BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230529
DTSTAMP:20260530T083017
CREATED:20230505T125907Z
LAST-MODIFIED:20230505T130108Z
UID:30868-1683331200-1685318399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Øyvind Novak Jenssen: Sleipur þari á blautum steini
DESCRIPTION:„Sleipur þari á blautum steini“ er verkefni sem byggir á æðarrækt. Sumarið 2021 dvaldi Øyvind á æðareyju fyrir utan Vega í Noregi. Eftir dvölina þar hefur hann verið heillaður af húsum fyrir æðarfugla. Í Noregi er hefð fyrir því að byggja æðarfuglahús úr efnum sem eru auðfundin á þeim stöðum sem húsin eiga að rísa\, og þau felld inn í landslagið til að líkja eftir náttúrulegum holum og hreiðrum. Eftir því sem æðarfuglaræktin verður meira og meira iðnvædd hafa húsin orðið sífellt tæknilegri. Øyvind vill ögra byggingartækninni og búa til „náttúruhús.“ Hann mun gera tilraunir með efni og form og byggja hreiður í galleríinu. Ætlun hans er að leiða áhorfendur inn í opinn heim undrunar og forvitni sem hann laðar fram með fundnu efni úr nánasta umhverfi. \nØyvind Novak Jenssen (f. 1988 NO) býr og starfar í Trysil\, litlu sveitarfélagi á skógarsvæði í austurhluta Noregs. Hann er menntaður við Listaháskólann í Osló (MA 2021) og Listaháskólann í Þrándheimi (BA 2017). Hann er einnig lærður matreiðslumaður og vinnur með aðferðir og tækni úr matreiðslu. Hann notast við leikgleði í list sinni – og sér hana sem mikilvæga leið til að nálgast viðfangsefni sem snúa að sjálfbærni\, sjálfræði vistkerfa\, sambandi okkar við náttúruna og öðrum málefnum sem við fyrstu sýn virðast sveipuð ákveðnum drunga.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/oyvind-novak-jenssen-sleipur-thari-a-blautum-steini/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/Island-1.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR