BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230621
DTEND;VALUE=DATE:20231216
DTSTAMP:20260530T144911
CREATED:20230630T142120Z
LAST-MODIFIED:20230630T142120Z
UID:31971-1687305600-1702684799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lukas Bury: Zigaretten nach Berlin
DESCRIPTION:Verkið Zigaretten nach Berlin (Sígarettur til Berlínar) byggir á ljósmynd af sígarettutegundinni Jin Ling. Þessi smygltegund sígaretta varð einhver sú vinsælasta í Evrópu á tíunda áratug síðustu aldar og fyrsta áratug þessarar. Verkið er áskorun á gildandi viðmið í myndlist og þenur mörk þess sem er löglegt auk þess að afmá mörkin milli frummynda og eftirmynda.\nVerkið Zigaretten nach Berlin dregur nafn sitt frá þekktu dægurlagi frá tíunda áratugnum. Lagið tengist sjónvarpsþáttunum Evróputígrarnir sem voru háðsádeila á upphaf kapítalismans í Póllandi eftir 1989.\n\n\nLukas Bury segir eftirfarandi um verkið:\nFall járntjaldsins einkenndist ekki eingöngu af tilkomu frjáls markaðar og lýðræðislegra kosninga í Austur-Evrópu; það boðaði fjölda djúpstæðra samfélagsbreytinga. Tilkoma kapítalísks kerfis og endurúthlutun auðs í kjölfarið leiddi til þróunar nýrra þjóðfélagsstétta og endurmótunnar Póllands. Mitt í hringiðunni virðist Edward Nowak\, söguhetja hinnar margrómuðu pólsku sjónvarpsþáttaraðar „Evróputígrarnir“\, vera persónugervingur tilviljana.\nÍ laginu „Zigaretten nach Berlin“\, byrjar Edward Rywinski\, leikarinn sem leikur Nowak\, á því að telja upp eignasöfnun og áunna virðingu sem honum hefur hlotnast í gegnum árin: tveir kóreskir lífverðir\, virt hesthús sem hýsir fágætan hest\, safarí þar sem fíll er skotmark vopnfimi hans\, lúxus farartæki\, Versace bindi og safn málverka. Þrátt fyrir að vera komnir í hans eigu\, kalla þessar hlutir fram tilfinningar lífsleiða\, frekar en gleði.\nTár kemur upp um ætlaða yfirvegun hans þegar hann segir frasann „Zigaretten nach Berlin“ og rifjar upp samverustundirnar sem hann eyddi með eiginkonu sinni\, Kryśka\, í fátæklegum Fiat Bambino bíl þeirra. Minningar um sígarettusmygl\, hana við stýrið og samverustundirnar í bílnum\, akandi um hina nýju höfuðborg Þýskalands\, flæða um huga hans. Í leit að fullvissu um að áhorfandinn skilji frásögn hans og tilfinningar grátbiður hann „Verstehen Sie“. Nowak\, hefur að því er virðist\, óvart mætt örlögum sínum. Eða kannski er refsing hans í því fólgin að hafa ekki fyrr áttað sig á eiginlegum löngunum sínum.\nÁ svipuðum tíma varð Jin Ling vinsælasta smyglsígarettutegundin. Framleiðsla þeirra var keypt af Baltic Tobacco Company\, með aðsetur í Kaliningrad\, árið 1997 voru þær kynntar á evrópskum markaði. Þrátt fyrir löglega framleiðslu þeirra voru Jin Ling sígarettur aldrei ætlaðar til opinberrar dreifingar innan Evrópusambandsins eða Rússlands. Þess í stað var aðeins hægt að verða sér út um þær með ólöglegum hætti. Ákveðnir Víetnamskir götusalar seldu vöruna fyrir utan stórmarkaði og lestarstöðvar í Berlín. Smyglið var fengið frá heildsölum í Póllandi og smyglað yfir pólsku landamærin af milliliðum\, þeirra á meðal voru faðir minn og afi. Sem betur fer komust þeir ekki upp í glæstar raðir Tígra Evrópu\, þar sem faðir minn varð fórnarlamb vökulla augna þýsku lögreglunnar.\nÍ dag ber ég arfleifð þeirra áfram\, þó í öðru samhengi. Samt spyr ég sjálfan mig stundum: „Hvað gæti faðir minn hafa orðið ef lögreglan hefði ekki gripið inn í þennan dag? Hver hefði hans eigin persónulega refsing verið\, í ætt við þá refsingu sem hæfir persónu úr Wildean ríkinu?“\n\n\nLukas Bury (f. 1991 í Bonn\, Þýskalandi\, búsettur í Reykjavík) er myndlistarmaður sem vinnur með málverk\, myndbönd\, innsetningar og gjörninga./ Lukas sameinar óljós mótíf úr listasögunni og af internetinu og skrásetur þau á frásagnarkenndan hátt. Ef það reynist ógerlegt\, snýr hann hinu óljósa á hnyttinn hátt í samtímalegt samhengi. / Lukas stundaði MA nám við Listaháskóla Íslands\, Hochschule für Bildende Künste í Braunschweig og Brera Academy of Fine Arts í Mílanó.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lukas-bury-zigaretten-nach-berlin/
LOCATION:Gallery Skilti\, Dugguvogur 3\, Reykjavík\, 104\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/06/Screenshot-2023-06-22-at-16.06.17.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220430
DTEND;VALUE=DATE:20220523
DTSTAMP:20260530T144911
CREATED:20220503T134526Z
LAST-MODIFIED:20220916T101725Z
UID:23059-1651276800-1653263999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lukas Bury: You Look Like a Viking
DESCRIPTION:Með sköpun málverka\, samhliða skrifum – bæði með ytri orðræðu\, en einnig á yfirborði strigans\, greinir Lukas Bury menningarlegt samhengi\, sögulegar frásagnir og sýndarmynd nútímans.\n\nMeð notkun sérkennilegra sjónarhorna takast mótíf hans á við pólitísk viðfangsefni og lýsa innri deilum annarrar kynslóðar innflytjanda\, sem varð heimsborgari eftir að hafa fæðst í vestur-evrópsku landi.\n\nLukas stundaði nám í MA-námi við Listaháskóla Íslands\, Hochschule für Bildende Künste í Braunschweig og Accademia di Belle Arti di Brera í Mílanó.\n\nBury hefur tekið þátt í hinum ýmsu sýningum\, t.a.m.\, Tilvera – Being (2018)\, í Verksmiðjan in Hjalteyri\, Common Ground í SIM Sýningarsalnum á Korpulfsstöðum (2020)\, Reykjavik\, Forðabúr – Supply (2020) í Nylistasafni Reykjavikur (curated by Hanna Styrmisdóttir)\, Extraterritorial (2021) í Mini Market\, Reykjavik (with Weronika Balcerak\, Flaviu Cacoveanu\, og Vitalii Shupliak. Curated by Ana Victoria Bruno)\, og Raw Power (2021) í Listasafni Reykjavíkur\, Reykjavik\, Iceland.\nHann hefur einnig tekið þátt í Reykjavik Arts Festival (2020) og Plan-B Art Festival in Borgarnes (2020) ásamt nýlegri sýningu hans\,\n“They have no pictures on the Wall” (2021)
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lukas-bury-you-look-like-a-viking/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/279309272_497203191889342_7637122383692948493_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220130
DTSTAMP:20260530T144911
CREATED:20220124T121220Z
LAST-MODIFIED:20220124T121356Z
UID:21167-1642204800-1643500799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Samsýning ‘22 - Vol. 1
DESCRIPTION:Þá er komið að því að kynna til leiks þá listamenn sem munu sýna í Þulu fram á sumar! \nListamenn eru: \nLilja Birgisdóttir \nDýrfinna Benita Basalan \nElli Egilsson \nLukas Bury \nÁslaug Íris Friðjónsdóttir \nVegna ástandsins þessa daga munum við deila með ykkur öllum verkum og umfjöllun á vefnum en einnig verður opið í galleríinu á hefðbundnum opnunartímum út sýninguna sem mun standa opin 15-30.janúar.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/samsyning-22-vol-1/
LOCATION:Þula\, Hjartartorg\, Laugavegur 21\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/samsyning-22.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211211
DTEND;VALUE=DATE:20211220
DTSTAMP:20260530T144911
CREATED:20211211T112026Z
LAST-MODIFIED:20211211T112026Z
UID:20720-1639180800-1639958399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Lukas Bury: They have no pictures on the walls
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/lukas-bury-they-have-no-pictures-on-the-walls/
LOCATION:RÝMD\, Völvufell 13-21\, Reykjavík\, 111\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/12/pictures-on-the-walls-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR