BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Icelandic Art Center - ECPv6.1.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://old.icelandicartcenter.is
X-WR-CALDESC:Events for Icelandic Art Center
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20210101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230506
DTEND;VALUE=DATE:20230522
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20230511T153001Z
LAST-MODIFIED:20230530T121616Z
UID:30909-1683331200-1684713599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Opnun
DESCRIPTION:Samsýning tólf listamanna\, sem Ragga og Magga Weisshappel hafa tekið tali í Opnun II í Ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöldum í vor. \nBirgir Snæbjörn Birgisson\, Erla Þórarinsdóttir\, Hekla Dögg Jónsdóttir\, Hildigunnur Birgisdóttir\, Kristján Guðmundsson\, Melanie Ubaldo\, Páll Haukur Björnsson\, Pétur Magnússon\, Ragna Róberts\, Rakel McMahon\, Sigurður Guðjónsson og Sigurður Guðmundsson.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/opnun-y-gallery/
LOCATION:Y Gallery\, Hambraborg 12\, Kópavogur\, 200\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/05/343339513_1589494401456499_304102351360448798_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20230120
DTEND;VALUE=DATE:20230326
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20230119T131215Z
LAST-MODIFIED:20230119T131215Z
UID:28844-1674172800-1679788799@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Á víð og dreif
DESCRIPTION:Listasafn Ísafjarðar býr yfir ágætri safneign sem telur um 180 verk. Hluti af verkunum má víða sjá prýða veggi í opinberum byggingum Ísafjarðarbæjar. Verkin hafa hangið á sínum stöðum í tugi ára og mörg hver lent í gini hversdagsins og horfið inn í undirmeðvitund almennings. Á þessari fyrstu sýningu ársins 2023 verða nokkur af verkunum færð í sviðsljósið á sýningu í sal Listasafnsins. Sýningin er áminning um að líta upp úr amstri hversdagsins og njóta þess sem við eigum. \nValin voru 6 málverk eftir 4 þjóðþekkta listamenn síðustu aldar; Jóhannes S. Kjarval\, Karl Kvaran\, Kristján Davíðsson og Nínu Tryggvadóttur ásamt einum skúlptúr eftir hugmyndalistamanninn Kristján Guðmundsson. Innbyrðis eru listamennirnir ólíkir en samtenging verkanna er óhlutbundin myndbygging þar sem skúlptúr Kristjáns Guðmundssonar myndar brú frá liðnum tíma inn í samtímann. \n\nRannveig Jónsdóttir\, sýningarstjóri
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/a-vid-og-dreif/
LOCATION:Ísafjörður Art Museum\, Safnahúsið Eyrartúni\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2023/01/Screenshot-2023-01-19-at-11.33.02.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220604
DTEND;VALUE=DATE:20220905
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20220530T121736Z
LAST-MODIFIED:20220905T132859Z
UID:23434-1654300800-1662335999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eruð þið ánægð ef þið megið spyrja um eitthvað?
DESCRIPTION:Tengslamyndun milli austurs og norðurs. \nÁ sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar var framúrstefnulistamönnum frá austantjaldsríkjunum mikið kappsmál að tengjast hinum vestræna listheimi. \nÁ sama tíma var vettvangur íslenskrar samtíðarlistar að opnast upp\, m.a. fyrir stefnum á borð við flúxus og póst-list. Það kom til vegna ört stækkandi tengslanets listamanna og gallería á borð við SÚM og listagalleríð að Suðurgötu 7. Þessi tvíhliða tilraun að auknum tengslum leiddi svo til fjörlegra samskipta og nokkurra sýninga ungverskra listamanna hér á landi. \nVið munum varpa ljósi á vinnubrögð listamannanna við þessa tengslamyndun og sýningagerð á Íslandi\, á tíma þar sem strangar hömlur voru til staðar á ferða- og tjáningarfrelsi í Austur-Evrópu. \nSamvinna íslenskra og unverskra listamanna varð uppspretta spaugilegra viðburða sem vöktu fólk til umhugsunar á sama tíma og þeir báru tíðum vott um sjálfshæðni. \nSumarsýning Listasafns Árnesinga 2022 verður endurflutningur þessara viðburða ásamt nýrri verkum eftir sömu listamenn sem tóku þátt í þessu samstarfi á sínum tíma og blésu með því lífi í íslenska samtímalist á áttunda áratug síðustu aldar. \nListamenn: \nEggert Pétursson  \nEndre Tot  \nGábor Attalai  \nGéza Perneczky  \nIngólfur Arnarsson \nKristján Guðmundsson  \nKees Visser\n \nRúrí  \nSigurður Guðmundsson \n  \n  \n\nSýningarstjóri: Zsóka Leposa \nAðstoðarsýningarstjóri: László Százados
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/are-you-glad-if-you-can-ask-something/
LOCATION:LÁ Art Museum\, Austurmörk 21\, Hveragerði\, 810\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/Screenshot-2021-11-15-at-13.20.06.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20220428
DTEND;VALUE=DATE:20230203
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20220530T115637Z
LAST-MODIFIED:20230131T103330Z
UID:23426-1651104000-1675382399@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Viðnám
DESCRIPTION:Sýningin Viðnám er þverfagleg sýning sem brúar bilið milli myndlistar og vísinda. Verkin á sýningunni eru lykilverk í eigu Listasafns Íslands sem skapa áhugavert samtal myndlistarinnar við vísindaleg málefni og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. \nLíta má á orðið viðnám út frá eðlisfræði. Það er samheiti orðsins rafmótstaða\, sem er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum. Viðnám getur einnig vísað til viðspyrnu við neyslu sem ábyrgir þegnar verða að tileinka sér. Auk þess vísar viðnám til þeirrar mikilvægu mótstöðu sem við verðum að beita gegn hlýnun jarðar í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Listir gefa fólki tækifæri til að verða fyrir áhrifum\, því listir geta snert við tilfinningum. Listaverk geta vakið upp spurningar sem hvetja áhorfendur til að spyrja sig knýjandi spurninga. Listræn nálgun getur breytt því hvernig fólk upplifir heiminn í kringum sig. Listamenn vinna auk þess með þætti eins og smekk\, skynjun\, tilfinningar\, sannfæringu\, gildi og sjálfsmyndina sem er mikilvæg í samfélagi í mótun. List er líka fær um að efla huga mannsins og sýna áhorfandanum fjölbreytt  sjónarhorn og fá hann til að endurskoða eigin hugmyndir um heiminn. Að fjalla um málefni náttúrunnar frá ólíkum  hliðum auðveldar breytingar og þróun  gildismats sem er nauðsynlegt í ferðalaginu að sjálfbæru samfélagi. Þar sem allar aðstæður eru einstakar hugsum við hlutina til enda\, endurspeglum og byggjum upp nýjan skilning. \nÞað er ljóst að það krefst sameiginlegs átaks að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2030.  Það felur í sér að samþætta\, virkja og skapa fjölbreytta þekkingu og sjónarmið. Það krefst virkrar þátttöku allra og fjölbreyttra nálgana. Ósjálfbær ofneysla almennings er stórt vandamál í samfélaginu. Við verðum að taka neysluvenjur okkar til endurskoðunar og veita ofneyslu viðnám. \nEkkert í heiminum stendur eitt og sér. Sérhver hlutur er hlekkur í keðju og er þannig tengdur öllum hinum hlekkjunum. Þessi keðja alheimsins verður að haldast órofin. Keðjuverkunin sameinar alla hluti og ferli í eina heild og skapar þannig forsendur fyrir jafnvægi. Allir hlutir í alheiminum\, þar á meðal mannslíkaminn\, eru samsettir úr orku\, sem tengist og kemur saman í lokuðum hringrásum. Lífríki jarðarinnar er háð keðjuverkandi öflum sem tengjast saman eins og gangverk tannhjóla. Ef eitt tannhjólanna verður fyrir varanlegu hnjaski\, þá raskast jafnvægið sömuleiðis varanlega. Orka er undirstaða alls efnis og hefur áhrif á allt annað. Sú orka sem skapar eina manneskju\, skapar einnig allar aðrar lífverur. Orka er alltaf flæðandi og síbreytileg. Hraðinn er tengdur þessari orku og er einnig breytilegur. Við erum öll samtengd og tilfinningar okkar skapa ómun sem hefur áhrif á allt og alla aðra. Öll orkan á jörðinni byggir á sambærilegum lögmálum þó svo að hún geti haft skýr sérkenni. Tengingar\, óreiða\, regla\, hrynjandi\, síbreytileiki\, óendanleiki og samtengingar eru allt eiginleikar sem tengjast orkusviði jarðar. \n  \n\n\n\n\n\n\n\n\nListamenn sem eiga verk á sýningunni \n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\n\nDavíð Örn Halldórsson \nDodda Maggý \nEirún Sigurðardóttir \nErla Þórarinsdóttir \nEyborg Guðmundsdóttir \nFinnur Jónsson \nGerður Helgadóttir \nGuðmunda Andrésdóttir \nJóhannes Kjarval \nKarl Kvaran \nKristinn Hrafnsson \nKristján Guðmundsson \nMagnús Helgason \nRansu \nSigrid Vadingojer \nSigurður Árni Sigurðsson \nTumi Magnússon \nÞorvaldur Skúlason \n  \n\n\nSýningarhöfundur: Ásthildur Jónsdóttir \n\nSýningarteymi: Ásthildur Jónsdóttir\, Dagný Heiðdal\, Guðrún Jóna Halldórsdóttir\, Ragnheiður Vignisdóttir\, Harpa Þórsdóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/resistance-interplay-of-art-and-physics/
LOCATION:The National Gallery of Iceland\, Fríkirkjuvegur 7\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2022/05/resistance.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210925
DTEND;VALUE=DATE:20211014
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20210927T101842Z
LAST-MODIFIED:20220916T111126Z
UID:19361-1632528000-1634169599@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Kristján Guðmundsson
DESCRIPTION:Laugardaginn 25. september 2021\, sama dag og kosið verður til alþingis\, opnar Kristján Guðmundsson sýningu í Gallerí Úthverfu í samvinnu við Slunkaríki á Ísafirði og Edinborgarhúsið. Kristján opnaði fyrst sýningu í Slunkaríki á kosningadegi árið 1987 og síðan þá hefur skapast hefð fyrir því að listamaðurinn komi vestur með sýningu þegar kosið er til alþingis. \nKristján Guðmundsson (1941) hóf listferil sinn snemma á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann varð stofnfélagi í SÚM – hópi ungra framsækinna listamanna sem vann með nýja nálgun sem þá var að ryðja sér til rúms í myndlistinni. \nHann bjó í Hollandi á áttunda áratugnum og komst þá í nánari tengsl við þá strauma og stefnur sem voru ráðandi í listheiminum á þeim tíma. Kristján hefur búið á Íslandi síðan 1979. Hann er í hópi virtustu listamanna þjóðarinnar\, list hans hefur verið lýst þannig að hún er bæði í takt við þær hefðir sem ráðið hafa ferðinni í vestrænni samtímalist á seinni hluta síðustu aldar og er jafnframt merkilegt innlegg í margbrotið tímabil abstrakt- og konsept-listar eftirstríðsáranna hér á landi. \nVerk hans einkennast af einfaldri og formfastri framsetningu í bland við ljóðrænu þar sem iðulega bregður fyrir heimspekilegri nálgun og djúpri og ísmeygilegri kímni. Hann var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 1993 og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir list sína\, m.a. sænsku Carnegie verðlaunin. \nSýning Kristjáns opnar kl. 16 laugardaginn 25. september og er opin fimmtudaga-föstudaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi. \nUppbyggingarsjóður Vestfjarða og Ísafjarðarbær styrkja rekstur Gallerís Úthverfu og Slunkaríkis.
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/kristjan-gudmundsson/
LOCATION:Gallerí Úthverfa\, Aðalstræti 22\, Ísafjörður\, 400\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/09/kristjan-g.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210327
DTEND;VALUE=DATE:20210920
DTSTAMP:20260530T033338
CREATED:20210819T135121Z
LAST-MODIFIED:20220905T135511Z
UID:18462-1616803200-1632095999@old.icelandicartcenter.is
SUMMARY:Eilíf endurkoma
DESCRIPTION:Á þessari viðamiklu sýningu mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma. Hér er verkum hans teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár. \nSkömmu eftir andlát Kjarvals ritaði Björn Th. Björnsson (1922-2007) listfræðingur grein þar sem hann fjallar um framlag Kjarvals til íslenskrar listasögu og segir að verk hans séu „aldrei í einum tíma stödd\, heldur jafnan íþætt endurvöktum minnum“. Hér má lesa þá miklu virðingu sem Íslendingar hafa borið fyrir list Kjarvals en líka þá staðreynd að áhorfendur hvers tíma koma að verkum hans með eigin reynslu og viðhorf. Áhrif Kjarvals eru ótvíræð og á sýningunni eru áhrif hans á íslenska listamenn dregin fram í dagsljósið. Þau geta sýnt sig með ýmsu móti og verið augljós og afgerandi eða þá að þau birtast með óræðari hætti og án ásetnings. \nAlgengasta og ástkærasta myndefni Kjarvals var íslensk náttúra og landslag en auk þess gerði hann mikið af mannamyndum og fantasíum þar sem verur og fígúrur skjóta upp kollinum og ýmis náttúrufyrirbrigði eru persónugerð. Verk listamanna á sýningunni eru unnin í fjölbreytta miðla og þar má sjá ólíka nálgun að þessum viðfangsefnum. \nKjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og hefur verið síðari kynslóðum listamanna fyrirmynd og innblástur. Persóna hans og lífsverk svífur yfir vötnum og er það ekki að ósekju. Hjá Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum eru verk Kjarvals varðveitt og rannsökuð. Valin verk hans eru alltaf til sýnis og settar upp fjölbreyttar sýningar sem varpa ljósi á feril hans á breiðum grunni. Gjarnan eru dregin fram verk úr safneign eða sérsýningar haldnar þar sem afmarkaðir þættir í ferli hans og listsköpun eru rannsakaðir. Á þessari sýningu eru verk Kjarvals sett í samtal við yngri verk starfandi listamanna. Sýningin býður því upp á að kynnast enn betur einum merkasta listamanni þjóðarinnar en einnig verkum starfandi listamanna í fremsta flokki sem hafa sett mark sitt á íslenska og alþjóðlega myndlistarsenu. \nUppbrot sjónsviðsins birtist okkur í verkum Ólafs Elíassonar. Í fyrsta sinn á Íslandi er sýnd röð málverka eftir Ragnar Kjartansson sem hann málaði í Eldhrauni og var innblásin af Kjarvalsverki sem Ragnar á sjálfur. Vídeóinnsetningin Lava&Moss eftir Steinu er meðal umfangsmeiri verka á sýningunni og ný málverk Eggerts Péturssonar eru til sýnis. \nFjölskyldur athugið! Bakpokar eru til láns í móttöku með ýmsum skemmtilegum verkefnum sem gera heimsókn á sýninguna forvitnilega og spennandi! \n\nListamenn:\n\n\n\n\n\nJóhannes S. Kjarval\n\n\n\n\n\n\n\n\nEggert Pétursson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEgill Sæbjörnsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nEinar Garibaldi Eiríksson\n\n\n\n\n\n\n\n\nGjörningaklúbburinn\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Einarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nGuðrún Kristjánsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nHrafnkell Sigurðsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Elvarsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKatrín Sigurðardóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nKristján Guðmundsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nÓlafur Elíasson\n\n\n\n\n\n\n\n\nPáll á Húsafelli\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagna Róbertsdóttir\n\n\n\n\n\n\n\n\nRagnar Kjartansson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSigurður Guðjónsson\n\n\n\n\n\n\n\n\nSteina Vasulka\n\n\n\n\n\n\n\n\nSýningarstjórar:\n\nEdda Halldórsdóttir\nMarkús Þór Andrésson\nÓlöf Kristín Sigurðardóttir
URL:https://old.icelandicartcenter.is/exhibition/eilif-endurkoma/
LOCATION:Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir\, Flókagata 24\,\, Reykjavík\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://old.icelandicartcenter.is/wp-content/uploads/2021/08/eternal-recurrence.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR