The Arctic Creatures Revisited
Á sýningunni eru yfir 20 ljósmyndir eftir The Arctic Creatures, samstarfshóp þriggja listamanna – myndlistarmannsins Hrafnkels Sigurðssonar, kvikmyndagerðarmannsins og leikstjórans Óskars Jónassonar og leikarans/leikstjórans Stefáns Jónssonar. Á löngum gönguferðum um óbyggðir Íslands leika listamennirnir hlutverk í senum sem þeir semja og setja á svið og eru innblásnar af fundnum hlutum sem einnig gegna hlutverki leikmuna. …