BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220820
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T112522
CREATED:20220929T114412Z
LAST-MODIFIED:20230131T103507Z
UID:26680-1660953600-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hafið
DESCRIPTION:Hafið er umlykjandi á nýrri sýningu á 2. hæð í Safnahúsinu við Hverfisgötu þar sem fjársjóður íslenskrar myndlistar er aðgengilegur.\nGestum gest nú tækifæri á að upplifa listaverk sem öll tengjast hafinu og orðræðunni um sjálfbærni. \nHafið hefur veitt mörgum listamönnum innblástur til listsköpunar. Verkin á sýningunni vísa í ýmsa þætti sem vert er að skoða í samhengi við hafið og hvernig samband manna við hafið hefur breyst. Auðlindir hafsins\, baráttan við bárurnar\, efling náttúruvitundar\, sjálfbærni og síðast en ekki síst undur hafsins eru leiðarstef í sýningunni sem að höfðar til fólks á öllum aldri. \nListamenn: Birgir Andrésson\, Birgir Snæbjörn Birgisson\, Björg Þorsteinsdóttir\, Edvard Munch\, Finnur Arnar Arnarson\, Finnur Jónsson\, Gjörningaklúbburinn\, Guðmundur Benediktsson\, Gunnlaugur Blöndal\, Gunnlaugur Schevings\, Halldór Ásgeirsson\, Helgi Þorgils Friðjónsson\, Hildur Hákonardóttir\, Hólmfríður Árnadóttir\, Hrafnkell Sigurðsson\, Hreinn Friðfinnsson\, Jóhannes Kjarval\, Jón Stefánsson\, Júlíana Sveinsdóttir\, Karl Kerúlf Einarsson Dunganon\, Kristinn G. Harðarson\, Kristín Jónsdóttir\, Magnús Sigurðarson\, Sindri Leifsson\, Valtýr Pétursson. \n\nSýningarteymi:  Ásthildur Jónsdóttir\, Harpa Þórsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hafid/
LOCATION:The House of Collections\, Hverfisgata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/image2.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210901
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T112522
CREATED:20211025T130155Z
LAST-MODIFIED:20220916T104953Z
UID:19869-1630454400-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fjársjóður þjóðar
DESCRIPTION:Listasafn Íslands sýnir perlur íslenskrar listasögu í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Í húsinu er að finna listaverk frá síðari hluta 19. aldar til dagsins í dag sem endurspegla fjölbreytt viðfangsefni listamanna og gefst gestum hússins kærkomið tækifæri til að skoða mörg af helstu listaverkum þjóðarinnar. Þann 1. mars 2021 var Safnahúsið afhent Listasafni Íslands. Það er fyrsta safnbyggingin sem var reist hér á landi og var hún vígð árið 1909 og hefur hýst ýmsar merkar menningarstofnanir síðan. Þessi glæsilega bygging gerir nú Listasafni Íslands kleift að sýna að staðaldri lykilverk úr safneigninni og bætir úr bráðri þörf safnsins fyrir húsnæði til sýningahalds. \nÍ ólíkum sölum á efri hæðum safnsins má sjá upphafningu frumherja málaralistar á náttúru landsins þar sem töfrar íslensku sumarnæturinnar láta fáa ósnortna. Landslagið\, náttúran og túlkun hennar hefur verið stöðugt viðfangsefni íslenskra listamanna. En fleiri þemu er að finna í húsinu þegar gengið er um. Fólkið í landinu hefur verið mikilvægt viðfangsefni margra listamanna í gegnum tíðina og á fyrstu hæð hússins getur að líta mannlífsmyndir af íslenskri alþýðu til sjávar og sveita ásamt tjáningarríkum mannamyndum.\nEinnig má sjá kyrralíf eða uppstillingar þar sem listamaðurinn glímir við hversdagslega hluti í nærumhverfinu\, liti\, lögun og margbreytilegt yfirborð en síðast en ekki síst úrval abstraktverka en Listasafn Íslands á geysilega gott safn abstraktlistar. \nEfsta hæðin í Safnahúsinu var löngum vinsæll útsýnisstaður þar sem húsið gnæfði yfir lágreistri byggð sem óx óðum. Þar gefst gestum kostur á að líta út um gluggana yfir höfnina og sundin blá og sjá með eigin augum það sjónarspil sem hefur veitt mörgum myndlistarmönnum innblástur eins og listaverkin bera vitni um. \nSýningin Fjársjóður þjóðar í Safnahúsinu varpar ljósi á þá dýrmætu safneign sem Listasafn Íslands býr yfir um leið og myndlistin endurspeglar tíðarandann hverju sinni enda er listin í stöðugu samtali og endurnýjun\, í takt við samfélagið allt.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjarsjodur-thjodar/
LOCATION:The House of Collections\, Hverfisgata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/treasures-of-a-nation.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR