BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230826
DTEND;VALUE=DATE:20240311
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20230824T142016Z
LAST-MODIFIED:20230901T143407Z
UID:32484-1693008000-1710115199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Afar ósmekklegt
DESCRIPTION:Hvernig er hægt að minnast hræðilegra gjörða án þess að úr verði sjónarspil? Fyrir lokaverkefnið mitt í MA-náminu spreyjaði ég á glugga í gallerýi í Breiðholti orðin „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn“ og allt ætlaði um koll að keyra. \nÞessi einkasýning er innblásin af því bakskoti sem ég varð fyrir við þetta tiltekna textaverk. Athugasemdir frá ókunnugu fólki á netinu hafa síðan orðið að jarðsprengjusvæði haturs\, heimsku og kynþáttafordóma\, sem nýtist sem efniviður í sýninguna. Ofbeldið sem beint var að mér hefur breyst í opinbera rökræðu um hvernig við sættumst við kynþáttafordóma á Íslandi. Markmið sýningarinnar er að endurheimta það gangverk tungumálsins sem orðræða kynþáttafordóma nýtir sér með því að ráðskast vísvitandi með sýnileika málsins og sigla á milli mismunar þess að sjá\, lesa og að lokum – skilja.“ \nMelanie Ubaldo (f. 1992) lauk MA-námi frá Listaháskóla Íslands 2022. Hún er einn af stofnendum listamannaþríeykisins Lucky 3 og hefur tekið þátt í sýningum á Íslandi og erlendis. Verk hennar má m.a. finna í safneign Listasafns Íslands\, Listasafns Reykjavíkur\, Gerðarsafns og Hafnarborgar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/melanie-ubaldo-afar-osmekklegt/
LOCATION:Listasafnið á Akureyri\, Kaupvangsstræti 8-12\, Akureyri\, 600\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/08/melanieimage1_vefur-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230513
DTEND;VALUE=DATE:20230612
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20230511T154629Z
LAST-MODIFIED:20230621T160634Z
UID:30925-1683936000-1686527999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: TRAPO
DESCRIPTION:TRAPO er sérsniðið fyrir Ásmundarsal og er afrakstur margra mánaða þrotlausrar handavinnu sem fyllir alla veggi sýningarsalarins. Verkið er að hluta til heiðurs verka listamannatvíeykisins Christo og Jeanne-Claude en sömuleiðis til heiðurs arfleiðar Melanie sjálfrar. \n\,\,Litríku\, kringlóttu\, lófastóru tuskurnar sem mamma og hinar konurnar í fátækrahverfinu okkar á æskuárum mínum á Filippseyjum saumuðu\, úr afgangsefnum\, eru sérstakur innblástur afbyggingar- fagurfræði minnar. Þessar tuskur eru kallaðar trapo á móðurmáli mínu filipísku.” \nHandsaumur á striga er vísvitandi notaður sem stíltækni og málaralegur tjáningarmátinn – ákveðin tilraun til að virkja tilviljunarkenndina. Með því að hylja veggina og skilja aðeins eftir sýnilega hina mögnuðu glugga salarins\, mætir verkið áhorfendum með stærð sinni\, breytir upplifun þeirra af rýminu og undirstrikar um leið líkamleika og efniskennd málverksins. \nMelanie Ubaldo (f. 1992 í Fillipseyjum) útskrifaðist með mastersgráðu í myndlist frá Listaháskóli Íslands árið 2022. Sjálfsævisöguleg\, einlæg og beinskeytt verk um fjölbreyttar birtingarmyndir valds\, fordóma og mismunun einkenna listferli og sköpun Melanie og birtast í samansaumuðum málverkum sem innihalda fordómafulla texta sem vísa í hennar eigin reynslu af hegðun annara í hennar garð ásamt þess að notast við innsetningar sem takast á við minningar\, sjálfsmynd og uppruna. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrifum þeirra á þolendur. Melanie hefur tekið þátt í fjölda sýningar hérlendis og erlendis. Hún hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn árið 2021 og er jafnframt stofnandi listamannaþríeykisins Lucky 3\, en Lucky 3 hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2022. Verkin hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands\, Listasafn Reykjavíkur\, Gerðarsafn\, Hafnarborgar og í einkaeigu.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/melanie-ubaldo-trapo/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/Screenshot-2023-05-11-at-15.41.46.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230522
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20230511T153001Z
LAST-MODIFIED:20230530T121616Z
UID:30909-1683331200-1684713599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Opnun
DESCRIPTION:Samsýning tólf listamanna\, sem Ragga og Magga Weisshappel hafa tekið tali í Opnun II í Ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldum í vor. \nBirgir Snæbjörn Birgisson\, Erla Þórarinsdóttir\, Hekla Dögg Jónsdóttir\, Hildigunnur Birgisdóttir\, Kristján Guðmundsson\, Melanie Ubaldo\, Páll Haukur Björnsson\, Pétur Magnússon\, Ragna Róberts\, Rakel McMahon\, Sigurður Guðjónsson og Sigurður Guðmundsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/opnun-y-gallery/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/343339513_1589494401456499_304102351360448798_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220910
DTEND;VALUE=DATE:20221002
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20220908T152158Z
LAST-MODIFIED:20220908T152312Z
UID:25860-1662768000-1664668799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Melanie Ubaldo: Almost Perfect
DESCRIPTION:Melanie Ubaldo (f. 1992 í Fillipseyjum) útskrifaðist með mastersgráðu í myndlist frá Listaháskóli Íslands árið 2022. Sjálfsævisöguleg\, einlæg og beinskeytt verk um fjölbreyttar birtingarmyndir valds\, fordóma og mismunun einkenna listferli og sköpun Melanie og birtast í samansaumuðum málverkum sem innihalda fordómafulla texta sem vísa í hennar eigin reynslu af hegðun annara í hennar garð ásamt þess að notast við innsetningar sem takast á við minningar\, sjálfsmynd og uppruna. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrifum þeirra á þolendur.\nMelanie hefur tekið þátt í ýmsum sýningum hérlendis og erlendis. Hún hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn árið 2021 og er jafnframt stofnandi listamannaþríeykisins Lucky 3 ásamt Dýrfinna Benita Basalan og Darren Mark\, en Lucky 3 hlaut Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna árið 2022. Verkin hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Reykjavíkur\, Hafnarborgar og í einkaeigu.\n“Næstum fullkomið” er álíka frásögn og öll mín fyrri verk.\nÓkunnugur maður segir mér eitthvað og það hefur ómeðvitað gríðarleg áhrif á iðkun mína. Hann talaði um gamalt málverk eftir mig sem hefur síðan verið „týnst“. Næstum fullkomið gæti verið stærsta hrós sem ég hef nokkurn tíma heyrt um vinnu mína. Eins og að elta þann sem slapp\, er þessi sýning aðeins ein af mörgum\, óteljandi tilraunum til að endurheimta/endurmynda það sem er næstum fullkomið\nÉg veit ekki alveg hvað ókunnugi maðurinn átti við með næstum fullkomið\, en ég hef síðan trúað því að þetta sé hið látlausa tilvik – örlítið á skakkt og á skjön og því er það snilld; og ómögulegt að endurtaka. Kvíðafullar strokur af olíu og bleki á kyrrlátan striga\, plastilmur af akrýl blandað eitraðri terpentínu og spreyi\, fótspor og kattahár – nánast fullkomið.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/almost-perfect-melanie-ubaldo/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/305569778_592989478977379_5569539922041262518_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220926
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20220908T154652Z
LAST-MODIFIED:20220908T154652Z
UID:25869-1654905600-1664150399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Við getum talað saman
DESCRIPTION:Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika. \nPlatform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa. \nVerkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og er samstarf Listahátíðar í Reykjavík\, sem leiðir verkefnið\, Listahátíðarinnar í Bergen\, Nuuk Nordisk Kulturfestival\, Norðurlandahússins í Færeyjum og Listahátíðarinnar í Helsinki. \nListafólk: Constance Tenvik\, Nayab Ikram\, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko)\, Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko)\, Una Björg Magnúsdóttir\, Loji Höskuldsson\, Melanie Ubaldo \nSýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/vid-getum-talad-saman/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/kynningarmynd-vid-getum-talad-saman.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220611
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20220530T110903Z
LAST-MODIFIED:20220915T164440Z
UID:23411-1654905600-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Platform GÁTT: Við getum talað saman
DESCRIPTION:Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika. \nPlatform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri. Listafólkið kynntist þeim stofnunum sem koma að verkefninu með það að markmiði að manngera þessar stóru listastofnanir og opna að þeim dyr. Einnig hefur listafólkið myndað tengsl sín á milli og á milli landa. \nVerkefnið er stutt af Norrænu ráðherranefndinni og er samstarf Listahátíðar í Reykjavík\, sem leiðir verkefnið\, Listahátíðarinnar í Bergen\, Nuuk Nordisk Kulturfestival\, Norðurlandahússins í Færeyjum og Listahátíðarinnar í Helsinki. \nListafólk: Constance Tenvik\, Nayab Ikram\, Ville Andersson\, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko)\, Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko)\, Una Björg Magnúsdóttir\, Loji Höskuldsson\, Melanie Ubaldo.\nSýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson\nSamstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík\, Bergen Festspillene\, Helsinki Festival\, Norðurlandahúsið í Færeyjum\, Nuuk Nordisk Kulturfestival & Nordisk Kulturfond \nMynd: Constance Tenvik\, Dressing Up Before Going Out (2021)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/platform-gatt-we-can-talk/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/kynningarmynd-vid-getum-talad-saman.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220514
DTEND;VALUE=DATE:20220606
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20220530T123435Z
LAST-MODIFIED:20220916T103415Z
UID:23450-1652486400-1654473599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Undið af veruleikum — Útskriftarsýning MA nemenda í Myndlist
DESCRIPTION:Undið af veruleikum er útskriftarsýning meistaranema í myndlist við Listaháskóla Íslands\, að þessu sinni haldin í Nýlistasafninu. Ellefu listamenn sýna lokaverkefni sín\, lokahnykkinn á tveggja ára námi\, tveggja ára tímabil sem hvert þeirra hefur notað til að kafa djúpt í eigin listsköpun. Verk þeirra eru hér samankomin í heldur betur fjölbreytt og spennandi samhengi\, þar sem myndefni\, áferðir og strúktúrar bera með sér frásagnir\, opin svið til að kanna\, allt bundið saman við raunveruleikann á djúpstæðan hátt. \nListamenn: \nArnþór Ævarsson (ADDI)\, Elnaz Mansouri\, Freyja Reynisdóttir\, Jasa Baka\, Maria Sideleva\, Martha Marie Lyons Haywood\, Melanie Ubaldo\, Patryk David Wilk\, Ragnhildur Lára Weisshappel\, Tinna Guðmundsdóttir\, Yuhua Bao \nSýningarstjóri: Claire Paugam
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/unraveling-realities-ma-fine-art-degree-exhibition/
LOCATION:The Living Art Museum\, Grandagarður 20\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/42bf5b0b-a4b8-487c-b45c-bfa52d9a74b6_Photo_Claire.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211204
DTEND;VALUE=DATE:20211224
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20211202T124211Z
LAST-MODIFIED:20211224T111929Z
UID:20505-1638576000-1640303999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Svona eru jólin
DESCRIPTION:Jólasýningin „svona eru jólin“ er sölusýning um 170 listamanna. Verið er að endurvekja gamla hefð en sölusýningar voru haldnar fyrir jólin í Ásmundarsal (þá Listvinasalnum) á fimmta áratug síðustu aldar. Þá voru verk þekktustu listamanna þjóðarinnar sýnd samhliða verkum yngri og lítt þekktari listamanna. Um 450 verk verða til sölu á sýningunni í ár. Hægt verður að pakka þeim beint í silkiþrykktan jólapappír á innpökkunarstöð Prents & vina sem sjá um sýningarstjórnun. Í Gryfjunni verður sett upp grafíkverkstæði þar sem listamenn vinna verk í upplagi yfir sýningartímabilið. \nDagskrá Grafíkverkstæðis 2021: \n4-5.des | Almar Steinn Atlason og Hákon Bragason \n6-7.des | Anna Júlía Friðbjörnsdóttir \n8-9.des | Joe Keys \n10-11.des | Anna Rún Tryggvadóttir \n12-13.des | Margrét Blöndal \n14-15.des | Jón B.K Ransu \n 16-17.des | Melanie Ubaldo \n 18-19.des | Baldur Geir Bragason \n 20-21.des | Kristinn Már Pálmason \n 22-23.des | Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/so-this-is-christmas/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/asmundarchristmas.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211030
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20211011T145801Z
LAST-MODIFIED:20220916T105047Z
UID:19597-1635552000-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Abrakadabra
DESCRIPTION:Við kynnumst töfrum samtímalistar á þessari skemmtilegu sýningu fyrir alla sem vilja sjá ný og spennandi verk eftir núlifandi listamenn. Markmiðið er að gera heim samtímalistar aðgengilegan. Í verkunum má sjá fjölbreytileika listarinnar\, þau höfða til ímyndunaraflsins og skynfæranna\, þar er fjallað um líkamann\, sjálfsmyndina\, náttúruna\, samfélagið og ótal margt fleira. Við bjóðum unglinga\, ungmenni og alla sem eru forvitnir um samtímalist sérstaklega velkomna! \nAbrakadabra er dularfullt orð sem tengist töfrum. Það er mjög gamalt og uppruni þess er ókunnur. Líklega er það dregið úr hinu forna tungumáli arameísku og þýðir: „Það sem ég segi verður að veruleika.“ Er það ekki dálítið eins og listamenn vinna? Þau fá hugmyndir og láta þær verða að listaverkum. Á sýningunni Abrakadabra er miðlað áherslum sem er að finna í deiglu samtímans. \nHvað einkennir myndlist dagsins í dag? Hver eru viðfangsefni listamanna\, aðferðir\, efni og áskoranir? \nSamhliða sýningunni er sett fram ríkuleg fræðsludagskrá ásamt miðlun á stafrænu formi. Abrakadabra er jafnframt nýtt svæði á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur sem verður áfram aðgengilegt. Þar er að finna fróðleik sem eflir hugtakaskilning og menningarlæsi og hentar vel til kennslu og til að grúska í samtímalist. \nListamenn\n\n\n\n\n\nAlicja Kwade\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Júlía Friðbjörnsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Hallin\n\n\n\n\n\n\n\n\nAnna Líndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nAuður Lóa Guðnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nBaldur Geir Bragason\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nFritz Hendrik IV\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðný Guðmundsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHeimir Björgúlfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildigunnur Birgisdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHildur Bjarnadóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter\n\n\n\n\n\n\n\n\nHreinn Friðfinnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKarin Sander\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Steingrímur Jónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLeifur Ýmir Eyjólfsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nLogi Leó Gunnarsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMagnús Helgason\n\n\n\n\n\n\n\n\nMargrét H. Blöndal\n\n\n\n\n\n\n\n\nMatthías Rúnar Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nMelanie Ubaldo\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Gíslason\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlöf Nordal\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnheiður Gestsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRúrí\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteingrímur Eyfjörð Kristmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nUnndór Egill Jónsson
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/abrakadabra/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Hafnarhúsið\, Tryggvagata 17\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/abracadabra.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211016
DTEND;VALUE=DATE:20211025
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20211014T125603Z
LAST-MODIFIED:20220916T111613Z
UID:19671-1634342400-1635119999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:SEQUENCES X - Lucky 3: PUTI
DESCRIPTION:Verkið PUTI er félagsleg kóreógrafía sem endurspeglar ofurraunveruleika kynþáttahlutverka og valdastigveldi. Verkið vitnar í átta klukkutíma vinnudag. \nÞótt frásagnirnar séu sundurleitar\, er kjarninn hinn sami. Við viljum varpa ljósi á sundraðan hóp\, fólk sem er rótlaust\, er í stöðugri endurnýjun og berst við að bjarga arfleifð sinni í ljósi menningarlegs tjóns. Með blygðunarlausum heiðarleika og varnarleysi\, tekur hópurinn á málefnum sem þessum. Í tilfelli PUTI; upplifun filippseyskra innflytjenda á Íslandi\, tilfærslu og kynþáttafordóma. \nOpnunargjörningur \nLucky 3 (st. 2019) er listahópur stofnaður af Darren Mark\, Dýrfinnu Benitu Basalan og Melanie Ubaldo; íslenskir listamenn af filippeyskum uppruna. \nDarren Mark (f. 1993) útskrifaðist með BA próf í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Hann flutti til Íslands frá Filippseyjum aðeins átta ára gamall ásamt fjölskyldu sinni. Hann vinnur aðallega við fatahönnun\, hann fæst við að taka í sundur og setja flíkur saman til þess að endurnýta og betrumbæta þær og búa til nýjar flíkur. Darren hefur áður sýnt á Dutch Design Week í Eindhoven\, Designer’s Nest – Copenhagen Fashion Week  og á Hönnunarmars í Reykjavík. \nDýrfinna Benita Basalan (f. 1992) vinnur sem myndlistarmaður en er líka þekkt sem tónlistarkonan Countess Malaise. Dýrfinna er fædd og uppalin á Íslandi og á íslenskan föður. Hún útskrifaðist með BA í myndlist og hönnun frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam árið 2018. Dýrfinna vinnur út frá mörgum miðlum og takast verk hennar oft á um sjálfsmynd\, samfélag og einsemd. Dýrfinna er partur af listamannahópnum The Blue Collective\, hópur alþjóðlegra listamanna sem eru hinsegin og af jaðarsettum kynþáttahópum. Með þessum listahópi hefur Dýrfinna m.a. sett upp sýningar í Juliette Jongma gallerí\, Amsterdam og í Decoratillier í Brussels í samstarfi við Living Leaving Dacota. \nMelanie Ubaldo (f. 1992) útskrifaðist með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Í verkum Melanie er myndefni og texti órjúfanleg heild. \nSjá má sundurleit málverk sem innihalda texta sem minnir helst á veggjakrot. Textinn vísar í hennar eigin reynslu af fordómafullri hegðun annarra í hennar garð. Verkin afhjúpa valdið sem felst í fordómum og eyðandi áhrif þeirra á þolendur. Melanie hefur áður sýnt í Kling og Bang og hefur tekið þátt í öðrum hópsýningum hérlendis og erlendis til að mynda í Hafnarborg\, Gerðarsafni\, hátíðinni Cycle – Music and Art festival og nýlega í Pavilion Nordico í Argentínu. Jafnframt er verk hennar að finna í safneign Listasafns Reykjavíkur.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sequences-x-lucky-3-puti/
LOCATION:OPEN\, Grandagarður 27\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/R1-04310-0036-Cropped.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210828
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T035726
CREATED:20210817T140238Z
LAST-MODIFIED:20220916T110451Z
UID:18400-1630108800-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Samfélag skynjandi vera
DESCRIPTION:Haustsýning Hafnarborgar í ár er Samfélag skynjandi vera\, í sýningarstjórn Wiolu Ujazdowska og Huberts Gromny. Með því að bjóða fjölbreyttum hópi – listamönnum\, fræðimönnum og fleirum – að taka þátt í sýningunni vilja sýningarstjórarnir skapa vettvang þar sem margar raddir mætast og ólíkir möguleikar tjáningar og skynjunar eru skoðaðir. Þannig mun sýningin bjóða upp á margvíslega nálgun\, með áherslu á tíma\, ferli og flutning\, þar sem rýmið verður virkjað\, kannað og nýtt á marga vegu\, svo safnið breytist í stað til að mynda tengsl. \nMeð því að líta á tengingu okkar við heiminn sem samfélag skynjandi vera getum við nálgast efnið á nýjan hátt\, hvort sem við eigum við samband manns og náttúru\, manns og menningar eða samband mannsins við sjálfan sig. Hugtakið skynjandi vera leysir okkur því undan viðjum gildishlaðinna orða\, svo við getum ímyndað okkur hvað það er að vera manneskja í stærra samhengi. Meginhugmyndin er að spyrja spurninga um sagn- og félagsfræðilega merkingu hins mannlega\, svo sem hún varðar það hvað og hver við teljum tilheyra samfélaginu. Hafnarborg og saga hússins eru einnig áhugaverður staður fyrir slíka rannsókn\, enda má segja að sú breyting sem gerð var á nýtingu hússins\, er því var breytt úr apóteki í safn\, hafi falið í sér táknræna umbreytingu\, þar sem horfið var frá læknisfræðilegum aðferðum\, þ.e. lyfjafræðinni\, og þess í stað leitað til hinna andlegu og menningarlegu áhrifa listarinnar. \nÞá vakna spurningar um togstreituna á milli lista og vísinda\, þar sem hægt er að líta á listina sem hugrænt verkfæri sem hjálpar okkur að greina það sem ekki er hægt að skýra með vísindunum einum saman – tengslin á milli hins þekkta og hins óþekkta. Með því að þenja skynfærin gefur sýningin gestum tækifæri á að upplifa stað og stund og leiða hugann að mikilvægi minninga og mismunandi samskiptaleiða\, tækniþróunar og fjarskipta\, er hafa valdið miklum breytingum á íslensku samfélagi\, sem er að verða æ fjölbreyttara. Þessi fjölbreytileiki hefur jafnframt í för með sér tengingu við aðra staði\, nýjar hefðir og siði. Hver komumaður hefur ákveðna þekkingu\, eigið safn minninga\, í farteskinu\, sem hann notar til þess að takast á við nýjar aðstæður og óþekkt land. Ef við hugsum um listina sem tæki sem gerir okkur kleift að skilja hið ósýnilega eða ógreinilega getum við jafnvel nýtt hana til þess að takast á við ólíkar skilgreiningar og þætti þess að vera skynjandi vera. \nHubert Gromny er myndlistarmaður\, fræðimaður\, sýningarstjóri og rithöfundur\, búsettur í Reykjavík. Hann útskrifaðist með MA-gráðu frá Listaháskólanum í Kraków\, Póllandi\, árið 2015. Þá er hann með BA-gráðu frá Jagiellonian-háskólanum í Kraków\, þar sem hann nam við heimspekideild skólans. Í starfi sínu kannar Hubert mörkin á milli listar\, fræða og dægurmenningar\, í því skyni að vinda ofan af stjórnmála- og félagsfræðilegum gildum sjónlista- og menningar. \nWiola Ujazdowska er myndlistarkona\, gjörningalistamaður og listfræðingur\, búsett í Reykjavík. Hún er með MA-gráðu í listfræði frá Kóperníkusarháskólanum í Toruń\, Póllandi\, þar sem hún lagði einnig stund á málaralist við myndlistardeild skólans. Á árunum 2012-2013 stundaði hún svo nám við CICS í Köln\, Þýskalandi. Verk Wiolu fást að mestu við líkama og kyn á hinu pólitíska sviði\, með tilliti til fólksflutninga\, stéttaskiptingar\, landamæra og trúarkenninga\, auk þess sem hún tekst á við menningar- og félagsfræðilega strúktúra í heimspekilegu\, mann- og menningarfræðilegu samhengi. \nListamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Agnieszka Sosnowska\, Andrea Ágústa Aðalsteinsdóttir\, Angela Rawlings\, Anna Wojtyńska\, Dance Africa Iceland\, Freyja Eilíf\, Gígja Jónsdóttir\, Hildur Ása Henrýsdóttir\, Hubert Gromny\, Kathy Clark\, Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir\, Melanie Ubaldo\, Michelle Sáenz Burrola\, Nermine El Ansari\, Pétur Magnússon\, Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson\, Styrmir Örn Guðmundsson\, Ufuoma Overo-Tarimo og Wiola Ujazdowska. \nÞessi sýning verður sú ellefta í haustsýningarröð Hafnarborgar en verkefnið hefur það að markmiði að gefa sýningarstjórum sem ekki eiga langan feril að baki kost á að senda inn tillögu að sýningu í safninu. \nÞað er Listráð Hafnarborgar ásamt forstöðumanni sem fer yfir umsóknir og velur vinningstillöguna ár hvert.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/samfelag-skynjandi-vera/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/Hafnarborg-2021-Samfelag-skynjandi-vera-slideshow.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR