BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20211213
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20211207T115714Z
LAST-MODIFIED:20220825T134840Z
UID:20601-1638576000-1639353599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Helga Katrínardóttir: Annarsstaðar
DESCRIPTION:Sýningin ANNARSSTAÐAR eftir Helgu Katrínar opnar þann 3. Desember kl 17:00.\nÞetta er síðasta sýning Midpunkt í núverandi mynd.buy valtrex online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/valtrex.html no prescription\n\nSýningin er opin um helgar 14-17 til 12. desember. \nGallerýið mun fyllast af fljúgandi messing skúlptúrum. Á sunnudaginn kl. 17 mun listamaðurinn svo vera með jólatónleika þar sem hann mun spila á stálpönnu. Stálpanna er hljóðfæri frá Trinidad og Tobago sem varð til í byrjun 20. Aldar og er eitt af örfáum acoustic hljóðfærum sem urðu til á síðustu öld. Pannan er handsmíðuð úr olíutunnu. \nÍ viðhengi má sjá mynd af listamanninum sem og mynd frá gerð messing skúlptúranna. \nÍ verkinu Annarsstaðar vinnur Helga Katrínar með dagdrauma og þrána að vera annarsstaðar þrátt fyrir að vera líkamlega föst/fastur á tilteknum stað. \nÁhorfendur eru leiddir í sjónrænt ferðalag miðlað í gegnum hljóð þar sem lýsingar á rýmum blandast draumkenndri fantasíu. Verkið hverfist um raunveruleikaflótta og leitast við að framkalla líkamlega upplifun hjá áhorfendum þrátt fyrir kyrrstöðu í rýminu. \nHelga Katrínardóttir er sjónrænn listamaður sem býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk BA námi í ritlist frá Háskóla Íslands 2013 og hefur starfað við kvikmyndagerð síðan.buy kamagra soft online www.mydentalplace.com/wp-content/themes/twentytwelve/inc/en/kamagra-soft.html no prescription\n \nÍ verkum sínum kannar Helga hreyfingu okkar um tímann og slípun hans á sjálfinu. Hún vekur áhorfandann til umhugsunar um hverfulleika líðandi stundar sem er ætíð viðvarandi\, en þó aldrei innan seilingar. \nHelga vinnur þvert á milli miðla með aðaláherslu á ljósmyndun og kvikmyndagerð. Hún lýkur námi í listrænni ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum næstkomandi janúar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/helga-katrinardottir-annarsstadar/
LOCATION:Midpunkt\, Hamraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/annarstadar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211119
DTEND;VALUE=DATE:20211129
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20211115T120534Z
LAST-MODIFIED:20211129T104918Z
UID:20163-1637280000-1638143999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Unnur Andrea Einarsdóttir: Ontolica
DESCRIPTION:Verið velkomin á opnun einka sýningar Unnar Andreu Einarsdóttur ONTOLICA í Midpunkt Hamraborg næstkomandi föstudag þann 19. nóvemer kl. 17:00. Listamaðurinn mun flytja gjörning á opnuninni kl. 17:20 & 18:20 og mun sýningin standa til 28. nóvember. \nONTOLICA er vídeó- og hljóðinnsetning ásamt gjörningi og var upphaflega sýnt í Gallery Blunk í Noregi árið 2020. \n \nTitill sýningarinnar Ontolica vísar í hugtakið ontoligy sem nefnist á íslensku verufræði sem er grein innan furmspekinnar sem leitast við að rannsaka veruleikann. \nÞað má líta á verk Unnar Andreu sem tilraunir til að holdgera hið stafræna og með því varpar hún ljósi á efnislega tengingu sem er ómissandi í mannlegum samskiptum.  Lífsreynsla okkar verður sífellt óefniskenndari þar sem upplifanir okkar fara í auknum mæli fram í gegnum stafræna miðla og þar með verður félagslegur- og pólitískur veruleiki sífellt afstæðari. Unnur skoðar í verkum sínum hvernig starfæni samtíminn er bæði kaótískur og ófyrirsjáanlegur og getur valdið því að einstaklingar aftengist raunsamfélagi og upplifi félagslega einangrun – en vert er að benda á að verkið var unnið fyrir fyrstu bylgju Covid. \nUnnur Andrea er með tvískiptan feril en hún er nýkomin frá Grikklandi þar sem hún kom fram ásamt FRZNTE  á opnun sýningarinnar H2H í Aþenu sem er grískt -íslenskt samstarfsverkefni Kling&Bang og A-Dash gallerís í Aþenu. Unnur býr og starfar í Noregi og á Íslandi. Hún lauk BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2005 og mastersprófi frá Listaháskólanum í Þrándheimum\, árið 2019. Í verkum sínum blandar hún saman myndböndum\, innsetningum og gjörningum og leitast við að skapa upplifanir í rauntíma. Unnur hefur bakgrunn sem tónlistarkona og því er notkun hljóðs og tónlistar oft mikilvægur þáttur í verkum hennar. Eftir útskrift sína hefur Unnur tekið þátt í sýningum m.a. í Trondheim Kunstmuseum og Galleri Atelier Nord  og var eitt verka hennar valið til þátttöku í Meta.Morf tvíæringnum í Þrándheimum og ARS Electronica hátíðinni í Austurríki\, en báðir teljast mikilvægir viðburðir á sviði lista og tækni í Evrópu. \nSýningarstjóri er Hrafnhildur Gissurardóttir.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/unnur-andrea-einarsdottir-ontolica/
LOCATION:Midpunkt\, Hamraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/Apex-anima-Lacy-unnur-crop.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211106
DTEND;VALUE=DATE:20211115
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20211108T122622Z
LAST-MODIFIED:20211115T101958Z
UID:20054-1636156800-1636934399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Afmælisveisla
DESCRIPTION:Midpunkt er 3 ára og Midpunkt teymið vill bjóða ykkur á hátíðarsýningu. \nAfmælisveisla er fertugasta og önnur sýningin sem haldin verður í Midpunkt\, en hún markar líka þau tímamót að Midpunkt verður þriggja ára gamalt menningarrými. Af þessu tilefni munu aðstandendur og sýningarstjórar Midpunkt nýta tækifærið og sýna sín eigin verk. \nOkkur hlakkar til að sjá ykkur og fagna með ykkur afmælinu. \nAfmælisveisla opnar kl 16:00 þann 6. nóvember og stendur til 14. nóvember. \n  \nVerk á sýningunni: \nPLANET BROKAT eftir Brokat Films\, Joanna Pawlowska.  \nAnthropocene eftir Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnarson. \nÚrgangur eftir Snæbjörn Brynjarsson. \nPrentverk eftir Svein Snæ Kristjánsson. \n  \n  \nMidpunkt er sýningarrými sem upphefur upprennandi og alþjóðlega listamenn.  \nMidpunkt leggur upp með færa listina nær áhorfendum og inn í daglega rútínu list unnandans.  \nMidpunkt leiðir saman marga ólíka þræði\,  \nMidpunkt dregur listamenn og listunnendur á svæði sem væru annars list snauð.  \nMidpunkt skapar vettvang fyrir þá grasrót sem nú þegar er á staðnum. \nMidpunkt leggur áheyrslu á listina\, listarinnar vegna \nMidpunkt er enginn dans á rósum \nMidpunkt vill auka sýnileika listamansins \nMidpunkt er ekki sýningarrými heldur gjörningur \nMidpunkt er opið öllum og allir geta litið við \nMidpunkt er framúrstefnulegt  \nMidpunkt er frjósöm jörð listrænnar sköpunar \nMidpunkt er nýja miðjan \nMidpunkt er allt sem þú vildir vita um list en þorðir ekki að spyrja \nMidpunkt er æði \nMeiri Midpunkt og allir vinna.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/afmaelisveisla/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/midpunkt-birthday.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211009
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20211006T154240Z
LAST-MODIFIED:20220916T111528Z
UID:19514-1633737600-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Augmented Reality Disorder
DESCRIPTION:Listafólkið Hákon Bragason og Katerina Blahutova taka höndum saman í þessari nýju innsetningu og bjóða áhorfendum að endurskoða skilning sinn á stafrænu hliðarsjálfi nútímamannsins. Sjónvarpsskjáir sem yfirlýsa sýningarrýmið taka á móti áhorfendum. Með því að horfa í gegnum pólíserandi filmu sjá áhorfendur hvernig birtan umbreytist og stafrænn heimur tekur á sig mynd. Þegar áhorfendur ferðast gegnum rýmið birtast nýir heimar til þess eins að hverfa jafn skjótt aftur inn í hvíta birtuna. Á þessu sífellda ferðalagi á milli veruleika hafa áhorfendur þó einn fastan punkt: Neðri búkur manneskju stendur grafkyrr í miðju rými; hinn helmingurinn fastur í stafrænum heimi. \nTil að skoða áhrif og afleiðingar stafræna sjálfsins buðu sýningarstjórarnir Dorothea Olesen Halldórsdóttir og Þorsteinn Eyfjörð listafólkinu að skapa innsetningu sem tjáir þetta félagslega fyrirbæri. Í ferlinu rannsökuðu þau spurningar á borð við: Vitum við hvaða áhrif hið síbreytilega\, leikstýrða stafræna sjálf hefur á sjálfsmynd lifandi manneskju í raunheimum? Þurfum við stöðuga áminningu úr hliðarveruleikanum til að ná tengingu við sjálfið? Er sjálfið svo samofið þessari stafrænu vörpun að við erum hætt að greina á milli? Er það óeðli að vera ekki sítengdur? \nEftir situr spurningin: Upplifðir þú þessa sýningu ef þú varst bara í símanum að taka myndir? Eða var skjalfesting stafræna sjálfsins til þess að þú raunverulega upplifðir miklu meira en hinir?
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/augmented-reality-disorder/
LOCATION:Midpunkt\, Hamraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/augmented-realitydisorder.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210918
DTEND;VALUE=DATE:20211002
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20210917T143413Z
LAST-MODIFIED:20210927T125422Z
UID:19152-1631923200-1633132799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ragnheiður Eiríksdóttir & Hulda Vilhjálmsdóttir: Hæg læti
DESCRIPTION:Hulda og Heiða sýna saman í Midpunt. \n  \nÞær mála. Þær gera gjörninga. Þær flytja þulur\, performa á rafmagnsgítar. \nÞær eru heiðarlegar í þessu samtali\, \nÞær túlka lífið\, \nlífið í dag\, \nröddin\, rafmagnsgítarinn og málverkið mætast. \n  \nÚtkoman er hæg læti\, málverk\, þula\, tónverk\, teikningar\, skúlptúrar\, hljóðverk. \nOrka þeirra \ner Æsandi. \nHávaði þeirra er Róandi. \n  \nUm listamanninn Ragnheiði Eiríksdóttir: \nHeiða vinnur með andstæður í sinni listsköpun og hefur komið víða við. Hún var pönkari sem gekk í sveitaballapoppsveitina unun\, svo var hún kassagítarleikari sem spilaði rokk á rafmagnsgítar\, svo var hún noise-tónlistarmaður sem notaði kassagítar og effekta og loks fór hún að gera tónlist sem myndlist. Árið 2017 komu út 3 plötur með Heidatrubador\, sem er ekki trúbador\, og þá var komið að því að snúa dæminu við. Hún tók sér frí frá tónlist og fór undir eins að dreyma liti og ákvað að gera myndlist sem tónlist. New York-borg róar hana\, lítil sjávarþorp stressa hana upp. Hún er 50 ára óráðsett\, ómiðaldra og ekki sest í helgan stein. Hún hefur þó lífsreynslu og kannski eru loksins að vaxa á hana smá rætur\, því hún hefur ákveðið að hætta að vera hrædd við nokkurn skapaðan hlut og gera bara það sem hjartað segir henni. Hún er löngu hætt að rífa sig niður og er nú sinn eiginn aðdáandi númer 2 (mamma og pabbi hennar eru aðdáendur númer eitt). Henni er nákvæmlega sama hvort þú fílir listina hennar\, en hún er skemmtileg og það er gaman að spjalla við hana. Hún er lítil og með læti\, stór og róleg\, brosandi og döpur\, ringluð og skipulögð\, en alltaf heiðarleg og með hreint hjarta. \n  \nHulda Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík 1971. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands með BA gráðu í málun árið 2000.Hún tók diplómanám í leirmótun og keramik við Myndlistaskólann í Reykjavík 2007-2008. \nÁrið 2007 var Hulda til tilnefnd til Carnegie ART award og 2018 til Íslensku Myndlistarverðlaunanna fyrir einkasýninguna Valbrá í Kling og Bang. 2020 hlaut Hulda Tilberann\, myndlistarverðlaun fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi. \nHulda hefur haldið fjölda bæði einka- og samsýninga heima og erlendis og eiga Listasöfn og einkaaðilar verk eftir hana. Árið 2003 opnaði hún og rak gallerí Angelicu Smith í þrjá mánuði sem nokkurs konar gjörning. Hulda hefur gefið út nokkrar ljóðabækur og myndabækur\, má þar nefna Valbrá sem kom út 2017 og Dagur Líður 2020. Frá því Hulda lauk námi hefur hún starfað sjálfstætt að myndlistinni. Verkin hennar eru tilfinningarík en samt yfirveguð. Með ljóðrænni túlkun af landslagi\, óhlutbundið og fólki. berst hún fyrir tjáningarfrelsi og verndun náttúrunnar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ragnheidur-eiriksdottir-hulda-vilhjalmsdottir-haeg-laeti/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/Haeg-Laeti.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210826
DTEND;VALUE=DATE:20210912
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20210824T144124Z
LAST-MODIFIED:20220916T110439Z
UID:18747-1629936000-1631404799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Óskilamunir
DESCRIPTION:Hundur hleypur um Hamraborgina\, þefar upp hluti sem virðast jafn utan veltu og hann. Úr verður kort sem er háð veðri og vindum\, greining á rými í stöðugu flæði. Í andyri Midpunkt er fáni sem kortleggur óskilamuni sem fundust í Hamraborg. Gestum er boðið að þræða slóðir hlutana sem gætu hafa fundist eða týnst aftur. \nUm listamennina: \nAgnes Ársæls (f. 1996)\, Anna Andrea Winther (f. 1993) og Svanhildur Halla Haraldsdóttir (f.1992) hófu samstarf sitt árið 2018 eftir að þær útskrifuðust með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Samstarf þeirra nýtir spuna og leik til þess að fjalla um almenningsrými. Með því að skrásetja myndræna upplifun á hversdeginum hvetja þær áhorfendur til þess að veita umhverfi sínu eftirtekt. \nAgnes Ársæls vinnur með róttæka væntumþykju í verkum sínum sem kanna samband mannsins við umhverfi sitt og aðrar tegundir. Hún hefur tekið þátt í ýmsum samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Meðal nýjustu verkefna eru útvarps innslögin Samlíf sem voru birt á Rás 1 sumarið 2021 og unnin í samstarfi við Sylvíu Dröfn Jónsdóttur. \nAgnes hefur tekið þátt í alþjóðlega samstarfsverkefninu United 1 á vegum UK Young Artists og Platform Nord\, dvalið í gestavinnustofunni In Context í Slănic-Rúmeníu og sýningarstýrt sýningunni Af stað / Go! Í Norræna húsinu ásamt Önnu Andreu Winther. Agnes er meðlimur Ræktarinnar\, listamannasamsteypu sem mun sýna á Sequences X haustið 2021. \nAnna starfar í Reykjavík og Glasgow. Hún stundar nú nám í MFA deild Glasgow School of Art og er handhafi Leverhulme MFA Bursary verðlaunanna. Hún hefur sýnt á ýmsum samsýningum\, bæði hérlendis og erlendis og hefur haldið fjórar einkasýningar á Íslandi\, þar á meðal Skiljum ekki baun (Harbinger\, Reykjavík) og Pönnukökuverkunin (Gallery Úthverfa\, Ísafjörður). \nUndanfarið hefur hún unnið að útvarpsþáttunum og myndlistarverkefninu „Er það eitthvað ofan á brauð?“ í samstarfi við Berglindi Ernu Tryggvadóttur. Eftir útskrift hefur hún starfað sem myndmenntakennari og skipuleggjandi listaklúbba í frístundastarfi. Anna er huti af listasamsteypunni Mál/tíð. \nSvanhildur Halla Haraldsdóttir býr og vinnur í Reykjavík. Árið 2016 útskrifaðist hún með BA gráðu í Listfræði. Árið 2019 sýndi hún verk á sýningunni Öll brögð möguleg í Kling og Bang og sumarið 2020 tók hún þátt í listahátíðinni Stálsmiðjan og sýndi þar verkið Ræflar sem hún vann í samvinnu við Önnu Andreu Winther. Svanhildur starfar sem Deildarbókavörður hjá Borgarbókasafni Reykjarvíkur og vinnur þar meðal annars að undirbúningi og uppsetningu sýninga. Svanhildur er hluti af listasamsteypunni Ræktin.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/oskilamunir/
LOCATION:Midpunkt\, Hambraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/lost.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210826
DTEND;VALUE=DATE:20210830
DTSTAMP:20260530T140549
CREATED:20210824T141614Z
LAST-MODIFIED:20220916T110236Z
UID:18739-1629936000-1630281599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hambraborg Festival
DESCRIPTION:Hamraborgin rís há og fögur og minnir á ástir og álfasögur. \nÞað er einungis ein alvöru borg á Íslandi og það er Hamraborgin. Á hátíðinni Hamraborg festival viljum við bjóða gestum að kynnast þessu borgarlandslagi á nýjan hátt og upplifa tónlist\, leiklist\, myndlist og önnur listform á sama tíma og þeir kynnast krókum og kimum Hamraborgarinnar. \nDagskrá:\nInnsetningar og sýningar víðsvegar um Hamraborgina. Hægt er að nálgast kort á helstu sýningarstöðum: Midpunkt\, Gerðarsafn\, Catalína\, Video markaðurinn og fl. \n26. Ágúst\n16:00: Opnun hátíðar í Midpunkt. Sýningar opna og standa yfir helgina.\n16:30: Issues skapar veggjalist.\n16:30: Afjúpun listaverks á Hálsatorgi.\n17:00: Sumarjazz í Salnum.\n18:00: Leiðsögn Styrmis Arnar um sýninguna “Hlutbundin Þrá” í Gerðarsafni.\n18:00: Tobba Marinós á bókasafninu. Náttúrulega Sætt. Fjallað um hvernig á að búa til eftirrétti og sætindi úr ávöxtum og náttúrulegri sætu. \n27. Ágúst\n16:00: Issues skapar veggjalist.\n17:00: Hugrún Britta með tónleika á Herramenn rakarastofa.\n17:00: Guðlaug Mía með listsmiðju fyrir fullorna á Gerðarsafni.\n18:00 – 18:30: Flanerí #3. Ruslarenna minninganna. Ganga hefst hjá Hérðaðsskjalasafni og tekur ca 30 mín.\n20:00: Tyrfingsmessa á Catalínu: Snæbjörn Brynjarsson leiðir Leikfélagkópavogs í lestur á völdum senum úr leikritum Tyrfings Tyrfingssonar. \n28. Ágúst\n12:00 – 18:00: Opnar vinnustofur í Auðbrekkunni.\n12:00: Hringtörfrar sýna listir sínar og kennir fólki að húlla.\n13:00: Sumarspírur: Listsmiðjur fyrir börn á Bókasafni Kópavogs.\n14:00: Bananapökkukökur bíómynd sýnd í bílastæðakjallara undir Molanum.\n15:00: Polar Institut með strengjakvartett tónleika aftan við Te og Kaffi.\n17:00: L´amour Fou í Salnum.\n18:00: Kamilla Einar tekur áhorfendur í labb um Hamraborgina. Mæting á Bókasafn Kópavogs.\n19:00: Tónleikar á Catalínu\n– Hugrún Britta\n– Heather Ragnars: Each Other.\n– DJ og Party. \n29. Ágúst.\nInnsetningar og sýningar opnar þegar sýningarstaðir opna.\n– finna má kort af sýningum í Midpunkt\, Gerðarsafni og öðrum sýningarstöðum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hambraborg-festival/
LOCATION:Midpunkt\, Hamraborg 22\, Kópavogur\, 220
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/hambraborg-festival.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR