BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220507
DTEND;VALUE=DATE:20220613
DTSTAMP:20260530T040735
CREATED:20220505T112359Z
LAST-MODIFIED:20220916T102028Z
UID:23107-1651881600-1655078399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Michaela Grill: Innan rammans
DESCRIPTION:Laugardaginn 7 maí opnar sýningin Innan rammans í Verksmiðjunni á Hjalteyri. Michaela Grill sem að býr og starfar í Montréal opnar þá í Verksmiðjunni yfirlitsýningu á kvikmynda og vídeóverkum. Í verkum sínum endurskapar hún myndir af því sem að fyrir augu ber á göngu um náttúruna en ekki af raunveruleikanum heldur frekar könnun á yfirborði\, litaframvindu og hreyfirannsóknum. Í heimsfaraldri voru ferðalög ekki möguleg svo að hún fór að vinna með fundið kvikmyndaefni\, til að stækka og draga ákveðin atvik út úr flæði. Einkum í tengslum við smásjármyndir. \nAð safna ljósbrotum \nÍ tilefni að sýningu Michaelu Grill Innan rammans í Verksmiðjunni á Hjalteyri. \nHin sanna mynd fortíðarinnar þýtur hjá. Í fortíðina verður ekki haldið nema sem leiftrandi mynd sem kennsl verða borin á eitt augnablik en síðan aldrei meir. Walter Benjamin. Um söguhugtakið. \nMyndlistarkonan Michaela Grill vinnur myndbandsinnsetningar og lifandi performansa í samstarfi við tónlistarmenn og síðustu ár hefur hún átt í nánu samstarfi við tónlistarkonuna Sophie Trudeau. \nSjónrænan efnivið finnur Michaela á afskekktum og óaðgengilegum stöðum líkt og á suður- og norðurheimskautunum eða á göngu sinni í náttúrunni. Einnig leitar hún fanga á kvikmyndasöfnum\, bæði í bíómyndir og vísindalegar náttúrulífsmyndir. \nÍ myndbandsverkunum birtist fortíðin í flöktandi myndbrotum\, náttúrufyrirbæri snúa upp á sig og eru jafnvel eins og séð með augum annarra lífvera með annarskonar skynjun\, skóglendi er snúið á hvolf og umbreytist í sjávargróður\, landslagið á heimskautunum bráðnar og frýs á víxl og myndar eilíflega ný form\, eða er þetta ef til skýjalandslag? örvænting nær hápunkti og dvelur þar\, ryðguð hvalveiðiskip taka á sig mynd særðra hvala\, myndirnar neita að láta undan skilvindu Sögunnar sem vill hafna þeim og gleyma. \nÞað er þegar hugsunin stöðvast í spennumettaðri afstöðu sinni að hin díalektíska mynd birtist skrifaði Walter Benjamin. Michaela rífur myndbrotin út úr frásagnarramma sínum og magnar upp hreyfingar eða hægir á þeim til að losa myndirnar undan hefðbundnu kvikmyndalegu flæði þeirra. Tónlistin í verkunum er þess eðlis að hún leyfir áhorfandanum aldrei að falla í sætbeiskan brunn tilfinningaseminnar. Myndirnar eru hvorki nostalgískt endurlit eða upphafning heldur fær fortíðin og náttúran að aktúalísera sig í verkunum. Hljóð\, ljós\, skuggar\, form\, litir og hreyfing takast á innan rammans. Myndirnar fá þannig ekki aðeins nýja merkingu heldur öðlast þær nýja virkni. Þær segja okkur eitthvað nýtt\, ekki eingöngu um okkur\, heldur fyrst og fremst um sig sjálfar. \nTexti: Kari Ósk Grétudóttir \nSýningin stendur til og með 12.06 og er opin alla daga nema mánudaga frá 14:00-17:00.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/michaela-grill-inside-the-frame/
LOCATION:The Factory in Hjalteyri\, Brekkuhús 3b\, Hjalteyri\, 601\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/279224515_10159923206802829_1961237851922506699_n.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR