BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220801
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220602T132228Z
LAST-MODIFIED:20220916T100929Z
UID:23564-1654905600-1659311999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:The Last Museum
DESCRIPTION:Sýningin The Last Museum máir út mörkin milli kvikmynda- og skúlptúrlistar og rannsakar möguleikana sem felast í notkun vefsíðu sem sýningarrýmis. Á sýningunni sem er að stærstu leyti aðgengileg á www.nylo.is (í takmarkaðan tíma frá 11. júní) má sjá nýtt verk eftir Egil Sæbjörnsson ásamt verkum listafólks frá sjö öðrum löndum. Á meðan Listahátíð stendur yfir tekur verkefnið einnig á sig áþreifanlega mynd í sýningarsal Nýló. \nMeð vísun í orðaforða tölvunarfræðinnar má lýsa The Last Museum sem „stafla“ sem nær utan um land\, skúlptúr\, kóða\, upplifun notanda og fleira. Listafólkið var fengið til að skapa hóp skúlptúra sem komið var fyrir á tilteknum stað sem tengist samskiptainnviðum eða -tækni. Hver og ein innsetning var síðan tekin upp á myndband og myndskeiðunum skeytt saman í gagnvirka runu. Útkoman er upplifun í formi vefsíðu. Sýningin veltir upp spurningum um boðskipti í ljósi langtímans og samspil þeirra við nýjustu tækni\, (líkams)pólitík og hagkerfi heimsins. Í kjölfarið kvikna ákveðin þrástef: uppflosnun\, óvissa\, missir og uppvakning. \nSýningarstjóri: Nadim Samman\nListafólk: Egill Sæbjörnsson\, Nora Al-Badri\, Nicole Foreshew\, Juliana Cerqueira Leite\, Jakrawal Nilthamrong\, Zohra Opoku\, and Charles Stankievech\, Petros Moris\nSamstarfsaðilar: KW Institute for Contemporary Art
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-last-museum/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/9e3d8f13-19b0-44f1-9dc5-5586fba85910_Screenshot2022-04-04at10.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220530T103027Z
LAST-MODIFIED:20220905T132757Z
UID:23405-1654905600-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:ALDA
DESCRIPTION:ALDA er innsetning á mörkum dans og myndlistar þar sem margra ára farsælt listrænt samstarf Evu Signýjar Berger og Katrínar Gunnarsdóttur birtist okkur á nýjum vettvangi. Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur hefur unnið síðustu ár að því að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt\, viðkvæmni\, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk. Í verkinu ALDA sækir hún í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og sérstaklega til endurtekinna hreyfinga og söngva\, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru\, samhug og samruna. \nTitill verksins\, Alda\, endurspeglar bæði ölduna sem hreyfiform\, en vísar líka í tímann og söguna\, hið gamla og nýja. \nListamenn sýningarinnar eru Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur\, Eva Signý Berger hönnuður og Baldvin Þór Magnússon hljóðhönnuður í samvinnu við sýningarstjóra og hóp kvenkyns dansara. \n  \nSýningin er samstarfsverkefni við Listahátíð í Reykjavík. \n  \n  \nLjósmynd: Owen Fiene\, 2021
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/alda/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/alda_pr-photo-by-owen-fiene.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220919
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220602T132809Z
LAST-MODIFIED:20220916T100444Z
UID:23571-1654732800-1663545599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Stitches and Threads
DESCRIPTION:Stitches and Threads is an exhibition of works by contemporary Icelandic artists who embroider or make use of the needle and thread as a tool in their art. They either look to the past to work with the heritage of the craftsmanship and its tradition\, or employ the needle as a tool in progressive experiments with other media. The exhibition includes new and recent works by a varied group of artists\, both representatives of the younger generation\, and artists who have made their mark on the Icelandic art scene. What they all share is that they have lovingly taken to the needle as an important tool in their artistic practices. The works reflect a vast range of subject matter\, as they confront social issues alongside the poetic of everyday life and tenderness of nostalgia. \nThe sewing needle has long been a popular tool for art creation and decoration. Mainly by the hands of women who have sought to maintain traditional craft\, along with the urge to develop new and creative ways to work with needle and thread. Embroidery\, alongside carving\, were by far the most common media for artists in Iceland during the 20th Century. Temporarily set aside for other techniques\, it was renewed as part of the feminist revolution of the eighties and in the development of feminist art. Today we see even more diverse signs of the return to embroidery within the field of art\, not only in Iceland\, but internationally in contemporary art. What sparks this increased interest and visibility? What motivates contemporary artists to take to the needle in making their work? \nThis exhibition takes viewers on a journey through this specific sub-discipline of textile art\, where diversity and creative joy are prominent. The exhibition reflects the growing interest in handcrafts\, in recent years it having become more common for artists around the world to use this traditional method to create diverse and exciting works of art. \nExhibiting artists include Agnes Ársælsdóttir\, Anna Líndal\, Anna Andrea Winther\, Eirún Sigurðardóttir\, Erla Þórarinsdóttir\, Guðný Rósa Ingimarsdóttir\, Guðrún Bergsdóttir\, G.Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir\, James Merry\, Kristinn G. Harðarson\, Kristín Gunnlaugsdóttir\, Loji Höskuldsson\, Petra Hjartardóttir and Rósa Sigrún Jónsdóttir. \nThe exhibition is a part of Reykjavík Arts Festival. \nCurators: Birkir Karlsson and Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/stitches-and-threads/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/nike_joklasoley_james_large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220725
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220530T161633Z
LAST-MODIFIED:20220530T161818Z
UID:23457-1654128000-1658707199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ingibjörg Sigurjónsdóttir: De rien
DESCRIPTION:Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar De rien eftir Ingibjörgu Sigurjónsdóttur fimmtudaginn 2. júní kl. 17 í Kling & Bang. Á sýningunni stillir Ingibjörg fram þrettán nýjum höggmyndum\, teikningum\, lágmyndum og rýmisverkum\, sem unnin voru sérstaklega fyrir Kling & Bang. \nÍ tilefni af sýningunni kemur út fyrsta bók Ingibjargar\, Heiglar hlakka til heimsendis\, sem gefin er út af Tunglinu forlagi. \nÞessu lýkur öllu\, bara mishratt. Allt eyðist og máist út. Nema það sem skemmist og hverfur snögglega. Mig langar að stöðva tímann\, hægja á eyðileggingunni. Ekki glata mér eða þér. \nNúllið \ná núlli \nÞetta kemur alls ekki út á núlli. Eyðingin safnast upp. Litlaus hjúpur af hinu og þessu. Upplituð skel af engu. Upplitað núll. \nEn þetta ekkert\, þetta núll\, er samt til. Það er áþreifanlegt. Það er hægt að kveikja á því\, brenna það niður. Og þá fyrst mögulega er það orðið ekkert. En ég ætla ekki að gera það. Hah! Ég neita að brenna þetta núll. Það fer vel í hendi. Passar í lófann. Svindlar á kerfinu. Það er upplitað öðru megin. Litirnir eru að mást út. Sá skærbleiki orðinn föl ferskjuslikja\, blái reyndar ennþá sterkur\, týpískt. Ég hef ekki gætt þess nógu vel. Sólin sem ég elska\, dýrka og sakna skemmir allt. Og ég held kokhraust á engu. Það var ekkert. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og er styrkt af Myndlistarsjóði \nIngibjörg Sigurjónsdóttir (f. 1985) lauk BA námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2010. Verk hennar eru höggmyndir sem tengjast gjarnan heilabrotum um mannlega tilvist\,\nlistina\, endimörk hennar og þanþol. Sýningar Ingibjargar eru innsetningar sem hún vinnur af hárnákvæmni inn í rými. Hún hefur m.a. haldið sýningar í Skaftfelli og Listasafni Reykjavíkur\, auk samsýninga í Gerðarsafni; 3 134\, Aþenu; GES-2\, Moskvu; Dimensions Variable\, Miami. Samhliða því að þróa sitt sérstæða tungumál sem myndlistarmaður hefur hún unnið í samstarfi með öðrum listamönnum\, sýningarstýrt fjölda sýninga og skrifað um myndlist. Ingibjörg býr og starfar í Reykjavík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ingibjorg-sigurjonsdottir-de-rien/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/284374011_705100823794662_8082337889423472186_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220602
DTEND;VALUE=DATE:20220912
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220525T143511Z
LAST-MODIFIED:20220916T100839Z
UID:23353-1654128000-1662940799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svarthvítt
DESCRIPTION:Andstæður og ólíkir hlutir\, viðhorf og sjónarhorn. Það sem skilur okkur að getur einnig tengt okkur saman. Fimm listamenn sem vinna með svart-hvítar ljósmyndir eiga verk á þessari sýningu. Listamennirnir nálgast viðfengsefnin á ólíkan hátt og myndefnin eru einnig margvísleg: landslag\, fólk\, sögur\, staðir og stemning. Andstæður og ógnir\, rólegheit og væntumþykja og fjölmargar birtingarmyndir daglegs lífs\, ævintýra\, menningar\, hins óþekkta og þess kunnuglega. \nListamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Christopher Taylor\, Katrín Elvarsdóttir\, Páll Stefánsson og Spessi. Bakgrunnur þeirra er fjölbreyttur\, sem kemur glögglega fram í verkunum. Á sama tíma er margt sem sameinar þau\, þegar betur er að gáð. \nSýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/black-and-white/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/8-agnieszka_sosnowska_vefur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220601
DTEND;VALUE=DATE:20220801
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220602T123106Z
LAST-MODIFIED:20220916T100822Z
UID:23545-1654041600-1659311999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hrafn Hólmfríðarson Jónsson (Krummi): Bótaþegi
DESCRIPTION:Bótaþegi er áhrifaríkt og persónulegt ljósmyndaverk Hrafns Hólmfríðarsonar Jónssonar (Krumma) sem fjallar um þann veruleika að vera fatlaður og lifa við fátækt í íslensku velferðarkerfi 21. aldarinnar – að líða efnislegan skort í einu best stæða ríki heims. Í verkinu kallast hið persónulega á við hið stóra samfélagslega samhengi og úr verður upplifun sem snertir\, vekur til umhugsunar og býður okkur nýja sýn. Hér er dregin upp sterk mynd af samspili markaðar og velferðarkerfis í þjóðfélagi þar sem skilaboðin eru skýr: Hamingjan er fólgin í vaxandi kaupmætti. Hver er þá staða þess sem ekki getur tekið þátt í neyslukapphlaupinu? \nKrummi sem er fæddur í Reykjavík árið 1990 útskrifaðist úr Ljósmyndaskólanum snemma árs 2021 og hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir sterkar stemningar og næmt vald á ljósmyndamiðlinum. Hann hefur sýnt í Gallerí Porti\, Ásmundarsal\, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og á Copenhagen Photo Festival. \nLjósmyndir Krumma verða sýndar í Pósthússtræti við Austurvöll þar sem gestir og gangandi geta notið þeirra fram eftir sumri.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hrafn-holmfridarson-jonsson-krummi-bene-fits/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/010b03ee-f268-4662-8d3d-dd64dc86805b_boCC81taC3BEegi-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220601
DTEND;VALUE=DATE:20220901
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220602T120243Z
LAST-MODIFIED:20220916T100816Z
UID:23538-1654041600-1661990399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Steinunn Thorarinsdottir: BRYNJUR
DESCRIPTION:Á torginu fyrir framan Hallgrímskirkju birtast þöglar\, kyrrstæðar mannverur. Brynjuklæddar og ögrandi standa þær gegnt varnarlausum\, kynlausum fígúrum sem þrátt fyrir berskjöldun sína bjóða valdinu byrginn. \nHér leika saman andstæður og kraftar af ólíkum toga en þó kvikna einnig hugmyndir um samruna – um mögulegt samtal\, tengsl hins gjörólíka. \nRótina að Brynjum\, mögnuðu útilistaverki Steinunnar Þórarinsdóttur\, má rekja aftur til dvalar listakonunnar í New York-borg fyrir hartnær áratug. Í Metropolitan-listasafninu heillaðist Steinunn af umfangsmikilli brynjueign safnsins og því tákni valds og ofbeldis sem slík herklæði eru. Í kjölfarið hófst samstarf listakonunnar og safnsins en brynjurnar sem sjást nú við Hallgrímskirkju eru byggðar á þremur dýrmætum miðaldabrynjum frá Þýskalandi\, Englandi og Ítalíu sem voru þrívíddarskannaðar með mikilli nákvæmni af starfsfólki Metropolitan-safnsins og upp úr þeim unnir skúlptúrar úr áli. \nVerkið hefur þegar verið sýnt við góðar undirtektir í New York og Kaupmannahöfn og fær nú loksins að sjást á Íslandi. Steinunni þarf vart að kynna en hinn fígúratívi heimur hennar\, sem gjarnan birtist okkur í óvæntu samhengi í borgarlandslagi\, hefur hrifið listunnendur víða um heim\, meðal annars í Bandaríkjunum\, Kanada\, Evrópu og Ástralíu. \nUpplýsingar um tilurð sýningarinnar má sjá í fordyri kirkjunnar meðan skúlptúrarnir standa á Hallgrímskirkjutorgi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/steinunn-thorarinsdottir-armors/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/06/d5f08dca-7ca8-46cb-97e1-d359947b2897_IMG_2763-edit_7.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220601
DTEND;VALUE=DATE:20220620
DTSTAMP:20260530T085144
CREATED:20220525T141500Z
LAST-MODIFIED:20220621T113149Z
UID:23346-1654041600-1655683199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Listahátið í Reykjavík
DESCRIPTION:Listahátíð í Reykjavík er þverfagleg listahátíð með áherslu á nýsköpun. Hún fer fram í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum um alla borg og teygir sig jafnframt út fyrir borgarmörkin. \nListahátíð í Reykjavík hefur verið leiðandi afl í íslensku menningarlífi frá stofnun árið 1970. \nHún var tvíæringur frá upphafi en á árunum 2005-2016 var hún haldin árlega. Frá árinu 2016 er hátíðin aftur orðin að tvíæringi. \nNæsta hátíð fer fram 1.-19. júní 2022. \nMikil listræn fjölbreytni er einkenni Listahátíðar í Reykjavík. Hún vinnur með og leiðir saman opinberar stofnanir og sjálfstæða hópa listamanna á öllum sviðum menningarlífsins. Hún hefur beint frumkvæði að fjölda verkefna\, í hefðbundnum og óhefðbundnum rýmum\, er alþjóðleg listahátíð sem starfar á breiðum vettvangi. Listahátíð hefur starfað með eða flutt verk eftir mikinn fjölda listamanna. \n\n\n\nHér má finna dag-skrá hátíðarinnar á auðlesnu máli. \n\n\n\n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/reykjavik-arts-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/900257af-92f9-433c-a7a9-0f5f36513a49_temp-hero.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR