BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Icelandic Art Center
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20220101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220502
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220120T132858Z
LAST-MODIFIED:20220825T131934Z
UID:21142-1642809600-1651449599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Vassilis Triantis: Þar sem rósir spruttu í snjó
DESCRIPTION:Þar sem rósir spruttu í snjó er sýning á ljósmyndum Vassilis Triantis. Sýningin er samsett úr ljósmyndum Vassilis sjálfs og myndum úr fjölskyldualbúmi tengdaforeldra Vassilis\, þeirra Ástu og Gústa sem lengi voru rósabændur í Laugarási í Biskupstungum.buy stromectol online https://gaetzpharmacy.com/stromectol.html no prescription\n Sýningin er virðingarvottur við líf og starf þeirra hjóna og endurspeglar minningar um rósir sem spruttu í snjó. \n\nVassilis Triantis er fæddur í Grikklandi en býr og starfar í Hollandi. Hann sótti sér menntun í líffræði og starfar nú jöfnum höndum að líffræðirannsóknum og við ljósmyndun. Hann hefur tekið þátt í sýningum víða og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/vassilis-triantis-roses-grew-on-snow/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/roses-on-snow.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220502
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220120T132256Z
LAST-MODIFIED:20220825T132148Z
UID:21135-1642809600-1651449599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Marinó Thorlacius: Straumnes
DESCRIPTION:Straumnesfjall stendur milli Aðalvíkur í suðri og Rekavíkur í norðri og er nú hluti af friðlandinu á Hornströndum. Þar byggði og starfrækti bandaríski herinn ratsjárstöð á tímum kalda stríðsins. Stöðin starfaði aðeins í tæp þrjú ár\, frá árinu 1958 til 1961. Hreinsun á fjallinu og nærliggjandi svæðum var framkvæmd árið 1991 í samstarfi hersins og Íslendinga þó enn megi sjá greinileg ummerki um þessa starfsemi á fjallinu. Sýningin Straumnes eru hluti af dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands. \nLjósmyndarinn Marínó Thorlacius ljósmyndaði svæðið árin 2015 og 2019 og deilir hér með okkur sýn sinni á það sem enn stendur af ratsjárstöðinni við ysta haf. Ægifegurð landsins og síbreytilegt veðrið eru bakgrunnur mynda sem sýna leifarnar af því sem var. Þegar þokunni sem gjarna hangir yfir léttir og birtan opnar sýn yfir sléttan fjallstoppinn má sjá steypuklumpa liggja á víð og dreif. Spýtnarusl og járn hálfgrafið í fjallsbrúninni er eins og staðfesting á þeirri sögu að stöðinni hafi verið rutt fram af fjallinu. Eru þetta ummerki um mengunarslys eða eru þetta menningarsögulegar rústir? \nÞað hefur verið þrekraun að byggja og þjónusta ratsjárstöð á þessum afskekkta stað\, enda gafst herinn fljótlega upp. Ólgandi hafið 400 metra fyrir neðan fjallsbrúnina\, varpar upp hljóðmynd af þeim takmörkum sem náttúran setur staðnum og þeim sem þar dvöldu. Maðurinn má sín lítils gegn náttúruöflunum á Straumnesfjalli. \nMarinó Thorlacius sýndi ljósmyndir sínar fyrst árið 2004 og hefur síðan starfað við ljósmyndum. Hann vinnur jöfnum höndum að listrænum verkefnum og auglýsingaljósmyndun. Oft er hann í nánu samstarfi við listamenn og hönnuði og mótar með þeim myndheim verkefnanna. Myndir hans hafa birst í innlendum og erlendum tímaritum og á sýningum. Marinó er alinn upp í Örlygshöfn við Patreksfjörð og býr og starfar til skiptis í Reykjavík og á bernskuslóðum.buy prednisone online https://rxbuywithoutprescriptiononline.net/prednisone.html no prescription\n \nSýningin stendur yfir til 1. maí 2022 \nSýningarstjóri er: Kristín Halla Baldvinsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/marino-thorlacius-straumnes/
LOCATION:The National Museum of Iceland\, Suðurgata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/straumnes.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220122
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20211129T120620Z
LAST-MODIFIED:20220825T133445Z
UID:20408-1642809600-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hallgerður Hallgrímsdóttir: Fáeinar vangaveltur um ljósmyndun – III. hluti
DESCRIPTION:Það er svo auðvelt að taka mynd – bara að ýta á takkann – næstum objet trouvé\, skjalfesting á fundarstað ljóseinda við sameindir. Á sama tíma er ljósmyndin leyndardómsfull og tilfinningarík\, þar sem fagurfræði og innsæi leggja sitt á vogarskálarnar og vísindin eru aldrei langt undan. Þá hugsar listakonan um það hvernig við sjáum og setur það í samband við ljósmyndamiðilinn – hvernig þrívíð rými\, hlutir og augnablik eru túlkuð í tvívídd. Verkin eru unnin með rúmsýn mannsaugans á heilanum\, sem og vélanna sem maðurinn hefur hannað til að sjá og festa það sem þær sjá með hætti sem við skiljum. Að við teljum. \nHallgerður Hallgrímsdóttir er myndlistarkona sem vinnur mest með ljósmyndamiðlinn í sinni sköpun. Hún er með BA í myndlist með áherslu á ljósmyndun frá Glasgow School of Art og meistaragráðu í myndlist frá Akademin Valand í Gautaborg\, þaðan sem hún lauk námi árið 2019.buy paxil online https://medstaff.englewoodhealth.org/wp-content/languages/new/paxil.html no prescription\n Verk hennar hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í The Photographer’s Gallery í London\, Hasselblad Center í Gautaborg\, í Listasafninu á Akureyri\, Listasafni Færeyja\, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Listasafni Reykjavíkur. Ljósmyndabók Hallgerðar Hvassast kom út árið 2016 og svo 2018 gaf Pastel ritröð út ljóð-myndabókina Límkennda daga. Hallgerður býr og starfar í Reykjavík. \nSýningarstjóri er Unnar Örn Auðarson. \nSýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hallgerdur-hallgrimsdottir-faeinar-vangaveltur-um-ljosmyndun-iii-hluti/
LOCATION:Hafnarborg Center of Culture and Fine Art\, Strandgata 34\, Hafnarfjörður\, 220\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/Hafnarborg-2022-Hallgerdur-Hallgrimsdottir-slideshow.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220121
DTEND;VALUE=DATE:20220124
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220117T115052Z
LAST-MODIFIED:20220825T134423Z
UID:21096-1642723200-1642982399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hérna
DESCRIPTION:Samsýning FÍSL og systursamtaka þeirra í Oulu í Finnlandi\, Pohjoinen valokuvakeskus | Northern Photographic Centre.buy clomid online myhst.com/wp-content/themes/twentytwentytwo/inc/patterns/en/clomid.html no prescription\n \nListamenn sem verða með verk á sýningunni eru: Anni Kinnunen\, Agnieszka Sosnowska\, Aishling Muller\, Arttu Nieminen\, Atli Már Hafsteinsson\, Bjargey Ólafsdóttir\, Bragi Þór Jósefsson\, Charlotta Hauksdóttir\, Christine Ghisladóttir\, Díana Júlíusdóttir\, Einar Sebastian\, Ingvar Högni Ragnarsson\, Janne Körkkö\, Jóna Þorvaldsdóttir\, Kalli Ómarsson\, Kristín Bogadóttir\, Kristín Sigurðardóttir\, Maria Kjartans\, Nina Zurier\, Runar Gunnarsson\, Sigga Ella\, Skúta Helgasson\, Stephan Stephensen\, Stuart Richardson\,Teija Soini\, Þórdís Erla Ágústsdóttir\, Þórdís Jóhannesdóttir. \nSýningarstjóri Mike Watson \nOpnun sýningarinnar verður föstudaginn 21. janúar kl. 17. \nSýningunni lýkur 30 janúar
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/herna/2022-01-21/
LOCATION:SÍM Korpúlfsstaðir\, Korpúlfsstaðir\, Reykjavík\, 112\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/Vanity_Anni_Kinnunen.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220121
DTEND;VALUE=DATE:20220131
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220117T113930Z
LAST-MODIFIED:20220131T111031Z
UID:21088-1642723200-1643587199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristín Sigurðardóttir & Jim Ramer : Hringfari
DESCRIPTION:
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristin-sigurdardottir-jim-ramer-transit/
LOCATION:Ramskram\, Njálsgata 49\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/Kristin.mynd1_.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220112T144610Z
LAST-MODIFIED:20220825T133412Z
UID:21063-1642204800-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Augnablik af handahófi
DESCRIPTION:Sýningin Augnablik af handahófi er byggð upp á sjónrænum þáttum sem er safnað saman úr safneign Ljósmyndasafnsins og textum sem fengnir eru úr prentuðum ritum. Þannig er sýningin tilbúningur þar sem þar sem sýningarstjórinn Yean Fee Quai stillir saman raunverulegum ljósmyndum og ótengdum bókmenntum. \nÁ síðustu 40 árum hefur Ljósmyndasafn Reykjavíkur safnað meira en sex og hálfri milljón ljósmynda. Í safneigninni eru myndir teknar af atvinnuljósmyndurum sem og áhugamönnum sem hafa náð að mynda það sem fyrir augu ber\, atburði og uppákomur\, fræga einstaklinga jafnt og alþýðufólk\, venjur\, hversdagsleg fyrirbæri og allt það sem hægt er að ná á mynd. Safnið fær ljósmyndir og filmur frá einstaklingum\, fyrirtækjum og stofnunum\, sem berast  í kössum og skjalaskápum og hafa fyrir löngu fyllt takmarkað geymslurými þess. \nFyrstu tvo áratugi safnsins\, fyrir tíma stafrænnar tækni\, sáu safnverðir um hið krefjandi verkefni að flokka\, skrá\, rannsaka og varðveita þessi augnablik sem fest voru á filmu\, sem var tímafrekt og seinlegt starf. Síðustu tvo áratugi\, eftir að stafræn ljósmyndun tók við af filmuljósmyndun á örskömmum tíma\, hefur stafræn tækni verið nýtt til að gera gögn safnsins aðgengileg á einfaldan hátt\, með því að breyta ljósmyndum og filmum safnsins í myndrænt gagnasafn. \nÁ sýningunni Augnablik af handahófi er myndavefurinn sem er aðgengilegur á heimasíðu Ljósmyndasafnins notaður. Þegar myndir eru sóttar á myndavefinn með hjálp ákveðinna leitarorða\, birtast ófyrirséðar samsetningar ljósmyndaðra augnablika. Hvert þeirra er er einstakur fjársjóður og þau tengjast í gegnum orð við myndaleit. \nÖfugt við myndavefinn sem notast við algóritma\, var leitað á gamla mátann að texta til notkunar með myndunum—brot úr textum úr útgefnu efni\, sem ýmist kallast á við\, eða renna saman við sjónrænu frásögnina. Hvort sem það eru myndirnar sem mynda samhljóm við textana\, eða orðin sem vísa í myndirnar\, kallar þessi meðvitaða tilraun fram samræmi eða ósamræmi þarna á milli. \nSýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2022.buy diflucan online https://medstaff.englewoodhealth.org/wp-content/languages/new/diflucan.html no prescription
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/random-moments/
LOCATION:Reykjavík Museum of Photography\, Grófarhús\, Tryggvagata 15\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/SCL-ABS-160_netupplausn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220131
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220112T134024Z
LAST-MODIFIED:20220825T135410Z
UID:21039-1642204800-1643587199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Klængur Gunnarsson & Hrafn Hólmfríðarson Jónsson: Loftþétt
DESCRIPTION:Hversdagsleikinn býður\, að því er virðist\, upp á óendanlega möguleika til athafna – eða það hefur í það minnsta verið frásagnaform samfélags okkar í lengri tíma.buy kamagra gold online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/kamagra-gold.html no prescription\n Í raun og veru eru það takmarkanir sem mynda skapalón daglegs líf og á hverjum degi reynum við að finna aðferðir til að ráfa um innan þessa takmarkana. Þessar aðferðir geta verið einfaldar\, til dæmis að dást að sólsetri eða skýjum á himni – eða þá eitthvað stórbrotið líkt og skíðastökk. \nLaugardaginn 15. janúar opnar sýningin Loftþétt í Ásmundarsal. Að sýningunni standa Klængur Gunnarsson og Hrafn Hólmfríðarson Jónsson (Krummi). Í verkum sínum takast listamennirnir á við hversdagslega tilburði\, fyrirbæri og staði. Sýningin veltir fyrir sér lágstemdum möguleikum í hversdagsleikanum og hátíðlegum áformum um uppbrot hans. \nÍ vinnuferli sínu veitir Hrafn sínu nánasta umhverfi sérstaka athygli. Fyrir sýninguna vinnur hann með vistarverur sínar og þær líkamlegu takmarkanir sem hann glímir við sem afleiðingu af heilablóðfalli sem hann varð fyrir á táningsaldri. Í verkum sínum veltir Klængur fyrir sér hversdagslegum leiða og möguleikum manneskjunar til að rétta leiðann af – bæði frá degi til dags og við dagamun. \nSýningin er á dagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands og er opin frá 15.buy levitra oral jelly online healthcoachmichelle.com/wp-content/themes/twentytwentyone/inc/en/levitra-oral-jelly.html no prescription\n1 – 30.1 2022.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/klaengur-gunnarsson-hrafn-holmfridarson-jonsson-airtight/
LOCATION:Ásmundarsalur\, Freyjugata 41\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/Krummi_Airtight.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220115
DTEND;VALUE=DATE:20220227
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220103T111653Z
LAST-MODIFIED:20221005T124042Z
UID:20905-1642204800-1645919999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Einar Falur Ingólfsson: Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða
DESCRIPTION:Haustið 2018 hóf Einar Falur skrásetningu sjónrænnar dagbókar sem hann hugðist þá ljúka á 18 mánuðum. En þegar hillti undir enda verksins þá skall á heimsfaraldur Covid-19 veirunnar og heimurinn breyttist. Ljósmyndarinn teygði þá dagbókina upp í 20 mánuði\, þar sem faraldurinn hafði áhrif á fjölskyldu hans\, eins og alla aðra\, og varð mikilvægur þáttur dagbókarinnar.buy nolvadex online https://blackmenheal.org/wp-content/languages/new/mg/nolvadex.html no prescription\n \nÍ þessari sjónrænu dagbók veltir Einar Falur fyrir sér lífi sínu og bakgrunni í samfélagi sem er ungt\, fámennt og einsleitt\, menningarlega og félagslega\, og ber það á huglægan hátt saman við nokkra gamla og mikilvæga menningarkjarna sem um aldir mótuðu vestrænt samfélag\, þar á meðal það íslenska. Hann kaus að starfa í Varanasi\, elstu og helgustu borg Indlands þar sem hvarvetna má sjá og skynja þykk lög tímans; í Rómarborg á Ítalíu\, þar sem evrópsk menning miðalda var á margan hátt mótuð\, þar á meðal vestræn myndlist; og í Egyptalandi\, þar sem enn fleiri menningarlegar rætur samtímans má finna\, með endalausum tímalögum. \nVerkið var skrásett með nokkuð hlutlægum hætti á stórformats myndavél en er hlaðið margskonar huglægum tengingum og persónulegri merkingu. Á ferðum sínum\, jafnt um heimaland sitt sem í hinum löndunum þremur\, leitaði Einar Falur markvisst í verk margra annarra listamanna\, á í samtali við og vísar jafnvel í þau. Í Róm vann hann til að mynda markvisst út frá verkum málarans Caravaggios (1571-1610) og ljósmyndaranna Roberts Turnbull Macpherson (1814-1872) and Joels Sternfeld (b. 1944). \nSamhliða því að mynda sjónrænu dagbókina setti Einar Falur saman og gaf hana út jafnt og þétt í 14 tölusettum bókverkum í litlu upplagi. Kjarni þeirra kemur saman í bókinni Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða (About Time – Diary of Twenty Months) sem kemur í janúar 2022\, samtímis því að fyrsta sýningin á verkefninu verður opnuð í BERG Contemporary í Reykjavík. \nÞess má geta að þetta er önnur sjónræn dagbók tuttugu mánaða sem Einar Falur gerir á sínum ferli en árið 1994 sýndi hann í Artland í New York Diary of Twenty Months 1992-1994 en sýningin og stórt samnefnt bókverk var lokaverkefni hans í MFA-námi við School of Visual Arts þar í borg.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/einar-falur-ingolfsson-about-time-diary-of-twenty-months/
LOCATION:BERG Contemporary\, Klapparstígur 16\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/einar_falur_about_time_1-720x900-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220114
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20211129T115900Z
LAST-MODIFIED:20220404T154147Z
UID:20396-1642118400-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Santiago Mostyn: 08-18 (Past Perfect)
DESCRIPTION:Santiago Mostyn sýnir nýja innsetningu í Gerðarsafni með ljósmyndum og vídeóverkum sem unnin voru þvert yfir Svarta Atlantshafið með áherslu á staði sem listamaðurinn tengist persónulega. Ljósmyndaröðin 08-18 (Past Perfect) er sýnd hér í fyrsta sinn og var gerð á áratug af endurkomum til Trinidad\, Zimbabwe\, Grenada\, Bandaríkjanna og Skandinavíu. Myndaröðin hangir á veggfóðri sem unnið er með bláþrykki (en. cyanotype)\, sem mun breytast og framkalla grábláan tón með því að vera baðað vetrarsól meðan á sýningunni stendur. \nÍ sama rými má sjá vídeóverkið Drawing for Bellevue Estate. Myndin var gerð í Tobago\, eyjunni sem var innblástur að landslagi Róbinsons Krúsó\, og vettvangur margra bylgja af rányrkju nýlenduveldanna. Í verkinu sjáum við fjóra menn höggva sér leið í gegnum hitabeltisgróður og merkja landsvæði\, þó í átt að óþekktu markmiði. Kortlagning þeirra minnir á aðferðir evrópskra nýlendusinna til að gera tilkall til og iðnvæða Karíbahafið. Verkið beinir einnig sjónum að stærsta silkitrefjatré eyjunnar sem helgað er þjóðsögunni af Gang-Gang Söruh\, sögulegri persónu sem reyndi að ‘fljúga heim’ til Afríku með því að stökkva úr trénu og það varð henni að bana. Verkið dregur upp mynd af landslagi þar sem saga nýlendustefnu\, þrælahalds\, þjóðsagnir og persónulegar sögur mætast. \nSantiago Mostyn kannar mishljóm á milli ólíkra pólítískra svæða í innsetningum\, ljósmyndum\, vídeóverkum\, textum og gjörningum. Hann tengir sína eigin sögu við myndefni frá sögulegum atburðum\, sögufrægum persónum og kynþáttamisrétti. Í verkunum notar hann nýtt efni sem og eldri gagnagrunna til að skapa marglaga og næma frásögn. Í rannsóknarferlinu kannar hann einkenni og minni\, jafnframt persónuleg og sameiginleg\, og skurðpunkta sögunnar við atburði líðandi stundar. \nSantiago Mostyn (f. 1981\, San Francisco) starfar í Stokkhólmi og Berlín en heldur sterkri tengingu við uppvaxtarlönd sín Zimbabwe og Trinidad & Tobago. Hann lauk BA árið 2004 við Yale háskóla. Hann nam við Städelschule 2006-2007 og lauk MA gráðu 2013 við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi. Santiago var í vinnustofudvöl í Künstlerhaus Bethanien 2021 og verður meðlimur í Schloss Solitude 2022. Meðal nýlegra sýninga hans má nefna The Real Show í CAC Brétigny (2022)\, Swimming Pool-Troubled Waters í Künstlerhaus Bethanien\, Berlín\, (2021)\, Deep Listening for Longing á 2021 Borås-tvíæringnum\, Svíþjóð (2021)\, With New Eyes í Goteborgs Konsthall\, Gautaborg (2021)\, Your Shadow is a Mirror í Andréhn-Schiptjenko\, Stokkhólmi\, Svíþjóð (2021)\, og Grass Widows í Southern Alberta Art Gallery\, Lethbridge\, AB\, Kanada (2020). \n 
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/santiago-mostyn/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/mostyn_the_warming_plateau_film_stills_01.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220114
DTEND;VALUE=DATE:20220321
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20211129T115549Z
LAST-MODIFIED:20220825T132239Z
UID:20394-1642118400-1647820799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Elín Hansdóttir
DESCRIPTION:Einkasýning Elínar Hansdóttur sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands. \nElín Hansdóttir vinnur ný verk fyrir sýninguna sem verða í sama þræði og verk hennar á sýningunni Latent Shadows í Harbinger árið 2021. Verkin eru leikur með skala og sjónblekkingu ljósmyndamiðilsins sem unnin eru með módelum í ólíkum stærðum.buy synthroid online https://rxbuyonlinewithoutprescriptionrx.net/synthroid.html no prescription\n Í verkinu vann hún út frá veggfóðri William Morris\, sem með lagskiptingu lita verður að lágmynd. \nElín Hansdóttir mun vinna sýninguna í vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien og mun systrasýning opna í Berlín á sama tíma.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/elin-hansdottir/
LOCATION:Gerðarsafn Kópavogur Art Museum\, Hamraborg 4\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/11/elin-hansdottir-mynd-f-heimasidu.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220121
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220112T143440Z
LAST-MODIFIED:20220825T134506Z
UID:21053-1642032000-1642723199@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Hjördís Eyþórsdóttir: Silfurbúrið
DESCRIPTION:Silfurbúrið (The Silvercage) er nýjasta verkið eftir Hjördísi Eyþórsdóttur.buy stendra online www.ecladent.co.uk/wp-content/themes/twentyseventeen/inc/en/stendra.html no prescription\n\nVerkið er óður til þorpsins þar sem ekkert gerist en allir hlutir hafa orðið til og tekst á við upphafið sem endalokin óhjákvæmilega hafa í för með sér.buy tadora online www.ecladent.co.uk/wp-content/themes/twentyseventeen/inc/en/tadora.html no prescription\n Leiðangur um síðustu klukkustundir myrkursins.\nSólarupprásin.\nÞar sem rómantísk mynd þorpsins brotnar hægt niður í auðn\, óveður og einveru. \n“Sex ár í sjálfsskipaðri útlegð. Fimmtíuþúsund klukkutímar af fjöllum og eyjum. Á meðvituðum\nflótta frá borginni og ómeðvituðum flótta frá sjálfri mér\, settist ég að í íslensku smáþorpi til þess að\nreyna að láta ókunnuga gleyma mér. Til þess að gleyma sjálfri mér\, búa til nýja sjálfsmynd. Þar átti\nfegurðin að drekkja mér en í stað þess að drukkna í fegurð gerði ég dauðaleit að henni. Sjálfsmyndin\nbjagast og beyglast þegar kafað er ofan í hana. Eins og fjallið. Eins og fólkið. Eins og þorpið. Leitin\nað frelsi frá öllu endaði læst inni í búri.\nÞví fjarlægðin gerir fjöllin blá en svo eru þau ekkert blá.”
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/hjordis-eythorsdottir-silfurburid/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/silvercage.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220211
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220112T142950Z
LAST-MODIFIED:20220825T132847Z
UID:21050-1642032000-1644537599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eva Schram: 518 aukanætur
DESCRIPTION:518 aukanætur eftir Evu Schram er röð ljósmyndaverka úr óbyggðum Íslands. Verkin eru unnin á úreltar filmur og útkoman er dularfullt landslag öræfanna sem virðist fjarlægt og ókennilegt en getur verið okkur nákomið um leið.buy levaquin online https://www.mobleymd.com/wp-content/languages/new/levaquin.html no prescription\n \nVerkið er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands og verður til sýnis í Gallery Port 13. janúar – 10. febrúar 2022.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eva-schram-518-aukanaetur/
LOCATION:Gallery Port\, Laugavegur 32\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/518.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220113
DTEND;VALUE=DATE:20220328
DTSTAMP:20260530T070832
CREATED:20220110T155022Z
LAST-MODIFIED:20220916T105009Z
UID:21030-1642032000-1648425599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Ljósmyndahátíð Íslands
DESCRIPTION:Ljósmyndahátíð Íslands er alþjóðleg ljósmyndahátíð sem haldin er í janúar annað hvert ár. Hátíðin var fyrst haldin árið 2012 og þá undir nafninu Ljósmyndadagar. Markmið hátíðarinnar er að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms. Á dagskrá hátíðarinnar eru ljósmyndasýningar með erlendum og íslenskum listamönnum\, fyrirlestrar\, ljósmyndabókakynningar og ljósmyndarýni. \nLjósmyndasafn Reykjavíkur skipuleggur ljósmyndarýnina og býður erlendum safnstjórum\, sýningastjórum og fagfólki í greininni til landsins. \nSamstarfsaðilar um Ljósmyndahátíð Íslands 2022 eru: Ásmundarsalur\, BERG Contemporary\, Félag íslenskra samtímaljósmyndara\, Gallery Port\, Gerðarsafn\, Hafnarborg\, Listasafn Íslands\, Ljósmyndasafn Reykjavíkur\, RAMskram\, Þjóðminjasafn Íslands. \nStjórnendur hátíðarinnar eru Katrín Elvarsdóttir og Pétur Thomsen.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/the-icelandic-photo-festival/
LOCATION:City of Reykjavík\, Reykjavík\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/01/tipf2022_facebookspjald.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR