BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211002
DTEND;VALUE=DATE:20220117
DTSTAMP:20260530T052832
CREATED:20210817T141828Z
LAST-MODIFIED:20220916T111150Z
UID:18407-1633132800-1642377599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðný Rósa Ingimarsdóttir: opus - oups
DESCRIPTION:Yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur. Verkin á sýningunni spanna rúmlega 20 ára feril Guðnýjar en sýningin er hluti af sýningarröð Listasafns Reykjavíkur sem hefur það að markmiði að rannsaka og kynna feril mikilsverðra starfandi listamanna. \nGuðný Rósa hefur á ferli sínum leitað í umhverfi sitt og reynsluheim til innblásturs. \nHún hefur unnið í fjölbreytta miðla\, líkt og hljóð og skúlptúra\, en pappírsverk hennar hafa verið fyrirferðarmikil á ferlinum. Verkin einkennast af nákvæmni og eru gjarnan skorin út\, teiknuð með fínlegum blýanti\, saumuð með tvinna og ólíkum efnum jafnvel skeytt saman. Fjölbreyttur pappír eins og kalkipappír\, arkitektapappír\, veggfóður og algengur prentpappír leikur gjarnan stórt hlutverk í verkum hennar og útkoman er einlæg og persónuleg. \nGuðný er fædd í Reykjavík 1969. Hún stundaði nám í Myndlistar- og handíðaskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í L‘Ensav La Cambre í Brussel og í HISK í Antwerpen í Belgíu. Hún hefur sýnt verk sín á einkasýningum hér á Íslandi og víðsvegar um Evrópu. Verk hennar má finna í opinberum söfnum í Frakklandi\, Belgíu\, Slóveníu og Íslandi. Guðný Rósa býr og starfar í Belgíu. \nSýningarstjóri: Ólöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudny-rosa-ingimarsdottir-yfirlitssyning/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/kynningarmynd_large.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210610
DTEND;VALUE=DATE:20211018
DTSTAMP:20260530T052832
CREATED:20210819T140253Z
LAST-MODIFIED:20220916T110015Z
UID:18466-1623283200-1634515199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld
DESCRIPTION:Horft er til nærumhverfisins í starfi Listasafns Reykjavíkur á árinu 2021 með áherslu á að sýna þá grósku sem einkennir íslenska myndlistarsenu. \nHafnarhúsið allt er vettvangur kraftmikillar sýningar á nýjum verkum ungra listamanna sem líta má á sem leiðandi afl sinnar kynslóðar um leið og draga má ályktanir um stærra samhengi innlendrar sem alþjóðlegrar samtímalistar. Nokkuð er liðið síðan staðan var tekin á þeim hræringum sem eru í deiglunni meðal þeirra listamanna sem eru í mestum vexti og blóma á sínum ferli og endurspegla viðfangsefni og nálgun samtímans. \nYfirskrift sýningarinnar er Iðavöllur. Titillinn er fengið að láni úr Völuspá og kemur þar tvisvar við sögu. Iðavöllur er staðurinn þar sem æsir hittast við frumsköpun heimsins og koma síðan aftur saman á eftir Ragnarök til þess að skapa nýja heimsmynd. \nHafnarhúsið tekur á sig hlutverk slíks Iðavallar sem vettvangur skapandi listamanna í hringiðu umbreytinga við upphaf nýrrar þúsaldar. Þema sýningarinnar er þannig hinn skapandi og umbreytandi kraftur sem býr í vinnu listamanna og hún endurspeglar fjölbreytt viðfangsefni á tímum jafnt tæknilegra sem félagslegra umbreytinga. \nVal listamanna ræðst af samspili þess með hvaða hætti þau bregðast við samtímanum og um leið hvernig sjónarhorn þeirra hefur áhrif á sjónarhorn áhorfenda. Um er að ræða listamenn sem mótað hafa listalífið hér á landi í upphafi nýrrar aldar. Þessi kynslóð er sérstök fyrir þau tímamót sem hún upplifir: Hún fellur á milli X og Y kynslóða\, í árdaga þúsaldarkynslóðarinnar. Listamennirnir muna eftir heiminum án internets og snjallsíma\, upplifa efnahagshrunið\, taka inn MeToo byltinguna\, skynja mörk jarðsögulegs tíma og mannlífstíma og horfast í augu við hamfarahlýnun. Þau taka þátt í uppbyggingu listalífs sem er að fagvæðast með tilkomu listaháskóla\, alþjóðlegra gallería og útgáfu listasögunnar. Þau eru fulltrúar kynslóðar sem tekst á við aukinn hraða\, meira upplýsingaflæði\, óljósari landamæri\, reikult kyngervi\, breytt samskiptamynstur\, nýja tækni – allt á meðan þau muna á eigin skinni það sem áður var. Þau upplifa endalok heimsins í vissum skilningi og leggja sitt af mörkum við nýtt upphaf. \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Rún Tryggvadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArna Óttarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nArnar Ásgeirsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nBjarki Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nDodda Maggý\n\n\n\n\n\n\n\n\nElín Hansdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nEva Ísleifs\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðmundur Thoroddsen\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll Haukur Björnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nRebecca Erin Moran\n\n\n\n\n\n\n\n\nStyrmir Örn Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÖrn Alexander Ámundason\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nAldís Snorradóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/idavollur-islensk-myndlist-a-21-old/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-06-22-at-11.06.03.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T052832
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR