BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230206
DTSTAMP:20260530T145948
CREATED:20230113T111338Z
LAST-MODIFIED:20230113T111338Z
UID:28697-1673654400-1675641599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Drífa Líftóra Thoroddsen: Bestiarium Negativum
DESCRIPTION:\,Frá því að land var hér numið fyrir rúmum þúsund árum höfum við í senn óttast og dáðst að náttúrunni okkar. Veðurofsi og draugalegar jarðmyndanir hafa sett svip sinn á það fólk sem hér hefur búið. Þrátt fyrir það höfum við hvorki þurft að óttast flóru né fánu. Þó hefur negatífa náttúrunnar leyft okkur að sjá alls kyns verur sem voru ef til vill ekki til staðar og hafa hinar ýmsu sögur gengið manna á milli um hvurslags ófreskjur hafa sést á láði jafnt sem í legi. Þetta er okkar arfur. \nSýningin Bestiarium Negativum veltir upp spurningunni hvort sé sterkara við skrímslasýn\, það sem sést eða það sem ekki sést og skoðar mikilvægi negatífunnar í þessu samhengi. Einnig eru mörkin skoðuð hvar mynstur hættir að vera mynstur. Bestiarium Negativum sýnir í myndum hvað gerist þegar ógnarlegum ókindum er hrúgað saman í litrík mynstur og geigvænleg grös taka á sig skuggalegar myndir. \nDrífa Líftóra er í grunninn fata- og textílhönnuður en hún útskrifaðist með BA próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands 2014 og MA próf í sama fagi frá Paris College of Art 2017. Vorið 2020 útskrifaðist hún með diplómu í textíl frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Eftir útskrift hefur hún haldið tvær sýningar á handþrykktum fatalínum\, á HönnunarMars. Hún hefur alltaf haft unun af því að teikna og mála og búa til mynstur úr hinum ýmsu mótífum. Drífa er mikið náttúrubarn og þjóðsagnanörd\, en hún er mjög myrkfælin og verður auðveldlega hrædd og hefur notað listina til að vinna bug á þeim ótta.´
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/drifa-liftora-thoroddsen-bestiarium-negativum/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Illhveli-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221022
DTEND;VALUE=DATE:20221114
DTSTAMP:20260530T145948
CREATED:20221024T102426Z
LAST-MODIFIED:20221024T102645Z
UID:27096-1666396800-1668383999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurrós Guðbjörg Björnsdóttir: SKORPA
DESCRIPTION:Skorpa í stuttri ferð.\nÁ bílaplani fannst hrífa sem stóð ofan í keilu. Hrífan í keilunni varð að skúfi á hatti sem varð að keiluhatti\, sem varð að kúluhatti\, sem endaði svo að vera skotthúfa. Segir svo ekki af skotthúfinni fyrr en löngu síðar þegar hún fannst á týndu myndavélakorti. Eftir það var ómögulegt að hafa hana ekki með sér.\nSofðu rótt\, hver á þennan kodda? Dreymdi mig í heila viku þangað til koddinn hvarf. Fyrst sat koddinn tignarlegur á stéttinni\, næsta dag lá hann í rólu\, annan dag faldi hann sig í runna\, og svo koll af kolli. Hann ferðaðist um garðinn þangað til hann hvarf.\nÁ afgirtu svæði lágu útlínur af heilu heimilisbrauði og snúður á nýlögðum hellum. Það lítur allt út fyrir að einhver sé að reyna að segja mér eitthvað með stafrófi úr skorpum. Stutta ferðin fer að verða heldur löng. Þetta hljóta að vera vísbendingar um hvert ég á að fara.\n\nSigurrós G. Björnsdóttir (f. 1991) er íslenskur myndlistamaður sem býr og starfar í Antwerpen þar sem hún lauk MFA námi í myndlist frá Royal Academy of Fine Arts Antwerp árið 2021. Þar áður útskrifaðist hún með BA í vöruhönnun frá LHÍ árið 2017. Í myndlist sinni blandar hún eigin reynsluheimi\, skáldskap og áhrifum frá umhverfi sínu og miðlar með þeim ólíkum frásögnum. Sigurrós hefur tekið þátt í ýmsum sýningum erlendis og á Íslandi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurros-gudbjorg-bjornsdottir-skorpa/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/skrp.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220924
DTEND;VALUE=DATE:20221014
DTSTAMP:20260530T145948
CREATED:20221005T141749Z
LAST-MODIFIED:20221013T154453Z
UID:26779-1663977600-1665705599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Gudrita Lape: solidus liquidus
DESCRIPTION:Áherslur sýningarinnar eru meðal annars: að kynna betur notkun matar og lífefna í myndlist og að hefja umræðu um matarsóun og aktívisma því tengdan í gegnum myndlist. Verkefnið er framhald rannsóknar hennar á forgengilegum verkum þar sem náttúruleg litarefni\, matarlist og lífefni eru í forgrunni. \nGudrita útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2012 og lauk nýlega námi í textíl og tækni við Fabricademy – Fab Lab textíl akademíu í Barselóna árið 2021 þar sem meðal annars kóðun\, snjalltextíl og hönnun á náttúrulegum “efnum” (biochromes\, biocomposites\, biomaterials\, grown materials) voru kennd. Íslenska-litháíska listakonan býr bæði á Íslandi og á Spáni síðan 2020 og sýningin mun sýna brot af þessum heimi. Matarleifar\, íslensk og erlend flóra munu sameinast og umbreytast í gegnum ræktun\, gerjun og þurrkun í þrívíða innsetningu gagnvirkra sveigjanlegra og hálf sveigjanlegra efna. Verkefnið gefur Vestfirðingum sem og öðrum gestum tækifæri til að líta inn í þennan lifandi heim sem er enn ókunnugur á Íslandi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudrita-lape-solidus-liquidus/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/Gudrita-Lape-in-Fab-Lab-Ísafjördur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220520
DTEND;VALUE=DATE:20220609
DTSTAMP:20260530T145948
CREATED:20220530T165442Z
LAST-MODIFIED:20220609T114006Z
UID:23478-1653004800-1654732799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Linus Lohmann: “…something that was\, & isn´t”
DESCRIPTION:Linus Lohmann: \n“…something that was\, & isn´t” \n20.5 – 8.6 2022 \nFöstudaginn 20. maí kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Linus Lohmann í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið “…something that was\, & isn´t” og stendur til 8. júní. Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá létt spjall og veitingar. \nÁ sýningunni eru fjögur prentverk í lit og skúlptúr. Verkin eru sprottin af hughrifum og minningum um nokkrar byggingar sem hýstu Tækniminjasafn Austurlands og skemmdust í aurskriðum á Seyðisfirði í desember 2020. \nByggingar safnsins höfðu að geyma marga hluti sem eru og voru heimild um tæknisögu svæðisins og hýstu einnig nothæft tréverkstæði í gömlu skipasmíðastöðinni og prentsmiðju í fyrrum vélasal. Bæði verkstæðin nýttust Lohmann vel á sínum tíma sem uppspretta innblásturs og verkstæðisiðkunar. \nMyndirnar sem teknar voru við hreinsun eftir slysið sýna eftirleikinn og leifar tveggja herbergja á safninu\, kaffistofu og skrifstofu. \nFlestir upplifðu þessi herbergi alltaf sem einhvers konar tímahylki\, kunnuglegt og tímalaust rými. \nMyndirnar sýna þessa staði eins og þeir komu undan hamförunum. Rústað af náttúruöflunum sem knúin voru áfram af leðju og vatni. \nFyrir Lohmann kalla myndirnar fram frumskóg af órökréttu minni\, brengluð brotin vekja endurminningar og örva tilraunir til að endurbyggja rýmin eins og þau voru. \nMyndirnar eru afritaðar með marglitu ljósfjölliða ætingarferli. \nPrentin eru innrömmuð með frekar óvenjulegu efni\, POM-plasti\, sem er almennt notað í fiskiðnaði. \nSkúlptúrinn sem er til sýnis ásamt grafíkmyndunum minnir á aflagaðar byggingarnar. Við virðum fyrir okkur brotnar og breyttar spýtur úr hráu timbri\, sem vantar allar vísbendingar um fyrri tilgang\, sem aftur kallar fram nýjar birtingarmyndir. \nLohmann notaði sömu gufubeygingartækni og notuð var til að smíða tréskip til að móta skúlptúrinn\, og vísar þannig til fyrrum skipasmíðastöðvarinnar sem eyðilagðist í skriðunni. \nNú hefur svæðið verið hreinsað og fátt sýnilegt af því sem áður var. Það er því einungis minningin sem lifir eftir frá þeim tímum sem það var í notkun.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/linus-lohmann-something-that-was-isnt/
LOCATION:Outvert Art Space\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/281756968_3294201604159504_6874555449544309345_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR