BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230114
DTEND;VALUE=DATE:20230206
DTSTAMP:20260530T095227
CREATED:20230113T112226Z
LAST-MODIFIED:20230113T112226Z
UID:28707-1673654400-1675641599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Umhverfa
DESCRIPTION:Verkið Umhverfa er vídeó- og hljóðinnsetning eftir Siggu Björgu Sigurðardóttur og Mikael Lind þar sem síbreytilegur og þyngdarlaus hljóðheimur umlykur ágengan myndheim. Lögmál hefðbundinnar framvindu verka víkja og hvikul verkin fá að kallast á og hverfast um hvort annað. Í rýminu birtast myndir sem ferðast á milli raunveruleika og abstraksjónar og með síbreytilegu hljóðverkinu skapast rými án upphafs eða endis. \nSamhliða innsetningunni sýnir Sigga Björg nýjar teikningar á pappír og viðarplötur. Verkin eru unnin samhliða vídeóverkinu og tilheyra sama myndheimi þar sem myndefnið fetar einstigið milli raunsæis og abstraksjónar\, veruleika og fáránleika\, frásagnar og hreinnar fagurfræðilegrar upplifunar. \nSigga Björg Sigurðardóttir (f. 1977) útskrifaðist úr Myndlistadeild LHÍ árið 2001. Eftir útskrift fluttist Sigga Björg til Glasgow í Skotlandi þar sem hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá The Glasgow School of Art árið 2004. Síðan þá hefur hún sýnt í söfnum og galleríum víða um heim. Af einkasýningum má nefna Kling og Bang gallerí (Reykjavík)\, Teckningsmuseet (Svíþjóð)\, Hafnarborg (Hafnarfjörður)\,Yancey Richardsson gallerí (New York)\, Galerie Adler (Frankfurt) ofl. Af samsýningum má nefna Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, CCA (Center for Contemporary Art\, Glasgow)\, Göteborgs Konsthall (Svíþjóð) ofl.  Verk Siggu Bjargar er að finna í mörgum opinberum söfnum hérlendis og erlendis eins og Listasafni Reykjavíkur\, Listasafni Íslands\, Hafnarborg\, Nordiska Akvarellmuseet (Svíþjóð)\, Zabludowicz Art Trust (London) ofl. Fyrir frekari upplýsingar endilega heimsækið heimasíðu Siggu Bjargar: www.siggabjorg.net \nMikael Lind er tónskáld sem fæst við tilraunakenndra ambient tónlist með klassískum áhrifum. Hann hefur gefið út nokkrar breiðskífur\, bæði sjálfstætt og í samvinnu við aðra. Mikael er þekktur fyrir að gera tilraunir og prófa nýtt efni á tónleikum sínum þar sem hann hefur einnig mikinn áhuga á fræðilegri hlið tónlistar og tjáningarmáta þess. Hljóðið fyrir innsetninguna í Ásmundarsal er ennþá óbeislaðra þar sem hljóðheimurinn ber keim af bæði hávaðatónlist og nútímaklassík.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/umhverfa/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/324235094_2258696494312329_2740657717962066087_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR