BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230812
DTEND;VALUE=DATE:20230901
DTSTAMP:20260530T102127
CREATED:20230810T110108Z
LAST-MODIFIED:20230829T135614Z
UID:32279-1691798400-1693526399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Patty Spyrakos: Desert Island
DESCRIPTION:Patty Spyrakos is a mixed media sculptor and painter living in Reykjavik. She was born in Chicago to Greek immigrants. She had several transcendental experiences in her late teens. Studied sensory systems and perception at university\, as well as ceremonial magick and TCM. She was a major user of irc and the world wide web at its inception. Taught herself HTML and photoshop and found her way into working in ux design in San Francisco for a decade. She had children\, took ceramics classes\, and is now experimenting with material and creates work based on exhibition location\, or themes tied to the evolution of the psyche and an evaluation of the formation of all manner of bonds between self and society.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/patty-spyrakos-desert-island/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/364117102_845245870509052_3457966425102595311_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221028
DTEND;VALUE=DATE:20221121
DTSTAMP:20260530T102127
CREATED:20221027T134901Z
LAST-MODIFIED:20221201T150621Z
UID:27275-1666915200-1668988799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Patty Spyrakos: Svart tungl dvínar
DESCRIPTION:Óttinn við nornina var árhundruðir í mótun. Nornin er ein af sárafáum ímyndum okkar um sjálfstæðar konur með völd; galdrar voru í miklum metum í Egyptalandi til forna\, og ekki litið á þá sem aðskilda trúarbrögðum\, en síðar voru þeir fordæmdir í flestum siðmenningum sem hverfðust um skipulögð trúarbrögð.\nMeð fjölkynngi öðlast man vald yfir örlögum sínum\, og á í samtali við handanheima\, í skipulögðum trúarbrögðum er man komin upp á vilja guðs/-anna. Áróður um ímynd nornarinnar skóp ótta við hana og olli því að hún var jafnvel skrifuð út úr mannkynssögunni; nornaveiðar ágerðust með vexti kapítalismans\, og jafnframt með greftri eftir auðlindum jarðar.\nNornin stendur fyrir virðingu fyrir náttúrunni\, ást á lífinu og frjálsan vilja.\n„Nornaveiðar í öllum sínum breytilegu myndum eru einnig öflug aðferð til þess að rústa félagslegum tengslum og læða þeirri hugmynd inn hjá fólki að undir niðri leyni nágranninn\, vinurinn eða elskhuginn annarri hlið á sér og þrái völd\, kynlíf\, auð\, eða vilji einfaldlega láta illt af sér leiða.” – Sylvia Federici\n„Sýningin dregur einnig fram fegurð og mikilfengleika sandsins. Í hverju korni hans er að finna sögu staðar. Þar má finna veraldarsöguna. „Sandur er fagurt efni\, dularfullt og óendanlega breytilegt. Hvert einasta sandkorn í flæðarmálinu er niðurstaða ferla sem eiga rót að rekja til óræðs upphafs lífsins eða jafnvel sjálfrar jarðarinnar.” – Rachel Carson. In myth\, sand is the creator of dreams.\n„Það býr líf að baki þess persónuleika sem notar persónuleika sem grímur. Það getur gerst að lífið taki niður grímuna og að djúpið svari af dýpt.” – Dion Fortune\, The Goat-Foot God\n——\nPatty Spyrakos er myndhöggvari og listmálari sem leggur áherslu á blandaða tækni og er búsett í Reykjavík. Patty lauk BS-prófi í sálfræði og mannfræði við Loyola-háskóla í Chicago en í námi sínu lagði hún einkum áherslu á skynkerfi\, skyntúlkun og þróunarsálfræði. Um 20 ára skeið starfaði hún við sjónræna og gagnvirka hönnun og sem hugmyndastjóri hjá stóru alþjóðlegu tæknifyrirtæki í San Francisco. Hún lærði keramikgerð í þrjú ár við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Patty leggur í verkum sínum mikla áherslu á tilraunastarfsemi með efniviðinn og viðfangsefnið er oftar en ekki undir áhrifum frá þeim stað þar sem hún heldur til eða þar sem sýningin er haldin. Hver sýning listakonunnar vekur upp ný sjónarhorn á bæði verkum og hana sjálfa en undir niðri má skynja þróunarferli hugans\, andleg og tilfinningaleg átök\, hverfult jafnvægi\, hið yfirnáttúrulega og þróun tengsla og tenginga af öllu tagi jafnt innan sem á milli sjálfsins og samfélagsins. Hún hefur sýnt í Chicago\, Los Angeles\, Hong Kong\, Reykjavík\, og New York.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/patty-spyrakos-svart-tungl-dvinar/
LOCATION:Harbinger\, Freyjugata 1\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/patty.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20211015
DTSTAMP:20260530T102127
CREATED:20211006T151446Z
LAST-MODIFIED:20211014T104451Z
UID:19489-1633132800-1634255999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Brúnn\, bleikur\, banani
DESCRIPTION:Við erum lítil\, við lærum lag um litina. Ekki alveg alla litina en nógu marga til að taka þátt í því samtali. Stef\, orð\, byrjun og endir\, um eitthvað sem við sjáum. Kannski erum við að kynnast einhverjum lit í fyrsta skiptið\, annað hvort orðinu þá eða litnum\, það sem við tengjum orðið við. Þú hefur sennilega heyrt lagið áður en þú syngur það. Þetta er upplifun\, að læra er upplifun. Við lærum af upplifunum. Við lærum litina með lagi. \nEf við getum lært litina með lagi\, hvað annað er hægt? Getum við lært tölur með trompeti? Lært um tölvur með trjágreinum? Um geiminn með lyklum? Sumt af þessu er augljóst\, auðvitað. Eins og þegar þú lærðir um sársauka með svelli\, eða lærðir um bíla þegar hann bilaði\, eða lærðir um drauma frá dauðanum. Sumar tengingar eru viljandi\, sumar eru óvart tengingar. \nAf því það er alltaf líka eitthvað meira.Við lærum eitthvað kannski fyrst og fremst: nöfnin á litunum. En hér er ekki bara brúnn\, bleikur heldur líka banani\, og svo appelsína – talandi. Litir eru alltaf bara til á einhverju\, ekki í lausu lofti\, ok. Eitthvað til að muna\, já\, en líka til að túlka. Kannski er ekkert þá fyrst og fremst. Kannski er lærdómurinn hvernig á að beita raddböndunum\, eða að ríma\, eða kannski hvernig á að vinna saman og syngja í hópi. Kannski er það stuðlunin\, kannski erum við að læra fyst og fremst hvernig við stuðlum. Ég skal ekki segja\, það er þitt mál. \n  \nAnna Hrund Másdóttir (f.1981) vinnur tilraunakennt og óútreiknanlega með efnivið sinn. Hún lauk BS námi í stærðfræði við Háskóla Íslands árið 2006 og BA námi í myndlist við Listaháskóla Íslands árið 2010. Árið 2012 var hún nemi í listamannarekna skólanum The Mountain School of Arts í Los Angeles og útskrifaðist síðar með MFA gráðu við California Institute of the Arts. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum einka- og samsýningum\, hérlendis og erlendis. \nAuður Lóa Guðnadóttir (f.1993)er myndlistarmaður\, sem leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga\, skúlptúrs og teikningar\, listar og veruleika. Hún vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri\, fígúratíft\, og myndmál sem hún sækir í forna jafnt og nýliðna sögu.\nAuður Lóa útskrifaðist af myndlistasviði Listaháskóla Íslands 2015. Síðan þá hefur hún starfað sjálfstætt og í samstarfi við aðra listamenn\, og tekið þátt í sýningum eins og Leikfimi í Safnasafninu\, Djúpþrýstingur í Nýlistasafninu og Allt á sama tíma í Hafnarborg. Hún hlaut hvatningarverðlaun myndlistarráðs 2018 fyrir sýninguna Díana\, að eilífu sem hún tók þátt í og stýrði. Vorið 2021 opnaði hún sína fyrstu stóru einkasýningu í D-sal Listasafns Reykjavíkur en hún bar titilinn Já / Nei og samanstóð af yfir 100 skúlptúrum úr pappamassa. \nPatty Spyrakos (f. 1974) er myndhöggvari og listmálari sem leggur áherslu á blandaða tækni og er búsett í Reykjavík. Patty lauk BS-prófi í sálfræði og mannfræði við Loyola-háskóla í Chicago en í námi sínu lagði hún einkum áherslu á skynkerfi\, skyntúlkun og þróunarsálfræði. Um 20 ára skeið starfaði hún við sjónræna og gagnvirka hönnun og sem hugmyndastjóri hjá stóru alþjóðlegu tæknifyrirtæki í San Francisco. Hún lærði keramikgerð í þrjú ár við Lincoln Square Pottery Studio í Chicago. Patty leggur í verkum sínum mikla áherslu á tilraunastarfsemi með efniviðinn og viðfangsefnið er oftar en ekki undir áhrifum frá þeim stað þar sem hún heldur til eða þar sem sýningin er haldin. Hver sýning listakonunnar vekur upp ný sjónarhorn á bæði verkum og hana sjálfa en undir niðri má skynja þróunarferli hugans\, andleg og tilfinningaleg átök\, hverfult jafnvægi\, hið yfirnáttúrulega og þróun tengsla og tengingu af öllu tagi jafnt innan sem á milli sjálfsins og samfélagsins. Hún hefur sýnt í Chicago\, Los Angeles\, Hong Kong\, Reykjavík og hélt sína fyrstu einkasýningu í New York á þessu ári í Padre Gallery.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/brunn-bleikur-banani/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/banana.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR