \nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn  listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nListamenn sem eiga verk á FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI eru: Einar Örn Benediktsson\, Gjörningaklúbburinn – Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Hulda Vilhjálmsdóttir\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir\, Ívar Valgarðsson\, Jóna Hlíf Halldórsdóttir\, Karlotta Blöndal\, Magnús Helgason\, Magnús Pálsson\, Pétur Magnússon\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Steingrímur Eyfjörð\, Tumi Magnússon\, Þór Sigurþórsson\, Þórdís Jóhannesdóttir\, Baldur Geir Bragason\, Davíð Örn Halldórsson\, Gabríela Friðriksdóttir\, Guðmundur Thoroddsen\, Kristín Eiríksdóttir\, Logi Leo Gunnarsson\, Helgi Þórsson\, Lilja Birgisdóttir\, Sara Riel\, Sirra Sigrún Sigurðardóttir\, Snorri Ásmundsson\, Hulda Rós Guðnadóttir\, Þórdís Erla Zoëga. \nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021. \n\n\n\n\nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið.Fjölfeldi geta verið tví- eða þrívíð og hægt er að búa þau til með margvíslegum aðferðum. Á fimmtándu öld fóru listamenn að þróa aðferðir til að geta steypt verk í mót því það þótti mikill kostur að geta dreift verkum sem víðast. Þetta varð til þess að sjónræn menning efldist til muna í þeim löndum sem þekkingin var til staðar.  Á átjándu öld fundu listamenn til dæmis upp aðferðir sem gerðu þeim kleift að móta skúlptúrverk úr t.d. leir\, bronsi\, gifsi og postulíni. Að steypa skúlptúra með því að nota mold eða sand varð vinsælt við framleiðslu verka sem gerð voru í upplagi og eru þær aðferðir ennþá mikið notaðar við gerð myndlistar. Einnig falla aðferðir grafíklistarinnar undir þessa skilgreiningu en verk unnin á þann hátt hafa þann ótvíræða kost að auðvelt er að gera sama verkið í mörgum eintökum. \nMeð tilkomu koparstungu á tímum barokksins verður dreifing og fjölföldun myndverka almennari. Koparstungan er aðferð sem notuð er við gerð grafíkmynda en þar er myndin grafin með nál í koparplötu og síðan þrykkt á pappír. Verkið Los caprichos\, 1797 eftir Francisco Goya var með fyrstu þekktu fjölfeldunum sem búið var til í takmörkuðu upplagi.  Ef litið er til listaverka tuttugustu aldar er verk Marcel Duchamps\, Rotoreliefs frá árinu 1935 eitt af fyrstu fjölfeldum nútímalistarinnar og í þeirri mynd af fjölfeldum sem við þekkjum í dag\, en verkið er sería af sex snúningsdiskum sem voru gefnir út í 500 eintökum. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nOrðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti. Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu. Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskra samtímalistar. \nMULTIS setur fókusinn á fjölfeldi\, verk sem gerð eru í a.m.k. þremur eintökum. Þetta geta bæði verið prent og skúlptúrar\, allt eftir því hvað hentar hugmynd listamannsins hverju sinni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjolfeldi-hlutfeldi-margfeldi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/multis.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR