BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220201
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T082222
CREATED:20220124T115835Z
LAST-MODIFIED:20221006T161227Z
UID:21161-1643673600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sund
DESCRIPTION:Það eru engir viðskiptavinir í sundlaugum landsins\, aðeins sundlaugagestir: almenningur á hverjum stað fyrir sig\, fólk á öllum aldri með alls konar bakgrunn\, alls konar holningu og alls konar sýn á lífið. Mikilvægustu almannagæðin á Íslandi eru fólgin í heita vatninu. Athyglisverðustu almannarýmin eru sundlaugarnar. Laugarnar eru vettvangur þar sem ókunnugir hittast og verða jafnvel málkunnugir\, staðir þar sem samfélagið birtist sjálfu sér—á sundfötum. \nSundlaugamenningin snýst um lífsgæði og lýðheilsu\, íþróttir\, leik\, afslöppun og skemmtun\, líkamsmenningu\, siðmenntun og samneyti. Í sundsamfélaginu svamla fjölbreyttir líkamar og í sturtuklefum almenningslaugarinnar er hversdagsleikinn allsber\, óuppstilltur og ófilteraður. Daglegt líf hefur í gegnum tíðina sett mark sitt á sundlaugarnar og gert þær að líkamsræktarstöð\, skólastofu\, félagsheimili\, leikvelli og heilsulind. \nMörg svið hönnunar koma við sögu í sundlaugamenningunni. Arkitektúr gegnir lykilhlutverki og þróun lauganna endurspeglar lifandi samtal arkitekta og samfélags. Grafísk\nhönnun\, vöruhönnun\, fatahönnun og upplifunarhönnun koma saman í sundinu. Sundlaugarnar eru samfélagshönnun: þær hafa mótað samfélag\, menningu og líkama fólksins í landinu í meira en öld.  Samfélagshönnun snýst um að skapa vellíðan og bæta daglegt líf fólks\, ekki að skapa söluvöru. \nSýningin nær yfir tímabilið frá sundvakningunni við upphaf 20. aldar til dagsins í dag. Sagan sem hún segir af sundlaugamenningu er um leið ylvolg sagan af íslensku nútímasamfélagi með léttri angan af klór og hveralykt\, gufuslæðu og skvampi. \nSýningin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands. Hún byggir á rannsóknarsamstarfi þeirra Arnar D. Jónssonar\, Ólafs Rastrick og Valdimars Tr. Hafstein sem og rannsóknum þjóðfræðinganna Katrínar D. Guðmundsdóttur\, Katrínar Snorradóttur\, Ólafs Ingibergssonar og Sigurlaugar Dagsdóttur. \nSýningarstjórar: Valdimar T. Hafstein\, þjóðfræðingur og Brynhildur Pálsdóttir\, hönnuður. \nGrafísk hönnun: Ármann Agnarsson og Helgi Páll.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/bathing-culture/
LOCATION:Museum of Design & Applied Art\, Garðatorg 1\, Garðabær\, 210\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/365-sundlaugar-19-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211111
DTEND;VALUE=DATE:20211213
DTSTAMP:20260530T082222
CREATED:20211129T122110Z
LAST-MODIFIED:20220825T133428Z
UID:20432-1636588800-1639353599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Fallegustu bækur í heimi 2020 - 2021
DESCRIPTION:FÍT í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands standa fyrir sýningunni Best Book Design from all over the World 2021 og 2020.\nStiftung Buchkunst — Þýsk samtök tileinkuð bókahönnun — hefur árlega veitt verðlaun fyrir bókahönnun víðsvegar um heimin síðan 1963. Í ár voru sendar inn 500 bækur frá 30 löndum og hlutu 14 þeirra verðlaun. Þessar 14 bækur eru til sýnis á sýningunni.buy premarin online https://medstaff.englewoodhealth.org/wp-content/languages/new/premarin.html no prescription\n \nFÍT in collaboration with Hönnunarsafn Íslands introduce The Best Book Design from all over the World 2021 and 2020.\nThe Stiftung Buchkunst – a German book design association – has awarded prizes every year for book design around the world since 1963. This year\, 500 books from 30 countries were submitted and 14 of them received prizes. These 14 books will be on display at the exhibition.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-best-book-design-from-all-over-the-world-2021-and-2020/
LOCATION:Museum of Design & Applied Art\, Garðatorg 1\, Garðabær\, 210\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/best-book-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR