BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230522
DTSTAMP:20260530T074830
CREATED:20230511T153001Z
LAST-MODIFIED:20230530T121616Z
UID:30909-1683331200-1684713599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Opnun
DESCRIPTION:Samsýning tólf listamanna\, sem Ragga og Magga Weisshappel hafa tekið tali í Opnun II í Ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldum í vor. \nBirgir Snæbjörn Birgisson\, Erla Þórarinsdóttir\, Hekla Dögg Jónsdóttir\, Hildigunnur Birgisdóttir\, Kristján Guðmundsson\, Melanie Ubaldo\, Páll Haukur Björnsson\, Pétur Magnússon\, Ragna Róberts\, Rakel McMahon\, Sigurður Guðjónsson og Sigurður Guðmundsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/opnun-y-gallery/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/343339513_1589494401456499_304102351360448798_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220402
DTEND;VALUE=DATE:20220516
DTSTAMP:20260530T074830
CREATED:20220411T162257Z
LAST-MODIFIED:20220517T065323Z
UID:22949-1648857600-1652659199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Three Rearrangements - a Commonality of Escape
DESCRIPTION:Verið velkomin á opnun sýningarinnar Three Rearrangements – A Commonality of Escape. Á sýningunni sýna listamennirnir Daníel Ágúst Ágústsson\, Pétur Magnússon\, Pier Yves Larouche og Richard Müller glæný verk sem unnin eru sérstaklega inn í sali Kling & Bang. Sýningin stendur til 15. maí \nDaníel Ágúst Ágústsson (f.1996)\nUmfangsmiklir skúlptúrar og innsetningar Daníels Ágústs eru unnir með aðferðum og efnivið sem vísar í iðnað og arkítektúr. Verk hans reyna gjarnan á þekkingu áhorfandans á umhverfi sínu þar sem rýnt er í tengsl milli skilnings og skilningsleysis. Daníel Ágúst útskrifaðist með BA gráður í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og hefur síðan þá verið iðinn í sinni myndlist. \nPier Yves Larouch (f. 1988) býr og starfar í Montreal. Verk Pier Yves birtast sem hljóðverk og innsetningar þar sem hann reynir að hlutgera samband óáþreyfanlegra og yfirséðra eiginleika ákveðins umhverfis\, svo úr verður einskonar könnun tákna og tilfinninga sem fljóta samhengislaust. Í verkum sínum bendir Pier Yves í átt að hinum fjölbreyttu blæbrigðum túlkunar og leitast hann við að varpa ljósi á óræðnina milli þess augljósa og algleymis. \nRichard Müller (f. Kanada 1988) býr og starfar í London. Richard notast gjarnan við stafræna tækni í verkum sínum\, oft á tíðum á vitlausan hátt\, til að skapa hljóðverk\, vídeóverk og innsetningar. Verk hans kanna möguleika og getu nútímatækni til að pota í hefðbundna miðla og form myndlistar með því að innleiða stafræn vídeó og hljóð í skúlptúra og innsetningar. Richard hlaut MFA frá Slade School of Art í Bretlandi og er nú í námi við University College London þar sem hann vinnur að doktorsgráðu í jarðfræði. \nPétur Magnússon (f. 1958) fæddist í Reykjavík. Eftir menntaskóla fór hann í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan áfram á Accademia delle belle Arti í Bologna\, Ítalíu og að lokum í Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam\, Hollandi. Að loknu námi árið 1986 var hann búsettur í Amsterdam til ársins 2003\, en flutti þá til Íslands. Í Hollandi tók hann þátt í stofnun listaverkabókabúðarinnar „Boekie Woekie“ sem jafnframt er gallerí og útgefandi. Hann starfaði með fyrirtækinu fyrstu árin. Boekie Woekie kynnti síðan verk hans á „Art Frankfurt“ listamessunni í Þýskalandi árið 1996. Pétur lærði málun á Ítalíu og grafík í Hollandi og eldri verk hans bera þess merki. Með tímanum hefur hann fært sig yfir í ljósmyndir og skúlptúr\, oft lágmyndir og einkennast aðferðir hans oft á blöndu af stálsmíði og ljósmyndun. Verk hans láta reyna á skynjunina og ögra henni meðan þau bjóða upp á nýja möguleika til að skynja umhverfið. Verkin eru oftar en ekki háð sýningarrýminu (e. site specific). Efni og fjarvídd spila oft stórt hlutverk í að eiga við umhverfið á heimspekilegan og skoplegan máta.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/three-rearrangements-a-commonality-of-escape/
LOCATION:Kling & Bang\, The Marshall House\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/04/277667646_664267977877947_4634642236920587214_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210904
DTEND;VALUE=DATE:20211001
DTSTAMP:20260530T074830
CREATED:20210830T130741Z
LAST-MODIFIED:20220825T133402Z
UID:18791-1630713600-1633046399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:30x30
DESCRIPTION:Laugardaginn 4. september\, kl. 16\, opnar samsýningin 30×30 í Gallery Port. \nÁ sýningunni kemur saman fjölbreyttur hópur listafólks\, 30 manns\, og sýna þrjátíu ný verk. Sýningin er framhald af sýningunni 20×20 en nú hafa bæst 10 listamenn. \nVerkin eiga reikningsdæmið 30×30 sameiginlegt\, en hverjum svo í sjálfsvald sett hvernig útkoman er útsett. Útkoman er fjölbreytt sýning og spanna verkin marga miðla. \nListamennirnir koma hver úr sinni áttinni\, eru af hinni og þessari kynslóðinni\, bæði gömul og ný í hettunni. \nSýningin stendur til 30. september og eru opnunartímar Gallery Port í september frá fimmtu- til laugardags frá 12:00 – 17:00. \nListamenn:\nAuður Ómarsdóttir\nArngrímur Sigurðsson\nÁrni Már Erlingsson\nÁsgeir Skúlason\nÁslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir\nDodda Maggý\nFreyja Reynisdóttir\nFritz Hendrik\nGeirþrúður Einarsdóttir\nGuðlaug Mía Eyþórsdóttir\nGuðrún Heiður Ísaksdóttir\nHallgrímur Helgason\nHelgi Þórsson\nHulda Hákon\nJón Óskar\nKristín Gunnlaugs\nKristín Karólína\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\nLoji Höskuldsson\nMagnús Helgason\nPétur Magnússon\nSalka Rósinkranz\nSigurður Angantýsson Hólm\nSigurður Atli Sigurðarson\nSigurður Ámundason\nSigurlaug Gísladóttir\nSkarphéðinn Bergþóruson\nSvavar Pétur Eysteinsson\nSteinunn Marta Önnudóttir\nÞórdís Erla Zoëga
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/30x30/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/30-at-port.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210902
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T074830
CREATED:20210830T122814Z
LAST-MODIFIED:20220916T110521Z
UID:18780-1630540800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:FJÖLFELDI - HLUTFELDI - MARGFELDI
DESCRIPTION:Listasafn Reykjanesbæjar opnar sýningu í samvinnu við MULTIS. \nAðstandendur verkefnisins eru: Helga Óskarsdóttir\, Ásdís Spanó og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskrar samtímalistar. \nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn  listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nListamenn sem eiga verk á FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI eru: Einar Örn Benediktsson\, Gjörningaklúbburinn – Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jónsdóttir\, Guðjón Ketilsson\, Hulda Vilhjálmsdóttir\, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir\, Ívar Valgarðsson\, Jóna Hlíf Halldórsdóttir\, Karlotta Blöndal\, Magnús Helgason\, Magnús Pálsson\, Pétur Magnússon\, Ragnheiður Gestsdóttir\, Steingrímur Eyfjörð\, Tumi Magnússon\, Þór Sigurþórsson\, Þórdís Jóhannesdóttir\, Baldur Geir Bragason\, Davíð Örn Halldórsson\, Gabríela Friðriksdóttir\, Guðmundur Thoroddsen\, Kristín Eiríksdóttir\, Logi Leo Gunnarsson\, Helgi Þórsson\, Lilja Birgisdóttir\, Sara Riel\, Sirra Sigrún Sigurðardóttir\, Snorri Ásmundsson\, Hulda Rós Guðnadóttir\, Þórdís Erla Zoëga. \nSýningin stendur til og með 14. nóvember 2021. \n\n\n\n\nAð geta búið til fleiri en eitt eintak af sama verki hefur lengi fylgt starfi listamannsins. Margir myndlistarmenn hafa reynt sig við formið sem býður upp á annars konar möguleika en hið einstaka verk\, og er einhverstaðar á rófi á milli myndlistar og framleiðsluafurðar. Verk sem unnin eru í fjölriti eru verðlögð á annan hátt\, eru ódýrari og þar með gerð aðgengileg fyrir stærri hóp til eignar. Verkið fer af stalli hins einstaka og verður hlutur (object) sem fleiri en einn getur átt\, eru gjarnan smærri\, og staðfesta gildi sitt ekki einungis með því að vera verk eftir ákveðinn listamann\, heldur einnig með því að vera tölusett og áritað eintak og þá orðið hluti af stærri sögn sem er mikilvægt fyrir þann sem eignast verkið.Fjölfeldi geta verið tví- eða þrívíð og hægt er að búa þau til með margvíslegum aðferðum. Á fimmtándu öld fóru listamenn að þróa aðferðir til að geta steypt verk í mót því það þótti mikill kostur að geta dreift verkum sem víðast. Þetta varð til þess að sjónræn menning efldist til muna í þeim löndum sem þekkingin var til staðar.  Á átjándu öld fundu listamenn til dæmis upp aðferðir sem gerðu þeim kleift að móta skúlptúrverk úr t.d. leir\, bronsi\, gifsi og postulíni. Að steypa skúlptúra með því að nota mold eða sand varð vinsælt við framleiðslu verka sem gerð voru í upplagi og eru þær aðferðir ennþá mikið notaðar við gerð myndlistar. Einnig falla aðferðir grafíklistarinnar undir þessa skilgreiningu en verk unnin á þann hátt hafa þann ótvíræða kost að auðvelt er að gera sama verkið í mörgum eintökum. \nMeð tilkomu koparstungu á tímum barokksins verður dreifing og fjölföldun myndverka almennari. Koparstungan er aðferð sem notuð er við gerð grafíkmynda en þar er myndin grafin með nál í koparplötu og síðan þrykkt á pappír. Verkið Los caprichos\, 1797 eftir Francisco Goya var með fyrstu þekktu fjölfeldunum sem búið var til í takmörkuðu upplagi.  Ef litið er til listaverka tuttugustu aldar er verk Marcel Duchamps\, Rotoreliefs frá árinu 1935 eitt af fyrstu fjölfeldum nútímalistarinnar og í þeirri mynd af fjölfeldum sem við þekkjum í dag\, en verkið er sería af sex snúningsdiskum sem voru gefnir út í 500 eintökum. \nÁ sýningunni FJÖLFELDI – HLUTFELDI – MARGFELDI er sjónum beint að verkum tuttugu og níu samtímalistamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjölfelda (Multiple). Til þess að listaverk geti fallið undir þá skilgreiningu\, þurfa verkin að vera gerð í þremur eða fleiri eintökum. \nOrðið HLUTFELDI kemur úr orðasmiðju Magnúsar Pálssonar en á sýningunni má finna flest af þeim verkum þar sem hann vinnur með þessum hætti. Á sýningunni má finna þau verk Magnúsar sem enn eru til í fórum listamannsins og fjölskyldu hans en mörg af verkum hans eru nú í eigu safna eða í einkaeigu. Önnur verk á sýningunni eru unnin í samtali við MULTIS verkefnið yfir tveggja ára tímabil. \nMULTIS sérhæfir sig í kynningu\, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalistamanna og er markmið MULTIS að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir listafólk í fremstu röð íslenskra samtímalistar. \nMULTIS setur fókusinn á fjölfeldi\, verk sem gerð eru í a.m.k. þremur eintökum. Þetta geta bæði verið prent og skúlptúrar\, allt eftir því hvað hentar hugmynd listamannsins hverju sinni.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/fjolfeldi-hlutfeldi-margfeldi/
LOCATION:Listasafn Reykjanesbæjar\, Duusgata 2-8\, Reykjanesbær\, 230\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/multis.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T074830
CREATED:20210817T140238Z
LAST-MODIFIED:20220916T110451Z
UID:18400-1630108800-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Samfélag skynjandi vera
DESCRIPTION:Haustsýning Hafnarborgar í ár er Samfélag skynjandi vera\, í sýningarstjórn Wiolu Ujazdowska og Huberts Gromny. Með því að bjóða fjölbreyttum hópi – listamönnum\, fræðimönnum og fleirum – að taka þátt í sýningunni vilja sýningarstjórarnir skapa vettvang þar sem margar raddir mætast og ólíkir möguleikar tjáningar og skynjunar eru skoðaðir. Þannig mun sýningin bjóða upp á margvíslega nálgun\, með áherslu á tíma\, ferli og flutning\, þar sem rýmið verður virkjað\, kannað og nýtt á marga vegu\, svo safnið breytist í stað til að mynda tengsl. \nMeð því að líta á tengingu okkar við heiminn sem samfélag skynjandi vera getum við nálgast efnið á nýjan hátt\, hvort sem við eigum við samband manns og náttúru\, manns og menningar eða samband mannsins við sjálfan sig. Hugtakið skynjandi vera leysir okkur því undan viðjum gildishlaðinna orða\, svo við getum ímyndað okkur hvað það er að vera manneskja í stærra samhengi. Meginhugmyndin er að spyrja spurninga um sagn- og félagsfræðilega merkingu hins mannlega\, svo sem hún varðar það hvað og hver við teljum tilheyra samfélaginu. Hafnarborg og saga hússins eru einnig áhugaverður staður fyrir slíka rannsókn\, enda má segja að sú breyting sem gerð var á nýtingu hússins\, er því var breytt úr apóteki í safn\, hafi falið í sér táknræna umbreytingu\, þar sem horfið var frá læknisfræðilegum aðferðum\, þ.e. lyfjafræðinni\, og þess í stað leitað til hinna andlegu og menningarlegu áhrifa listarinnar. \nÞá vakna spurningar um togstreituna á milli lista og vísinda\, þar sem hægt er að líta á listina sem hugrænt verkfæri sem hjálpar okkur að greina það sem ekki er hægt að skýra með vísindunum einum saman – tengslin á milli hins þekkta og hins óþekkta. Með því að þenja skynfærin gefur sýningin gestum tækifæri á að upplifa stað og stund og leiða hugann að mikilvægi minninga og mismunandi samskiptaleiða\, tækniþróunar og fjarskipta\, er hafa valdið miklum breytingum á íslensku samfélagi\, sem er að verða æ fjölbreyttara. Þessi fjölbreytileiki hefur jafnframt í för með sér tengingu við aðra staði\, nýjar hefðir og siði. Hver komumaður hefur ákveðna þekkingu\, eigið safn minninga\, í farteskinu\, sem hann notar til þess að takast á við nýjar aðstæður og óþekkt land. Ef við hugsum um listina sem tæki sem gerir okkur kleift að skilja hið ósýnilega eða ógreinilega getum við jafnvel nýtt hana til þess að takast á við ólíkar skilgreiningar og þætti þess að vera skynjandi vera. \nHubert Gromny er myndlistarmaður\, fræðimaður\, sýningarstjóri og rithöfundur\, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist með MA-gráðu frá Listaháskólanum í Kraków\, Póllandi\, árið 2015. Þá er hann með BA-gráðu frá Jagiellonian-háskólanum í Kraków\, þar sem hann nam við heimspekideild skólans. Í starfi sínu kannar Hubert mörkin á milli listar\, fræða og dægurmenningar\, í því skyni að vinda ofan af stjórnmála- og félagsfræðilegum gildum sjónlista- og menningar. \nWiola Ujazdowska er myndlistarkona\, gjörningalistamaður og listfræðingur\, búsett í Reykjavík. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Kóperníkusarháskólanum í Toruń\, Póllandi\, þar sem hún lagði einnig stund á málaralist við myndlistardeild skólans. Á árunum 2012-2013 stundaði hún svo nám við CICS í Köln\, Þýskalandi. Verk Wiolu fást að mestu við líkama og kyn á hinu pólitíska sviði\, með tilliti til fólksflutninga\, stéttaskiptingar\, landamæra og trúarkenninga\, auk þess sem hún tekst á við menningar- og félagsfræðilega strúktúra í heimspekilegu\, mann- og menningarfræðilegu samhengi. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir\, Angela Rawlings\, Anna Wojtyńska\, Dance Africa Iceland\, Freyja Eilíf\, Gígja Jónsdóttir\, Hildur Ása Henrýsdóttir\, Hubert Gromny\, Kathy Clark\, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir\, Melanie Ubaldo\, Michelle Sáenz Burrola\, Nermine El Ansari\, Pétur Magnússon\, Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson\, Styrmir Örn Guðmundsson\, Ufuoma Overo-Tarimo og Wiola Ujazdowska. \nÞessi sýning verður sú ellefta í haustsýningarröð Hafnarborgar en verkefnið hefur það að markmiði að gefa sýningarstjórum sem ekki eiga langan feril að baki kost á að senda inn tillögu að sýningu í safninu. \nÞað er Listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/samfelag-skynjandi-vera/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/Hafnarborg-2021-Samfelag-skynjandi-vera-slideshow.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR