BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230120
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T044633
CREATED:20230119T131215Z
LAST-MODIFIED:20230119T131215Z
UID:28844-1674172800-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Á víð og dreif
DESCRIPTION:Listasafn Ísafjarðar býr yfir ágætri safneign sem telur um 180 verk. Hluti af verkunum má víða sjá prýða veggi í opinberum byggingum Ísafjarðarbæjar. Verkin hafa hangið á sínum stöðum í tugi ára og mörg hver lent í gini hversdagsins og horfið inn í undirmeðvitund almennings. Á þessari fyrstu sýningu ársins 2023 verða nokkur af verkunum færð í sviðsljósið á sýningu í sal Listasafnsins. Sýningin er áminning um að líta upp úr amstri hversdagsins og njóta þess sem við eigum. \nValin voru 6 málverk eftir 4 þjóðþekkta listamenn síðustu aldar; Jóhannes S. Kjarval\, Karl Kvaran\, Kristján Davíðsson og Nínu Tryggvadóttur ásamt einum skúlptúr eftir hugmyndalistamanninn Kristján Guðmundsson. Innbyrðis eru listamennirnir ólíkir en samtenging verkanna er óhlutbundin myndbygging þar sem skúlptúr Kristjáns Guðmundssonar myndar brú frá liðnum tíma inn í samtímann. \n\nRannveig Jónsdóttir\, sýningarstjóri
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-vid-og-dreif/
LOCATION:Ísafjörður Art Museum\, Safnahúsið Eyrartúni\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-19-at-11.33.02.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20221008
DTEND;VALUE=DATE:20230123
DTSTAMP:20260530T044633
CREATED:20221010T094114Z
LAST-MODIFIED:20230124T102622Z
UID:26846-1665187200-1674431999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Geometry
DESCRIPTION:Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót\, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann\, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.\n\nListamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir\, Ásmundur Sveinsson\, Benedikt Gunnarsson\, Eiríkur Smith\, Eyborg Guðmundsdóttir\, Gerður Helgadóttir\, Guðmunda Andrésdóttir\, Guðmundur Benediktsson\, Hafsteinn Austmann\, Hjörleifur Sigurðsson\, Hörður Ágústsson\, Karl Kvaran\, Kjartan Guðjónsson\, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá\, Málfríður Konráðsdóttir\, Nína Tryggvadóttir\, Skarphéðinn Haraldsson\, Svavar Guðnason\, Sverrir Haraldsson\, Vala Enard Hafstað\, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.\n\nSýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.\nSýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/geometry-2/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/10/geometria.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR