BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230203
DTEND;VALUE=DATE:20230204
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20230201T112028Z
LAST-MODIFIED:20230201T112028Z
UID:29199-1675382400-1675468799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jón Helgi Pálmason: Á meðan myndin dofnar
DESCRIPTION:„Minningar eru flókin fyrirbæri. Það er svo margt sem spilar inn í þegar kemur að minningum. Sumt festist betur í minninu en annað og er alltaf ljóslifandi á meðan annað gleymist alfarið. Við höfum nánast enga stjórn á því heldur. Við höldum áfram að lifa\, nýjar minningar verða til og aðrar gleymast á hverjum degi. Hvað verður um minningarnar sem við gleymum? Skiptu þær aldrei neinu máli? \nMinningarnar móta okkur\, allt fólkið og mismunandi umhverfi sem hefur þar áhrif. Jón Helgi veltir fyrir sér hvað það sé sem gerir fólk að því sem það sé í dag. Hvaða fólk og umhverfi hafa mótað minningar þess og hvernig það líti út í minninu. Hvað fólk sjái þegar það loki augunum. \nÍ sýningunni blandar Jón Helgi sínum eigin myndum saman við ljósmyndir úr fortíðinni til að gefa áhorfandanum innsýn í hvernig hann upplifir sínar persónulegu minningar á sjónrænan hátt. Með öðrum orðum – hvað hann sér þegar hann lokar augunum. Í hvert skipti birtist ný minning eða önnur svipmynd af henni. „Ég loka augunum\, ég sé brosandi andlit ömmu minnar sitjandi í gamla góða hægindastólnum að prjóna enn eina ullarpeysuna. Ég sé snjókomu í næturmyrkrinu í gegnum bílglugga á 90 kílómetra hraða\, við hlið mér er faðir minn\, við sjáum ekki lengra en að næstu stiku….” \nLjósmyndir geta virkað eins og minningar! \nJón Helgi Pálmason er frá Hafnarfirði en býr núna í Haag í Hollandi þar sem hann stundar nám í ljósmyndun í Royal Academy of Arts. Þar áður útskrifaðist hann frá ljósmyndadeild Tækniskólans í Reykjavík og eftir það KBH Film og Fotoskole í Kaupmannahöfn. Jón Helgi hefur sýnt bæði erlendis og hér á landi.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jon-helgi-palmason-a-medan-myndin-dofnar/
LOCATION:Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, Tryggvagata 15 Grófarhús\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/02/s-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220917
DTEND;VALUE=DATE:20221212
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220929T102413Z
LAST-MODIFIED:20220929T102413Z
UID:26655-1663372800-1670803199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elvar Örn Kjartansson: Kerfið
DESCRIPTION:Á sýningunni „Kerfið“ leitast Elvar Örn Kjartansson við að draga upp á yfirborðið hið ósýnilega kerfi sem liggur að baki nútíma þægindum og við tökum sem sjálfsögðum hlut. \nFrá árinu 2016 hefur Elvar Örn unnið að umfangsmiklu ljósmyndaverkefni þar sem hann hefur heimsótt fyrirtæki og stofnanir á Íslandi og myndað þar ýmis rými. Um er að ræða stórt og flókið kerfi sem samanstendur af mannvirkjum\, stofnunum og þjónustufyrirtækjum og óteljandi pörtum sem eru innviðir þess. Hvert og eitt þeirra þjónar sínum sérstaka tilgangi og sér til þess að þjóðfélagið nær að ganga sinn vanagang frá degi til dags og við lifum og hrærumst í því  nánast óafvitandi. Það er ekki fyrr en rafmagnið fer af eða þegar netsambandið virkar ekki að við finnum fyrir því en einkum þegar farið er í verkfall í heilu atvinnugreinunum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elvar-orn-kjartansson-kerfid/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/09/1.skolphreinsistod_saebraut_b.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220911
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220531T112229Z
LAST-MODIFIED:20220915T164500Z
UID:23519-1654732800-1662854399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Jessica Auer: Landvörður
DESCRIPTION:Frá árinu 2016 hefur Jessica Auer fengist markvisst við myndræna skrásetningu á áhrifum fjöldaferðamennsku á íslenskt landslag og samfélag. \nJessica ferðaðist milli Kanada og vinnustofu sinnar á Íslandi og fór ekki varhluta af ferðamannauppganginum á þessum tíma og upplifði sig í þeirri stöðu að vera í senn útlendingur og heimamanneskja.  Með því að sjá báðar hliðar með augum ferðamannsins vaknaði hjá henni þörf til að deila þessari reynslu sinni í gegnum ljósmyndir og myndbönd. \nÞegar ferðalög lögðust af í Covid faraldrinum urðu töluverðar breytingar á verkum Jessicu sem hófu að endurspegla gildiskerfi þessa uppgangsiðnaðar. Í flestum nýjustu ljósmyndum hennar beinir hún athyglinni að náttúruvernd og þeim tilraunum sem gerðar eru til að vernda svæði sem eru viðkvæm fyrir ágangi í óvissuástandi heimsfaraldurs. \nÁ undanförnum árum hefur hún ferðast um landið með stórformats myndavél til að taka portrettmyndir af landvörðum og öðrum þeim sem sinna gæslu á þessum svæðum. Þessi samskipti gáfu tækifæri til að spjalla um gildi menningar og náttúru í íslensku landslagi. \nSýningin Landvörður\, með sínum portrettmyndum\, landslagsljósmyndum og myndböndum\, er hugleiðing um þá samábyrgð sem Íslendingar og gestir landsins bera við að vernda þessa einstöku náttúru\, og veltir einnig upp spurningum um þá þversögn sem felst í því að reyna að vernda sömu svæði og ferðamannaiðnaðurinn leitast við að nýta. \nJessica Auer er kanadískur ljósmyndari\, kvikmyndagerðamaður og kennari sem búsett er á Seyðisfirði. Verk hennar hafa verið sýnd á söfnum\, galleríum og hátíðum\, m.a. á Listasafni Íslands\, The Canadian Center for Architecture og á Ljósmyndatvíæringnum í Mulhouse í Frakklandi. Árið 2020 hlaut hún styrk úr sjóði Magnúsar Ólafssonar ljósmyndara frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir verkefni sitt „Looking North” sem var gefið út af Another Place Press árið 2021\, birt á sjónvarpsstöðinni ARTE og í breska dagblaðinu The Guardian. Jessica er með MFA prófgráðu frá Concordia University í Montréal\, þar sem hún kennir ljósmyndun í hlutastarfi. Á Íslandi rekur hún Ströndina Studio á Seyðisfirði. \n  \nJessica vill þakka Kormáki Mána Hafsteinssyni og Zuhaitz Akizu fyrir þeirra framlag sem og Matthew Brooks og Luigi Iagulli fyrir aðstoðina við eftirframleiðslu verkanna. Sýningin var styrkt af Canada Council for the Arts og the Conseil des arts et des lettres du Québec.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/jessica-auer-landvordur/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/01_eyrun_skaftafell.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220609
DTEND;VALUE=DATE:20220817
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220531T111138Z
LAST-MODIFIED:20220916T100918Z
UID:23512-1654732800-1660694399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ester Jóhannesdóttir: Ljósrými – skuggarými
DESCRIPTION:Með aukinni náttúrulegri birtu verður ljósmyndun auðveldari og aðgengilegri og andstæður verða skýrari eftir því sem myrkrið verður minna.\n \nAthöfnin að ljósmynda eða mynda ljós á sér margar birtingamyndir. Í sýningunni Ljósrými – skuggarými er náttúrulegt ljós myndað í innviðum bygginga sem og úti í ljósaskiptunum. Við það myndast abstrakt form og skuggar verða greinilegri í afmörkuðum ramma myndflatarins en þrátt fyrir það er hið ljóðræna aldrei langt undan. \nEster Jóhannesdóttir útskrifaðist með MFA gráðu frá University of Leeds árið 2010 og hefur fengist við listsköpun í yfir 30 ár.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/ester-johannesdottir-light-space-shadow-space/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/1_2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220402
DTEND;VALUE=DATE:20220530
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220503T142957Z
LAST-MODIFIED:20220916T101619Z
UID:23073-1648857600-1653868799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Myndir ársins 2021
DESCRIPTION:Myndir ársins er árleg sýning Blaðaljósmyndarafélags Íslands. Á sýningunni í ár verða myndir frá liðnu ári sem valdar verða af óháðri dómnefnd úr öllum innsendum myndum íslenskra blaðaljósmyndara. \nMyndunum er skipt í sjö flokka: \n\nFréttamyndir\nDaglegt lí\nÍþróttir\nPortrett\nUmhverfi\nTímarit\nMyndaraðir\n\nÍ hverjum flokki velur dómnefndin bestu myndina / bestu myndaröðina auk einnar myndar úr fyrrnefndum flokkum er svo valin mynd ársins. \nBlaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1980 og er ein fjölsóttasta ljósmyndasýningin landsins ár hvert. \nMynd ársins 2020 Þorkell Þorkelsson: Ásta Kristín Marteinsdóttir\, sjúkraliði og laganemi\, skráði sig í sveit bakvarða þegar faraldurinn knúði að dyrum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/press-photographs-of-the-year-2021/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/covid_kvoldvakt-8.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220203
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220301T163148Z
LAST-MODIFIED:20220825T133640Z
UID:22400-1643846400-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elías Arnar: Árstíðir birkisins
DESCRIPTION:Sýning ljósmyndarans Elíasar Arnars „Árstíðir birkisins“ samanstendur af tólf innrömmuðum ljósmyndum af íslenska birkinu í öllum árstíðum. Hún er einskonar samþætting á landfræðilegum og heimspekilegum nálgunum á trjátegund sem hefur spilað stórt hlutverk í menningu\, sögu og umhverfi á Íslandi. \nÆtlunin með sýningunni er að varpa ljósi á mikilvægi birkisins og hlutverki þess í íslenskum vistkerfum og á sama tíma er ljósmyndaranum hugleikið að ýta undir frekari vernd og/eða endurheimt á þeim vistkerfum sem einkenndu Ísland fyrir landnám. \nGögn sýna að Ísland var að miklu leyti þakið birkiskógum við landnám og að tréð hafi að mörgu leyti verið lifibrauð fólks þar sem nýting á borð við eldivið\, byggingarefni\, beit o.þ.h. var fólki lífsnauðsynleg vegna einangrunar landsins. Í dag er þetta auðvitað álitið sem ósjálfbær nýting á viðkvæmri auðlind en spurningar vakna um það hvort saga og menning landsins hefði verið öðruvísi ef þetta hefði ekki verið gert. \nElías Arnar er sjálfstætt starfandi ljósmyndari\, landvörður og landfræðinemi við Háskóla Íslands.buy paxil online https://blackmenheal.org/wp-content/languages/new/paxil.html no prescription\n Verk hans sækja innblástur úr landfræðilegum fyrirbærum sem varpa ljósi á samspil manns og náttúru. Með verkum sínum vill Elías vekja fólk til umhugsunar um útivist\, náttúrutengingu og umhverfismál almennt. Lykilþáttur í nálgun hans að listsköpun er að huga að veru- og þekkingarfræðilegum hugmyndum um landfræðileg fyrirbæri og ýta undir hugmyndir um náttúruna sem síbreytilegar fremur en fastmótaðar. Sýningin  „Árstíðir birkisins“er hluti af þeirri nálgun þar sem ljósi er varpað á birkið í síbreytilegu loftslagi árstíðanna á Íslandi og sýnir fólki lítinn og einfaldan hluta af náttúrunni með augum landfræði-ljósmyndara.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elias-arnar-betula-seasons/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/03/dsc02330b.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220112T144610Z
LAST-MODIFIED:20220825T133412Z
UID:21063-1642204800-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Augnablik af handahófi
DESCRIPTION:Sýningin Augnablik af handahófi er byggð upp á sjónrænum þáttum sem er safnað saman úr safneign Ljósmyndasafnsins og textum sem fengnir eru úr prentuðum ritum. Þannig er sýningin tilbúningur þar sem þar sem sýningarstjórinn Yean Fee Quai stillir saman raunverulegum ljósmyndum og ótengdum bókmenntum. \nÁ síðustu 40 árum hefur Ljósmyndasafn Reykjavíkur safnað meira en sex og hálfri milljón ljósmynda. Í safneigninni eru myndir teknar af atvinnuljósmyndurum sem og áhugamönnum sem hafa náð að mynda það sem fyrir augu ber\, atburði og uppákomur\, fræga einstaklinga jafnt og alþýðufólk\, venjur\, hversdagsleg fyrirbæri og allt það sem hægt er að ná á mynd. Safnið fær ljósmyndir og filmur frá einstaklingum\, fyrirtækjum og stofnunum\, sem berast  í kössum og skjalaskápum og hafa fyrir löngu fyllt takmarkað geymslurými þess. \nFyrstu tvo áratugi safnsins\, fyrir tíma stafrænnar tækni\, sáu safnverðir um hið krefjandi verkefni að flokka\, skrá\, rannsaka og varðveita þessi augnablik sem fest voru á filmu\, sem var tímafrekt og seinlegt starf. Síðustu tvo áratugi\, eftir að stafræn ljósmyndun tók við af filmuljósmyndun á örskömmum tíma\, hefur stafræn tækni verið nýtt til að gera gögn safnsins aðgengileg á einfaldan hátt\, með því að breyta ljósmyndum og filmum safnsins í myndrænt gagnasafn. \nÁ sýningunni Augnablik af handahófi er myndavefurinn sem er aðgengilegur á heimasíðu Ljósmyndasafnins notaður. Þegar myndir eru sóttar á myndavefinn með hjálp ákveðinna leitarorða\, birtast ófyrirséðar samsetningar ljósmyndaðra augnablika. Hvert þeirra er er einstakur fjársjóður og þau tengjast í gegnum orð við myndaleit. \nÖfugt við myndavefinn sem notast við algóritma\, var leitað á gamla mátann að texta til notkunar með myndunum—brot úr textum úr útgefnu efni\, sem ýmist kallast á við\, eða renna saman við sjónrænu frásögnina. Hvort sem það eru myndirnar sem mynda samhljóm við textana\, eða orðin sem vísa í myndirnar\, kallar þessi meðvitaða tilraun fram samræmi eða ósamræmi þarna á milli. \nSýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2022.buy diflucan online https://medstaff.englewoodhealth.org/wp-content/languages/new/diflucan.html no prescription
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/random-moments/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/SCL-ABS-160_netupplausn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20220110T155022Z
LAST-MODIFIED:20220916T105009Z
UID:21030-1642032000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósmyndahátíð Íslands
DESCRIPTION:Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum\, fyrirlestrar\, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. \nLjósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum\, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins. \nSamstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur\, BERG Contemporary\, Félag íslenskra samtímaljósmyndara\, Gallery Port\, Gerðarsafn\, Hafnarborg\, Listasafn Íslands\, Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, RAMskram\, Þjóðminjasafn Íslands. \nStjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-icelandic-photo-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/tipf2022_facebookspjald.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211218
DTEND;VALUE=DATE:20220110
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20211122T155417Z
LAST-MODIFIED:20220825T132317Z
UID:20315-1639785600-1641772799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sýning á útskriftarverkum nemenda Ljósmyndaskólans
DESCRIPTION:Á sýningunni eru verk átta nemenda sem útskrifast með diplóma í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum í desember 2021. \nÚtskriftarverkin eru afar fjölbreytt enda spanna viðfangsefni og aðferðir nemenda vítt svið. Í verkum sínum takast þau á við ólík málefni út frá mismunandi forsendum\, listrænni sýn og fagurfræði. Verkin á sýningunni endurspegla þannig gróskuna í samtímasljósmyndun og fjölbreytta möguleika sem í ljósmyndamiðlinum felast.buy viagra generic https://mexicanpharmacyonlinerx.net over the counter\n \nMeðfylgjandi kynningarljósmyndir eru úr verkinu Litróf eftir Hildi Örlygsdóttur. Hildur er ein af útskriftarnemendunum.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/final-show-by-students-of-the-school-of-photography/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/hildur.litrof.vefupplausn1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20211111
DTEND;VALUE=DATE:20220131
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20211025T132311Z
LAST-MODIFIED:20220825T132654Z
UID:19879-1636588800-1643587199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Guðmundur Óli Pálmason: Yfirgefin list
DESCRIPTION:Eyðibýli á landsbyggðinni hafa lengi átt athygli Guðmundar Óla Pálmasonar og veitt honum innblástur fyrir listræna sköpun. Verk Guðmundar Óla virka eins og óræðar glefsur úr fortíðinni fyrir tilstilli gamallar ljósmyndatækni sem hann hefur sérhæft sig í. \nMikilvægur þáttur verksins „Yfirgefin list“\, sem sjá má á þessari sýningu\, er gjörningur sem Guðmundur Óli hófst handa við fyrir rúmu ári. Þar skilur hann eftir nokkur af verkunum á víðavangi\, fyrir hvern sem er að finna og eiga\, oftast á þeim stöðum þar sem myndirnar voru teknar eða tengdum stöðum. Þó Guðmundur Óli sé fæddur og uppalinn í Reykjavík hefur hann aldrei fundið sig í borgarumhverfi og veltir fyrir sér þeirri stóru spurningu hvort tenging sé á milli þess að fólk hafi að mestu yfirgefið sveitir landsins til að búa í borg og bæjum og þess rofs sem hefur orðið við náttúru og andleg málefni. Með því að skilja verkin eftir – yfirgefa þau – leitast hann við að svara þessari spurningu og til þess vísar titill sýningarinnar. \n“Ég er hrifinn af hugmyndinni um að listin fari heilan hring\, komi aftur heim. Sérstaklega vegna þess að viðfangsefnið er eyðibýli\, og mér finnst sem ég sé að gefa þeim einhverskonar líf aftur\, að ég sé að gefa þeim nýjan tilgang.” \nÞannig eru eyðibýli í verkum hans ekki myndir af húsum\, heldur fólki\, á mörkum fortíðar og nútíðar; fólki sem er horfið á braut og eftir standa spurningar sem er ósvarað um líf þess\, dauða og hvers vegna enginn tók við búinu. Er nútímafólk\, rétt eins og yfirgefnu húsin\, tóm ílát sem andinn hefur yfirgefið? \nGuðmundur notast eingöngu við útrunnar Polaroid-flysju-filmur (peel-apart)\, sem hann handvinnur með ýmis konar spilliefnum. Filmurnar eru svo skannaðar og enda sem stafrænt prent á álplötum. Því má segja að aðferðafræðin sjálf sé á sama hátt og myndefnið ekki sönn skráning á fortíðinni\, hún sé fremur einskonar virðingarvottur við hið liðna.buy vilitra generic https://newonlineandblo.com/vilitra.html over the counter\n Hann dregur þá ályktun að allt sé á endanum yfirgefið; myndefnið\, aðferðafræðin og listin sjálf. \nGuðmundur Óli Pálmason er fæddur í Reykjavík árið 1978. Hann lauk BA-gráðu í listljósmyndun frá University of the Arts í London árið 2011 og sérnámi í ljósmyndun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2007. Þar áður lagði hann stund á upplýsinga og fjölmiðlafræði frá sama skóla á árunum 2005-2007.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/gudmundur-oli-palmason-yfirgefin-list/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/10/gudmundur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211213
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20210830T115229Z
LAST-MODIFIED:20220916T111055Z
UID:18757-1632528000-1639353599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurður Unnar Birgisson: Hilmir snýr heim
DESCRIPTION:Sýningin „Hilmir snýr heim“ eftir ljósmyndarann og myndlistarmanninn Sigurð Unnar Birgisson samanstendur af stækkuðum passamyndum af karlmönnum um sjötugt ásamt blómamyndum úr náttúru Íslands eftir Hjálmar R. Bárðarson (1918-2009). \nÞað kann að þykja óvenjulegt að stilla þessum tveimur myndefnum upp saman. Hvað gætu rosknir karlar átt sameiginlegt með blómum? Við fyrstu sýn virðist það ekki vera margt annað en að hefðbundinni\, raunsærri nálgun er beitt í báðum tilfellum auk þess sem greina má  samhljóm með myndformum. Sýningin veltir þó upp djúpstæðari spurningum þar sem kafað er undir yfirborðið og hlutirnir settir í stærra samhengi. \nMyndirnar af karlmönnunum eru allar teknar á vinnustað ljósmyndara\, Passamyndum\, vegna endurnýjunar ökuskírteinis þeirra við 70 ára aldur. Sigurður Unnar hefur því tekið fjölmargar slíkar myndir í sínu starfi\, sem hefur gefið honum færi á að sjá og skilgreina þær sem afmarkað viðfangsefni sem hann velur að nálgast sem listform. Karlarnir standa allir á tímamótum\, starfsævinni að ljúka og eftirlaun taka við. Til að fá dýpri innsýn í líf þeirra og í hvað þeir vörðu tíma sínum hitti Sigurður Unnar þá einnig utan ljósmyndastofunnar. Afrakstur þess eru auk myndanna textaverk og stuttmynd sem veita dýpri innsýn inn í heila starfsævi. \nVið starfslok verða óumflýjanlega miklar breytingar og við tekur vegferð í átt til andlegrar endurskoðunar. Þetta getur leitt til hugljómunar þar sem manneskjan getur sprungið út eins og blóm\, sagt skilið við þungann\, leyft andanum að lyfta sér og opnast á mót sólu. Sagan segir að Búdda hafi haldið blómi á lofti án orða fyrir framan hóp lærisveina sinna. Þeir horfðu á hann og blómið til skiptis um stund. Loks breiddist lítið bros á varir eins þeirra. Sagt er að brosið marki upphaf Zen búddisma. \nEinnig bendir þýski rithöfundurinn Eckhart Tolle á að blóm séu hugsanlega það fyrsta sem manneskjur dáðu aðeins fyrir fegurð sína. Þau birtist okkur sem sendiboðar og leiðarvísar í átt að hinu háleita\, heilaga og óhlutbundna sem vaki innra með hverju og einu okkar. \nSigurður Unnar segir: „Herrarnir á sýningunni eru mín blóm. Ég dái þá fyrir fegurð þeirra og þeir eru minn leiðarvísir í átt að því hvernig á að lifa sem karlmaður. Þeir komu allir í myndatöku til mín og suma þeirra hitti ég aftur.“ Kjarnann í samlíkingu herranna og blómanna er svo að finna í  6. kafla Mattheusarguðspjalls\, versi 28: „Hyggið að liljum vallarins\, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna.“ \nBlómamyndir Hjálmars R. Bárðarson birtust í bók hans Íslenskur gróður árið 1998. Hann var afkastamikill ljósmyndari og gaf út fjölda ljósmyndabóka. Myndasafn Hjálmars er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands sem veitti góðfúslegt leyfi fyrir notkun myndanna á sýningunni. \nSigurður Unnar Birgisson býr í Reykjavík og starfar á ljósmyndastofunni Passamyndir. Hann útskrifaðist með BA og MA gráðu frá Universität der Künste í Berlín árið 2015 undir handleiðslu Mariu Vedder. Frá því að hann lauk námi hefur hann komið að innsetningum á listahátíðinni „Háskar“\, lesið upp dagbókarfærslu sem hluta af gjörningi í Mengi\, listamannareknu rými í Reykjavík\, leikstýrt föður sínum í tónlistarmyndabandi við lag Teits Magnússonar „Bara þú“ og unnið fyrir Reykjavík Dance Festival í samstarfi við Michikazu Matsune að verkinu „The Viewers“.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurdur-unnar-birgisson-hilmir-snyr-heim/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/return-of-the-king-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210821
DTEND;VALUE=DATE:20211101
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20210824T115620Z
LAST-MODIFIED:20220916T110209Z
UID:18663-1629504000-1635724799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Anna Elín Svavarsdóttir: Endurfundur
DESCRIPTION:„Eitt af viðfangsefnum mínum í myndsköpun er að nýta mér nærumhverfið séð frá mismunandi sjónarhornum. Hlutir í umhverfinu taka sífelldum breytingum\, fá mismunandi tilgang eftir því hvenær og hvernig maður horfir á þá.“ (Anna Elín Svavarsdóttir 2017) \nEftir andlát Önnu Elínar vaknaði áhugi fjölskyldunnar á að sýna hluta verka hennar. Verkin endurspegla feril hennar sem listræns ljósmyndara en Anna Elín hafði einstaklega næmt auga fyrir hinu myndræna í umhverfinu og myndaði fjölbreytileg mótíf. \nAnna Elín útskrifaðist sem ljósmyndari árið 1987. Hún lærði hjá Leifi Þorsteinssyni og að hluta til hjá Guðmundi Ingólfssyni. Eftir útskrift vann hún á Ljósmyndasafni Reykjavíkur frá 1987- 1989 og frá 1994-1998 sem yfirmaður myndadeildar. \nEftir það hóf hún feril sem sjálfstætt starfandi ljósmyndari og vann meðal annars sem ljósmyndari á tökustað í kvikmyndum. Árið 2011 stofnaði hún fyrirtækið Lífssögu og sérhæfði sig í lífssögugerð í máli og myndum. \nMeðal samsýninga og ljósmyndaverkefna sem hún tók þátt í má nefna Ljósmyndakeppni Arkitektur Háskólans Íslands þar sem verk hennar hlaut fyrstu verðlaun og er síðan í eigu Háskóla Íslands.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/anna-elin-svavarsdottir-endurfundur/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/aes_kynningarmynd-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210306
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T085355
CREATED:20210824T120352Z
LAST-MODIFIED:20220916T105754Z
UID:18684-1614988800-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Sigurhans Vignir: Hið þögla en göfuga mál
DESCRIPTION:Sýningin Hið þögla en göfuga mál er yfirlitssýning um ljósmyndaferil Sigurhans Vignir* (1894-1975) en hann starfaði sem ljósmyndari frá 1917 til 1965\, lengst af í Reykjavík. \nVignir skildi eftir sig verðmætt filmusafn sem varðveitt er á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í því eru ríflega 40 þúsund myndir\, flestar teknar á árunum 1940-1965. Margar þeirra eru þýðingar-miklar heimildir um mannlíf og uppbyggingu íslensks þjóðfélags á fyrstu áratugum lýðveldisins. Viðfangsefnin eru af ýmsum toga en tengjast oftast fjölskrúðugu atferli manneskjunnar frá vöggu til grafar s.s.; skírn barns\, stofnun lýðveldis\, verkafólk við vinnu\, skautahlaup\, hernám á hlutlausu þjóðríki\, fegurðarsamkeppni í Tívolí\, afmæli\, hárkollugerð o.s.frv. \nVignir tók fjölda mynda fyrir Reykjavíkurborg og eru margar þeirra mikilvægar heimildir um starfsemi sveitarfélagsins\, sögu þess og þróun. \nÞá var Vignir einnig mikilvirkur leikhúsljósmyndari og tók myndir fyrir Þjóðleikhúsið\, Leikfélag Reykjavíkur og önnur minni leikfélög. \nÁ sýningunni verður um 110 nýjar stækkanir gerðar eftir upprunalegum filmum auk nokkurs af frummyndum\, bæði portrett og handlitaðar landslagsmyndir. \nSýningarstjórn og myndaval: Gísli Helgason\, Sigríður Kristín Birnudóttir og Kristín Hauksdóttir. \n*27. ágúst 1918 fékk Sigurhans ráðherrabréf sem veitti honum leyfi til að taka upp ættarnafnið Vignir. Að ósk afkomenda er ættarnafnið ekki fallbeygt.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/sigurhans-vignir-hid-thogla-en-gofuga-mal/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/01/Silent-but-Noble-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR