BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230204
DTEND;VALUE=DATE:20230918
DTSTAMP:20260530T041314
CREATED:20230131T160219Z
LAST-MODIFIED:20231013T123103Z
UID:29170-1675468800-1694995199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Gestirnir
DESCRIPTION:The Visitors – óður vináttu við tónfall rómantískrar örvæntingar. Hópur vina og tónlistarmanna safnast saman í kjörlendi bóhemíunnar\, í ljósaskiptunum\, á hinum stórbrotna og hnignandi Rokeby Farm í Upstate New York. Staðurinn verður vettvangur þess sem Ragnar kallar feminískt\, níhilískt gospel lag: marglaga portrett af vinum listamannsins\, könnun á möguleikum tónlistar í kvikmyndaforminu og dregur titil sinn af síðustu plötu ABBA\, The Visitors\, sem mörkuð var aðskilnaði og ósigri. Lagið er samið við textabrot úr myndbandsverkum og gjörningum Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur.  \nThe Guardian valdi The Visitors besta listaverk 21. aldarinnar eftir að það var fyrst sett upp í Migrossafninu í Zürich 2012. Verkið hefur farið sigurför um helstu listasöfn heims og hefur einungis einu sinni áður verið sýnt á Íslandi\, í Kling og Bang 2012. \nRagnar Kjartansson (f. 1976) nam við Listaháskóla Íslands\, Konunglegu Akademíuna í Stokkhólmi og Hússtjórnarskólann í Reykjavík. Einkasýningar hans hafa verið haldnar í mörgum af virtustu listasöfnum heims og hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson. \nRagnar Kjartansson\, The Visitors\, 2012. Myndband á níu skjám\, 64 mínútur. Með leyfi listamannsins\, Luhring Augustine\, New York og i8 gallerí\, Reykjavík.\nLjósmynd: Elisabet Davids.\nTBA21 Thyssen-Bornemisza Art Contemporary Collection\, lánaði verkið.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-the-visitors/
LOCATION:Akureyri Art Museum\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/listasafn-akureyrar-ragnar-kjartansson.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20220815
DTSTAMP:20260530T041314
CREATED:20210824T104428Z
LAST-MODIFIED:20220916T110501Z
UID:18613-1630108800-1660521599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Undirheimar Akureyrar
DESCRIPTION:Ragnar Kjartansson er einn af virtustu listamönnum þjóðarinnar – þekktur fyrir vídeóverk\, málverk\, gjörninga og innsetningar. Ragnar sýnir nýtt útilistaverk sem er sérstaklega unnið fyrir svalir Listasafnsins á Akureyri og hefur beina tilvísun í akureyrskt samfélag\, eins og Ragnar orðar það sjálfur: „Á Akureyri er allt aðeins meira í lagi en annars staðar.“ \nÞað örlar oft á kaldhæðni í verkum Ragnars og koma þau áhorfandanum sífellt á óvart með ákveðinni framsækni tengdri þjóðarsálinni\, sögunni og tilvist listamannsins innan samfélagsins eða utan þess. \nRagnar Kjartansson er fæddur í Reykjavík 1976. \nHann lauk námi frá myndlistadeild Listaháskólans 2001 og var gestanemandi í Konunglegu akademíunni í Stokkhólmi 2000. Hann stundaði auk þess nám við Hússtjórnarskólann í Reykjavík 1996-97. Ragnar hefur haldið einkasýningar í mörgum af virtustu listasöfnum heims s.s. Musée d’art contemporain de Montréal í Kanada 2016\, Kunstmuseum í Stuttgart í Þýskalandi 2019 og Metropolitan Museum of Art í New York í Bandaríkjunum 2019. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum 2009. \nSýningarstjóri: Hlynur Hallsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-undirheimar-akureyrar/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/kjartansson_scandinavianpain_press.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210507
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T041314
CREATED:20210824T122732Z
LAST-MODIFIED:20220916T105930Z
UID:18699-1620345600-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnar Kjartansson: Sumarnótt
DESCRIPTION:Á björtum sumarmánuðum sýnir Listasafn Íslands vídeóinnsetninguna Sumarnótt (Death Is Elsewhere) eftir Ragnar Kjartansson sem hann tók upp á íslenskri nótt\, þegar aldrei dimmir. Þetta sjö rása verk er ein þeirra stóru vídeóinnsetninga sem hafa verið áberandi í listsköpun Ragnars síðustu ár þar sem endurtekningar\, tími og rúm leika veigamikið hlutverk. \nÍ Sumarnótt  er sótt á kunnugleg mið þar sem andi rómantíkur og sæluríkis er alls ráðandi. Áhyggjuleysi og angurværð svífur yfir vötnum þar sem ung pör ganga um fábrotið undirlendi og syngja við gítarleik. Með samhverfri mynd og síendurtekinni laglínu dregst áhorfandinn inn í óendanleika hringrásar verksins þar sem feigðinni er haldið fyrir utan um leið og stöðugt er minnt á hana. \nSumarnótt  er tekið upp í Eldhrauni\, skammt frá upptökum hinna sögulegu Skaftárelda sem ollu miklum hörmungum á Íslandi og víða í Evrópu síðla á 18. öld. Ragnar vísar til eldsumbrotanna og sögunnar með vali á staðsetningu og fléttar verkið einnig saman við íslenska listasögu\, til að mynda með vísan í landslagsmyndir Jóns Stefánssonar og ekki síst í sjálfa sumarnóttina sem var íslenskum landslagsmálurum afar kært myndefni framan af síðustu öld\, þegar fyrstu kynslóðir íslenskra listamanna komu fram. \n  \nRagnar Kjartansson fæddist í Reykjavík árið 1976. Hann stundaði nám við Listaháskóla Íslands 1997–2001\, auk skiptináms við Konunglegu listakademíuna í Stokkhólmi. \nRagnar er þekktasti myndlistarmaður þjóðarinnar nú um stundir og eru verk hans sýnd í virtum söfnum víða um heim. \nRagnar var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2009 og árið 2019 var vídeóinnsetning hans The Visitors  valið besta listaverk 21. aldar af Guardian. Death Is Elsewhere var fyrst sýnt í Metropolitan-safninu í New York árið 2019 og er þetta í fyrsta sinn sem verkið er sett upp hér á landi. \nVerkið er tileinkað Carolee Schneemann.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnar-kjartansson-sumarnott/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/04/die.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T041314
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR