BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221112
DTEND;VALUE=DATE:20221201
DTSTAMP:20260530T102243
CREATED:20221110T102616Z
LAST-MODIFIED:20221201T114231Z
UID:27446-1668211200-1669852799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lofthaf
DESCRIPTION:Lofthaf sýning Olgu Bergmann og Önnu Hallin opnar í Listamenn Gallerí – Skúlagötu 32   Laugardaginn 12. nóvember klukkan 16:00.\n\n“Er ímyndun ímyndun? Hverjir eru höfundar og eigendur raunveruleikans? Hvaða sannleikur er heimasmíðaður\, manngerður\, hvaða ekki? Hvað geri ég í raunveruleika sem fyrirlítur skaðlausa eðlisþætti mína? Byggi ég mér nýjan heim? Endar náttúran? Hvar? Við Ósonlag? \n\nSpurningarnar ganga sem rauður þráður í list tveggja geimfara sem búa í Reykjavík: Önnu Hallin og Olgu Bergmann\, myndlistarkvenna sýningarinnar Lofthaf sem galleríið Listamenn opnar þ. 12. nóvember 2022. Laus undan skrásetningarþörf í kauphöll má kalla listamannateymið Berghall geimferðastofnun; hún rís á óvenjulegum eldflaugnapalli fjórðu hæðar í 101-Reykjavík\, í augnhæð við sjálfa Esjuna. Þar og í útbúi á verkstæði í Vesturbæ skapa Anna og Olga leirmálverk\, myndbönd\, skúlptúra\, teikningar – afrakstur og afurðir rannsókna og skynjunar\, m.a. á geimnum.” \n\n“Á sýningunni má sjá loftmyndir af stöðum sem Anna dregur úr fjarlægðinni\, himnakroppa sem Olga tálgar úr gjöfum Jarðar. Þær spinna landslag í geimnum\, byggja og reisa ferskar heimsmyndir. Ég er ekki lengur viss um að ímyndun sé ímyndun. “ \n(textabrot úr sýningarskrá eftir  Kristínu Ómarsdóttur)\n\nOlga og Anna hafa haldið fjölda einkasýninga í söfnum og galleríum á Íslandi og erlendis og hafa tekið þátt í mörgum sýningarverkefnum bæði í samstarfi og sem einstaklingar. Þær hafa frá árinu 2005 unnið fjölmörg verk og verkefni í sameiningu.\nUm er að ræða myndlistarsýningar heima og erlendis\, til dæmis í Listasafni Íslands\, Kling og Bang Gallerí\, Safnasafninu\, í Listasafni Einar Jónssonar\, Bozar í Brussel og á norræna tvíæringnum Momentum í Moss í Noregi.  Auk þess hafa þær unnið verk fyrir opinbert rými bæði tímabundin verk í formi innsetninga innandyra og úti og verk fyrir almannarými og opinberar byggingar.\nAnna og Olga vinna með ólíka miðla og nota innsetningar\, skúlptúr\, ljósmyndun\, kvikmyndir og teikningar í verkum sínum.\nUppspretta hugmyndanna sem eru grunnur verka þeirra\, sækir innblástur í samspil manns og náttúru\, líffræði\, spáskáldskap og menningarsögulega og staðbundna þætti.\nSýningin Lofthaf stendur til 30. nóvember
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lofthaf/
LOCATION:Listamenn Gallerí\, Skúlagata 32-34\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/11/Screenshot-2022-11-10-at-10.25.26.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR