BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220114
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T091636
CREATED:20211129T115900Z
LAST-MODIFIED:20220404T154147Z
UID:20396-1642118400-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Santiago Mostyn: 08-18 (Past Perfect)
DESCRIPTION:Santiago Mostyn sýnir nýja innsetningu í Gerðarsafni með ljósmyndum og vídeóverkum sem unnin voru þvert yfir Svarta Atlantshafið með áherslu á staði sem listamaðurinn tengist persónulega. Ljósmyndaröðin 08-18 (Past Perfect) er sýnd hér í fyrsta sinn og var gerð á áratug af endurkomum til Trinidad\, Zimbabwe\, Grenada\, Bandaríkjanna og Skandinavíu. Myndaröðin hangir á veggfóðri sem unnið er með bláþrykki (en. cyanotype)\, sem mun breytast og framkalla grábláan tón með því að vera baðað vetrarsól meðan á sýningunni stendur. \nÍ sama rými má sjá vídeóverkið Drawing for Bellevue Estate. Myndin var gerð í Tobago\, eyjunni sem var innblástur að landslagi Róbinsons Krúsó\, og vettvangur margra bylgja af rányrkju nýlenduveldanna. Í verkinu sjáum við fjóra menn höggva sér leið í gegnum hitabeltisgróður og merkja landsvæði\, þó í átt að óþekktu markmiði. Kortlagning þeirra minnir á aðferðir evrópskra nýlendusinna til að gera tilkall til og iðnvæða Karíbahafið. Verkið beinir einnig sjónum að stærsta silkitrefjatré eyjunnar sem helgað er þjóðsögunni af Gang-Gang Söruh\, sögulegri persónu sem reyndi að ‘fljúga heim’ til Afríku með því að stökkva úr trénu og það varð henni að bana. Verkið dregur upp mynd af landslagi þar sem saga nýlendustefnu\, þrælahalds\, þjóðsagnir og persónulegar sögur mætast. \nSantiago Mostyn kannar mishljóm á milli ólíkra pólítískra svæða í innsetningum\, ljósmyndum\, vídeóverkum\, textum og gjörningum. Hann tengir sína eigin sögu við myndefni frá sögulegum atburðum\, sögufrægum persónum og kynþáttamisrétti. Í verkunum notar hann nýtt efni sem og eldri gagnagrunna til að skapa marglaga og næma frásögn. Í rannsóknarferlinu kannar hann einkenni og minni\, jafnframt persónuleg og sameiginleg\, og skurðpunkta sögunnar við atburði líðandi stundar. \nSantiago Mostyn (f. 1981\, San Francisco) starfar í Stokkhólmi og Berlín en heldur sterkri tengingu við uppvaxtarlönd sín Zimbabwe og Trinidad & Tobago. Hann lauk BA árið 2004 við Yale háskóla. Hann nam við Städelschule 2006-2007 og lauk MA gráðu 2013 við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi. Santiago var í vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien 2021 og verður meðlimur í Schloss Solitude 2022. Meðal nýlegra sýninga hans má nefna The Real Show í CAC Brétigny (2022)\, Swimming Pool-Troubled Waters í Künstlerhaus Bethanien\, Berlín\, (2021)\, Deep Listening for Longing á 2021 Borås-tvíæringnum\, Svíþjóð (2021)\, With New Eyes í Goteborgs Konsthall\, Gautaborg (2021)\, Your Shadow is a Mirror í Andréhn-Schiptjenko\, Stokkhólmi\, Svíþjóð (2021)\, og Grass Widows í Southern Alberta Art Gallery\, Lethbridge\, AB\, Kanada (2020). \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/santiago-mostyn/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/mostyn_the_warming_plateau_film_stills_01.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR